Morgunblaðið - 12.09.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 27
ERLENT
Israelskir hermenn drápu tvo íslamska
öfgamenn nærri Hebron
Hamas heitir
hefndum
Gaza. Reuters.
LÖNG biðröð eftir mjólk á lágu verði myndaðist í miðborg Moskvu í gær.
Reuters
Kommúnistar liasla sér völl við stjórnarskipti í Rússlandi
Skiptar skoðanir um
ágæti nvrra manna
Moskvu. Reuters.
HAMAS, samtök íslamskra öfga-
trúarmanna, hétu í gær að hefna
grimmilega dauða tveggja grun-
aðra höfuðpaura samtakanna sem
ísraelskir hermenn skutu til bana
nærri borginni Hebron á Vestur-
bakkanum á fimmtudag. Hefur ísr-
ael þegar lokað landamærum sínum
á Vesturbakkanum og á Gazasvæð-
inu og sagt herliði sínu að vera við-
búið hefndarárásum palestínsku
samtakanna.
Mikil spenna rikir nú í Miðaust-
urlöndum enda stóð Hamas íyrir
sprengjuherferð árið 1996 sem olli
dauða 57 manna eftir að Yahya
Ayyash, sprengjusérfræðingur
Hamas, var myrtur.
Israel hefur lengi reynt að hafa
hendur í hári bræðranna Imad og
Adel Awadallah vegna aðildar
þeirra að ódæðisverkum Hamas-
samtakanna. I kjölfar dauða þeirra
nú hittust leiðtogar Hamas til að
SAMDRÁTTUR varð í japönsku
efnahagslífi frá apríl til júní á þessu
ári, þriðja ársfjórðunginn í röð, að
því er japönsk stjómvöld greindu
frá í gær. Ytir það enn undir svart-
sýni um að takast muni að leysa
efnahagsvanda Japans í bráð. Gengi
hlutabréfa hríðlækkaði einnig á
japönskum mörkuðum í gær.
Verg landsframleiðsla féll um
0,8% frá byrjun apríl til júníloka, en
það samsvarar 3,3% lækkun á ári.
Samdrátturinn var jafnvel meiri en
svartsýnustu hagfræðingar höfðu
spáð. Taichi Sakaiya, ráðherra efna-
hagsáætlana, sagði í gær að ljóst
væri að því takmarki stjórnarinnar
að verg landsframleiðsla hækkaði
um 1,9% á áiánu yrði ekki náð.
Hann tjáði fréttamönnum að líklegt
væri að efnahagsspá fyrir júlí til
september yrði endurskoðuð með
tilliti til hagtalna mánaðanna á und-
an.
Aldrei hefur orðið samdráttur í
japönsku efnahagslífi þrjá ársfjórð-
unga í röð síðan stjórnvöld tóku upp
ræða viðbrögð sín og lofaði Sheikh
Ahmed Yassin, andlegur leiðtogi
samtakanna, skjótum hefndum
sem dynja myndu yfir „eins og
jarðskjálfti yfir Zíonista", og
minna á sjálfsmorðsherferðir
Hamas árið 1996, í kjölfar morðs-
ins á Ayyash.
Um 300 meðlimir Hamas sóttu
mótmælafund á Gaza í gær og
brutust út óeirðir á nokkrum stöð-
um. Særðust fimm Palestínumenn
á Vesturbakkanum þegar ísraelsk-
ar hersveitir skutu á samkomu
Hamas-manna. Ahmed Abdel-Ra-
hman, einn talsmanna palest-
ínskra stjórnvalda, sakaði Israel
um „ríkisrekin hryðjuverk" sem
ætlað væri að draga úr líkunum á
því að heimsókn Dennis Ross,
sendimanns Bandaríkjastjórnar,
mjakaði áfram friðarviðræðum
sem um nokkra hríð hafa legið
niðri.
núgildandi reikningsaðferð árið
1955.
Ekki líkur á bata í bráð
Hagfræðingar telja að ástæður
samdráttarins megi fyi'st og fremst
rekja til minnkandi eftirspurnar og
neyslu. Ekki er talið líklegt að
ástandið fari batnandi á þriðja árs-
fjórðungi, en vonast er til að áhrifa
efnahagsaðgerða stjórnarinnar fari
að gæta á síðasta fjórðungi ársins.
Hagfræðingar leggja áherslu á að
leysa verði vanda japönsku bank-
anna hið snarasta, en þeir eru mjög
skuldsettir, eigi að vera hægt að
snúa efnahagsþróuninni við.
Gengi hlutabréfa hríðlækkaði á
japönskum mörkuðum í gær.
Nikkei-vei'ðbréfavísitalan var í
13.916,98 stigum við lokun í gær, og
var það rúmlega 5% lækkun frá
deginum áður. Seðlabankastjóri
Japans, Masaru Hayami, sagði í
gær að lækkun á gengi hlutabréfa í
Bandaríkjunum hefði gífurleg áhrif
á fjármálamarkaðinn í Japan.
JEVGENÍ Prímakov, nýskipaður
forsætisráðherra Rússlands, hefur
tilnefnt Júrí Masljúkov félaga í
Kommúnistaflokknum í embætti að-
stoðarforsætisráðherra, með
ábyrgð á efnahagsmálum. I gær af-
greiddi Dúman skipan annars
kommúnista, Viktors Gerashtjenkó,
í embætti seðlabankastjóra, en því
embætti gegndi hann fyrir hrun
Sovétríkjanna.
Tilnefningarnar hafa vakið blend-
in viðbrögð heima fyrir og á Vestur-
löndum, þar sem sérfræðingar á
sviði efnhagsmála vara við hættunni
á afturhvarfi til tilskipana og mið-
stýringar í rússnesku efnahagslífi.
Aðrir segja ekkert benda til að
horfið verði aftur til gamalla tíma
og stjórnunarhátta. Pað sjónarmið
ítrekaði hinn nýi forsætisráðherra í
ræðu sinni í neðri deild rússneska
þingsins í gær er hann sagði: „Við
verðum að halda áfram á braut um-
bóta, þær eru eina færa leiðin út úr
ógöngunum."
Gamalreyndir kerfiskarlar
Báðir tveir, Gerashtjenkó og
Masljúkov, eru gamalreyndir emb-
ættismenn úr sovétkerfinu. Viktor
Gerashtjenkó bar ábyrgð á ótæpi-
legri prentun peningaseðla, sem olli
óðaverðbólgu þegar hann var seðla-
bankastjóri árin 1992-1993.
Masljúkov var áður yfirmaður Gos-
plan, hins mikla bákns sem stýrði til-
skipanahagkei'finu á tímum Sovét-
ríkjanna. Kíríjenkó gerði hann að
viðskipta- og iðnaðarráðherra í júlí
síðastliðinn, í tilraun til að koma til
móts við kröfur kommúnista um völd
og áhrif í skammlífri stjórn hans.
Tilnefning Masljúkovs hefur vakið
blendin viðrögð. „Masljúkov stjóm-
aði Gosplan, eins og allir vita, og ég
held það sé hægara sagt en gert fyr-
ir hans líka að breyta Hugsunarhætti
sínum,“ sagði Sergej Shatalov, yfir-
maður skattamála hjá fjánnálafyiir-
tækinu Price Waterhouse í Moskvu.
Júri Masljúkov, sem er 61 árs að
aldri, á dæmigerðan starfsferil að
baki innan hins gamla Kommúnista-
flokks. Míkhaíl Gorbatsjov, þáver-
andi leiðtogi Sovétríkjanna, gerði
hann að yfirmanni Gosplan árið
1988 og ári síðar tók Masljúkov sæti
í stjórnmálaráðinu og sat þar uns
Sovétríkin féllu árið 1991.
Fréttaskýrendur telja Masljúkov
hófsaman kommúnista. Hann gekk
til dæmis þvert gegn vilja flokks
síns með því að styðja Sergej Kíríj-
enkó í þriðju og úrslitaatkvæða-
greiðslunni um skipan hans í emb-
ætti forsætisráðherra.
Bankastjóri snýr aftur
Fjögur ár eru liðin síðan Viktor
Gerashtjenkó var rekinn úr stöðu
seðlabankastjóra í kjölfar „Svarta
þriðjudagsins“, er gengi rúblunnar
lækkaði um 30% á einum degi. Til-
nefning hans hefur vakið litla hrifn-
ingu meðai hagfræðinga á Vestur-
löndum en í tilkynningu frá Kreml
segir að Gerashtjenkó sé „raunsær
maður í starf seðlabankastjóra."
Hann tekur sæti Sergejs Dúbíníns
sem sagði störfum sínum lausum
fyi'r í vikunni vegna falls rúblunnar.
Gerashtjenkó, sem er jafnaldri
Masljúkovs, hefur alla tíð starfað
innan bankakerfisins, og nýlega
gagnrýnt Kíríjenkó, fráfarandi for-
sætisráðherra, opinberlega fyrir að
fara sér óðslega við markaðsvæð-
ingu efnahagslífsins.
Rússneskir bankamenn fagna til-
nefningu Gerashtjenkós en erlendir
sérfræðingar benda á að hann hafi
litla yfirsýn yfir rússnesk efnahags-
mál og hagstjórnarþekking hans
dugi ekki til við þær neyðaraðstæð-
ur sem nú ríki í Rússlandi.
„Rauðliðar í Hvíta húsinu“
Dagblaðið Sevodnya sló í gær upp
fyrirsögninni „Rauðliðar í Hvíta
húsinu", með tilvísun í stjórnarráðið
í Moskvu, í umfjöllun sinni um til-
nefningarnar tvær. Blaðið spáir því
að forráð Masljúkovs yfir efnahags-
málum þýði að skammt sé að bíða
þess að eldri stjórnarhættir verði
teknir upp í Rússlandi: „Allir sem
hafa gleymt gömlu sovésku efna-
hagsstjórninni munu bráðlega fá
tækifæri til þess að rifja hana upp á
ný,“ mátti lesa í Sevodnya í gær.
Fréttaskýrendur telja hins vegar
að Prímakov muni leita jafnvægis í
skipan í ríkisstjórnina, m.a. með því
að tilnefna ráðherraefni úr Jabloko-
flokknum, sem er harður andstæð-
ingur kommúnista. Þeir benda
einnig á að nú þurfi kommúnistar
loks sjálfir að axla ábyrgð á hinum
gífurlega efnahagsvanda Rússlands.
Blikur á lofti í japönskum efnahagsmálum
Samdráttur þriðja
ársfjórðunginn í röð
Tókýd. Reuters.
Stjórnarskipti eftir
kosningar í Svíþjóð?
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
STJÓRNARSKIPTI ber hæst i
umræðunni fyrir kosningarnai' í
Svíþjóð 20. september. Þá kemur í
ljós hvort hægri stjórnin 1991-1994
var aðeins ein fárra undantekninga
undanfarna áratugi, eða hvort Jafn-
aðarmannaflokkurinn hafi misst fót-
festu og von sé örari stjórnarskipta.
Eins og er bendir fátt til að hægri-
flokkunum takist aftur að mynda
stjórn, þó skoðanakannanir sýni að
meirihluti vilji fá Carl Bildt leiðtoga
Hægriflokksins sem forsætisráð-
herra, því í heild eflist hægrivæng-
urinn ekki nóg til að stjómarskipti
séu líkleg.
Einstök fótfesta sænskra
jafnaðarmanna
Sænski Jafnaðarmannaflokkur-
inn hefur haft fádæma fótfestu í
sænskum stjórnmálum. Frá 1932 til
1976 var valdatími flokksins órof-
inn, að undanteknum nokkrum
mánuðum og fylgi hans hefur iðu-
lega verið í kringum eða rétt undir
50 prósentum. Frá 1976-1982 voru
mið- og hægriflokkar við stjórn og
svo aftur 1991-1994, en að öðru leyti
hafa Jafnaðarmenn verið í stjórn.
Boðskapur Jafnaðarmanna til
kjósenda nú er að erfiðleikar í efna-
hagsmálum séu að baki, en hægri-
menn benda á að atvinnuleysið sé
enn hrikalegt og lítt gangi að búa í
haginn fyrir atvinnusköpun. Hægri-
flokkurinn vill að Svíar verði aftur
jafn umsvifamiklir á alþjóðavett-
vangi og þeir voru á árum áður. Það
er áberandi að í kosningastefnuskrá
jafnaðarmanna em utanríkis- og
Evrópumál varla nefnd á nafn, með-
an Hægriflokkurinn leggur mikla
áherslu á þau.
Sænska utanríkisstefnu vanti
í grein í þýska blaðinu Frank-
furter Allgemeine Zeitung var því
nýlega haldið fram að Svíar hefðu
enga utanríkisstefna, en í viðtali við
sænska útvarpið sagði Lena Hjelm-
Wallén utanríkisráðherra þetta al-
rangt og benti á umsvif stjórnarinn-
ar í málefnum Eystrasaltsins. Carl
Bildt hefur hins vegar kvartað sár-
lega yfir litlum metnaði stjórnarinn-
ar í Evrópumálum. Gagnrýnendur
hans segja hann leggja of mikla
áherslu á utanríkismál og sýna inn-
anríkismálum of lítinn áhuga.
Bildt nýtur mikilla persónulegra
vinsælda og trausts. Hann sendir
vikulega út fréttabréf til rúmlega 20
þúsund áskrifenda sem að mestu
fjalla um utanríkismál. Bréfin má
nálgast á heimasíðu flokksins,
www.moderat.se og enginn leiðtogi
hefur jafn mikinn fjölda móttak-
enda. Bildt verst allra frétta um fyr-
irætlanir sínar, ef ekkert verði af
hægristjórn, en hann leggur
áherslu á að það séu stjórnartaum-
arnir, sem hann sækist eftir og ann-
að ekki.
Vinstriflokkurinn í sljórn?
Helsta hreyfingin í hópi kjósenda
frá því í sumar er straumur til litlu
flokkanna eins og Vinstriflokksins
undir forystu Gudrun Schyman og
til Ki'istilegi'a demókrata, meðan
stóru flokkarnir tveir, Jafnaðar-
mannaflokkurinn og Hægrifiokkur-
inn hafa heldur misst kjósendur.
Þessar hreyfingar eru á bilinu 2-4
prósent. Umhverfisflokkurinn, sem
flokkaður er til vinstrivængsins, er
hins vegar í fallhættu.
Jafnvel þó Hægriflokkurinn fái
betri kosningu en síðast er hann
fékk 22,4 prósent þá dugir það ekki
til, því fylgisaukning Ki'istilegra
demóki'ata virðist koma frá Hægi'i-
flokknum og hinir flokkarnir tveir,
sem sátu í hægristjórninni 1991-
1994, Þjóðarflokkurinn og Mið-
flokkurinn, bæta ekki við sig. Vand-
inn er því að hægrivængurinn
stækkar ekki heldur flyst fylgið
bara til innan hans.
Ef svo fer sem horfir að Um-
hverfisflokkurinn falli út, þjappast
vinstrafylgið á tvo flokka, Vinstri-
flokkinn og Jafnaðarmannaflokk-
inn, sem væri þeim síðarnefndu
mjög til hagræðis, þar sem þá væru
færri að starfa með. Miklar bolla-
leggingar eru uppi um hvort
Vinstriflokkurinn muni í raun fara í
stjórn, hvort hann vilji það og hvort
jafnaðarmenn kjósi það.
Spurst hefur til flokksstarfs-
manna Jafnaðarmannaflokksins
hafi óspart ferðast til London til að
læra af sigurgöngu systurflokksins
þar, en í fljótu bragði er erfitt að
sjá hvaða lærdómur hefur verið
dreginn af þeim ferðum. Carl Bildt
hefur fleygt því við blaðamenn að
jafnaðarmenn hafí reynt að fá Tony
Blair leiðtoga breska Verkamanna-
flokksins í heimsókn, en það ekki
tekist.
Hópur óákveðinna kjósenda er
stór, einkum óákveðinna ungi'a
kjósenda, en í þeim hópi á Hægri-
flokkurinn mikil ítök. Það er því enn
of snemmt að útiloka að sagan frá
1991 endurtaki sig. Ef leiðtogar
hægi’iflokkanna eiga ekki einhver
góð laumuspil á endasprettinum eru
þó meiri líkur á að það verði sagan
frá 1994 sem endurtaki sig.