Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Ljóska Ferdinand Jæja, Sámur, hvemig er lífið í Það fer versnandi. Þeir eru byrjaðir að kalla lína. skotgröfunum? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Fjögnr hjörtu Frá Steingrími St. Th. Sigurðssyni: ÞAÐ FÆRÐIST blómstrandi líf yf- ir Akureyri þegar leikendur af gamla skólanum, þeir Bessi Bjarna- son, Gunnar Evjólfsson, Rúrik Haraldsson og Arni Tryggvason, tróðu upp í skemmtilegum húsa- kynnum neðst á Oddeyrinni á Akureyri. Þetta er raunar leikhús - Renniverkstæði - sem hefur verið breytt og gefin sál. Það er gott að koma í þetta hús og það er gott að njóta leiklistar þar. Þetta hús er laust við prjál og yfírborðsmennsku en það er engu að síð- ur geðugt (austfirzkt hugtak sem merkir að eitthvað sé manni að skapi). Renniverk- stæðið, eins og það heitir þetta leikhús, býður upp á frjálsan anda, sem kom greini- lega fram í leiksýn- ingu, sem haldin hefur verið undanfarið þama og heitir Fjögur hjörtu. Leikritið er eftir forvitnilegan höfund, Olaf Jóhann Olafsson, sem vinstri slagsíðu gagnrýnendurnir hafa af lífs- og sálarkröftum reynt að gera lítið úr með ávirðingum, sem engin rök hafa verið fyrir. Nú vill svo til, að þessir fjórir leikendur af gamla skólanum, sem eru flestir mótaðir af enskum leikskóla, minna á leik í brezkum kvikmyndum, sem fram- leiddar voru af J. Ai'thur Rank upp úr styrjöldinni seinni. Þessir leikar- ar voru hver öðrum betri og athygl- isverðari. Líklega hafa þarna verið einhver Stanislavskíj-áhi'if að verki. Ekki vil ég gera upp á milli leikend- anna. Þeir eru allir skemmtilegir, hver á sinn hátt, og engin ellimörk sjáanleg. Leikur þeirra er hlaðinn lífsorku og tilfinningaauði, þannig að hver mínúta er skemmtileg. Það er viss spenna í ieikritinu og maður skemmtir sér. Ég hef ekki unað mér jafnvel í leikhúsi undanfarin tuttugu ár eins og þarna á Renni- verkstæðinu á Akureyri. Maður nokkur úr Hafnarfirði, sem rekið hefur veitingastað við hliðina á Renniverkstæðinu, hefur beitt sér af hugsjón fyrir lifandi leikhúslífi þarna neðst á Tanganum á Akur- eyri. Mig langar aðeins til að minn- ast á Gunnar Eyjólfsson, sem er ákaflega lífsreyndur leikari, eins og þeir hinir, og það merkilega við hann og einnig hina, er að þeir eru að ég hygg betri leikendur en áður. Það er sagt um gamla jazzleikara frá New Orleans, að þeir spili jazzlögin ekki síður á níræðisaldri, heldur en þegar þeir voru á þrí- tugs- eða fertugsaldri. Leiksýningamar á Akureyri verða nokkrar í viðbót þarna á Renniverkstæðinu. Þetta er for- dæmi, sem lyftir andlegu lífi í land- inu og leiðir til eðlilegs menningar- lífs, en ekki tilgerðar sem tíðkast í gervilistaheiminum á íslandi. Heill sé höfundi leikritsins er skrifar leik- rit, sem manni dettur í hug að séu ekki síðri en leikrit eftir Bernhard Shaw og jafnvel Oscar Wilde, hvað fyndni og andríki varðar, eða þetta sem Bretinn kallar „wit“. Þessi Olafur Jóhann virðist engan hafa stælt, en hann er bæði smekklegur og skemmtilegur og síðast en ekki sízt ber að þakka Gaflaranum unga, sem af hugsjónaeldi hefur lyft Grettistaki í leiklist á Akureyri. Akureyri á langa hefð í leiklist. Ber þar að nefna Soffíu Guðlaugsdóttur, Harald Björnsson, Jón Norðfjörð og síðast en ekki sízt Ágúst Kvaran, þann aristókrat, sem var á heims- mælikvarða. STEINGRÍMUR ST.TH. SIGURÐSSON, listamaður. BESSI Bjarnason, Gunnar Eyjólfsson, Rúrik Haraldsson og Árni Tryggvason í hlutverkum sínum í fjórum hjörtum. Svar til Hildar Ölafsdótt- > * ur og Olafar Oladóttur Frá Ólafi Laufdal: í MORGUNBLAÐINU 10. septem- ber þar sem þið kvartið yfir „troðn- ingi á Broadway", vill undirritaður taka fram eftirfarandi: I fyrsta lagi leiðrétta að hljóm- sveitin var með miðasöluna á um- ræddan dansleik og rann aðgangs- eyrir til hennar en ekki Broadway, svo fullyrðing ykkar um „græðgi" forráðamanna veitingahússins á engan veginn við. Seldir voru 2.000 miðar á dans- leikinn, en húsið hefur leyfi fyi-ir 2.155 gestum, svo ekki var verið að „yfirfylla" staðinn nú frekar en endranær, en geta má þess að á dansleik sem þessum eru viss svæði í húsinu svo til tóm þar sem gestir safnast allir saman á og við dans- gólf, svo að stíflur myndast óhjá- kvæmilega þar. Dansleikurinn var frá miðnætti til kl. 3 og þegar slíkur fjöldi gesta yfirgefur staðinn nánast samtímis, gefur auga leið að ekki er mögulegt að afgreiða yfirhafnir án þess að troðningur myndist við fatahengið, þegar gestir vitja yfirhafna sinna. Broadway er þekkt fyrir snyrti- legt og vandað yfirbragð og kapp- kostar að skapa gestum sínum sem notalegast umhverfi, en í vissum tilfellum sem þessu, má sjá af of- anskráðu að erfitt getur verið um vik. ÓLAFUR LAUFDAL. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.