Morgunblaðið - 12.09.1998, Side 8
8 LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR hljóta að vera meira en lítið spennandi þessir gúmmíhringir
hann kíkir ekki svo mikið sem með öðru á okkur skvfsurnar.
Starfsmenn
Armannsfells
fylgja fjall-
göngugarpi
SAMSTARFSMENN Árna Eð-
valdssonar, leiðangursstjóra ís-
lenska leiðangursins sem ætlar
að klífa fjallið Ama Dablam,
fóru á laugardaginn með honum
í „sfðustu" æfingaferðina áður
en hann og hópurinn heldur til
Nepal í iok mánaðarins. Að
þessu sinni var klifíð fjallið Ár-
mannsfell ofan við Þingvelli, en
Árni starfar sem trésmiður hjá
Ármannsfelli hf.
Gangan á Ármannsfell þótti
mörgum erfið en fjallið er þó
ekki nema 1/9 af hæð Ama
Dablam, sem er 6.856 m hátt. Til
að Árni fengi sem mesta æfingu
út úr göngunni var hann látinn
bera nesti allra göngumanna á
toppinn auk þess sem þeir
yngstu fengu öðru hverju að
hvíla sig á öxlum Árna. Þegar
upp var komið var sest að
snæðingi og notið útsýnisins yfir
Þingvallasveitina í yndislegu
Morgunblaðið/Jón Pálsson
MENN hvfldu lúin bein þegar upp á Ármannsfellið var komið.
veðri á meðan Árni fræddi
leiðangursmenn um helstu
kennileiti, jarðfræði og sögur
svæðisins.
Ferðin var í alla staði vel
heppnuð og óskuðu samstarfs-
menn Árna og fjölskyldur þeirra
honum og félögum hans góðrar
ferðar til Himalajafjallgarðar-
ins. Ármannsfell hf. styrkir
leiðangurinn með aðstoð við
kaup á búnaði.
Gevalia, cappucino, 125 g
Túnfiskur í olíu
og í vatni
Kavli kavíar, Kavli kavíar,
léttur 95 g léttur 150 g
Isensk kjötsúpa
Gevalia, instant,
mqjwrnig
kjötsúpa
kjötsúpa
íI HEIM • UM LAND ALLT
KCMMJI
C. /VTPR00
Grafarvogshátíð haldin 12. september
Hundruð manna
standa að
dagskránni
IBÚAR í Grafarvogi
ætla að efna til hátíðar í
hverfinu í dag, laugar-
daginn 12. september, og
hefst dagskráin klukkan tíu
árdegis með guðsþjónustu í
Grafarvogskirkju fyrir alla
fjölskylduna. Klukkustundu
síðar verður þjóðsögu- og
ævintýraganga um Grafar-
vog, klukkan tólf á hádegi
hefst Grafarvogsglíma á
íþróttasvæði Fjölnis og
Torgshlaup við verslunar-
miðstöðina Torgið hefst
klukkan 14. Milli klukkan
14 og 18 verður menningar-
dagskrá í Rimaskóla, sund-
laugarpartí með diskótón-
list hefst klukkan 15 og
klukkan 18 taka íbúar sig
saman og grilla. Klukkan 20
verður síðan varðeldur á
Gylfaflöt og flugeldasýning
og endahnútur verður bundinn á
dagskrána klukkan 21 með tón-
leikum og balli í félagsmiðstöðinni
Fjörgyn.
Yfíi'skrift hátíðarinnar er Mátt-
ur og menning, sameining og
samheldni í leik og starfí, segir
Elísabet Gísladóttir, sem sæti á í
framkvæmdanefnd hátíðarinnar
fyi'ir hönd samtaka foreldrafélaga
leikskóla í hverfinu.
- Hvernig er Grafarvogs-
hátíðin til komin?
„Síðastliðið haust var stofnað
svokallað Grafarvogsráð hér í
hverfinu þar sem eiga sæti full-
trúar allra skóla, foreldrafélaga,
íþrótta- og líknarfélaga eða ann-
arrar starfsemi í hverfmu. I
ráðinu sitja að minnsta kosti 100
manns. Sú hugmynd kom upp að
nýta allan þann kraft sem býr hér
í hverfmu. Hér er geysilega mikið
að gerast og i Grafarvogi býr
fjöldi listafólks, svo dæmi sé tekið.
Ibúar í hverfinu eru rúmlega
15.000 og allir sem taka þátt í
dagskránni búa hér, nema Páll
Óskar sem kemur fram á tónleik-
um um kvöldið. Þeir gefa jafn-
framt vinnu sína og mjög gaman
hefur verið að finna hversu
jákvætt fólk er og hversu mikill
áhuginn er fyrir því að gera
hátíðina að veruleika. Þátttakend-
ur munu skipta hundruðum.“
Undirbúningur hefur staðið frá
því í vor segir Elísabet þegar und-
irbúningshópurinn var skipaður. I
honum eiga sæti auk hennar
Guðrún Snorradóttir frá Hamra-
skóla, Hallgrímur Sigurðsson,
fulltrúi íbúasamtaka í hverfinu,
Aðalsteinn Snorrason, fulltrúi
hlaupahóps í Grafar-
vogi, Óskar Dýrmund-
ur, fulltrúi Miðgarðs, og
Anna Gunnarsdóttir,
fulltrúi soroptimista.
- Hvað getur þú sagt
nánar um dagskrána?
„I guðsþjónustunni “1““““
verður ljósamessa þar
sem útbúin verða borð og raðað
upp í kross. Hver og einn kirkju-
gestur kveikir síðan á kerti sem
bæn. Eitt barn frá hverjum skóla
mun líka lesa sérstaka bæn og í
einni þeirra er til dæmis beðið
fyrir öllum börnum í hverfinu,
sem og öllum börnum heimsins.
Einnig verðum við með þjóðsögu-
og ævintýragöngu því í hverfinu
er mikið af markverðum stöðum
að þessu leyti. Bárður Snæfellsás
átti dóttur sem hét Helga, Hún
fékk ekki að eiga manninn sem
hún vildi og settist því að ein uppi
á svokölluðum Helgustekk _ í
Foldahverfi. Anna Lísa frá Ár-
bæjarsafni mun ganga um og
segja fólki slíkar sögur.
Klukkan tólf á hádegi verður
Elísabet Gísladóttir
► Elísabet Gísladóttir fæddist í
Reykjavík árið 1959. Hún lauk
prdfi í iðnrekstrarfræði frá
Tækniskóla íslands árið 1992 og
hefur stundað nám í guðfræði
við Háskóla Islands með áherslu
á sálgæslu og félagsfræði und-
anfarin ár. Hún var búsett í
Svíþjóð í tvö ár og hefur gegnt
sölu- og markaðsstarfi og unnið
við bókhald og endurskoðun í
áranna rás. Undanfarið hefur
hún starfað á Reykjalundi og er
nú framkvæmdastjóri
Heilsugæslustöðvarinnar í Mos-
fellsbæ. Hún er jafnframt for-
maður Reykjavíkurdeildar
Landssamtaka foreldrafélaga
leikskóla. Maki Elísabetar er
Arndr Valdimarsson flugvél-
stjóri og eiga þau börnin Gisla
Berg, sem fæddur er 1983,
Kristinu Björk, sem fædd er
1989, og Eirík Björn, sem fædd-
ur er 1993.
líka karamelluregn úr flugvél yfir
svæðið og mun borgarstjóri
ávarpa viðstadda að því búnu.
Formaður hverfisnefndar mun
líka flytja ávarp og afhenda mátt-
arstólpann. Vonast er til að mátt-
arstólpinn verði afhentur árlega
hér eftir en hann hlýtur félags-
skapur sem náð hefur árangri í
einhvers konar sköpun eða upp-
byggingu, öðrum íbúum til góða.
Einnig má nefna grillveisluna
sem halda á klukkan 18. Þar er
hugmyndin sú að allir íbúar geti
lagt sitt af mörkum þótt þeir taki
sig ekki saman og komi út á götu.
Þeir geta grillað úti á svölum hjá
sér og verið með þannig. Þema
dagskrárinnar er að
kraftinum sem felst í
samheldni íbúanna sé
varið í að skapa menn-
ingu hér í hverfinu.
Þetta viljum við byggja
upp í þjóðfélagi þar
sem allir eru á stöðug-
um hlaupum."
- Hvaða sjóður er Náungakær-
leikasjóður sem getið er í dag-
skránni?
„Þorbjörn glímukappi var bú-
settur hér og í Grafarvogs-
glímunni munu sex fyrirtæki í
hverfinu glíma og taka þátt í alls
kyns spaugilegum uppákomum.
Þessi fyrirtæki munu leggja fé í
Náungakærleikasjóðinn, því þó
svo að margir í hverfinu búi vel
vitum við af mörgum sem eiga um
sárt að binda. Kirkjan og
soroptimistar munu síðan útdeila
fénu.“
- Er hátíðin opin Öði'um en íbú-
um Grafarvogs?
„Við viljum hvetja alla til þess
að koma í heimsókn til okkar og
taka þátt í Grafarvogs hátíð in n i. “
Páll Óskar sá
eini sem ekki
er úr Grafar-
vogi