Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 50
^ÍO LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FRÁ Helluvatni í Heiðmörk.
Ljósmynd/Kristján M. Baldursson
Gengið um Elliðaárdal og Heiðmörk
Guðspjall dagsins:
Tíu líkþráir.
(Lúk. 17.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Loftur Erlingsson syngur einsöng.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Organleikari Marteinn H. Friðriks-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10.15.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Sr. Ólafur Jóhannsson.
~TtALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnasamkoma kl. 11. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Jón D. Hróbjartsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Sr.
María Ágústsdóttir, héraðsprestur,
prédikar og þjónar fyrir altari.
Organisti Jón Stefánsson. Félagar
úr kór Langholtskirkju leiða söng.
Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Organisti
' 'ftunnar Gunnarsson. Prestur sr.
Bjami Karlsson. Kvöldmessa kl.
20.30. „Létt sveifla í helgri alvöru".
Tómas R. Einarsson, kontrabassi,
Matthías Hemstock, trommur, Sig-
urður Flosason, saxafón og Gunnar
Gunnarsson á píanó. Kór Laugar-
neskirkju syngur. Prestar sr. Bjami
Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir. Tónlist hefst í kirkjunni kl. 20.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti Viera Manasek.
^sPrestur sr. Sigurður Grétar Helga-
son.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjón-
usta kl. 14. Barnastarf á sama tíma.
Maul eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta í
safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl. 11.
Organisti Pavel Smid. Prestarnir
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl.
11. Organisti Daníel Jónasson. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson.
Organisti er Kjartan Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Kór Fella- og Hólakirkju
syngur. Organisti Kristín Jónsdóttir.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
-"**usta kl. 11. Sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti Hörður Bragason. Prest-
arnir.
HJALLAKIRKJA: Almenn guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Magnús Guð-
jónsson þjónar. Kór kirkjunnar syng-
ur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Allir hjartanlega velkomnir. Prestarn-
ir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Altarisganga. Kór Kópavogs-
kirkju syngur. Organisti Kári Þormar.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Ágúst Einarsson prédikar.
Organisti Gróa Hreinsdóttir. Sóknar-
prestur.
•44Í3ÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14. Barn borið til skírn-
ar. Sr. Miyako Þórðarson annast
skírnina. Allir hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN:
Morgunguðsþjónusta að Bíldshöfða
10, 2. hæð, kl. 11. Fræðsla fyrir börn
og fullorðna. Almenn samkoma kl.
20. Mikil lofgjörð og fyrirbænir.
Einnig er heilög kvöldmáltíð. Friðrik
Schram prédikar. Allir hjartanlega
velkomnir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Sam-
koma sunnudag kl. 20. Mikil lof-
gjörð, prédikun orðsins og fyrirbæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Samkoma kl. 20.
Jón Þór Eyjólfsson prédikar. Allir
velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19.30
bænastund. Kl. 20 hjálpræðissam-
koma í umsjá Pálínu og Hilmars. All-
ir hjartanlega velkomnir. Mánudag
kl. 15: Heimilasamband fyrir konur.
Kafteinn Miriam Óskarsdóttir talar.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Mess-
ur sunnudaga kl. 10.30, 14. Messa
kl. 18 á ensku. Laugardaga og virka
daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag
kl. 17.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 17.
Guðsþjónusta kl. 14. Jón Þorsteins-
son.
HVÍTASUNNUKIRKJAN
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Erling Magnús-
son. Allir hjartanlega velkomnir.
KFUM & KFUK v/Holtaveg: Sam-
koma kl. 17. Ath. breyttan tíma. Nýr
framkvæmdastjóri boðinn velkom-
inn til starfa. Ávarp: Sigurbjörn Þor-
kelsson, framkvæmdastjóri. Ein-
söngur: Laufey Geirlaugsdóttir.
Ræðumaður: Sr. Ólafur Jóhannsson,
formaður KFUM í Reykjavík. Barna-
gæsla og fræðsla á meðan á sam-
komu stendur, skipt í hópa eftir
aldri. Matsala verður eftir samkom-
una.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa
kl. 14. Altarisganga. Ræðuefni:
Keikó. Organisti Natalía Chow.
Prestur sr. Þórhallur Heimisson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Bragi Friðriksson.
Organisti Úlrik Ólason. Sóknarprest-
ur.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Altarisganga. Kór kirkj-
unnar leiðir almennan safnaðarsöng.
Organisti Jóhann Baldvinsson. Hans
Markús Hafsteinsson, sóknarprest-
ur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11 í safnaðarheimilinu.
Kynningarguðsþjónusta með ferm-
ingarbömum og foreldrum í húsi
KFUM við Hverfisgötu kl. 14. Örn
Arnarson leiðir söng ásamt ung-
lingakór og hljómsveit.
KEFLAVÍKUR- og
NJARÐVÍKURSÓKNIR: Guðsþjón-
usta í Keflavíkurkirkju kl. 11 árd. Sr.
Lára G. Oddsdóttir, nýkjörinn sókn-
arprestur á Valþjófsstað, syngur
sína fyrstu guðsþjónustu. Kór Kefla-
víkurkirkju leiðir söng. Orgelleikari
Einar Örn Einarsson.
HVERAGERÐISPRESTAKALL:
Heilsustofnun NLFÍ. Guðsþjónusta
kl. 11. Hveragerðiskirkja. Tónlist-
ar-vesper kl. 20. Margrét Bóasdóttir,
sópran og Jörg E. Sondermann,
organisti flytja tónlist eftir Dvórák og
Bach.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 10.30.
Morgunbænir þriðjudag-föstudags
kl. 10. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Tíðasöngur er í
kirkjunni alla daga nema sunnudaga
kl. 9 og 18. Sóknarprestur.
ODDASÓKN: Guðsþjónusta á Dval-
arheimilinu Lundi, Hellu, kl. 11.
Messa í Oddakirkju kl. 14. Sóknar-
prestur.
HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ:
Messa sunnudag kl. 11. Sóknar-
prestur.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Altarisganga.
Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL: Messa í
Borgarneskirkju kl. 14. Sóknarprest-
ur.
FERÐAFÉLAG Islands og Spari-
sjóður Reykjavíkur og nágrennis
efna til göngudags sunnudaginn
13. september þar sem gengið er
um tvö af helstu útivistarsvæði
höfuðborgarinnar. Hægt er að
velja um lengri og styttri mögu-
leika á göngudeginum en brott-
för er frá Ferðafélagshúsinu,
Mörkinni 6.
Kl. 11 verður lagt upp í göngu
frá Mörkinni um Élliðaárdal og
Helluvatn í Heiðmörk og kl. 13
er svo fjölskylduganga þar sem
farið er með rútu frá Mörkinni
SEINNI hluti hinnar árlegu lend-
ingarkeppni Flugklúbbs Mosfells-
bæjar var haldinn á Tungubökkum
laugardaginn 5. september sl.
Keppt er um veglegan verðlauna-
grip „Silfur-Jodelinn“ sem smíðað-
ur var af Davíð Jóhannessyni en
hann er nákvæm eftirlíking af Jodel
Mousquetaire.
Að þessu sinni mættu til leiks 13
keppendur en lendingarkeppnin,
sem opin er öllum flugmönnum, fer
fram með þeim hætti að keppt er
tvisvar ár hvert, 1. laugardag í júní
og 1. laugardag í september.
Þátttakendum er frjálst að keppa
í annað eða bæði skiptin og gildir þá
betri árangur til úrslita. Hver kepp-
andi þarf að lenda 4 sinnum, ýmis
með eða án hreyfílsafls og er mark-
miðið að lenda á fyrirfram ákveðn-
um stað á flugbrautinni. I síðustu
lendingunni þarf að lenda yfir
hindrun en þá er strengt band í 2 m
hæð þvert yfir flugbrautina 50 m
frá marklínu.
Keppendur voru alls 21 í ár en
upp að Helluvatni en þar samein-
ast hóparnir. Fararstjórar frá
Ferðaféiaginu eru með í för en
við Helluvatn kemur Vignir Sig-
urðsson, umsjónarmaður Heið-
merkur, í hópinn og er gengið
með honum í reit Ferðafélagsins
í Skógarhlíðakrika innst í Heið-
mörk.
I Heiðmerkurreitnum verður
boðið upp á hressingu í boði FI
og SPRON. Allir eru velkomnir á
göngudaginn.
Að ferð lokinni verður farið
með rútum til baka í Mörkina.
þetta er 5. árið sem þessi keppni er
haldin.
Röð efstu keppenda var að þessu
sinni: I 1. sæti Magnús Víkingur
Grímsson á Piper Colt TF-SUE
með 14 refsistig, sem er besti árang-
ur keppninnar til þessa, í 2. sæti var
Jón Karl Snorrason á Piper Super
Cub TF-FKM með 50 refsistig en
Jón Karl var jafnframt sigurvegari í
seinni hluta keppninnar sl. laugar-
dag og í þriðja sæti voru jafnir þeir
Georg Óiafur Tryggvason á Jodel
Mousquetarie TF-ULF og Davíð
Björn Ólafsson á Jodel Ambassa-
deur TF-ULV með 61 refsistig.
Dómari keppninnar að þessu
sinni sem og undanfarin 3 ár var
Davíð Jóhannsson, flugumsjónar-
maður hjá flugféiaginu Atlanta.
Þónokkur fjöldi áhorfenda mætti á
Tungubakka í blíðskaparveðri og
fylgdist með spennandi keppni og
naut veitinga sem Flugklúbbur
Mosfellsbæjar hafði á boðstólum,
segir í fréttatilkynningu frá flug-
klúbbnum.
Ef einhverjir kjósa að koma á
eigin farartækjum er það mögu-
legt í seinni gönguna og er þá
mæting við áningarstað Skóg-
ræktarinnar við Helluvatn og
brottför þaðan í gönguna kl.
13.30. Ekið er inn á Heið-
merkurafleggjarann hjá Rauð-
hólum og haldið eftir honum þar
til kemur að áningarstað hjá
Helluvatni sem er lítið fallegt
stöðuvatn á vinstri hönd þegar
komið er yfir brúna á móts við
Elliðavatnshúsin. Þátttökugjald
er ekkert.
Ferða- og úti-
vistarsýning
fjölskyldunnar
FERÐAKLÚBBURINN 4x4
stendur fyrir sýningu á jeppum og
búnaði til ferðalaga og útiveru í
Laugardalshöllinni dagana 25. til
27. september undir heitinu Ferða-
og útivistarsýning fjölskyldunnar í
tilefni 15 ára afmælis klúbbsins. Að-
göngumiðaverð er 600 kr. fyrir full-
orðna og frítt fyrir börn yngri en 12
ára í fylgd með fullorðnum.
„Sýning þessi er haldin með þátt-
töku fjölmargra bifreiðaumboða og
fyrirtækja sem selja vörur og búnað
sem falla að þessari tegund ferða-
mennsku.
Fyrirhuguð sýning er sú sjöunda
í röðinni sem haldin er á vegum
Ferðaklúbbsins 4x4 á þeim 15 árum
sem klúbburinn hefur starfað en
síðasta sýning var einnig haldin i
Laugardalshöll í september 1995.
Fyrsta sýning klúbbsins var haldin í
porti Austurbæjarskólans í Reykja-
vík árið 1985. Stóð hún yfir í einn
dag og voru sýndir milli 30 og 40
bílar á þeirri sýningu. Árin 1987,
1989 og 1991 varð Reiðhöllinn í
Víðidal fyrir valinu sem sýningar-
svæði klúbbsins. Eftir það var ijóst
að Reiðhöllin var orðin allt of lítil
fyrir eins umfangsmiklar sýningar
og klúbburinn var farinn að standa
fyrir. Því var ákveðið að færa sýn-
ingar Ferðakklúbbsins 4x4 í Laug-
ardalshöllina þar sem bæði var
meira pláss og hentugri aðstaða að
öllu leyti fyrir sýningarhald," segir í
fréttatilkynningu.
----------------
Bubbi Morthens
með fyrirlestur
BUBBI Morthens verður með fyrir-
lestur fyrir nemendur Gís - Gítar-
skóla Islands nú á haustdögum en
skólinn er nú að hefja sitt sjötta
starfsár.
Bubbi mun m.a fjalla um gítarleik
trúbadorsins, gítarinn sem undir-
leikshljóðfæri við söng og útskýra
fyrir nemendum þau tækniatriði
sem hann hefur tileinkað sér í gegn-
um árin á tónleikaferðum sínum.
Gís - gítarskóii er til húsa á
Grensásvegi 5 og skráning stendur
nú yfir. Gítarnámið fer fram í
einkatímum og er ætlað öllum ald-
urshópum.
ÖRN Johnson nálgast marklfnu á vél sinni, TF-ULF, sem er af gerð-
inni Jodel Mousquetaire.
VERÐLAUNAHAFAR ásamt dómara, f.v. Davíð Jóhannesson, dómari,
Jón Karl Snorrason í öðru sæti, Magnús Víkingur Grímsson sigurveg-
ari og Georg Olafur Tryggvason í þriðja sæti.
Lendingakeppni Flug-
klúbbs Mosfellsbæjar