Morgunblaðið - 08.09.1998, Síða 33

Morgunblaðið - 08.09.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 33 LISTIR Risavaxn- ar ráð- gátur KVIKMYNDIR Regnboginn, Laugar- ásbíó, Bíóhöllin „X FILES - THE MOVIE“ Leikstjóri Rob Bowman. Handrit Chris Carter, Frank Spitnitz. Tónlist Mike Oldfield, Mark Snow. Kvik- myndatökustjóri Ward Russell. Aðal- Ieikendur David Duchovny, GiIIian Anderson, Martin Landau, Armin Mueller-Stahl, Blythe Danner, Willi- am B. Davis, Terry O’Quinn. 121 mín. Bandarísk. 20th Century Fox. 1998. SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR Ráðgátur - The X Files byrjuðu með látum. Náðu á undraverðum hraða feikivinsældum um allan heim. Leikföng, geisladiskar með leikjum og tónlist, fjöldi bóka og blaða fylgdi í kjölfarið. Ráðgátur fjalla um hið óþekkta, leit manns- ins útfyrir sjóndeildarhringinn, mörk okkar jarðneska umhverfis. Gáfu á blómatíma sínum sígildum þáttum um hliðstætt efni, einsog I ljósaskiptunum - Twilight Zone, ekkert eftir. Döluðu um sinn niður í hvimleiða naflaskoðun á aðalper- sónunum, alríkisspæjurunum Fox Mulder (David Duchovny) og Dönu ScUlly (Gillian Anderson), en eru að hressast við aftur. Vinsælir sjónvarpsþættir enda oft á hvíta tjaldinu, með misjöfn- um árangri einsog gengur. Kvik- myndin verður að bæta nýju við, The X-Files - The Movie nær á köflum að rífa sig uppá risatjaldið, einkum í nokkuð tignarlegu loka- atriði á Suðurskautslandinu (að hætti The Thing), og eltingaleik sem minnir á frægt atriði með Cary Grant í Nort by Noi-th West. Þá sprengja tölvumenn með til- þrifum háhýsi í Dallas uppí heiðið hátt. Annars er myndin risavaxið sjónvarpsefni, enda standa sömu menn að hvorutveggju, þáttunum og kvikmyndinni. Leikararnir, tónskáldið Mark Snow, handrits- höfundurinn Chris Carter og síð- ast en ekki síst leikstjórinn, Rob Bowman. Hún minnir mann því oftast á uppruna sinn. Líkt og í þáttunum er farið frjálslega með raunveruleikann og takmörkuð virðing borin fyrir almennri skyn- semi. Það er hluti af sýningunni, og ekkert athugavert við það, myndin gerð fyrst og fremst fyrir aðdáendur þáttanna. Þeir geta vel við unað og öðrum þarf ekki að leiðast. Aldrei þessu vant fær maður einhvern botn í söguna, dulúðin svífur þó jafnan yfir vötnunum og persónurnar skemmtilega ábúðarmiklar sem fyrr. Því miður verður áhangend- um Mulders og Scully ekki að þeirri ósk sinni að sjá þau í einni sæmg, en þau eru komin að rúm- gaflinum. Hvað býður LIFRÆNT barninu br fcragS háUúruiiIistr, og eíilíerl &lHia3 Höfuðborgarsvæðið: Lyfja, Lágmúla 5 - Ingólfs apótek, Kringlunni - Laugarness apótek, Kirkjuteigi 21 - Garðsapótek, Sogavegi 108 - Hringbrautar apótek - Engihjalla apótek - Lyfja Setbergi - Rima apótek, Langarima 21 Hraunbergsapótek, Hraunbergi 4 - Lyfjakaup Mosfellsbæ Landsbyggðin: Stjörnu-apótek, Akureyri - Selfoss apótek - Hveragerðis apótek - Lyfjaútibú Þorlákshafnar - Apótek Blönduóss Apótek Vestmannaeyja - Apótek Ólafsvíkur - Apótek Austurlands, Seyðisfirði - Borgarness apótek - Akureyrar apótek Apótek Keflavíkur - Stykkishólms apótek - Rangár apótek, Hellu og Hvolsvelli - Húsavíkur apótek - Siglufjarðar apótek Árness apótek, Selfossi - Sauðárkróks apótek, - Dalvíkur apótek, - Akraness apótek - Nes apótek, Neskaupstað Sæbjörn Valdimarsson ttf/ct œuif ISLENSKUR MJOLKURIÐNAÐUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.