Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 49* Kasparov ver ekki titilinn SKAK Skákráð Kasparovs: HEIMSMEISTARAEINVÍGI AFLÝST Gary Kasparov, stigahæsti skákmað- ur heims, hefur ekki fundið neinar Ieiðir til að fjármagna eigin heims- meistaraeinvígi. Á MEÐAN Alþjóðaskáksambandið FIDE ætlar að halda heimsmeist- aramót á hverju ári gengur ekkert upp hjá Kasparov sem klauf sig út úr FIDE árið 1993. Nú virðist ljóst að ekkert verður af einvígi þeirra Kasparovs og Shirovs um „heims- meistaratitilinn“. Upphaflega hugð- ist Kasparov tefla við Kramnik eftir að Anand hafði neitað að taka þátt í heimsmeistarakeppni Kasparovs. WCC (World Chess Council), sem Kasparov kom á laggirnir í byrjun þessa árs, greip hins vegar óvænt fram fyrir hendurnar á honum og ákvað að sá sem stæði sig best á Linares-skákmótinu mundi tefla við Kramnik um réttinn til að skora á Kasparov. Linares-skákmótið, eitt hið sterkasta í skáksögunni, fór reyndar þannig að Anand sigraði, en Alexei Shirov lenti í öðru sæti og sjálfur Kasparov varð að sætta sig við þriðja sætið. Þar sem Anand vildi ekki taka þátt í heimsmeistarakeppni Ka- sparovs varð Shirov fyrir valinu til að keppa við Kramnik síðasta vor. Þar urðu óvænt úrslit, því Shirov gerði sér lítið fyrir og sigraði. Fyr- irhugað var að tefla 10 skákir, en Shirov dugðu 9 skákir og úrslitin urðu 5'/2-3'A honum í vil. Þetta voru úrslit sem skákáhugamenn áttu ekki von á og örugglega ekki Ka- sparov heldur. Shirov hefur vænt- anlega hugsað sér gott til glóðarinn- ar því verðlaunasjóðurinn í einvíg- inu við Kasparov átti að verða vel á annað hundrað milljónir íslenskra króna. Ummæli Kasparovs frá því fyrra um að Shirov væri „hæfileika- ríkur áhugamaður“ hafa einnig vafalítið aukið löngun hans til að sýna Kasparov hvað í honum býr. Þess má einnig geta, að Valery Sa- lov hefur verið einn af helstu sam- starfsmönnum Shirovs, en hann hefur ekki dregið dul á andúð sína á Kasparov. Það var reyndar einn galli á gjöf Njarðar varðandi sigur Shirovs gegn Kramnik. Kramnik, sem tap- aði einvíginu fékk 200.000 dollara í sinn hlut, en Shirov fékk ekkert þrátt fyrir sigurinn! Hans umbun átti að koma þegar hann tefldi við Kasparov. Nú hefur Luis Rentero, góðvinur Ka- sparovs og forseti WCC, hins vegar til- kynnt að ekki hafi tek- ist að fínna aðila til að styrkja einvígi Ka; sparovs og Shirovs. í tilefni af því hefur Ka- sparov látið frá sér fara bréf þar sem fram kem- ur hörð gagnrýni á Rentero. Kasparov seg- ir þar m.a. að Rentero hafi margsinnis stað- hæft að fjármögnun einvígisins væri tryggð. Það virðist því ætla að fara fyrir Kasparov eins og Karpov að honum takist að koma sér út úr húsi hjá Rentero. Eftir þessi tíðindi er staðan á toppnum í skákheiminum orðin ansi merkileg. Karpov er heimsmeistari FIDE og Kasparov er heimsmeist- ari eigin samtaka. Taflmennska Karpovs upp á síðkastið hefur lítið minnt á heimsmeistara og eins og úrslitin á Linares sýna er Kasparov ekki lengur sá yfirburðamaður sem hann var. Kai-pov hefur gefið til kynna að hann muni ekki taka þátt í heimsmeistarakeppni FIDE í des- ember til að verja titil sinn. Afstaða hans mun byggjast á því að þegar hann vann titilinn stóð í reglunum að heimsmeistarakeppnin skyldi fara fram á tveggja ára fresti. Nú hefur Kirsan N. Iljumzhinov, forseti FIDE, hins vegar ákveðið að heims- meistarakeppnin skuli fara fram ár- lega. Hellir - TR 46-26 Taflfélagið Hellir sigraði í hrað- skákkeppni taflfélaga á Suðvestur- landi 1998. í úrslitaviðureigninni tefldi Hellir við Taflfélag Reykjavík- ur. Hellir náði þegar forystunni í fyrstu viðureign, hlaut 5 vinninga gegn 1 vinningi TR. Eftir það slepptu Hellismenn ekki takinu og unnu öruggan sigur, fengu 46 vinn- inga gegn 26 vinningum TR. Bæði félögin náðu að stilla upp sínu sterkasta liði. Þannig tóku t.d. sex stórmeistarar þátt í viðureign- inni, sem gerir þetta að einni sterkustu hrað- skákkeppni ársins. Lið Hellis var þannig skip- að: Hannes Hlífar Stefánsson Jón L. Ámason Helgi Ólafsson Karl Þorsteins Helgi Áss Grétarsson Ingvar Ásmundsson Kristján Eðvarðsson í liði TR voru: Margeir Pétursson Þröstur Þórhallsson Jón Viktor Gunnarsson Þorsteinn Þorsteinsson Magnús Öm Ulfarsson Sigurður Daði Sigfússon Bergsteinn Einarsson Bestum árangri ein- stakra liðsmanna hjá Helli náðu: Helgi Áss Grétarsson 10'/2 v. Hannes Hlífar Stefánsson 10 v. Helgi Ólafsson 8/2 v. Jón L. Ámason 8 v. Þessir skákmenn tefldu allir 12 skákir. Margeir Pétursson náði best- um árangri í TR-liðinu, fékk átta vinninga í tólf skákum. Tvö íslensk lið í Evrópukeppninni Nú er ljóst að tvö íslensk lið taka þátt í Evrópukeppni taflfélaga 1998, sem fram fer i Eistlandi 23.-25. október. Taflfélagið Hellir var skráð til þátttöku fyrir allnokkru og í síðustu viku varð ljóst að íslands- meistarar Taflfélags Reykjavíkur yrðu einnig með í keppninni. Þetta er í fyrsta skipti sem fleiri en eitt lið frá Islandi tekur þátt í þessari keppni. TR hefur ekki nýtt sér rétt sinn til þess að taka þátt í keppninni undanfarin ár, þrátt fyrir sigra í deildakeppni SÍ. Þess er hins vegar skemmst að minnast að Hellir komst í átta liða úrslit í keppninni í fyrra eftir að hafa sigrað alla and- stæðinga sína í undankeppninni. Það kann að koma sumum á óvart að tveimur liðum frá íslandi skuii leyft að taka þátt í Evrópukeppn- inni. Þetta er hins vegar í samræmi við reglur keppninnar. Samkvæmt þeim eiga tvö efstu liðin í deilda- keppni hvers lands rétt til þátttöku. Jafnvel getur liðið í þriðja sæti sótt um þátttöku en það ræðst þá af styrkleika þess hvort það fær að vera með. Jón Viktor sigrar á helgarskákmóti Taflfélag Reykjavíkur stóð fyrir helgarskákmóti dagana 4.-6. sept- ember. Tefldar voru þrjár atskákir á föstudagskvöldið og síðan fjórar kappskákir um helgina. Keppnin var afar jöfn og spennandi, enda fór svo að þrir skákmenn deildu efsta sætinu: Jón Viktor Gunnarsson, Sigurbjörn Björnsson og Sigurður Daði Sigfússon. Jón Viktor var efst- ur þeirra þriggja á stigum. Urslit urðu annars sem hér segir: 1. Jón Viktor Gunnarsson 5/2 v. 2. Sigurbjörn Björnsson 5)4 v. 3. Sigurður Daði Sigfússon 5‘/2 v. 4. Bergsteinn Einarsson 5 v. 5. -7. Matthías Kjeld , Jón Árni Halldórsson og Arnar E. Gunnars- son 414 v. 8.-11. Arngrímur Gunnhallsson, Valdimar Leifsson, Bjarni Magnús- son, Gústaf Smári Björnsson 4 v. 12.-14. Guðmundur Kjartansson, Sigurjón Kjærnested og Ólafur Gauti Ólafsson 314 v. Þátttakendur voru 24 og skák- stjórn var í höndum Ólafs H. Ólafs- sonar, Ólafs S. Ásgrímssonar og Ríkharðs Sveinssonar. íslandsmótið í atskák Dagana 12. og 13. september nk. verða haldnar undanrásir vegna ís- landsmótsins í atskák 1999. Teflt verður í Reykjavík, Akureyri og á Vestfjörðum. í Reykjavík verður teflt laugardaginn 12. september og sunnudaginn 13. september. Taflið hefst klukkan 13 báða dagana. Teflt verður í Faxafeni 12. Mótshaldarar á Akureyri og Vest- fjörðum munu auglýsa tímasetning- ar á sínum mótum. Þátttökugjald er 1.500 kr. en 800 kr. fyrir unglinga 15 ára og yngri. Verðlaunasjóðurinn í Reykjavík verður 30.000 kr. en ákvörðun um verðlaun á Akureyri og á Vestijörð^. um er í höndum mótshaldai’a. Unglingastarf Hellis hafið Unglingaæfingar Hellis eru hafn- ar og verða á hverjum mánudegi kl. 17.15 í vetur. Allir nemendur á grunnskólaaldri velkomnir! Eina þátttökuskilyrðið er að kunna mann- ganginn. Ekkert þátttökugjald. Um- sjónarmaður unglingastarfs Hellis er Vigfús Óðinn Vigfússon. Hellir mun, þegar líður á vetur- inn, bjóða félagsmönnum upp á skákkennslu. Þátttökugjald fyrir veturinn er innifalið í félagsgjald*- inu, sem er aðeins 1.000 ki’. Davíð Ólafsson, FIDE-meistari og kenn- ari við Skákskóla íslands, mun ann- ast kennsluna. Form skákkennsl- unnar verður kynnt síðar á ung- lingaæfingum Hellis, með dreifi- bréfum og á heimasíðu Hellis: www.simnet.is/hellir. Kasparov teflir við Timman Nú stendur yfir sex skáka einvígi milli þeirra Garrys Kasparovs og Jans Timmans. Teflt er í Prag og einvíginu lýkur 13. september. Ka- sparov hafði hvitt í fyrstu skákinni sem lauk með jafntefli. Kasparov náði svo að sigra í annarri skákinni og er staðan því 114-14 Kasparov r- — vil. Tímamörkin í skákunum eru 2 klst. fyrir 40 leiki, síðan 1 klst. fyrir 20 leiki og að lokum 30 mínútur til að Ijúka skákinni. N or ðurlandamót barnaskólasveita Norðurlandamót barnaskólasveita fór fram 28.-30. ágúst 1998. Mela- skóli tók þátt í mótinu fyrir íslands hönd og hafnaði í 2. sæti með 1114 vinning af 20 mögulegum. Danska sveitin sigraði, fékk 1414 vinning. Fyrir Melaskóla tefldu: 1. Dagur Arngrímsson 3W5 v., 2. Davíð Berndsen l/5v., 3. Viðar Berndsen 3/5v., 4. Þorvaldur Kárason 4/5 v. og Aron Sigurðsson varamaður tefldi enga skák að þessu sinni. Liðsstjóri og fararstjóri var Arngrímur Gunn- hallsson. Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson Kasparov í kreppu Uppboð FUNDm^ANNFAGNASUB I SMÁAUGLÝSINGAR Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Suðurgðtu 8, Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Austurvegur 30, e.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Fjörður ehf., umboðsskrif- stofa, Árný Sigríður Sveinsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir og þ/b Garð- ars Rúnars Sigurgeirssonar, gerðarbeiðendur Landsbanki Islands hf., lögfrd., Mata ehf. og sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Arstígur 11, Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Hilmar Jónsson, gerðarbeið- andi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Hafnargata 37, Seyðisfirði, þingl. eig. Fjarðarnet ehf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Hölkná, Skeggjastaðahreppi, þingl. eig. Marteinn Sveinsson, gerðar- beiðandi Tollstjóraskrifstofa, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Leirubakki 4, Seyðisfirði, þingl. eig. Einar Hólm Guðmundsson og Jón Guðmundsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Lóð úr landi Saurbæjar I, Skeggjastaðahreppi, þingl. eig. Sigurjón Sigurðsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Miðás, 1—5 hl., 02-01, Egilsstöðum, þingl. eig. Eikarás ehf., gerðar- beiðandi sýslumaðurinn á Seyðisfirði, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Miðgarður 3a, Egilsstöðum, þingl. eig. Ágúst Ólafsson, gerðarbeiðandi Kringlan ehf., fjárfestingarfélag, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Múlavegur 2, Seyðisfirði, þingl. eig. Jóhann Pétur Hansson, gerðar- beiðendur Byggðastofnun, Byggingarsjóður rikisins, Lífeyrissjóðir Bankastræti, sýslumaðurinn á Seyðisfirði og Vátryggingafélag Islands hf., fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Sunnuhlíð, ásamt gögnum og gæðum o.fl., Vopnafirði, þingl. eig. Haukur Georgsson, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins, fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Útgarður 2, Egilsstöðum, þingl. eig. Vilhjálmur Einarsson, gerðarbeið- andi Húsasmiðjan hf„ fimmtudaginn 17. september 1998 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 11. september 1998. ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Málþing á degi menningarminja verður haldið í forsal Þjóðminjasafnsins um gömul hús á íslandi. Dagskráin hefst kl. 13.30 og er miðað við að hvert erindi taki u.þ.b. 30 mínútur í flutningi. 1. Haraldur Helgason, arkitekt við húsverndar- deild Þjóðminjasafnsins, kynnir húsin í húsa- safni Þjóðminjasafnsins. 2. Þór Magnússon, þjóðminjavörður, greinir frá ástæðum þess að safnið tekur hús til varðveislu. 3. Magnús Skúlason, framkvæmdastjóri Húsa- friðunarnefndar, fjallar um málefni friðaðra húsa og um meðferð þeirra. Mörg hinna 40 húsa í húsasafni Þjóðminja- safnsins verða opin á tímabilinu 13.30—16.00. Á meðal þeirra verða Hraunskirkja í Keldudal við Dýrafjörð, Kirkjuhvammskirkja við Hvammstanga, Glaumbær í Skagafirði, Laufás í Eyjafirði, gamla prestssetrið á Sauðanesi á Langanesi, Burstafell í Vopnafirði, Sómastaðir við Reyðarfjörð, Hofskirkja í Öræfum, Keldur á Rangárvöllum, Húsið á Eyrarbakka og Nes- stofa á Seltjarnarnesi. Á þessum stöðum verða fróðir menn, er veita munu upplýsingar um viðkomandi hús og önn- ur hús safnsins í nágrenninu. DULSPEKI Lífsins sýn Skyggnst úr fortíð inn i nútíð og framtíð. Tímapantanir i síma 568 6282. Ath. breytt símanúmer! FÉLAGSLÍF Dagsferðir sunnudaginn 13. september: Frá BSI kl. 10.30 Skálatindur á Esju. Gengið frá Meðalfellsvatni á Skálatind. Komið niður hjá Mógilsá. Verð 1200/1400 Frá BS( kl. 10.30 Hvalfjarðar- eyri. Gengið um eyrina og út með fjöru að Kiðafellsá. Verð 1200/1400. Spennandi helgarferðir í september 25.-7. sept. Haustlitaferð i Bása. Gönguferðir, varðeldur og fjör. Goðaland i haustlitum. Farar- stjóri verður Gunnar Hólm Hjálm- arsson. ■i- 19. —20. sept. Haustferð jeppa- deildar í Setrið. Farar- stjóri verður Bjarni Árnason. Ekið um Kerlingarfjöll i Setrið, skála 4X4-klúbbsins við Hofsjökul. Dagsferðir alla sunnudaga. 20. sept. Leggjarbrjótur, 27. sept. Klóarvegur, 4. okt. Búrfell í Grímsnesi, 11. okt. Gjábakki — Sog um Drift, 18. okt. Ólafsfjarð- arvegur, 25. okt. Þyrilsnes. Brott- för í dagsferðir frá BSf kl. 10.30 á sunnudögum. Almenn samkoma i dag kl. 14.00. Gestapredikari: Eiður Einarsson. Allir hjartanlega velkomnir. AU PAIR f „AIJ PAIR“ Á ÍSLANDI ^ 19 ára þýsk stúlka vill gerast „au pair“ hjá ísl. Qölskyldu frá des./jan. til júní/júlí. Hef reynslu af bömum og bílpróf. Vinsamlega skrifið til: Christin Englert, Liibeck Strafie 14C, 23909 Ratzburg, Þýskalandi. www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.