Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Jón Svavarsson SVALIRNAR á efri hæðinni eru kjörnar til fundahalda og þótt hann rigni má alltaf grípa til regnhlífarinnar STUND milli stríða. Stefán yfirvert ræður nýgræðingnum heilt meðan Björn barþjónn og Erna Sóley slaka ögn á. er af hefðbundinni gerð. Enginn kvartar heldui’ yfir froðumagninu, enda kannski ekki mikið afrek að hella bjór skammlaust í glas, en öllu meh-i kúnst er ki-ingum h'ska þjóð- arstoltið. Þar þarf þolinmæði til og sérstakar aðfaiir, en íslenskir aðdá- endur hins írska mjaðar kippa sér ekki upp við það, slíkt telst líklega eðlilegur íylgifiskur þess að hafa kom- ið sér upp smekk fyrir tegundinni. Af kynlegum nöfnum Ekki líður á löngu áður en flókn- ari fyrirspumir taka að berast bar- þjónum. Ung og fögur kona horfir skilningsrík á nýja þjóninn þegar honum tekst með fádæma klunna- skap að rífa korktappa á hvítvíns- flösku í frumeindir sínar. Efth- þá bitru reynslu eru glösin lítið mál, en hið sama verður ekki sagt um snafsana, sem margir hverjir eru afar flóknir í samsetningu og útheimta fima fingur og listrænt innsæi. Flestir virðast þessir snafsar, eða skot eins og margir nefna þá, eiga það sameiginlegt að heita kynlegum nöfnum og þá í bókstaflegri merkingu. Ekki verður nánar far- ið út í einstök nöfn hér, en bólbrögð virðast hafa verið höfund- um uppskriftanna ansi hugleikin á sínum tíma. Sum- ir kokteilar heita að sama skapi vafasömum nöfn- um og virðist reglan sú, að því vafasamara sem nafnið er, því flóknari sé samsetning drykkjarins. Fyrsta skotið útheimtir þrjú að- skilin hráefni og viðskiptavinurinn, ung og glaðvær stúlka, hoi-fir vand- ræðaleg á barþjóninn rústa sköpun- arverkinu. „Þetta á ekki að vera svona,“ stynur hún loks upp en tekur síðan aftur kæti sína og býðst til að kenna „starfsmanninum" réttu handtökin. Það tekur litla stund, nemandinn fylgist áhugasamur með en Stefán horfir á úr fjarlægð og veltist um af hlátri. Allt fer þó vel að lokum, ágætlega heppnuðum skotum fjölgar eftir því sem líður á kvöldið, en þegar beðið er um kokteila er hollast að segja augnablik og kalla í sér reyndari mann. Erna Sóley glasamær er á þön- um um allan sal að sækja óhreint leirtau og koma því íyrir í uppþvotta- vélinni. Erna er líklega í bestum tengslum við stemmninguna í húsinu hverju sinni, þótt starfið sé kannski ekki það vinsælasta í veitingageiran- um. I Sölvasal er aðeins afgreitt á barnum en ekki á einstök borð við- skiptavina og því er „glasabarn" staðarins aðeins í því hlutverki að taka tóm glös en lætur okkm- þremur eftir að fylla á þau aftur. Það gengur ágætlega, þótt þétt sé setinn bekkur- inn. Leikhúsfólkið er enn í meirihluta og því er tónlistin ekki of hátt stillt, en um eittleytið segir Stefán að tími sé kominn til að hækka aðeins og auka hrynjandina í tónlistinni. Fimir J]| og listr innsæi Skemmtikraftur, sálusorgari sáttasemjari. Allt þetta og ef- laust miklu meira til felst í stari æn EINBEÍTNIN leynir sér ekki þegar blaðamaður skenkir kaffið, en nafm hans, Björn barþjónn, blandar eitthvað sterkara. ekki er eftir neinu að bíða. Annar barþjónn hefur slegist í hópinn, Björn heitir sá og er ekki laust við að hann horfi tor- tryggnum augum á nafna sinn skenkja fyrstu bjór- glösin. Finnst öiaigglega lítið til um aðfarimar koma, enda skal viður- kennt að það er allt annað en auðvelt að læra taktana hans Toms Cruise úr kvik- myndinni Coctail og færa þá yftr á íslenskan veru- leika. Allt hefst þó að lok- um, gestir virðast flestir hafa tekið greiðslukortin í þjónustu sína og maður kemst fljótt upp á lagið með greiðsluposana og sjóðsvélin ÞAÐ er föstudagskvöld og sumri er tekið að halla. Agústmánuður er við það að syngja sitt síðasta, regndrop- ar falla á stræti og torg og næsta fáir virðast á ferli. Ferð blaðamanns er heitið á einn vinsælasta skemmtistað miðborgarinnar, kaffilistahúsið Sól- on Islandus á horni Ingólfsstrætis og Bankastrætis. Þar er ætlunin að standa hinumegin borðsins svo sem eins og eina kvöldstund og afgreiða á bar efri hæðarinnar. Blanda drykki, þurrka af borðum, hella upp á kaffi og spjalla við gesti og gangandi. Allt eins og venjulegir barþjónar gera í vinnunni og kannski fleira til. Stefán Ingi Stefánsson yfirvert Sölvasalar, sem staðsettur er á efri hæð kaffihússins, tekur brosandi á móti blaðamanni um tíuleytið. Það er ekki laust við að örlítill beygur hafi gripið um sig í huga nýgræðingsins, enda salurinn ekki ósvipaður þeim fræga Staupasteini, þaðan sem kunnátta hans á sviði veitinga- geirans er einkum ættuð. Hinn al- vani vert, sem starfað hefur í þessum geira í ellefu ár og rúmlega það, stappar í hann stálinu. „Þetta verður allt í lagi,“ segir hann sannfærandi og er sláandi líkur Sam sjálfum Staupasteinsformanni. „Þú fylgist bara með og afgreiðir eins og þú treystir þér til, en kallar síðan eftir aðstoð ef eitthvað flókið kemur upp á.“ Þetta hljómar hughreystandi og vaktin hefst. Enn eru giska fáir á ferli á efri hæðinni, talsvert hefur fjölgað á þeirri neðri, en fólk virðist með seinni skipunum í kvöld. Guðmundur dyravörður er mættur á vaktina, tilbúinn í slaginn eins og lög gera ráð fyrir. Hann lítur með áhyggjusvip á yfirvertinn og segh- eins og hugsandi: „Það gæti orðið seinna að fyllast en venjulega.“ Guðmundur hefur séð sitthvað um Alþýðuhetjan Sölvi Helgason Kaffilistahúsið Sólon íslaudus er nefnt eftir alþýðulistamann- inum Söiva Helgasyni og var hann flestum þekktur undir því heiti. Sölvi fæddist 1820, sonur fátækra vinnuhjúa, og varð flökkulífið snemma hiutskipti hans. Hann var ungur að árum er óvenjulegir listhæfileikar komu í Ijós, en listsköpun hans var ekki allra og hann mætti skilnings- og áhugaleysi með- borgara sinna. Sölvi varð því algjörlega sjálfmenntaður, teiknaði bæði og málaði, eink- um með vatnslitum á pappír. Hann sótti einnig fram á rit- vellinum, fór þá gjarnan mik- inn og þótti drýldinn, svo eftir var tekið. Taldi hann sig standa jafnfætis frægum hugs- uðum sögunnar, svo sem Sóloni frá Aþenu, og tók hann heiti sitt eftir honum. Sanitíniinn var Sölva þó lítt liliðholiur og hann lést sem einstæðingur ár- ið 1889. í dag hefur hann hins vegar hlotið uppreisn æru og verk hans þykja með því merkasta í íslenskri alþýðu- listasögu. kvöldstund á dögunum er hanr lét gamlan draum rætast og stó hinum megin barborðsins á kafí 7 húsinu Sólon Islandus og afgreiddi gesti og gangandi. sína daga og a að vita hvað ha syngur. Sólon landus var opnac árið 1992, en tóku átján íslens' listamenn og fj skyldur þeirra Sig saman og stofn- uðu kaffilistahús með þessu heiti. Verslun Málarans hafði verið til húsa á horninu um ára- tuga skeið og opnun kaffihússins þótti sæta talsverðum tíðindum á sín- um tíma. Síðan hefur þó talsvert af kaffi og öðrum dýrari veigum runnið til sjávar og kaffihús sprottið upp á hverju götuhomi í miðborginni að er- lendum sið. Allt of mörg segja sumir, aðrir telja þetta eðilega þróun og láta sér vel líka. Samband lista og menningar við kaffihúsið leynir sér ekki. Listamenn sækja það tíðum, ekki síst neðri hæðina og lifandi tónlist er þar í heiðri höfð, auk þess sem málverk ýmissa listamanna eru þar jafnan á veggjum til sýnis. Öðru máli gegnir ef til vill um þá efri. Sölvasal hertaka háskóla- stúdentar gjarnan um helgar, ekki síst forkólfar stjórnmálahreyfing- anna í Háskólanum, Vöku og Röskvu. Seiðandi tónlist blandast þá almennri þjóðfélagsumræðu og tíð- um er karpað um stjórnmál. Sýnist þar sitt hverjum eins og gengur. Stefán yfirvert telur ýmsar ástæður vera fyrir vinsældum staðarins með- al stúdenta. „Fólk veit að hverju það gengur hér, hér kemur fólk til að sýna sig og sjá aðra. Sólon sækir fólk ekki til að dansa alla nóttina eða skvetta ærlega úr klaufunum, heldur „ Morgunblaðið/Jón Svavarsson LEIKHUSFOLKIÐ komið á staðinn og törnin byrjuð. Skyldu gestir gera sér grein fyrir reynslu- leysi barþjónsins? til að ræða málin og hafa það huggu- legt í góðra vina hópi.“ Leikhúsfólkið Þótt stúdentar séu þaulsetnir á staðnum, rétt eins og helstu mennta- menn þjóðarinnar áttu vanda til í Kaupmannahöfn hér áður fyrr, er ekki þar með sagt að aðrir líti ekki þar við. Yfirvertinn segir nefnilega að hinu dæmigerða kvöldi megi skipta í tvennt, fyrst komi leikhús- fólkið og svo fastagestirnir um og upp úr miðnætti og á þá við helgam- ar. „Leikhúsfólkið," hváir blaðamað- ur og lítur spurnai-augum á hinn reynda barþjón. „Jú, sjáðu til,“ svar- ar hann. „Um þetta leyti lýkur kvöld- sýningunum í Óperunni, Þjóðleikhús- inu og fleiri leikhúsum og margir gestir bregða sér á kaffihús að lok- inni sýningu og bera þar saman bæk- ur sínar yfir hressingu. Þetta fólk kemur oft hingað í hópum, en stopp- ar fæst lengi og bregst þá sjaldan að það er á heimleið þegar fastagestirn- ir og aðrir koma á staðinn." Þetta stendur heima. Skyndilega er eins og Sölvasalur fyllist af fólki. Prúðbúið á öllum aldri kemur það hér við á leið heim úr leikhúsinu. Og þar með hefst slagurinn. Svuntan hefur verið kirfilega bundin um mittið og barþjónsins og því fékk Björn Ingi Hrafnsson að kynnast eim L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.