Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýr þingflokkur Kristínar, ögmundar, Hjörleifs og Steingríms J:
/V/ O
GERÐU það, láttu háeffa þig, okkur langar svo að eiga þig líka . .
Brimilsvellir.
Nýrvegur
; /BúlanðshöfÓk. \ /1/
[áv allk
Neðri- ■ T
Hrísar ■ Efri-
Hríscir
itluholt
VEGAGERÐIN hefur boðið út
lagningu á 8,2 km kafla á Snæ-
fellsnesvegi frá Búlandshöfða að
Brimilsvöllum. Vegurinn mun
bæta samgöngur á norðanverðu
Snæfellsnesi en leiðin um
Búlandshöfða hefur verið mesti
farartálminn milli Ólafsvíkur og
Grundarfjarðar.
Undir Búlandshöfða eru bratt-
ar skriður bæði ofan og neðan
við veginn og rennur jarðefni
stöðugt í vegrásir. Þær þarf að
hreinsa reglulega og er efninu þá
rutt fram af veginum, að því er
fram kemur í framkvæmdafrétt-
um Vegagerðarinnar.
Talsverðir þungaflutningar
fara um veginn, t.d. með físk, og
einnig sjúkraflutningar en
sjúkrahúsið í Stykkishólmi þjón-
Nýr vegur
um Búlands-
höfða
ar íbúum svæðisins.
Nýr vegur verður með minni
bratta og lagður með mýkri
beygjum en núverandi vegur.
Vegrásir verða breiðari og sett
verður vegrið á 3,2 km kafla. Nýi
vegurinn liggur hæst í 99 metra
hæð yfír sjávarmáli, 3 metrum
lægra en núverandi vegur. Utboð
verða opnuð 12. október nk. en
verklok eru áætluð í október árið
2000.
Athugaðir voru þrír möguleik-
ar á endurbyggingu vegarins um
Búlandshöfða og var leiðin sem
fylgir að miklu leyti núverandi
vegi langódýrust. Kostnaður við
hana er áætlaður 385 milljónir
króna en kostnaður við aðra
möguleika, þar á meðal jarð-
göng, hefði verið á bilinu
849-1000 milljónir króna.
Bygging vegarins mun valda
miklu jarðraski í ógrónum skrið-
um en efni úr skeringum verður
nýtt í vegfyllingar. Að loknu
verki verður sáð í vegfláa. Á
Mávahlíðarrifi mun vegurinn lík-
lega eitthvað trufla fuglalíf „en á
móti kemur að svæðið við núver-
andi vegstæði verður friðsælla
bæði fyrir dýr og menn,“ segir í
framkvæmdafréttum Vegagerð-
arinnar.
Þýskir dagar í Perlunni
Þýskar vörur og
kosningavaka
Kristín Svanhildur
Hjálmtýsdóttir
DAG, fimmtudaginn
24. september, verða
Þýskir dagar í
Perlunni formlega opnað-
ir en opið er íyrir al-
menning frá fóstudegi og
fram til sunnudagsins 27.
september.
Ki-istín S. Hjálmtýs-
dóttir er framkvæmda-
stjóri Þýsk-íslenska
verslunaiTáðsins sem
hefur staðið að skipulagn-
ingu Þýskra daga.
„Markmiðið með þýsk-
um dögum er að kynna
Þýskaland, þýska fram-
leiðslu og þá sérstaklega
neytendavöra sem og ís-
lensk fyrirtæki sem era
með umboð fyrir þýska
framleiðslu."
Kristín segir að þýskar
vörur séu þekktar og
mikils metnar á Islandi
og því hafí Þýsk-íslenska
verslunarráðinu þótt full ástæða
til að efna til sérstakrar dagskrár
þar sem þýskar vörur og þjón-
usta svo og íslensk fýrirtæki sem
tengjast Þýskalandi á einhvem
hátt verða í öndvegi.
- Hversu mörg fyrirtæki verða
með á sýningunni?
„Þetta eru yfír 20 fyrirtæki og
þar með eru taldir bílainnflytj-
endur, innflytjendur raftnagns-
tækja, íþróttavarnings, sælgætis,
víns og bjórs og matvöra."
Kristín segir að gestum bjóðist
að smakka á ylvolgum Brezel en
það era þýskar bjórkringlur sem
Myllan mun kynna á Þýskum
dögum.
„Fjölmörg önnur fyrirtæki
verða einnig með forvitnilegar
kynningar á vöru og ekki síður
þjónustu, jafnt í ferða- sem
tryggingageiranum. Fyrir
áhugamenn um fallega bíla verð-
ur sömuleiðis margt að sjá,
Volkswagen Bjöllu, BMW sport-
bfl og A-klassa Benz.“
Þó að þýskar vörar séu tví-
mælalaust í forgranni segir
Kristín að margt sé gert til að
gleðja bæði augu, munn og maga.
„Sýningin skiptir mestu máli og
við höfum tekið þá stefnu að
reyna að láta hana njóta sín sem
allra best. í Perlunni verður hins
vegar margt annað sem tengist
sýningunni og minnir á Þýska-
land. Sérstakur matseðfll verður í
kaffiteríu Perlunnar og á veit-
ingastaðnum á efstu hæðinni
verður þýsk matargerðarlist í há-
vegum höfð.“ Hún bendir á að
sprell verði í gangi fyrir unga
sem aldna, þýska stúlkan Heidi
verður á svæðinu, bömin geta
fengið andlitsmálun og öllum
býðst að taka þátt í leik þar sem
veglegir vinningar eru í boði.
„Einnig munum við fá í heimsókn
tónlistarmanninn Stef-
an Krawczyk frá
Berlín."
Hefur Þýsk-íslenska
verslunarráðið verið
starfrækt lengi?
„Þýsk-íslenska
verslunarráðið var
stofnað haustið 1995 en þetta eru
félagasamtök íslenskra og þýskra
fyrirtækja sem eiga í viðskiptum
milli landanna."
Kristín segir að með starfsemi
ráðsins sé unnið að því að efla og
örva viðskiptatengsl milli land-
anna og vaka yfir viðskiptalegum
hagsmunum félaga hjá íslenskum
og þýskum yfirvöldum.
„Auk þessa skipuleggjum við
uppákomur eins og Þýska daga
sem nú eru haldnir í fyrsta skipti
og síðan höfum við þrisvar sinn-
um verið með íslandskynningar í
►Kristín Svanhildur Hjálmtýs-
dóttir er fædd í Reykjavík árið
1963.
Hún lauk MA prófi í hagfræði
frá háskólanum í Freiburg í
Þýskalandi árið 1991, starfaði
síðan í Þýskalandi og bjó um
skeið í Lundúnum. Hún varð
framkvæmdastjóri Þýsk-ís-
lenska verslunarráðsins árið
1996.
Sambýlismaður hennar er
Kristján Krisfjánsson, frétta-
maður á Ríkisútvai-pinu, og
eiga þau tvö börn, Þórunni
Bryndísi, 6 ára, og Högna
Hjálmtý, 4 ára.
Þýskalandi. í þeim ferðum hefur
íslenskur ráðherra alltaf verið
með. Við höfum lagt áherslu á að
fá á þessar kynningar áhugasama
fjárfesta, fulltrúa fyrirtækja sem
hingað eiga erindi o.s.frv. Við
höfum kynnt ferðaþjónustuna,
fjármálageirann, orku- og mat-
vælaiðnað og þær leiðir sem er-
lendir fjárfestar hafa inn í landið.
Þessar kynningar hafa verið
ágætlega sóttar og skila vonandi
árangri þegar fram í sækir.
- Nú eru þingkosningar í
Þýskalandi næsta sunnudag.
Verður fýlgst með þeim á Þýsk-
um dögum?
„Já, við verðum með kosninga-
vöku frá og með klukkan fjögur á
sunnudeginum í samvinnu við
þýska sendiráðið þar sem hægt
verður að fylgjast með kosninga-
vöku þýska sjónvarpsins."
Kristín segir að þau búist við
töluverðum fjölda fólks á kosn-
ingavökuna enda hafi margir Is-
lendingar áhuga á þýskum og
evrópskum stjómmálum.
„Miðað við skoðanakannanh- í
dag era jafnaðarmenn og kristi-
legir demókratar
nokkuð jafnir og því
verður spennandi að
fylgjast með hvort að
kanslarinn hafi það í
fimmta sinn.“
Kristín segir að
kosningar í Þýska-
landi hafi ekki verið svona spenn-
andi frá því Kohl tók við árið
1982 og kannski aldrei jafn mikil-
vægar. „Þýskaland er voldugsta
ríki Evrópu, í forystu í Evrópu-
sambandinu, og það skiptir giíð-
arlega miklu máli fyrir alla Evr-
ópu hver heldur um stjórnar-
taumana í landinu. Við eigum von
á mörgum Þýskalandsvinum á
kosningavökuna og þar verður
trúi ég mikil eftirvænting og
spenna ríkjandi.“
Aðgangur er ókeypis á Þýska
daga.
Efla og örva
viðskipta-
tengsl milli
landanna