Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
FÍB-félögxim
almennar
Verðið 12-18% lægra en á sambærilegum
tryggingum að mati forystumanna FIB
boðnar flestar
tryggingar
Morgunblaðið/Kristinn
ÁRNI Sigfússon, formaður FÍB, og Halldór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðlegrar miðlunar, kynna nýja tryggingaflokka
FÍB-tryggingar.
FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda
hefur gengið til samninga við Al-
þjóðlega miðlun hf. um að félags-
menn FÍB eigi kost á heimilis-
tryggingum, brunatryggingum og
húseigendatryggingum á verði
sem þeir segja að geti verið
12-18% lægra en nú er í boði fyrir
sambærilegar tryggingar á mark-
aði hérlendis.
Þetta var kynnt á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var í tilefni þess
að tvö ár eru liðin síðan FÍB og Al-
þjóðleg miðlun, fyrir hönd Lloyd’s
í Bretlandi, tóku upp samstarf um
ábyrgðar- og kaskótryggingar bif-
reiða fyrir félagsmenn FIB.
Árni Sigfússon, formaður FÍB,
sagði að frá því að samstarfið um
bifreiðatryggingar hófst hefði
verðlag slíkra tryggingaiðgjalda
hjá innlendum tryggingafélögum
lækkað um 25-30% og sparað ís-
lenskum heimilum 1,1 milljarð á
ári.
Á sjöunda þúsund félagsmenn í
FÍB hafa tryggt bíla sína hjá fé-
laginu og sagði Árni að margir
þeirra hefðu gert það þrátt fyrir
að tryggingafélögin hefðu refsað
þeim fyrir að segja upp ábyrgðar-
tryggingum bílanna með því að
lækka afslátt á iðgjöldum annarra
trygginga.
Ekki tap á lækkun iðgjalda
fyrir tveimur árum
Fram kom á blaðamannafundin-
um að afkoman af bílatryggingum
félagsmanna FÍB hefði verið við-
unandi að mati hinna erlendu
tryggjenda og Árni Sigfússon
sagði að svo virtist sem afkoman
hjá íslensku tryggingafélögunum
hefði einnig verið viðunandi þrátt
fyrir 25-30% lækkun iðgjalda því
að bótasjóður tryggingafélaganna
hefði gildnað um 3 milljarða á
tímabilinu og innstæður þar hækk-
að úr 12,8 milljörðum króna í 15,8
milljarða króna.
„Það þýðir væntanlega að þeir
tapa ekki á því að hafa lækkað ið-
ÍSLENSKA ólympíulandsliðið í
skák heldur til sjálfstjórnarlýðveld-
isins Kalmykíu í Rússlandi á morg-
un, föstudag, til að taka þátt í 33.
Ólympíumótinu í skák, sem hefst á
sunnudag í borginni Elista. Mótið
er haldið annað hvert ár og má gera
ráð fyrir að 120-140 þjóðir taki þátt
í því, en íslendingar hafa tekið þátt
í mótinu frá árinu 1928.
Skáksamband íslands boðaði til
blaðamannafundar af þessu tiiefni í
gær. Þar kom fram að talsverð
óvissa hefur ríkt um þátttöku ís-
lands á mótinu að þessu sinni, sem
og margra annarra þjóða, en flugu-
fregnir um bágt ástand mannrétt-
inda í Kalmykíu séu ekki næg
ástæða til að hætta við þátttöku.
Aðrar þjóðir hafi ekki hætt við þátt-
töku af þeim sökum og varhugavert
sé að blanda saman íþróttum og
stjómmálum.
Kalmykia er í grennd við Kaspía-
hafið og kemur skáklandsliðið þang-
að seinnipart laugardags, þar sem
ekki reyndist mögulegt að komast
þangað á einum degi. Fram kom að
nákvæmar upplýsingar um aðbúnað
á mótsstað hafa ekki borist og eru
menn við öllu búnir í þeim efnum.
gjöldin,“ sagði Halldór Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Alþjóðlegrar
miðlunar, sem miðlar þessum
tryggingum milli félagsmanna
FIB og aðildarfélaga Lloyd’s í
Bretlandi.
Spurður um afkomu af rekstri
trygginga fyrir félagsmenn FÍB
undanfarin tvö ár sagði Halldór að
hinn erlendi tryggjandi hefði upp-
lýsingai- um þær tölur. Hann hefði
hins vegar ekki séð ástæðu til að
hækka iðgjöldin á þessu tveggja
ára ferli og tjónatíðnin virðist ekki
vera öðruvísi en búist var við.
Önnur iðgjöld hækkuð
þegar bíllinn fór
Áimi sagði að FÍB hefði fljótlega
sýnt áhuga á að víkka út samstarf-
ið við Alþjóðlega miðlun og bjóða
fleiri tegundir trygginga. Sá áhugi
eigi rætur að rekja til þrýstings
frá félagsmönnum, sem hafi verið
ósáttir við að missa afslátt af öðr-
um tryggingaiðgjöldum þegar
bflatryggingamar voru færðar yfir
til FÍB. Hinir erlendu aðilar hefðu
viljað fara farlega í sakirnar til að
átta sig á markaði hér en nú væru
þeir tilbúnir til að koma inn á
markaðinn með heimilistrygging-
ar, húseigendatryggingar og
brunatryggingar fasteigna, auk
bifreiðatrygginganna. Hann sagði
að með þessu væri verið að festa
betur í sessi það verð sem barátta
FÍB hefði skilað íslenskum neyt-
endum með aukinni samkeppni.
Ámi sagði að með þessu væri
FIB ekki að breyta um eðli og
sinna neytendamálum í breiðari
skilningi. „Við töldum að þessi
þáttur, það að taka inn heimilis-
tryggingar, húseigendatryggingar
og brunatryggingar, væri óhjá-
kvæmilegt til að styrkja stöðu bfl-
eigenda gagnvart tryggingum
bfla.“
Lægra en hjá keppinautum
Halldór Sigurðsson sagði að
miðað við ýmis dæmi sem sett
„Þrátt fyiir neikvæða umræðu
um mótið og mótsstaðinn og óvissu
um aðstæður á skákstað eru skák-
meistaramir sammála um að fara
þessa ferð og gera sitt besta. Skák-
sambandið hefur haldið uppi fyrir-
spurnum um ástandið í Kalmykíu
og áform annarra skákþjóða um
þátttöku og telur nú, fjórum dögum
áður en mótið á að hefjast, ekki
ástæðu til annars en halda þátttöku
íslands til streitu," segir í frétt sem
dreift var á fundinum.
Tveir nýliðar
Tveir nýliðar eru í ólympíuliðinu
að þessu sinni og ber liðið merki
þess að ákveðin kynslóðaskipti eru
að verða meðal fremstu skákmanna
landsins. Liðið er þannig skipað að
á 1. borði teflir Hannes Hlífar Stef-
ánsson, stórmeistari, á 2. borði
Þröstur Þórhaljsson, stórmeistari, á
3. borði Helgi Áss Grétarsson, stór-
meistari, og á 4. borði Jón Viktor
Gunnarsson, alþjóðlegur meistari.
Fyrsti varamaður er Björgvin Jóns-
son, alþjóðlegur meistari og annar
varamaður Jón Garðar Viðarsson,
FIDE-meistari.
íslenska skáksveitin hefur oft
hefðu verið upp og skoðuð sýndist
sér að verð á þessum tryggingum
væri nokkru lægra en verð hjá
keppinautum hér á landi, að teknu
tilliti til heildarafsláttar. „Ég gæti
til dæmis trúað því að einstakur
liður, heimilistryggingin, sé
15-20% undir markaðinum miðað
við þær kannanir sem við höfum
gert,“ sagði Halldór, en eins og
fyrr sagði sögðust þeir telja að
verðlagningin væri 12-18% undir
náð ágætum árangri á ólympíu-
skákmótum. Á síðasta móti fyrir
tveimur árum hafnaði sveitin í 8.
sæti, en á mótinu 1986 náði sveitin
5. sætinu og 6. sætinu árið 1992.
Liðsmenn sveitarinnar segja að
það væri frábær árangur að ná
markaðinum hér miðað við þau
dæmi sem skoðuð voru. Trygg-
ingaverndin væri talin sambæri-
leg en ekki eins í öllum smáatrið-
um.
Halldór sagðist ekki búast við að
í kjölfar þátttöku FÍB og Alþjóð-
legrar miðlunar á þessum nýja
markaði færi í gang hörð sam-
keppni um þessar tryggingar. Til
þess væri verðmunurinn ekki
nægilega mikill.
einu af fimmtán efstu sætunum á
mótinu, en reiknað er með að
sterkustu andstæðingarnir, auk
gestgjafanna Rússa, sem eru taldir
sigurstranglegastir, verði Eng-
lendingay, Bandaríkjamenn, ísra-
elar og Ukraínumenn.
Framtíðarstefna
mótuð fyrir
sjúkrahús Akraness
Verði fjöl-
greina-
sjúkrahús
Akranesi. Morgunblaðið.
SAMNINGUR milli Sjúkra-
húss og heilsugæslustöðvar
Akraness (SHA) og heilbrigð-
isráðuneytisins um stefnu og
rekstur til næstu fimm ár var
undirritaður í gær. Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra og Sigurður Olafsson
framkvæmdastjóri undirrituðu
samninginn. Jafnframt var
kynnt stefnumótun fyrir stofn-
anirnar til næstu fimm ára.
Sjúkrahúsið verður sam-
kvæmt skilgi’einingu svokallað
fjölgreinasjúkrahús sem veitir
örugga vaktþjónustu allan sól-
arhringinn, allt árið. Sjúkra-
húsið veitir samkvæmt þessu
almenna þjónustu við íbúa
fjögurra kjördæma, auk sér-
hæfðrar þjónustu sem einnig
verður veitt. Heilsugæslustöð-
in veitir almenna þjónustu fyr-
ir íbúa heilsugæsluumdæmis
Akraness og hefur jafnframt
forystuhlutverk varðandi
heilsuvernd og forvarnarstarf.
Gert er ráð fyrir að SHA taki
þátt í menntun heilbrigðis-
stétta í samvinna við Háskóla
Islands og aðrar menntastofn-
anir.
Með því að semja sérstaka
stefnu fyrir SHA til langs tíma
er leitast við að tryggja góða,
hagkvæma þjónustu og mæl-
anlegan árangur í rekstri.
Hver deild setur sér til dæmis
þjónustumarkmið, sem endur-
skoðuð eru reglulega, unnir
verða gæðastaðlar á hverri
deild og beiðni um innlögn
verður tímasett innan viku frá
því hún berst.
Við undirritun samningsins
kom fram, að sérstök áhersla
verður lögð á bakaðgerðir við
brjósklosi á SHA á næsta ári.
Aðgerðimar verða gerðar í
gegnum holsjá. Með notkun
þessarar tækni getur sjúkling-
urinn farið heim samdægurs
eða næsta dag. Bogi Jónsson,
sérfræðingur á Landspítala,
mun sjá um þessar aðgerðir,
en þjónustan er undirbúin í
samráði við sérfi’æðinginn og
Landspítalann. Þetta er dæmi
um samvinnu við sjúkrahúsin á
höfuðborgarsvæðinu, sem bú-
ist er við að fari vaxandi þar
sem samgöngur hafa gjör-
breyst á þessu svæði.
Sjúkrahúsið á tímamótum
Sjúkrahúsið á Aki-anesi hef-
ur tekið miklum breytingum á
undanfórnum árum og er fjöl-
breytni aðgerða meiri en á
flestum sjúkrahúsum hér á
landi. Við uppbyggingu bækl-
unaraðgerða hefur verið höfð
náin samvinna við Bæklunar-
deild Landspítalans. Lögð hef-
ur verið mikil áhersla á að
byggja upp aðstöðu til gervi-
limaaðgerða og áætlað er að
árlega verði gerðar um fimm-
tíu aðgerðir á hnjám og
mjöðmum. Fæðingardeildin
hefur um nokkurt skeið boðið
upp á fæðingar í vatni og hefur
það mælst mjög vel fyrir. Fyr-
irhugaðar eru gagngerðar
breytingar á deildinni, bæði
fæðingarstofum og legurými.
Unnið hefur verið að því að
auka enn frekar fjölbreytni í
þjónustu lyflæknisdeildar og
verður því starfi haldið áfram.
Nýr yfirlæknir á lyflæknis-
deild, dr. med. Þorkell Guð-
brandsson, tekur til starfa 1.
nóvember nk.
120-140 þjóðir taka þátt í
Olympíuskákmótinu í Kalmykíu
Morgimblaðið/Ásdís
HLUTI íslensku skáksveitarinnar sem fer á ólympíuniótið. Taldir frá
vinstri Jón Garðar Viðarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Áskell Örn
Kárason, liðsstjóri, Helgi Áss Grétarsson og Björgvin Jónsson.