Morgunblaðið - 08.09.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞROUNARSAMVINNA
PRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 27
Þróunarsamvinnustofnun styður starfsemi æskulýðssam-
taka í einu af fátækrahverfum Maputo
BÖRNIN í Bairro Aeroporto.
Menntun og breytt
hugarfar unga fólksins
mikilvægast
í FÁTÆKRAHVERFINU Bair-
ro Aeroporto í Maputo, höfuð-
borg Mósambík, hefur Þróunar-
samvinnustofnun undanfarin
misseri stutt við bakið á æsku-
lýðssamtökunum Arco Iris, eða
Regnboganum. Markmið Arco
Iris er að aðstoða börn og ung-
linga, sem hafa lent utan skóla-
kerfisins, meðal annars með
starfsmenntun, að stofna fé-
lagsmiðstöð og hvetja unglinga
í hverfinu til þátttöku í íþrótt-
um, listiðkun og umhverfis-
vernd.
Bairro Aeroporto er u.þ.b.
20.000 manna hverfí við alþjóða-
flugvöllinn í Maputo og varð eins
og mörg önnur fátækrahverfí
borgarinnar til þegar fólk flúði
þangað af landsbyggðinni á tíma
borgarastyrjaldarinnar í Mósam-
bík. í litlum bárujárns- eða strá-
húsum búa gjarnan átta til tíu
manna stórfjölskyldur saman, án
rennandi vatns eða eiginlegs
gatnakerfís, enda telst svæðið
óskipulagt.
Islendingar fjármagna
byggingu félagsmiðstöðvar
ÞSSÍ hefur reynt að aðstoða
Arco Iris við að framkvæma
eigin hugmyndir, fremur en að
beina samtökunum inn á
ákveðnar brautir, að sögn
Ágústu Gísladóttur, sem lagt
hefur samtökunum lið. Stofnun-
in hefur meðal annars lagt til
verðlaun til þeirra, sem tekið
hafa þátt í íþróttakeppni, sund-
föt handa þeim sem sækja
sundkennslu, efni í búninga
handa unglingum sem hafa lagt
stund á mósambíska dansa og
kostað smiði á hefðbundnum
afrískum trumbum, sem notað-
ar eru í tóulistarnámi. Þá hefur
náðst samkomulag um að ÞSSÍ
muni leggja fram fé til að unnt
verði að reisa félagsmiðstöð
fyrir samtökin. Ágústa segir að
upphaflega hafi átt að reyna að
finna eldra húsnæði, sem gera
mætti upp, en það hafi reynzt
ókleift og því verði líkast til
reist nýbygging, „engin höll en
þó það sem nauðsynlegt er til
að hafa aðstöðu bæði fyrir
fræðslu og menningarstarf-
semi.“
Kynnti sér félagsmiðstöðvar
í Reykjavík
Stuðningur stofnunarinnar
hefur meðal annars verið í því
AÐSTÆÐURNAR í fátækra-
hverfínu eru víða ömurlegar.
Þessi ungi maður, sem var iðju-
laus og langt frá því að vera
allsgáður, er væntanlega ekki
sú fyrirmynd, sem forsvars-
menn Arco Iris vilja sýna ung-
Iingunum í hverfinu.
fólginn að einum af forystu-
mönnum samtakanna, Josua
Mavelane, var boðið til Islands í
fyrra og kynnti hann sér starf
félagsmiðstöðva í Reykjavík.
„Ég get vonandi nýtt reynslu
mina frá íslandi til að vinna
með ungu fólki hér og kenna
því að gera hlutina á réttan
hátt,“ segir Mavelane. „Unga
fólkið er framtíð þessa lands og
mikilvægast af öllu er að það
fái menntun og að hugarfarið
breytist."
A meðal verkefna Arco Iris
hefur verið að skipuleggja
hreinsun á nokkru af þeim
ókjörum af rusli, sem hrúgast
upp í fátækrahverfinu. „Það
er hluti af samfélagslegri
ábyrgð ungs fólks að vinna
með borgarstofnunum að því
að hreinsa umhverfið,“ segir
Mavelane.
Hann segir að stuðningur
Þróunarsamvinnustofnunar ís-
lands hafi greitt mjög götu
samtakanna. „Við erum með
mikið af hugmyndum, en ef
enginn er til að styðja við bakið
á okkur, einkum með fjárfram-
lögum, er engin leið að koma
þeiin í framkvæmd," segir Ma-
velane.
Morgunblaðið/Ólafur Þ. Stephensen
I OPINBERRI heimsókn sinni til Mósambík skoðuðu Ilalldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra og Siguijóna Sigurðardóttir m.a. Iistsýningu,
sem Arco Iris setti upp þeim til heiðurs. Einnig dönsuðu krakkarnir,
sem stunda nám í mósambískum dönsum, fyrir ráðherrahjónin.
...breytist með
einu handtaki í....
Amerísku svefnsófarnir eru frábær lausn þegar
sameina þarf fallegan sófa og gott rúm.
cÆf.
urvt
ar mttémz wmMé
mgiiám*
Wéré fté 79ÆMl'>-
Raðgreiðslur í
ogr<
allt ao 36 mánuði
; “CE
velkomin
HÚSGAGNAHÖLUN
Bfldshöfðl 20-112 Rvík - S:510 BOOO