Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
206. TBL. 86. ÁRG.
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bill Clinton sakaður um
meinsæri í skýrslu Starrs
STARFSMAÐUR Bandaríkja-
þings kemur til að afhenda
Henry Hyde, formanni dóms-
málanefndar fulltrúadeildar-
innar, skýrslu Starrs. Lögmenn
Clintons bera harðlega á móti
því, að hann hafi gerst sekur
um meinsæri eða reynt að
hindra framgang réttvísinnar.
Lögfræðingar Clintons fordæma
skýrsluna og segja hana ekki
grundvöll málshöfðunar
Washington. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandai-íkjanna, laug eiðsvarinn og misnotaði forseta-
vald sitt til að reyna að fela samband sitt við Monicu Lewinsky. Er þessu hald-
ið fram í skýrslu Kenneth Starrs, hins óháða saksóknara, til Bandaríkjaþings.
Nefnir hann því til sönnunar 11 atriði, sem hann telur nægja til að höfðað sé
mál á hendur Clinton með það fyrir augum að svipta hann embætti. David
Kendall, lögfræðingur Clintons, fordæmdi í gær skýrslu Starrs, sem hann
sagði vera til þess ætlaða að niðurlægja forsetann og eyðileggja hann pólitískt.
Hún væri persónuleg árás Starrs en enginn grundvöllur málshöfðunar.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
ræddi um það í tvo tíma í gær hvern-
ig farið skyldi með skýrsluna, sem er
upp á 445 síður, hvort hún yrði að-
eins fyrir þingið eða birt opinber-
lega. Að umi-æðunni lokinni var sam-
þykkt með 363 atkvæðum gegn 63 að
birta hana almenningi. Níu sátu hjá.
Vakti það athygli, að aðeins 63
demókratar og flokks-
menn forsetans skyldu
vera andvígir birting-
unni.
Hins vegar gagn-
rýndu margir
demókratar það í um-
ræðunum að forsetan-
um skyldi ekki hafa
verið gefið tækifæri til
að kynna sér og svara
ásökunum Starrs áður
en skýrslan væri gerð
opinber.
Að því búnu voru inn-
sigli á kössunum með
skýrslunni rofin og
dómsmálanefnd þings-
ins og lögfræðingum
forsetans afhent eintök
og síðan þingmönnum.
Einn af þeim fyrstu sem fékk afhent
eintak var Henry Hyde, formaður
dómsmálanefndar fulltrúadeildar-
innar. „Þetta er upphaf langrar
göngu upp bratt fjall. Ekkert okkar
hlakkar til hennar,“ sagði Hyde er
hann tók við skýrslunni. Var skýrsl-
an einnig skönnuð inn á netið.
Gífurleg örtröð var á netinu
vegna skýrslunnar og hafði verið
búist við, að það hryndi eins og sagt
er en það gerðist ekki. Flestir áttu
þó erfitt með að komast inn á þing-
slóðina en hins vegar gekk miklu
betur að nálgast skýrsluna á heima-
síðum ýmissa fjölmiðla og frétta-
stofnana. Hjá CNN-fréttasjónvarp-
inu voru heimsóknirnar flestar
340.000 á mínútu.
í skýrslunni segir Starr, að Clint-
on hafi logið eiðsvarinn í einkamáli
Paulu Jones gegn forsetanum, logið
fyrir rétti og reynt að hafa áhrif á
vitni, sem flett gat ofan af röngum
framburði hans. Þá
hefði hann reynt að
hindra framgang rétt-
vísinnar með þvi að
hvetja vitni til að gefa
rangan vitnisburð og
logið að hugsanlegum
vitnum í þeirri trú, að
þau myndu endurtaka
lygarnar.
Sæðisleifar á kjól
í skýrslunni er upp-
lýst, að fundist hefðu á
kjól Monicu Lewinsky
sæðisleifar, sem reynst
hefðu vera úr Clinton
við DNA-rannsókn.
Rakin eru mörg
dæmi um kynferðislegt
samband þeirra ClinL
ons og Lewinsky eins og hún segir
frá þeim. Þar var meðal annars um
að ræða munnmök og kynferðislegt
þukl en í skýrslunni er alls lýst 10
fundum þeirra. Þá kemur fram, að
Lewinsky hafi trúað 11 manns fyrir
sögu sinni um samskiptin við Clinton
áður en rannsóknin hófst.
I skýrslunni er einnig greint frá
því að Lewinsky hafi orðið ástfangin
af forsetanum þegar leið á samband
þeirra og að hún hafi jafnvel staðið í
þeirri trú að hann myndi hugsanlega
giftast sér síðar meir.
„Þetta er persónuleg árás, ekki
Clinton baðst afsökunar
á fundi með trúarleið-
togum í gær.
Reuters
grundvöllur málshöfðunar," sagði
Kendall, lögfræðingur Clintons, í
gær. Sagði hann, að klúrar útlistanir
í skýrslunni væru settar fram í þeim
tilgangi fyrst og fremst að niður-
lægja forsetann og gera honum ólíft í
embætti og kannski vegna þess, að
þar kæmi ekkert fram, sem nægði til
að höfða mál á hendur Clinton á
þeim grundvelli, að hann hefði brotið
af sér sem forseti.
I yfirlýsingu frá lögmönnum Hvita
hússins er tekið í sama streng og
sagt, að þótt forsetinn hafi viður-
kennt óviðeigandi samband við
Lewinsky, hafi hann ekki gerst sek-
ur um meinsæri eða annað, sem rétt-
lætti, að þingið beitti sér fyrir emb-
ættissviptingu.
Clinton, sem hefur stöðugt verið
að biðjast afsökunar á framhjáhaldi
sínu síðustu dagana, var með árlegan
bænamorgunverð í gær að viðstödd-
um 106 fulltrúum ýmissa trúfélaga.
Er haft eftir þeim, að- þar hafi hann
verið eins og auðmjúkur og iðrunar-
fullur syndari. Hafi hann beðið um
guðs hjálp og hafi þá margir við-
staddra komist við.
Bað Lewinsky afsökunar
I ræðu sem var sjónvarpað bað
forsetinn alla fvrh'gefningar á mál-
inu, þar á meðal Monicu Lewinsky
og fjölskyldu hennar.
Við þingumræðuna í gær lögðu
margir áherslu á, að menn héldu sig
við það, sem máli skipti í skýrslunni,
en létu ekki almenningsálitið eða
hugsanlegan, pólitískan ávinning
hafa áhrif á sig. Almenningsálitið
getur þó ráðið miklu um framhaldið
en hingað til hefur það verið Clinton
hliðhollt þrátt fyrir allt. Fyrir
nokkrum dögum kom fram, að 76%
Bandaríkjamanna vilja, að Clinton
verði áfram í embætti og 57% kváð-
ust mundu kunna þinginu litlar
þakkir fyrir samþykkti það málssókn
á hendur honum. Almenningsálitið
getur þó breyst á skömmum tíma.
Margir þingmenn sögðust vilja
nota helgina til að kynna sér efni
skýrslunnar ítarlega áður en þeir
tækju afstöðu til hennar en sumir
lýstu þó yfir áhyggjum vegna efnis
hennar. „Ef þær staðreyndir sem
settar eru fram í skýrslunni reynast
réttar væri það mikið áfall,“ sagði
demókratinn Charles Canady er sit-
ur í dómsmálanefndinni. Annar
nefndarmaður, repúblikaninn Asa
Hutchinson, sagði að sér væri „per-
sónulega misboðið“ og að hann væri
sár vegna þess framferðis er lýst
væri í skýrslunni. „Forsetinn hefur
brugðist trúnaði eiginkonu sinnar.
Hann hefur ekki brugðist trúnaði
þjóðarinnar né stjórnarskránni,“
sagði enn einn fulltrúi í dómsmála-
nefndinni, demókratinn Robert
Wexler. Flokksbróðir hans Charles
Rangel sagði að svo virtist sem að
sumir þingmenn vildu að annar sið-
ferðisstuðull gilti um forsetann en þá
sjálfa.
■ Nefnir ellefu/34
Dúman samþykkti Prímakov sem forsætisráðherra og stjórnarkreppunni 1 Rússlandi lokið
Ahyggjur af efnahags-
stefnu stjórnarinnar
Moskvu. Reuters.
DÚMAN, neðri deild rússneska
þingsins, samþykkti í gær Jeregení
Prímakov sem forsætisráðherra
landsins. Hefur Borís Jeltsín, for-
seti Rússlands, undm-itað tilskipan
um, að kommúnistinn Júrí
Masljúkov verði fyrsti aðstoðarfor-
sætisráðherra og endurskipað ýmsa
aðra, til dæmis þá, sem gegndu
embættum varnar- og innanríkis-
ráðheira. Prímakov sagði í gær, að
núverandi fyrsti aðstoðarforsætis-
ráðherra, ígor ívanov, yrði utanrík-
isráðheiTa og Dúman samþykkti
einnig, að Víktor Gerahstjenko yrði
seðlabankastjóri en hann gegndi því
starfí á sovéttímanum.
Prímakov var samþykktur með
317 atkvæðum gegn 17 og 15 þing-
menn sátu hjá. Studdu hann allir
flokkar nema Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn, flokkur hins öfgafulla
þjóðernissinna Vladímírs Zhírín-
ovskís.
Prímakov sagði á þingi í gær, áð-
ur en til atkvæðagreiðslunnar kom,
að hann þyrfti að fá vinnufrið í hálft
ár og helst í eitt ár og gerði síðan
grein fyrir helstu stefnumálum
stjórnarinnar. Sagði hann, að auka
ætti sjálfstæði sjálfstjórnarlýðveld-
anna en reyndi eitthvert þeirra að
segja skilið við rússneska sam-
bandslýðveldið yrði tekið á því af
hörku.
Prímakov sagði, að haldið yrði
áfram með umbætur í efnahags-
málunum en Rússar yrði fyrst og
fremst að reiða sig á eigin dugnað
en ekki á erlent lánsfé þótt það
gæti komið að góðum notum. Lagði
hann áherslu á, að utanríkisstefnan
yrði að vera sjálfri sér samkvæm og
lýðræðisleg með hagsmuni ríkisins
fyrir augum. Forðast yrði ái-ekstra
við önnur ríki og nýtt kalt stríð.
Á Vesturlöndum og víðast hvai-
um heim hefur því verið fagnað, að
stjórnarkreppunni í Rússlandi skuli
lokið og margir binda vonir við, að
Prímakov takist að koma á meiri
stöðugleika í landinu. Margir hafa
þó nokkurn vara á sér vegna auk-
inna áhrifa kommúnista í lands-
stjórninni. Kommúnistinn Masljúk-
ov, sem verður fyrsti aðstoðarfor-
sætisráðheiTa, var á sovéttímanum
yfirmaður Gosplan, áætlunarstofn-
unar ríkisins, og Gerahtsjenko
seðlabankastjóri. Hvatti hann
Dúmuna í gær til að afnema lög,
sem bönnuðu seðlabankanum að
fjánnagna fjárlögin.
Prímakov hefur nefnt New Deal-
stefnu Franklins Roosevelts
Bandaríkjaforseta sem fyrirmynd
sína í efnahagsmálunum og gæti
það þýtt, að reynt yrði að koma
efnahagslífinu af stað með aukinni
seðlaprentun. Efnahagssérfræðing-
ar á Vesturlöndum segja, að það
gæti gengið í stuttan tíma en myndi
fljótlega enda með ósköpum.