Morgunblaðið - 08.09.1998, Page 45

Morgunblaðið - 08.09.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 45« lausa stund kom hann gjarnan með söngfólk eða hljóðfæraleikara með sér og gerði stundirnar ógleyman- legar. Ekki gleymdi Áslaug því að hér var á ferðinni kh’kjulegt staif, þar sem helgistundin átti sinn fasta sess, ritningarlestur og bæn. Þegar ég hélt til starfa á Seltjarn- arnesi teygðist á tengslunum við mína kæru vinkonu Áslaugu, en þeg- ar við hittumst og þá oftast á kirkju- legum vettvangi var einatt eins og að hitta bernskuvinkonu. Þar voru þræðir á milli, sem ekki slitnuðu. Áður en ég hélt af landi brott í ágúst síðastliðnum var ég svo lánsöm að þræðirnir okkar gömlu styrktust á ný. í júní greindist Ás- laug með alvarlegan sjúkdóm. Þessa tvo mánuði fékk ég að kynnast því fyrir alvöru hversu gífurlega þýð- ingu trúarstyrkur hennar hafði í sjúkdómsstríðinu. Hún var æðrulaus og róleg. Hún tók örlögum sínum eins og sannri hetju sæmir. Þennan tíma var líka ómetanlegt að sjá hvernig dætur hennai- og barnabörn stóðu um hana eins og skjaldborg. Þegar Áslaug kvaddi þennan heim veit ég að hún kvaddi sátt við Guð og samferðafólk sitt. Ég bið góðan Guð að styrkja dætur hennar og fjöl- skyldur þehra og ég bið góðan Guð að gefa kirkju sinni fleiri þjóna, sem þjóna kh-kju sinni af sömu einlægni og Áslaug Gísladóttir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir, Bethel í Þýskaiandi. Það er ætíð sárt að heyra um frá- fall kæn-a vina. Jafnvel þótt vitað hafi verið um erfíð veikindi og mikla baráttu enim við ekki varin því höggi, sem andlátsfregnin slær okk- ur. Það átti ekki að koma mér í opna skjöldu, þegar hringt var á miðviku- dagsmorguninn sl. og mér tjáð að Áslaug væri látin. En ég varð allt í senn tómur í huga, þakklátur og hryggur. Sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar hafði fylgst með Áslaugu berjast við erfið veikindi sl. mánuði af þrautseigju. Veikindin öftruðu henni ekki frá að koma til guðsþjón- ustu, því hvem sunnudag nema þann síðasta var hún með dætrum sínum við messu í kirkjunni sinni. Áslaug Gísladóttir hafði verið í forystu í öldrunarstarfi Bústaða- kirkju í meira en tuttugu ár og farist það ákaflega vel úr hendi. Öldrunar- starf Bústaðakirkju hefur verið þróttmikið og þai- hafa komið saman, vikulega, yfir vetrartímann á annað hundrað manns við ýmsa dægra- styttingu. Hlýleiki hennar og hið góða skap hjálpaði mörgum sem komu í Bústaðakirkju í öldrunar- starfið. Fólki leið þar vel og Áslaug hugsaði vel um hópinn sinn. Farið var í stutt ferðalög um nági-enni Reykjavíkui' og var þátttakan jafnan góð og þurfti oft mikinn undfrbún- ing, en um hann sá Áslaug af kost- gæjhi. Ávallt hafði Áslaug samband við mig varðandi þessi ferðalög og lét mig fylgjast með því sem var á döf- inni. Við fráfall Áslaugar verður tómlegt um að litast í öldrunarstarf- inu. En við í Bústaðakirkju eigum því láni að fagna að þar er í starfi mikið af hæfu fólki sem ætlar að halda merki hennar á loft. En það verður erfitt að fara í spor Áslaugar. Þau voru mörkuð með þeim hætti að þau gleymast engum, sem nutu sam- ferðar með henni. Þannig mun minn- ing hennai' lifa í starfinu og hjá þeim sem að því koma um ókomna tíð. Fyrir hönd sóknamefndar Bú- staðakirkju vil ég þakka fyrir alla þá umhyggju og hlýju sem Áslaug hafði gefið starfinu í Bústaðakirkju Ég sendi ástvinum Áslaugar innilegar samúðai'kveðjui' og megi algóður Guð yera með þeim og blessa minn- ingu Áslaugar. Sé hún Guði falin. Ögmundur Kristinsson, formaður séknarnefndar. • Fleiri minningargreinar um Ás- laugu Gísladóttur b/ða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, BALDVIN ÁRNASON, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 6. september. Útförin verður auglýst síðar. Ólafur Ingi Baldvinsson, Margrét Héðinsdóttir, Inga Lóa Baldvinsdóttir, Vilhjálmur Pétursson, Valentínus G. Baldvinsson, Margrét Dögg Hreggviðsdóttir og barnabörn. t Elskuleg amma okkar, móðir og tengdamóðir, GUÐRÚN SIGFÚSDÓTTIR, Dalalandi 9, Reykjavík, iést á Kvennadeild Landspítalans föstudaginn 4. september. Jökull Úlfarsson, Jón Heiðar Heigason, Guðrún Helgadóttir, Helgi Jökulsson, Gréta F. Kristinsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda faðir og afi, ÓLAFUR Þ. ÞÓRÐARSON, Melási 6, Garðabæ, lést á Eyri í Flókadai sunnudaginn 6. septem ber. Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, Áslaug Ólafsdóttir, Arinbjörn Ólafsson, Heiðbrá Ólafsdóttir, Ágúst Heiðar Ólafsson, Hinrik Gfslason, tengdabörn og barnabörn. t Elskuleg móðursystir okkar og frænka, SIGRÍÐUR BJARNEY ODDSDÓTTIR, áður til heimilis f Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 24. ágúst sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum innilega auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir hlýhug og góða umönnun. Guðrún Oddný Gunnarsdóttir, Ólafur Jónsson, Haukur Gunnarsson, Jón Gunnar Ólafsson, Erla Ólafsdóttir, Guðmundur Helgi Sævarsson. t Móðir mín góð, tengdamóðir, amma og systir, SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR frá Bakka, áður Grundartúni 2, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 6. september. Jarðarförin auglýst síðar. Birna G. Hjaltadóttir, Gísli H. Sigurðsson, Hjalti, Þorbjörg og Halldór, Halldór Einarsson. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinun- um sjálfum. t Okkar ástkæra INGIBJÖRG KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, Bjálmholti, Holta- og Landsveit, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands fimmtudaginn 3. september. Útförin fer fram frá Marteinstungukirkju í Floltum laugardaginn 12. septemberkl. 14.00. Vandamenn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og tengdasonur, ÓLAFUR SIGURÐUR GÚSTAFSSON, Hringbraut 15, Hafnarfirði, andaðist á Landspítalanum sunnudaginn 6. september sl. Útförin verður auglýst síðar. Áslaug Kristín Pétursdóttir, Ágústa Guðrún Ólafsdóttir, Sigurður Arnar Ólafsson, Heiða Guðrún Einarsdóttir, Jóhanna Guðrún Bjarnadóttir, Páll Oddsson. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÓN BJÖRNSSON fyrrv. skrifstofustjóri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 29. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Foss- vogskapellu í dag, þriðjudaginn 8. september kl. 15.00. Hrafnhildur Elín Stefánsdóttir Cummings, Kenneth Cummings, Björn Stefánsson, Hrefna Jónsdóttir, Páll Magnús Stefánsson, Hildur Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, RAGNHILDUR JÓSEFSDÓTTIR, fyrrverandi matráðskona, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðviku- daginn 9. september kl. 13.30. Ari Gústavsson, Gústav Hjörtur Gústavsson. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Kvisthaga 16, Reykjavik, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, föstudaginn 4. september. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykja- vík, föstudaginn 11. september kl. 15.00. Drifa Gunnarsdóttir, Einar Guðmundsson, Valgarður Gunnarsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Edda Gunnarsdóttir, Ronald Rowland, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við frá- fall og jarðarför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÓLAFÍU SIGURÐARDÓTTUR. Sigríður Anna Jóhannsdóttir, Pálmi Rögnvaldsson, Haukur Jóhannsson, Emma Kristjánsdóttir, Birgir Jóhannsson, Kolbrún Stella Karlsdóttir, Garðar Jóhannsson, Svanhvít Árnadóttir og ömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.