Morgunblaðið - 12.09.1998, Page 31

Morgunblaðið - 12.09.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 31 Dansað og sungið Það væri líklega hægt að stilla klukkur eftir spádómum Stefáns, svo nákvæmar eru kenningar hans um komu- og brottfarartíma gest- anna. Einhverjir hafa sig á brott og Erna Sóley þýtur á vettvang til að þurrka af og gera klárt fyrir þá næstu. Ekki líður á löngu áður en öll borð eru upptekin á nýjan leik og fleiri andlit birtast við barborðið. Smekkur fastagestanna er ósköp hefðbundinn og krefst lítillar sér- fræðikunnáttu. Þó reynist einn vera 007 og biður um „einn hristan, en ekki hrærðan," en eyðileggur síðan allt með því að óska eftir tveimur sítrónum út í glasið. Blaðamaður lætur ekki á neinu bera, en er innra með sér viss um að Ian Fleming, rit- höfundur og skapari njósnara henn- ar hátignar, hefði sopið hveljur yfir tiltækinu. Hraðinn í tónlistinni hef- ur aukist til muna og það virðist hafa ágæt áhrif á suma gesti, ein- hverjir eru þegar staðnir upp og teknir að dilla sér. Hljómflutningstækin standa saman af fimm diska geislaspilara með „magasíni", eins og Stefán kall- ar það, og lögin á diskunum fímm eru síðan leikin í handahófskenndri röð. Það virðist virka ágætlega; sumar hljómsveitir vekja fögnuð og uppskera klapp og aukna fótamennt inni á milli borða og stóla, aðrar þykja síðri og fá stundum jafnvel ekki að klára sitt númer. Páll Oskar og hljómsveitin Casino eru vinsæl á Sóloni, Stuðmenn sömuleiðis og franska HM lagið gerir allt vitlaust. Kryddpíurnar ættu hins vegar að róa á önnur mið með tónsmíðar sín- ar, ef marka má stunur og hneyksl- unartón þeirra framhleypnustu, lík- lega þykir þeim ekki „fínt“ að krydda tilveruna með poppinu stúlknanna, en slá líklega taktinn í laumi. Er klukkan orðin svona margt? Dagur er vitanlega fyrir löngu að kveldi kominn þegar slökkt er á tón- listinni á slaginu þrjú. Hefðbundinn undrunarsvipur kemur á viðstadda þegar tónlistin skyndilega þagnar og rammgerðir rimlar eru settir fyrir framan barhillurnar. „Er klukkan orðin svona margt?“, eða „Er ekki hægt að vera svolítið lengur?" spyr fólkið og hryllir eflaust við regn- blautum veruleikanum utandyra og niðdimmri nóttinni. Viðbrögðin eru þó engin af hendi starfsfólksins og aldrei þessu vant er ég því sammála, enda í öðru hlutverki en vanalega. Við þessum reglum eru engar und- antekningar, lögin eru skýr og ströng og ekkert veitingahús vill hætta skemmtanaleyfí sínu. Guðmundur dyravörður er kom- inn af neðri hæðinni og hvetur fólkið til dáða, en þó aðallega brottfarar. Undirtektirnar eru misgóðar, enda ástandið ekki með besta móti á sum- um bæjum, en allt hefst þetta þó að lokum. Röðin silast niður stigann og gegnum neðri hæðina og að lokum eru allir komnir út. Hefðbundinni skemmtanavakt er lokið, aðeins er eftir að ganga frá. Aðeins já. Talsverð hreinsunar- störf fylgja hressilegum helgarnótt- um og þetta föstudagskvöld er engin undantekning. Askan er út um allt og bendir ýmislegt til þess að fólki hafi hugnað lítt til losunar þar til gerðir bakkar. Einhverjir listamenn hafa búið til skúlptúra úr kertavaxi, Ernu Sóleyju til mikillar hrellingar og hún sækir hníf til öflugri hreins- unarstarfa. Aðkomumaðurinn lætur sér léttari aðgerðir nægja, smellir einum og einum stól upp á borð á milli þess sem hann þurrkar svitann af enninu og dæsir, enda kúguppgefinn eftir törnina. Enn ein helgarvaktin er að baki hjá hinum reyndari og stutt til þeirrar næstu. Öðru máli gildir um blaðamanninn er staðið hefm- vakt- ina með prýði, að sögn Stefáns, sem minnist á kosti þess að hafa reynda menn til taks í forföllum. „Ætli það,“ hugsar maður með sér en svarar engu. Líklega fer betur að maður standi hinumegin borðsins og láti al- vöru barþjóna um starfann. H SPURT ER Hvað er mers? Menning - listir 1. Spurt er um skáldsögu þar sem „stóri bróðir“ hefur gætur á fólki. Hvað heitir sagan og hver er höfundurinn? 2. Fyrir hvaða konung orti Egill Skallagrímsson kvæðið Höfuð- lausn? 3. Spurt er um rithöfund sem samdi m.a. skáldsöguna „Kristrún í Hamravík"? Saga 4. Hvenær ríkti Jörundur hunda- dagakonungur yfír íslandi og hvað hét hann fullu nafni? 5. Hvenær og með hvaða atburði hófst heimskreppan mikla? 6.1 hvaða landi gerðu „Boxarar“ uppreisn um síðustu aldamót? Landafræði 7. Hvaða ríki hét áður Sáttar- strandaríkin? 8. Fornt heiti landsins þýðir „landið á milli fljótanna“. Hvað hét land- ið, milli hvaða fljóta er það og hvað heitir landið nú? 9. Hvar er Morsárdalur? íþróttir 10. Hvaða íþróttafélag í Reykjavík verður 100 ára á næsta ár og hvað hét það upprunanlega? 11. Hver skoraði mark íslands í landsleiknum gegn Frökkum og með hvaða liði leikur leik- maðurinn nú? 12. Mikið fjaðrafok varð á Englandi nýverið vegna sölu á knatt- spyrnufélagi. Hvaða félag var selt og hver keypti félagið? Ýmislegt 13. Hver smíðaði fyrsta kaf- bátinn og fyrir hvaða þjóð- höfðingja? 14. Hvað þýðir mers á sjómanna- máli? 15. Hvað er hegranet? puaeS!S0j6E|q je jjnr 'SI 'ed!>jse|60S ejjojs ni&SJjpun b jsja jn||Ed 'jnnEdni&s js sj9|ai '6unuo>|spue| -6ug 'J qo>|Bí' juAj 0S9J QM? 'gejB>| ijBq ge j0 pejjA LU0S uujjBq bjsjAj igBgiuus isqqsja si -isujoo uuun6uipu8||OH 'SJ 'qoopjniAj psdna uinu|6u9>|B|g!UJ|gJ j|9S jba psjiun JSlssqouEjAl 'zi u6ubabjs bjj 6u|>ha gauj nu jn>ns| uueq 6o spuB|S| >|jbuj igjs6 uosegeQ jngjEq>ua ' j j jrouAeMÓH 6B|sjej|oqjp3 jsuAj jsq 6o 6661 EJB 00 J JngJ9A a>J '0L e||B[jS||S}BJJB>|S 6o JE -gisqs||sjBjjE>is iiiiuj "lje>|S-v! JS jn|epjESJO|A| '6 '>|ej| i ejniq ujnjssuj pe nu js-6o su6ii 6o sjBjjg euuejofij I||ilu ? jn6&| 'eiujetodoseiAl '8 'uiuieepBjsjnj n>|S!qBJB ngnuisuiBs 'L 'eui» '9 '626 J Jeqopio ZZ >fJOA "isn i |uu||igqdnB>| ! .lunjqgjsA gsui jsj9q uBddsj>|suJ!SH 'S '608 J jsn6e '02 m j|ní ■ j j gjj ivhjj 6o spuB| 6o spfs III BpuBpBJjsæq &s |jsÁ| ussus6jgr us6jgp 'V 'U!|b6bh 'O Jnpunuigno ■£ 'xog9iq >ujg z IISaajq s6joso jijjs js „t>86J“ ub6bs 'JJJOas Konunglegur bíll Peugeot 406 7 manna skutbíll Glœsilegur, fullvaxlnn 7 manna fjölskyldubíll þar sem öryggi og þœgindi eru í fyrirrúmi. Þetta er ríkulega utbúinn eðalvagn fyrir fólk sem er með þroskaðan smekk og velt hvað sklptlr móli. Settu hlutina í rétta forgangsröðl Verð aðeins Randyra góðu verði! Fágað villidýr! Peugeot 406 4 dyra Glœsilegur og tignarlegur bíll, ríkulega útbúinn og með ótrúlega Ijúfa aksturseiginleika. Sannkallaður eðalvagn, bíll sem gerir þig stoltan. Sleþþtu dyrinu í þér lausu! Verð aðeins 1.730. PEUGEOT LJÓN A VEGINUM! Peugeot 406 eru stórglœsilegir og vel útbúnir fólksbílar með öflugar 112 hestafla, 1800cc vélar og ABS 1800cc vél. 16 ventlar. 112 hestötl, ABS hemlakerfi, vökva- og veltistýri, snúnlngshraöamœlir, loftpúðar fyrir ökumann og farþega, fjarstýrðar samlœslngar, þjófavörn, rafdrlfnar rúður að framan, stiglaus hraðastilllng á mlðstöð, hœðarstllling á aðalljósum, hœðarstlllt bílbelti. bílbeltastrekkjarar, þrjú þrlggja punkta bílbeltl I aftursœtum, niðurfellanleg sœtisbök að aftan 40/60, armpúði I aftursœti, lesljós fyrir farþega I aftursœtum, hemlaljós I afturglugga, hliðarspeglar stlllanlegir Innan frá, bensínlok opnanlegt Innan frá, útvarp og segulband, stafrœn klukka, aurhlífar o.fl. NVBYLAVEGI 2 SÍM 1: 554 2600 0PIÐ LAUGARDAG KL. 13-17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.