Morgunblaðið - 08.09.1998, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 08.09.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 31 LISTIR Loftkastalinn flýgur milli landshluta Vinsældir og menn- ingarverðmæti ÞRJÓTARNIR úr söngleiknum Bugsy Malone sem Loftkastalinn tekur upp frá fyrra ári. FJÖGUR hjörtu. „Metnaður Loftkastalans er að fá ætíð bestu leikhús- listamennina hverju sinni,“ segir Baltasar Kormákur. FLUGFÉLAGIÐ Loftur, Loft- kastalinn öðru nafni, sýnir að vanda ný verk á leikárinu en tekur einnig upp verk frá fyrra ári. Aðrar uppá- komur eru boðaðar. Svik (Betrayal) eftir Harold Pint- er verður frumsýnt í október. Verk- ið er eitt vinsælasta verk hins kunna breska höfundar, en hefur ekki verið sýnt áður á íslandi. Gunnar Þor- steinsson þýðir Svik og leikstjóri er Baltasar Kormákur. Hattur og Fattur, nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Olaf Hauk Símon- arson í leikstjórn Þórhalls Sigurðs- sonar, verður frumsýnt um áramót. Hattur og Fattur eru persónur sem margir þekkja og eru mörg vinsæl barnalög tengd þeim, m.a. sungin á barnaheimilum landsins. Olafur Haukur leiðir nú fram þessar per- sónur eftir flmmtán ára fjai-veru. Mýs og menn, hið klassíska verk Johns Steinbecks, er í leikstjórn Guðjóns Pedersen. Verkið var sett síðast á svið fyrir tuttugu árum. Með hlutverk þeiiTa Georgs og Lennys fara þeir Hilmir Snær Guðnason og Jóhann Sigurðarson. Þetta verður jólafrumsýning Loft- kastalans. Hart barist Rent er nýr bandarískur söng- leikur eftir Jonathan Larson. Leik- urinn verður í nýjum sal við Loft- kastalann í samstarfi við Þjóðleik- húsið. Karl Ágúst Úlfsson þýðir, leikstjóri er Baltasar Kormákur og tónlistarstjóri er Jón Olafsson. Söngleikurinn var frumsýndur í New York 1995 og er lauslega byggður á óperu Puccinis La Boheme. Rent segir frá „ungu fólki sem berst við að njóta lífsins í hörð- um heimi eiturlyfja og á tímum al- næmis. Þátttakendur í söngleiknum verða flestir af fremstu leikhús- listamönnum þjóðarinnar og aldrei að vita nema einhverjar nýjar stjörnur komi fram á sjónarsviðið," segir í kynningu. Frumsýnt verður í mars. Bjallan er nýtt verk eftir Olaf Hauk Símonarson sem stendur til að frumsýna á Renniverkstæðinu á Akureyri samhliða því að frumsýna það í Loftkastalnum í samstarfi við Renniverkstæðið. Frumsýning er áætluð í lok ársins eða byrjun þess næsta. Um mánaðamótin september- október mun þekktur spænskur fla- mencohópur verða með nokkrar sýningar í Loftkastalanum. í hópn- um verður einn efnilegasti fla- mencodansari Spánverja, sígauninn Jairo sem er einungis sextán ára að aldri og talið er að muni jafnvel bráðlega skyggja á skærustu stjörnu flamencodansins, Joachim Cortes. Verk sem tekin verða upp frá fyrra ári eru Bugsy Malone eftir Al- an Parker, Fjögur hjörtu Ólafs Jó- hanns Ólafssonar og Listaverkið eftir Yasmina Reza. Eins og undanfarin ár verður Loftkastalinn vettvangur alls kyns listviðburða. I anddyrinu er Gallerí Loftkastalans þar sem myndlistar- maðurinn Arnór Bieldfeldt sýnir nú, en \ næsta mánuði verður kynnt rússnesk myndlist. Breið stefna Að sögn Baltasars Kormáks er stefna Loftkastalans metnaðarfull. Hún á að vera sem breiðust, höfða í senn til fjöldans og hafa menningar- legt gildi. Hann minnti á að fengnir hefðu verið til samstarfs sumir af bestu leikurum landsins eins og til dæmis Hilmir Snær og Jóhann Sig- urðarson í Músum og mönnum og í Svikum Guðrún Gísladóttir, Hjalti Rögnvaldsson og Jóhann Sigurðar- son. Baltasar Kormákur nefndi að Bjallan yrði frumsýnd samtímis á Akureyri og í Reykjavík, leikarar flygju á milli. Leitað hefði verið eftir samstarfi við Akureyrarbæ. Á sama tíma að ári verður sýnt í Vestmannaeyjum, enda hefur það „slegið rækilega í gegn“ að sögn Baltasars Kormáks. Önnur verk hafi verið sýnd á nokkrum stöðum í einu þannig að Loftkastalinn sé „eigin- lega sannkallað þjóðleikhús". Hvað erþað sem greinir Loftkast- alann frá öðrum leikhúsum? „Þetta er einkarekið fyrirtæki með þá stefnu að setja upp vinsælar sýningar og skilja eftir sig menning- ai'verðmæti. Við höfum leitað til fyr- irtækja um stuðning og verið vel tekið, en lítið sem ekkert fengið frá ríki og borg þrátt fyrir mikinn áhorfendafjölda. Við viljum hafa sem ódýrasta miða en stöndum illa að vígi í samkeppni við þá sem und- irbjóða miðaverð á þegar niður- greiddum miðum. Okkur fínnst tími til kominn að okkur verði sýnd verð- skulduð athygli opinbeiTa aðila.“ NÚ ER / AÐ HEFJAST /SKEMMTIIEGT TÍMABIL HJÁ OKKUR ;IW i EIN BESTA SYN SEM SETT HEFUR VERIÐ UPP! 11. og 19. sept. 2. og 9. okt. Frábærir söngvarar Sviðssetning: Egill Eðvarðsson. Hljómsveitarstjóri: Gunnar Þórðarson. Dansstjórn: Jóhann Örn. Hljóðstjórn: Gunnar Smári Helgason. ra® Kristján Gíslason Hulda .Gestsdóttir FRUMSYNING 26. SEPTEMBER FRANK SINATRA, BING CROSBY, DEAN MAFQIN, TONY BENNETT, NAT KING COLE, BILLIE HOUDAY, ELLA FITZQERALD *•** rfjj'setf*' ;o9 Hljómsveitin Cpsino oa Póll Oskar leika fyrir aansi ó effir. BENNY GOODMAN, GLENN MILLER, COUNT BASIE, LOUIS ARMSTRONG, SAMMI DAVIS JR. O.FL. O.FL. veist»»r- Wh' Hgssssv o“á"'1 veislusalir Fjölbreytt úrval matsebla. I Borðbúnaðar- og dúkaleiga.l Veitum persónulega róbgjöf vib undiHbún/ng.l Leigjum sali fyrir jólatrésskemmtanir, pantið tímanlega! 1 Framundqn q Broadwqy: 11. sept. - ABBA - Páll Oskar og Casino 12. sept. - Háskólaball, Nýdönsk leikur fyrir dansi 19. sept. - ABBA, Hljómsveitin SS Sól leikur fyrir dansi 25. sept. - Mono-ball: Skítamórall, leikur fyrir dansi 26. sept. - NewYork-NewYork, frumsýning, Páll Óskar-Casino 2.okt./9. okt - ABBA, Skítamórall leikur fyrir dansi 10. okt. - New York-New York, Páll Óskar og Casino 16. okt. - Alftagerðisbræður, Hljómsyeit Geirmundar 17. okt. - New York-New York, Páll Óskar og Casino 23. okt. - Hornfirðingar, Humarveisla í nóvember, Villibráðarkvöld, Fegurðarsamk. karla 27. nóv. - Skagfirðingar, Rökkurkórinn 28. nóv. - ABBA, byrjum á vinsæla jólahlaðborðinu 4/5 desember - ABBA og vinsæla jólahlaðborðið 11/12 desember - ABBA og vinsæla jólahlaðborðið 18/19 desember - ABBA og vinsæla jólahlaðborðið Gamlárskvöld - Stórdansleikur Nýárskvöld, Vínardansleikur íslensku óperunnar HÓTEL ÍSLANDI Miða- og borðapantanir í síma 533 1100. Verð 4.900, matur og sýning. 1.950, skemmtun. 950, dansleikur. Skoðaðu vefinn okkar, m.a.veisluþjónustuna, www.broadway.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.