Morgunblaðið - 08.09.1998, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Cameron og
Kóngulóar-
maðurinn
Hvað tekur James Cameron sér fyrir
hendur nú þegar hann hefur sigrað heim-
inn með stórmyndinni Titanic? Hann
mun framleiða og skrifa handrit endur-
gerðar Apaplánetunnar frá 1968 en það
sem hann vildi helst fást við er sennilega
Kóngulóarmaðurinn að sögn Arnaldar
Indriðasonar. Það gæti orðið bið á að sá
draumur hans rættist.
FLÆKTUR í kóngulóarvefnum;
Cameron vildi gjarnan kvik-
mynda Kóngulóarmanninn.
hikar við að gera myndina vegna
óhemju kostnaðar en verði hún ein-
hverntíman að raunveruleika mun
Tim Burton leikstýra og Nicholas
Cage skrýðast skikkjunni góðu.
Fjórða hasarblaðamyndin sem
rætt er um að gera vestra heitir X-
mennirnir eða „X-Men“ og segir af
ofurmennum sem bjarga heimin-
um. Mun myndin eiga að vera tilbú-
in fyrir sumarmyndaslaginn 1999
og ætlar Bryan Singer, sem gerði
þá frábæru sakamálamynd Góð-
kunningjar lögreglunnar eða „The
Usual Suspects", að leikstýra. Ang-
elea Bassett og Patrick Stewart
fara með aðalhlutverkin ásamt
jafnvel Russell Crowe.
Konungurinn
og kóngulóin
En aftur að kónginum Cameron.
Sagan um Kóngulóarmanninn segii-
af menntaskólastráknum Peter
Parker sem bitinn er af geislavirkri
kónguló og verður maður bæði og
kónguló, klifrar upp veggi og gríp-
ur glæpahyskið í vef sinn. Cameron
hefur verið orðaður við Kóngulóar-
manninn frá því löngu áður en hann
kafaði niður að flaki Titanic með
myndavélar. Segir frá því í nýlegu
hefti bandaríska kvikmyndatíma-
ritsins Premiere að í upphafi þessa
áratugar hafi kvikmyndafyrirtækið
Carolco greitt Cameron að minnsta
kosti þrjár milljónir dala til þess að
leikstýra mynd um Kóngulóar-
manninn. Hún var aldrei gerð. Höf-
undur sagnabálksins um Kónguló-
armanninn, Stan Lee, sagði hug-
mynd Camerons að handriti mynd-
arinnar „snilldarlega". „Jim er mik-
Konungur heimsins, eins og
bandaríski leikstjórinn
James Cameron hefur lýst
sér sjálfum, á sér eitt uppáhalds-
verkefni sem hann hefur árum
saman reynt að gera að veru-
leika. Hann dreymir um að
kvikmynda söguna um
Kóngulóarmanninn eða
„Spiderman“. Hún gæti
orðið hans næsta mynd á
eftir Titanic, sem gert hefur
Cameron að eftirsóttasta leik
stjóra draumaverksmiðjunnar
vestra, en svo getur líka farið að
hún verði aldrei nokkumtíma
gerð. Hugmyndin fær ef-
laust hjörtu markaðs-
fræðinga kvikmynda-
borgarinnar til þess
að slá örar:
Fremsti hasar-
leikstjóri heims-
ins kvikmyndar eina vin-
sælustu hasarblaðahetju heimsins.
Setjum Jim Cai-rey í titilhlutverkið
og milljónirnar streyma í kassann.
Ofurhetjurnar
vinsælar
Kvikmyndaverin í Hollywood
hafa löngum verið hrifin af ofur-
hetjum hasarblaðanna enda hafa
þær margar skilað góðri ávöxtun.
Ofurmennið og Leðurblökumaður-
inn eru líklega þær hasarblaða-
hetjur sem helst hafa malað gull á
hvíta tjaldinu síðustu áratugina og
alltaf eru nokkrar ofurhetjumynd-
ir á teikniborðinu vestra. Þær
helstu sem talað er um nú um
stundir eru eflaust vel kunnar
þeim sem hafa ánægju af hasar-
blaðalestri.
Ein þeirra er um Hulk hinn óg-
urlega. Rætt er um Bill Paxton í
titilhlutverkið en myndin mun
aldrei kosta undir 100 milljónum
dala. Universal er framleiðandinn
og hefur þegar eytt 20 milljónum í
hönnun tæknibrellna, sem að
megninu til eru gerðar í tölvum.
Sagan um Hulk greinir frá vísinda-
manninum Bruee Banner og hvern-
ig hann breytist í fimmfaldan
Arnold Schwarzenegger íyrir sakir
gammageislunar.
Járnmaðurinn eða „Iron Man“
mun eiga að fara í tökur á næsta
ári. Segir hún af einstæðingnum og
drykkjumanninum Tony Stark,
sem er milljónamæringur og berst
gegn glæpahyski klæddur mjög
tæknilegum búningi úr járni. Vinnu
við handritið er ekki lokið. í fyrstu
var Nicholas Cage orðaður við hlut-
verkið en á síðari stigum kom Tom
Cruise að myndinni sem hugsanleg-
ur framleiðandi auk þess sem svo
gæti farið að hann tæki aðalhlut-
verkið að sér.
Þá mun eitthvert stopp vera
komið á Ofurmennið lifir eða
„Superman Lives“. Hún segir af
því þegar Ofurmennið missir mátt
sinn, lætur lífið og endurfæðist til
þess að mæta óþokkanum Brainiac
í lokabardaganum. Warner Bros.
BIL PAXTON
hefur verið orð-
aður við hiutverk
Hulks hins ógur-
lega.
TOM CRUISE
svo gæti farið
að hann léki
Járnmanninn.
NICHOLAS CAGE
þykir tilvalinn í
hlutverk Ofur-
mennisins en
Ofurmennið lifir
hefur verið sett
í biðstöðu.
ANGELA
BASSETT
gæti orðið ein af
X-mönnunum í
samnefndri
hasarblaðamynd.
ill aðdáandi Kóngulóarmannsins og
ber mikla virðingu fyrir Stan Lee,“
er haft eftir talsmanni kvikmynda-
fyrirtækis Camerons, Lightstonn
Entertainment. „En það er óvíst
hvort hún verður nokkurtíma
gerð.“
Eitt af því sem tefur mjög fyrir
því er sú staðreynd að flestöll kvik-
myndaverin í Hollywood telja sig
eiga kvikmyndaréttinn eða eitthvað
í honum og hafa sett lögfræðinga
sína í málið. Kvikmyndasaga
Kóngulóarmannsins hófst árið 1985
þegar rétthafinn, Marvel Enterta-
inment Group, seldi réttinn Cann-
on, kvikmyndafyrirtæki þeirra
Menahem Golan og Yoram Globus,
einhveiTa ski'autlegustu B-mynda-
framleiðenda níunda áratugarins.
Golan hvarf frá fyrirtækinu árið
1989 og tók Kóngulóarmanninn
með sér enda segist hann nú hafa
verið staðráðinn í að kvikmynda
söguna fyrir nýtt fyrirtæki sem
hann stofnaði, 21. Century. Steph-
en Herek var ráðinn leikstjóri. Til
þess að afla fé í framleiðsluna seldi
Golan Columbia/TriStar mynd-
bandaréttinn og Paramount sjón-
varpsréttinn utan Bandaríkjanna
en ekkert dugði og á endanum
eignaðist kvikmyndafyrirtækið
Carolco Kóngulóarmanninn. Þá
hafði Leðurblökumaðurinn verið
gerð og notið gn'ðarlegra vinsælda
og svo virtist sem Kóngulóarmað-
urinn gæti orðið næsti sumarsmell-
ur.
Carolco setti 11 milljónir dollara
í undirbúningsvinnu. Cameron,
sem gerði Tortímandann 2 fyrir
Carolco, fékk greitt fyrii- að fram-
leiða, leikstýra og skrifa handrit
myndarinnar. Nafn Ai-nolds
Schwarzeneggers var nefnt
í tengslum við hlutverk ill-
ingja myndarinnar, Kol-
krabbans. Enn varð ekk-
ert úr framleiðslunni. Alls
vofðu fimm málsóknir yfir
Carolco vegna myndarinnar
og þrátt fyrir miklar vinsæld-
ir Tortímandans 2, fór fyrir-
tækið á hausinn. Eftir gjald-
þrotið lenti Kóngulóarréttur-
inn hjá Metro-Goldwyn-Meyer,
eftir því sem segir í Premiere.
Aðrir halda því fram að fyrirtækið
hafi alls ekki réttinn. Fulltrúar
Marvel segja að þegar Carolco
varð gjaldþrota hafí rétturinn
lent á ný hjá þeim. „Þetta er
flóknari vefur en Kóngulóar-
maðurinn hefði nokk-
urtíma getað ofið,“
segir einn af lög-
fræðingunum sem
að málinu koma.
„Næstum öll stóru
kvikmyndaverin eiga
hagsmuna að gæta.“
Of margir um
hituna
Þegar á allt er litið eru það vin-
sældir Kóngulóarmannsins sem eru
aðalorsök þess að myndin hefur
enn ekki verið sett í framleiðslu
„Astæðan fyrir því að myndin hefur
enn ekki verið gerð er sú að það eru
svo margir sem vilja gera hana,“
segir talsmaður fyrirtækis Camer-
ons. „Allir drepa yndið sitt og það
gæti sem best átt við hér.“
Þegar búið verður að greiða úr
öllum lagaflækjunum er því spáð að
kvikmyndarétturinn muni kosta
svo mikið að fæstir munu hafa efni
á honum; hann gæti jafnvel hlaupið
á tugum milljónum dala. „Það
versta við þetta alltsaman er að
Kóngulóarmaðurinn er verðmæt
eign sem enginn getur notfært
sér“, er haft eftir einum lögfræð-
ingnum, sem að málinu kemur.
„Enginn veit hvað verður um
hana.“
Cameron hefur enn ekki lýst því
yfir hver verði hans næsta bíó-
mynd. Hann skrifar handritið og
framleiðir endurgerð Apaplánet-
unnar en hvað Konungur heimsins
tekur sér fyrir næst sem leikstjóri
er með öllu óvíst. Miðað við alla
lagaflækjuna sem Kóngulóarmað-
urinn er lentur í getur orðið bið á
að hann komist í uppáhaldsverk-
efnið sitt. Jafnvel Konungur
heimsins verður stundum að sætta
sig við að fá ekki allt sem hann
vill.