Morgunblaðið - 12.09.1998, Side 39

Morgunblaðið - 12.09.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 39 , MARGMIÐLUN AÐSENDAR GREINAR Corel í kreppu EITT SINN var helsta rit- vinnslukerfí hér á landi Word- Perfect sem var meira að segja til á íslensku. WordPerfect var framleitt í Utah og var helsta ritvinnsluforrit heims fyi’ir einkatölvur á sinni tíð. Helsti keppinauturinn var Word frá Microsoft og þegar Microsoft kynnti Windows notendaskilin fylgdi Windows-útgáfa af Word þar skammt á eftir. WordPer- fect-stjórum fannst aftur á móti ekkert liggja á að elta nýjustu tísku og héldu áfram að þróa DOS-útgáfu af WordPerfect. Þegar þeir loks tóku við sér var Windows orðið allsráðandi og tíminn of naumur til að setja saman almennilega Windows- útgáfu. Fyrsta Windows-útgáf- an af WordPerfect þótti ekki vel heppnuð og smám saman fjar- aði undan fyrirtækinu þar til það þraut örendi og framleiðslu- leyfið að WordPerfecrt fór á flakk. Undanfarin ár hefur kanadíska fyrirtækið Corel átt WordPerfect og þróað og gekk því harla vel framan af. Corel framleiðir helsta teikniforrit PC-heimsins, CorelDraw, og að auki ýmsan hugbúnað annan. Eins og getið er gekk fyrirtæk- ið ágætlega og til að mynda var það í sterkri stöðu á vöndla- markaði þar sem það atti kappi við Office-vöndul Microsoft. Eftir því sem Microsoft hefur vefvæðst hefur Corel aftur á móti tapað áttum og smám sam- an dregið úr því þrótt. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur veltuhutdeild Corel á hug- búnaðarmarkaði minnkað um- talsvert, úr hálfu þriðja prósenti í hálft annað. Að sögn er sölu- samdráttur helsta skýringin, meðal annars virðist sem skrif- stofuvöndull Corel, sem inni- heldur meðal annars WordPer- fect, Quattro Pro, Corel Pres- entations, Borland Paradox, Corel Time Line, GroupWise, Envoy og svo má telja. Corel hefur farið halloka fyrir Windows Offíce og spá mark- aðsfræðingar að enn muni harðna á dalnum þegar Office 2000 kemur út snemma á næsta ári. Forstjóri Corel, Michael Cowpland, er aftur á móti bratt- ur og segist ekki hafa áhyggjur af stöðunni og þótt hlutabréf í Corel hríðfalli í verði tákni það aðeins að nú sé rétti tíminn til að kaupa hlut; bréfin eigi eftir að hækka gríðarlega á næst- unni. Vefur um veg VEFUR helgaður verslunum við Laugaveginn var opnaður sl. laugardag, en í frásögn af honum misritaðist slóð vefsins. Rétt slóð á vefnum, sem hefur að geyma heimasíður um helmings versl- ana og fyrirtækja við Laugaveg, er www.laugavefur.is. Örbylgju- banki í eldhúsið ÞEGAR tölvufróðir og -framleið- endur hafa rætt nettengingu heimil- isins hafa þeir helst horft til sjón- varpsins eða jafnvel símans. Þegar er hægt að stunda bankaviðskipti yfir netið og einnig er hægt að gera ýmislegt í gegnum símann. Nú hef- ur NCR séð sér leik á borði og hyggst fella samskiptabúnað inn í örbylgjuofna. I gegnum ofninn mætti þá sinna bankareikningnum, gi-eiða reikninga og kaupa inn. Bún- aðurinn byggist á snertiskjá, sem er um leið framhlið ofnsins. Öryggi verður tryggt með raddsjá eða fingafaralesara, en einnig verður í tólinu strikamerkjalesari til að auð- velda innkaupin. Ofninn verður út- sendari eigandans á Netinu og leit- ar að hagstæðasta verðinu um leið og búið er að slá inn hvað eigi að kaupa. Talsmaður fyrirtækisins segir að það sé ekki nema rökrétt að koma slíkum búnaði fyrir í því herbergi sem fólk eyðir mestum tíma í dag hvern. hugmynda og smekkleysu. Fyrir skemmstu lét Eidos undan þrýst- ingi með nýjan leik sinn, en fyrir- tækið hugðist nota dæmdan morð- ingja sem aðalpersónu í auglýs- ingaherferð sinni. Eidos kynnti á ECTS-sýning- unni í London í vikunni nýjan leik sem hlotið hefur nafnið Gangsters og gerist á bannárunum vestur í Chicago. I leiknum beijast bófa- flokkar um völdin og hjaðninga- vígin ganga á víxl. Til að kynna leikinn gengu menn á vegum Eidos um sali ECTS klæddir eins og bannárabófar vopnaðir vél- byssum. Fyrirtækið hugðist ganga enn lengra í auglýsingum og þannig réð það morðingjann „Mad“ Frankie Frazer til að vera aðalnúmer í auglýsingaherferð- inni. Margur urðu til að mótmæla þessu tiltæki Eidos og eftir nokkr- ar bréfaskriftir í tímaritið CTW, þar sem auglýsingastjóri fyrir- tækisins sagði í einu bréfanna að það væri bara að svala forvitni fólks um glæpamenn og lífsháttu þeirra ákvað það að hætta við herferðina. Gangsters, sem vakti mikla hrifningu á ECTS-sýningunni, kemur á markað í lok október, en með í pakkanum verður bókin Scarface sem segir frá varmenn- um í Chicago á fyrri hluta aldar- innar. Tveir skýrir kostir FYRIR nokkru var ritað undir samning milli ríkisins og Hafn- arfjarðarbæjar um svonefnda einkafram- kvæmd vegna Iðn- skólans í Hafnarfirði. Skólinn hefur lengi búið við þröngan húsakost. Er ætlunin að bæta úr honum með því að fara inn á nýjar brautir. Einka- aðili tekur að sér að hanna, byggja og reka skólahúsið auk þess sem hann sér um ör- yggisgæslu þess og rekstur tölvubúnaðar skólans. Ríkið og Hafnarfjarðar- bær greiða umsamda þóknun fyrir afnot af þessari þjónustu. Með þessum samningi er brotið í blað, þegar litið er til fjármögnun- ar skólabygginga. I sjálfu sér breytist ekkert annað í umhverfi skólastarfsins en að með skjótum og markvissum hætti er stuðlað að umbyltingu í húsakosti þess. Ótrúleg afturhaldssemi Samningurinn um þessa ný- breytni í ríkisrekstri var undirrit- aður við hátíðlega athöfn í Hafnar- borg. Allir, sem til málsins þekkja, eru sáttir við þessar málalyktir. Gangi málið eftir eins og að er stefnt ætti Iðnskólinn í Hafnai-firði að búa við nýjar og miklu betri að- stæður strax haustið 1999. Nú nokkrum vikum síðar hafa hins vegar birst tvær greinar hér í Morgunblaðinu um þessa framkvæmd, sem einkennast af mik- illi skammsýni. Fyn-i greinin er eftir Drífu Snædal, formann Iðnnemasambands Is- lands og stjómarmann í Stefnu, hinu vinstri- sinnaða stjórnmálafé- lagi Ögmundar Jónas- sonar. Síðari greinin var eftir Sigríði Jó- hannesdóttur, þing- mann Alþýðubanda- lagsins í Reykjanes- kjördæmi. Það eitt, að þær stöllur skuli finna hjá sér þörf fyrir að hallmæla aðgerðum til að stórbæta aðstöðu Iðnskólans í Hafnarfirði, vekur í sjálfu sér furðu. Hitt, að þær skuli gera það af pólitískri hugsjón, lýsir ótrúlegri afturhaldssemi. Nýir tímar Eftir lok kalda stríðsins höfðu margir áhyggjur af því, að skilin í stjórnmálum yrðu ógleggri. Erfið- ara yrði að draga mörkin milli stjórnmálaflokka vegna þess að engir þyrðu lengur að verja sjónar- mið ríkisforsjársinna og sósíalista. Við þurfum ekki að hafa þessar áhyggjur hér á landi. Hér eru vinstrisinnar enn að bögglast við að sanna, að best sé að setja allt traust sitt á afskipti ríkisins og eign þess jafnt á byggingum sem stofnunum. Fortíðarþrá þessa fólks tekur á sig ýmsar myndir. Verulega verður hún þó sérkennileg, þegar lagst er gegn samskiptum einstaklinga og opinberra aðila til að bæta hag skólastofnana. Tímarnir hafa breyst. Á lokaára- Ahyggjur manna yfir því, segir Björn Bjarnason, að kostir í stjórnmálum myndu hverfa með kalda stríð- inu, eru óþarfar. tug aldarinnar hefur tekist undir öruggri forystu Sjálfstæðisflokks- ins að færa Island frá stöðnum til mikilla framfara. Þjóðin er í fremstu röð, þegar lagt er alþjóð- legt mat á styrk þjóðfélaga. Hald- ist hefur í hendur styrk stjórn á sameiginlegum málum og eindreg- in viðleitni til að skapa einstakling- um og fyrirtækjum þeirra meira svigi’úm. Á hinum nýju tímum hefur eitt þó ekki breyst. Við eigum enn um tvo kosti að velja. Frjálsræði og framfarir undir merkjum sjálf- stæðisstefnunnar og ríkisforsjá og afturfór á vegum vinstrisinna. Höfundur er menntamiílaráðherra. Björn Bjarnason Selstöðu-álver og hags- munir Landsvirkjunar LANDSVIRKJUN hefur einokunarstöðu í framleiðslu rafmagns hér á landi. Stofnunin hefur hingað til neitað öllum tilmælum ann- arra aðila um raf- magnsframleiðslu hingað til, aðila sem telja sig geta framleitt mun ódýrari orku en Landsvirkjun. Markaður fyrir raf- magnsorku innanlands og til innlendra fyrir- tækja og einstaklinga er mjög lítill, íbúatala hér á landi telst 270.000. Landsvirkjun framleiðir raforku sem skiptist nokkurn veginn jafnt milli almenn- ingsveita og erlendra aðila og er selstöðuálverið ISAL drýgst þeirra. Verðlag orkunnar er mjög mismunandi, ISAL kaupir orkuna á lægsta raforkuverði sem þekkist í Evrópu, en almennir notendur borga drjúgum hærra verð fyrir iðnaðarorku og orku til heimilis- nota. Utkoman er því þannig að helmingur allrar orku og vel það, nú eftir stofnun Norðuráls, er seld- ur erlendum fyrirtækjum á öi-verði en Islendingar greiða margfalt verð. Þannig borga landsmenn nið- ur orku til erlendra fyrirtækja og arður þeirra verður því meiri sem orkan er ódýrari. Þetta kemur fram í hinni ágætu afkomu ÍSALS, sem er arðmesta álbræðsla Alu- swiss í heiminum og er rekin með miklum hagnaði þótt önnur fyrir- tæki álhringsins berjist í bökkum. Forsenda þessarar góðu afkomu er okurverð á raforku frá Lands- virkjun til íslenskra aðila. Lýsandi dæmi um þessa raforkupólitík Landsvirkjunar var frétt í kvöld- www.mbl l.is fréttum Sjónvarpsins 15. ágúst sl. um orku- verð á raforku til garð- yrkju- ylræktar- bænda, sem töldu sig ekki vera samkeppnis- færa við erlenda aðila sökum orkuokurs Landsvirkjunar. Þetta er aðeins eitt dæmið, í athugun Háskólans á Akureyri á búsetu og búsetusamdrætti . á landsbyggðinni kom glöggt fram að megin ástæða byggðaflótta væri orkuokur Lands- virkjunar. Arðurinn af sölu áls rennur því beint til erlendra hlut- hafa þótt reynt sé að beita barna- legum blekkingum í hagskýrslum Seðlabankans með flokkun áls sem íslensks útflutnings. Með okurverði raforku og greiðslu stórskulda fyrri ára vegna virkjanaframkvæmda Landsvirkj- unar greiða íslenskir skattborgar- ar óhemju fjárhæðir vegna stór- iðjustefnu ríkisstjórnar og Lands- virkjunar, en stóriðjustefnan er forsenda reksturs Landsvirkjunar í því formi og með þeim tilgangi sem sú stofnun er rekin. Þessi stefna orsakar gífurlegt fjárhags- legt tap fyrir þjóðarbúið sem heild, auk byggðaröskunar og grófasta vandalisma í framkvæmdum Landsvirkjunar, sem er þegar að Forsendan er, að mati Siglaugs Brynleifsson- ar, afnám orkueinokun- ar Landsvirkjunar. gera þessa þjóð að viðundri meðal siðaðra þjóð. Og hver er tilgangur Lands- virkjunar? Hann er að halda uppi miklum umsvifum í virkjana- og uppistöðulóna framkvæmdum og orkuvera gerð, svo að starfslið stofnunarinnar og hagsmunaaðilar, vinnuvélafyrirtæki og skurðgi’afar- ar geti nýtt verkfæri sín. Tilgangurinn er áframhaldandi vinna við framkvæmdir sem eru gerðar með ágóða selstöðufyrir- tækja að leiðarljósi og kaffæringu sérstæðustu víðerna Evrópu. Ef þessari plágu yrði létt myndu hug- kvæmir einstaklingar ekki verða í neinum vandræðum með að stofna til atvinnufyrirtækja um allt land í landbúnaðar og sjávarútvegs úr- vinnslu svo ekki sé minnst á ferða- þjónustuna. Þar munu skapast meira en 12.000 ný störf. En for- senda þessa er til að byrja með af- nám orkueinokunar Landsvirkjun- ar og bann við öllum vandalisma fnimstæðra tæknikrata og starfs- liðs Landsvirkjunar á hálendi ís- lands. Höfundur er rithöfundur. Glæsilegur fatnaður í miklu úrvali í haust- og vetrarlistanum. Frábært verð. Mikið úrval af litlum og stórum stærðum. Listinn fæst í öllum helstu bókaverslunum símj 565 3900 ' Fax 565 201 5 Siglaugur Brynleifsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.