Morgunblaðið - 12.09.1998, Síða 29

Morgunblaðið - 12.09.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 29 NEYTENDUR Verð á ýsufiökum hækkar Kílóið á allt að 700 krónur ALGENGT kílóverð á nýjum ýsuflökum hefur lengi verið um 550 krónur. Verðið hefur hins vegar sums staðar hækkað að undanfórnu og eru dæmi um að kílóið hafi verið selt á um 700 krónur nú í vikunni. „Fisk\’erð hefur farið hækkandi undanfarið. Við erum að keppa við erlenda kaupendur sem eru aðallega frá Bandaríkjunum og þeir borga mjög hátt verð,“ segh’ Ai-ni Ingvars- son hjá Nýkaupi. „Ef við eigum að fryggja viðskiptavinum okkar góða ýsu erum við að keppa við mjög hátt verð.“ Árni segir að á næstu misserum hækki verðið áfram ef eftirspui-n linni ekki erlendis frá. „Fiskur er dýr í Bandaríkjunum en á Islandi líta menn enn á hann sem ódýran mánudagsmat. Þetta viðhorf mun breytast á næstu misserum.“ - Hvað um aðrar físktegundir? „Það verður að hafa í huga að 75% af fiski sem seldur er hér er ýsa en við höfum þó fundið fyrir þessu líka þegar skötuselur, stórlúða og smá- lúða eru annars vegar.“ Lán til bílakaupa Verðtryggð bfla- lán hagstæðari en óverðtryggð? lægri en meðalvexitr Seðlabanka og ég tel að þetta sé hagkvæmara en bílaviðskipti voru fyrir komu fjár- mögnunar- og tryggingafyrirtækja á þennan markað. Við verðum að horfa til þess tíma þegar bílalán voru ekki í myndinni og kaupin voru fjármögnuð milli kaupanda og selj- anda. Kaupandi bílsins fékk lán hjá seljanda sem tók jafnvel lán í við- skiptabanka. Seljandi reyndi svo að selja pappíra í banka eða láta þá í innheimtu. Þetta varð til þess að seljandi bíls var oft að taka áhættu hvort kaupandi greiddi kaupverðið eða ekki. Lánaviðskipti hafa því alltaf verið á þessum markaði en fjármögnunar- og tryggingafélög- um tókst með þessum hætti að ein- falda bílaviðskiptin." Verðtryggð lán ekki óhagstæð Þórður Jóhannesson, forstöðu- maður ráðgjafar- og fjármögnunar- sviðs hjá Glitni, segir að vextir af bílalánum séu jafnvel hagstæðari en í viðskiptabönkunum ef miðað er við heildarkostnað. „Það fer eftir lánstíma hvort lán- in eru óverðtryggð eða verðtryggð. Meðallánstíminn hjá okkur er í kringum fjögur ár sem þýðir að lán- in eru í þeim tilvikum óverðtryggð. A hinn bóginn er alls ekki óhag- stæðara að vera með verðtryggð lán í dag. Þar erum við að bjóða 7,8% vexti en óverðtryggð kjör hljóða upp á 10,65% vexti. Verðbólgu- stigið er 1,5-2% og því eru þeir sem taka verðtryggð lán að borga færri krónur til baka en þeir sem eru með óverð- tryggð lán miðað við núver- stöðu.“ - En ef þessar forsendur breyt- ast nú? „Þá hækka óverðtryggðu vextirn- ir Iíka því þeir eru breytilegir. Ef verðbólgan fer í 5% hækka óverð- tryggð lán að sama skapi.“ - Lánið þið allt bílverðið? „Já, við gerum það ef óskað er eftir því sérstaklega. Það fyrir- komulag er hugsað þannig að fólk geti fengið tíma til að selja gamla bflinn og borga síðan inn á lánið þá upphæð." Hvað er lengsti lánstími á bflalán- um? „Við bjóðum lán til sjö ára og miðum þá við 75% lánshlutfall." TUGIR bílalána koma til þinglýs- ingar á hverjum degi og kaupend- um gefst kostur á að taka óverð- tryggt eða verðtryggt lán. „Að undanförnu hefur fólk frekar kosið verðtryggð lán til bflakaupa en óverðtiyggð," segir Gunnar Kr. Sigurðsson, umsjónarmaður bíla- samninga hjá Lýsingu, en þar er viðskiptavinum boðið upp á hvorttveggja. „Yfírleitt velur fólk að taka verð- tryggð lán þar sem verðbólgan hef- ur verið lítil undanfarið og vextir því lægri en af óverðtryggðum lán- um.“ Gunnar segir muna 2,9 prósentu- stigum á verðtryggðum og óverð- tryggðum lánum, 10,7% vextir eru á óverðtryggðum lánum en 7,8 á verð- tryggðum lánum. „Síðustu árin hefur verðbólgan ekki verið meiri en um 2% og mun- urinn á óverðtryggðum og verð- tryggðum vöxtum er meiri sem þýð- ir að það hefur verið hagstæðara að taka verðtryggða vexti. „En því má auðvitað bæta við að við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Gunnar segir að lántökukostnað- ur sé síðan misjafn eftir lengd samnings og skiptir þá engu hvort lánið er verðtryggt eða ekki. Gunnar bendir á að þeim fari stöðugt fjölgandi sem taki bílalán og hann segir að frá því í fyrra nemi aukningin um 50%. „Við lánum að hámarki 80% kaupverðs ef gerður er bflasamn- ingur sem er kaupleigusamningur. „Ef um bflalán er að ræða veitum við 65% bflverðs að láni.“ Stýrist af Iánstíma „Það stýrist af lánstímanum hvort lánin eru verðtryggð eða ekki,“ seg- ir Helgi Baldvinsson, deildarfulltrui bflalána hjá VÍS, þegar hann er spurður hvort þeir veiti bæði verð- tryggð og óverðtryggð bílalán. „Lán til skemmri tíma en fimm ára eru óverðtryggð en síðan eru lánin verðtryggð að því loknu. Helgi segir að meðal lánstími sé skemmri en fimm ár og því algeng- ara að það séu óverðtryggð lán sem bflakaupendur taki. - Er eitthvað vit í því fyrir fólk að taka verðtryggð lán þegar bfllinn fellur svo að segja strax í verði? „Vextir hjá fjármögnunar- og tryggingafélögum eru töluvert Haust- og vetrarlisti H&M HAUST- og vetr- arlistinn frá H&M Rowells er kominn út. í honum er að finna tískufatnað á alla fjölskylduna. Póstverslunin er í Kringlunni 7 þar sem verslunin H&M er einnig til húsa. VEISLUR - TEITI - SAUMAKLUBBAR - ÓVÆNTIR GESTIR - BARA MEÐ FJÖLSKYLDUNNI LAUSNIN ER HJÁ OKKUR LA BAGUETTE franskar vörur - tilbúnir réttir, Glæsibær, sími 588 2759, Verslun og kaffihús í Tryggvagötu 14, sími 562 7364. Nýtt JAZZHATIÐ REYKJAVIKU Stórsveit Reykjavíkur Stjórnandi: Daniel Nolgárd Einleikari: Sigurður Flosason Hótel Sögu í kvöld kl. 21:00 Stórdansleikur að loknum tónleikum JVIilljónamæringarnir Bjarni Ara og Ragnar Bjarnason Mmr Miðasala við innganginn Námu og Vöröufélagar LANDSBANKANS fá afslátt á miðum á tónleika Jazzhátíöar Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.