Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 57 í DAG KIRKJUSTARF ÁRA afmæli. Á morg- un, sunnudaginn 13. september, verður fimm- tugur Benedikt Sævar Vil- hjálmsson, starfsmaður hjá Fálkanum hf., Kópavogs- braut 73. Hann og kona hans Guðrún Elísabet Bjarnadóttir taka á móti gestum í dag, laugardag, 1 Kiwanissalnum, Engjateigi 11, Reykjavík, milli kl. 20 og 23. ÁRA afmæli. í dag, laugardaginn 12. september, verður fimm- tugur Einar S. Sigurðsson, verslunarstjóri, Strandgötu 2, Hvammstanga. Eigin- kona hans er Svanhvít Kjartansdóttir. Þau taka á móti gestum í félagsheimil- inu Drangey, Stakkahlíð 17, Reykjavík, milli kl. 18 og 23 á afmælisdaginn. ÁRA afmæli. Næst- komandi mánudag, 14. september, verður fimmtugur fvar Magnússon heildsali, Hlíðarvegi 44, Kópavogi. Hann og eigin- kona hans, Arnheiður Sig- urðardóttir, hjúkrunar- fræðingur, taka á móti gestum á heimili sínu í dag milli kl. 17 og 19. BRIDS llnisjón (iiiðmiindiir Fáll Arnurson TALAN 200 er gulls ígildi í tvímenningi og því freist- ast AV til að dobla suður í spaðabút. gefur; allir á Norður * 7 V ÁG742 * G64 * G765 Austur * D98 V KD1086 * 83 * 842 Suður * ÁKG103 y 53 * ÁK5 * 1093 Vestur Norður Austur Suður - - - 1 spaði Pass 1 gi-aiifí pass 2 giönd Pass 3 hjörtu Dobl 3spaðar Dobl Ailirpass Vestur „skoðar blindan“ með laufdrottningu og austur sýnir þríiit. Og nú er það spurningin: Fá AV 200-kall og toppskor, eða mínus 730 og hreinan botn? Það fer vissulega eftir því hvernig haldið er á spilunum, bæði í sókn og vörn, en ef við gerum ráð fyrir bestu spilamennsku á báða bóga, þá hefur vömin betur. Vestur tekur þrjá slagi á lauf í byrjun og skiptir síð- an yfir í hjarta. Sagnhafi drepur; svínar spaðagosa, tekur AK og - Norður * - V G7 ♦ G64 *G Vestur Austur * 6 * - V- ¥ KD108 ♦ D10972 ♦ 83 *- *- Suður *G3 »5 ♦ ÁK5 * - spilar spaðaþristi og gefur vestri slag á tromp- hundinn! En það er „tveir fyrn- einn“, eins og segir í auglýsingunum, því vestur verður að spiia frá tíguldrottningu og gefa blindum slag á gosann, þar sem laufgosinn bíður frír. Mótleikur vesturs er auðvitað fólginn í því að henda ofan af spöðunum og geyma tvistinn. Þá verður honum ekki spilað inn á tromp. Suður hættu. Vestur * 6542 V9 ♦ D10972 *ÁKD Með morgunkaffinu Ást er... . . . fullkomið par. TM Reg. U.S. Pat. Off — all rigtrts reserved (c) 1998 Lo& Angeles Ttmcs Syndicate HANN hefur alltaf verið óþolandi monthani. SKÁK liniNjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á stóra opna mótinu í Berlín í ágúst. Tékkinn Jiri Stocek (2.470) hafði hvítt og átti leik gegn úkrainska stór- meistaranum Vyacheslav Eingorn (2.610). Eingorn hefur verið sigursæh á fyrri Berlínar- mótum, en þessi skák batt enda á það: 34. Hxe4! - fxe4 35. Rd7+ - Hxd7 36. Dxh5 og svartur gafst upp, því hann- hefur tapað drottningunni. Það urðu óvænt úrslit á mótinu að þessu sinni, því tveir ungir alþjóðlegir meistarar skutu tugum stórmeistara ref fyrh' rass og sigruðu. Það voru þeir Jonathan Pai'ker, Englandi og Lu- bomh- Michaletz, Ukraínu, sem báðir hlutu VA vinning af 9 mögulegum. HVÍTUR leikur og vinnur HÖGNI HREKKVÍSI „ Ba he-faU-taf heyrt c& þuottahirnir þvxbu. rnatiruv Sinn>." STJÖRMJSPA eftir Frances llrakc MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert skipulagður og átt gott með að starfa með öðrum og þú leggur upp úr því að kynnast innra manni fólks. Hrútur (21. mars -19. apríl) Það hljómar oft best það sem maður segir sjálfm- en mundu að aðrir hafa sínar skoðanir og viija líka koma þeim á ft'amfæri. Naut (20. apríl - 20. maí) 0* Forðastu að taka ákvarðanir að óyfii'veguðu ráði. Sýndu sérstaka aðgæslu í fjármál- um því þess er svo sannar- lega þörf. Tvíburar . ^ (21. maí - 20. júní) on Ymsar nýjungar eni á döf- inni hjá þér og þú ert ágæt- lega 1 stakk búinn til að fást við þær. Helltu þér út í starfið. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Reyndu að láta ekki eigin vangaveltur draga athygli þína um of frá því sem þarf að gera. Það er betra að ein- hver áhrif á hlutina en engin. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) SW Gættu þess að láta ímynd- unaraflið ekki hiaupa með þig í gönur. Vertu samt óhræddur við að segja hug þinn því hreinskilnin borgar sig alltaf., Meyja (23. ágúst - 22. september) ( Þér ftnnst annað fólk treysta um of á þig til þess að hjólin snúist. Láttu þetta ekki ergja þig heldur haltu bara þínu striki. (23. sept. - 22. október) m, Þú átt gott með að tjá þig við aðra hvort heldur það er í gamni eða alvöru. Mundu bara að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Vogun vinnur og vogun tap- ar en það má minnka tapið með því að taka aldrei of mikla áhættu. Að öðrum kosti getur farið iila. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þú færð tilboð sem að vekja með þér bæði undrun og ánægju. Veltu þeim vand- lega fyrir þér áður en þú af- ræður nokkuð. Steingeit (22. des. -19. janúar) J Samræður um daginn veginn geta gengið úr hc Reyndu að einangra þig einbeita þér að þeim ver efnum sem fyrir liggja. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Cfiut Þú ert áhugasamm' um dul- ræn fyrirbrigði. Fylgdu eðl- isávísun þinni og þá munu réttu svörin birtast þér fyrr en síðai'. Fiskar (19. febrúar - 20. mai's) >W» Þú þarft að skipuleggja starf þitt fram í tímann. Margt virðist óljóst en er það ekki þegar betur er að gáð. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni \isindalegra staðreynda. Safnaðarstarf Tónlistar-vesper í Hver ager ðiskirkj u ANNAN sunnudag hvers mánaðar er helgistund í Hveragerðiskirkju, sem byggist fyrst og fremst upp á tónhst ásamt ritningarlestrum og bænar- gjörð og nefnist „Tónlistar-vesper". Sumartími þessara stunda er kl. 20. Vesper þýðir aftansöngur og er orðið fengið frá hefðbundinni tíða- gjörð kirkjunnar sem markaði eyktir sólarhringsins með helgihaldi. Þetta eru athafnii', sem eru ein- faldar í sniðum og aðgengilegar hverjum sem vill búa sig undfr rúm- helgi vikunnai' og njóta helgrar stundar og góðrar tónlistar. Það er hinn organisti kirkjunnar, Jörg E. Sondermann, sem á mestan veg og vanda að þessum þætti helgi- haldsins. Hann hefur ýmist leikið sjálfur alla efnisskrána, eða fengið til liðs við sig annað tónlistarfólk. Sunnudagskvöldið 13. september verður Margrét Bóasdóttir sópran- söngkona gestur stundarinnar og flytur nokkur Biblíuljóða Antonins Dovráks. Jörg E. Sondermann leik- ur orgelverk eftir J.S. Bach. Jón Ragnarsson sóknarprestur. Pílagrímaferð PÍLAGRÍMAFERÐ verður til Riftúns í Ölfusi 12. september. (Ki'ossmessa er 14. september). Gengið verðui’ fi'á Landakoti kl. 4.30, frá Maríukirkju kl. 6.30 og frá Litlu kaffistofunni í Svínahrauni kl. 11.30. Hjólreiðamenn leggja af stað frá Mar- íukirkju kl. 12. I Riftúni eru beðnar krossferilsbænir kl. 16.30 og biskups- messa til heiðurs heilögum krossi ~ verður kl. 17.15. Allir velkomnir. Ný framkvæmda- stjóri KFUM og KFUK KFUM og KFUK í Reykjavík munu bjóða nýjan framkvæmdastjóra félag- anna, Sigurbjöm Þorkelsson, velkom- inn til starfa með formlegum hætti á samkomu í aðalstöðvum félaganna við Holtaveg á almennri samkomu sunnudaginn 13. september kl. 17. * Á samkomunni mun Sigurbjörn Þorkelsson flytja ávarp. Laufey Geir- laugsdóttir mun syngja einsöng og sr. Ólafur Jóhannsson, formaður KFUM í Reykjavík, mun flytja hugvekju. Athygli er vakin á því að samkom- an er kl. 17 og verður boðið upp á barnagæslu og fræðslu á meðan á samkomunni stendur. Samkomui' KFUM og KFUK verða síðan áframhaldandi kl. 17 í vetur og mun nýi framkvæmdastjór- inn, Sigurbjörn Þorkelsson, hafa um- sjón með þeim. Allfr eru velkomnir á samkomur félaganna og reyndar hvattir til þess að mæta. KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. AI- menn samkoma í dag kl. 14. Gesta- prédikari Eiður Einai'sson. Allir vel- komnir. Ólafur Grétar Guðmundsson augnlæknir, dr.: med. tilkynnir Læknastöðin Landakoti ehf., Marargötu 2, R, hefur hætt störfum. Ég hef því fiutt læknastofu mína í Nýju Kringlu (Borgarkringlu), suðurturn, 3. hæð t.h. (lyfta af öllum hæðum, þ.m.t. bílastæðum í kjallara). Tlmapantanir verða í síma 588 4740 eða 568 4760 alla daga vikunnar nema sunnudaga, kl. 10—16. Slmaviðtöl við lækni eftir samkomulagi í síma 588 4740, (568 4760). ★ Almenn augnlæknisþjónusta ★ Sérhæfð þjónusta við sjúkdómum á ytra borði augans ★ Snertilinsuþjónusta Vinsamlega geymið auglýsinguna. Hagkvæmt Kolaport! Lagersala á skóm “Við vorum að taka upp nýja send- ingu og verðið kemur á óvart ” sagði Helga í Skóútsölunni. Úrval af austurlandavöru Það er hvergi meira úrval af austur- landavöru en í Kolaportinu. “Verðið er lágt” sagði Gústi og “Risablævæng- irnir eru vinsælir” bætti Sirivan við. Tískuverslanir með útsölu Tískuverslanir eru oft með útsölur í Kolaportinu. Þessar vikurnar er t.d. að finna þar Extrabúðina, Kókó og Kjallarann. “Gott úrval á ótrúlegu verði” sagði viðskiptavinurum helgina. Mikil sala á kompudóti Þó margir hafi pantað pláss undir kompudót síðustu helgar vantar alltaf meira af þessu sívinsælakompudóti. Við bendum fólki á að reynslan hefur sýnt að fólk hefur að jafnaði lugi þúsunda upp úr krafsinu”. Markaðstorg sælkeranna Kolaportið hefur löngum verið þekkt fyrir mikið úrval matvæla og ntikið af þeim fæstekki annars staðar. Sumir kalla Kolaportið markaðstorg sælkerans og það er ekki að ósynju. Kolaportið er opið laugardaga og sunnudagakl. 11:00-17:00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.