Morgunblaðið - 24.09.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 23
w
_______________________________________ERLENT__________________________________________
Fulltrúi frans mætti ekki á fund með fulltrúa Bandaríkjanna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Reuters
EFASEMDIR eru um að írönsk yfirvöld geti ábyrgst öryggi rithöfund-
arins Salmans Rushdies, sem hefur verið í felum í tæpan áratug.
Dvínandi vonir
um bætt sam-
skipti landanna
New York, London. The Daily Telegraph. Reuters.
vondaufari en áður um að heimsókn
Mohammads Khatamis, forseta
Irans, til Bandaríkjanna verði til
þess að boða nýja tíma í samskipt-
um landanna tveggja. Mætti full-
trúi írans ekki á nefndarfund á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) í gær, eins og vonast
hafði verið eftir, en það hefðu verið
nánustu samskipti háttsettra
stjórnarerindreka landanna
tveggja um árabil.
Ræða Khatamis við opnun alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) á mánudag var sú fyrsta sem
leiðtogi írans flytur á þingi SÞ síð-
an 1987 en reyndist ekki sú tíma-
mótaræða sem menn höfðu vonast
eftir. A óvæntum fundi með blaða-
mönnum á þriðjudag sagði
Khatami auk þess við blaðamenn að
Iranir hefðu engin áform uppi um
að hefja stjórnmálasamband við
Bandaríkin nema Bandaríkjastjórn
tæki í það minnsta skref í átt til
þess að breyta stefnu sinni gagn-
vart Iran.
Fréttaskýrendur segja tregðu
írana nokkur vonbrigði fyrir Bill
Clinton, forseta Bandaríkjanna,
sem þeir segja að hafí vonast til
þess, í miðju gjörningahríðarinnar
vegna Monicu Lewinsky-málsins,
að geta tilkynnt þíðu í samskiptum
Irans og Bandaríkjanna. Lögðu
fulltrúar Bandaríkjastjómar hins
vegar áherslu á þolinmæði og að
ekki þýddi að þi-ýsta á stjórnvöld í
Iran.
Khatami er talinn meðal umbóta-
sinna í írönskum stjórnmálum en
fréttaskýrendur segja stöðu hans
þar síður en svo trygga og að ferð
hans til Bandaríkjanna, sem
Khomeini erkiklerkur kallaði á sín-
um tíma „hið satanska ríki“, sé
áhættusöm fyrir forsetann. Því sé
vart, að sögn The Washington Post,
að vænta fundar Madeleine Al-
bright, utanríkisráðhen-a Banda-
ríkjanna, og Kamals Kharrazis, ut-
anríkisráðhen-a Irans, eins og get-
gátur hafa verið uppi um, á næst-
unni. Fer fram valdabarátta í Iran
milli Khatamis og bandamanna
hans og erkiklerksins Ayatollah Ali
Khameini, sem stýrir herafla lands-
ins og hefur þ.a.l. umtalsverð völd.
Ummælum Khatamis um
Rushdie tekið með varúð
Á blaðamannafundinum í New
York hrósaði Khatami Clinton fyrir
ummæli hans á mánudag en þar
sagðist Clinton ekki telja óumflýj-
anlegt að múslímar og kristnir
menn deildu hvorir við aðra og
sagði Irani meðal fórnarlamba
hryðjuverka. „Við fógnum öllum
slíkum ummælum um þjóð okkar,
menningu og samfélag,“ sagði
Khatami og bað Bandaríkin um að
rétta Irönum vinarhönd.
Þrátt fyrir vinsamlegt yfirbragð
hélt Khatami því hins vegar fram
að ákall hans í janúar til Banda-
ríkjamanna um að auka menningar-
leg tengsl landanna hefðu verið
misskilin. Engin formleg samskipti
væru á döfinni. Gagnrýndi hann
Bandaríkjastjórn íyrir efnahags-
þvinganir sem í gildi eru gegn Iran,
fyrir þá gagnrýni sem Bandaríkin
hafa haldið fram gegn írönskum
stjórnvöldum auk andstöðu Banda-
ríkjanna gegn þeim hugmyndum að
olíuleiðslum verði komið fyrir um
Iran frá Kaspíahafi.
Khatami lýsti því hins vegar yfir
að hann liti svo á að máli rithöfund-
arins Salmans Rushdies væri lokið,
en Khomeini erkiklerkur dæmdi
Rushdie til dauða árið 1989 fyrir
guðlast í bókinni „Söngvar
Satans.“ Hélt hann því fram að
Khomeini hefði einungis verið að
lýsa einkaskoðun sinni og að íran
hefði engin áfonn uppi um að fram-
fylgja dómnum. Mannréttindasam-
tök sem beitt hafa sér í máli
Rushies brugðust hins vegar var-
lega við ummælunum. Eru uppi
efasemdir um hvort Khatami geti í
raun ábyrgst öryggi Rushdies enda
hafa Iranir hingað til margoft sagt
að ekki væri hægt að afturkalla
dauðadóm Khomeinis.
Finni sakaður um ESB-
LANCÖME
njósnir fyrir Rússa
Rússneskum sendimanni var vísað frá Helsinki í sumar
Helsinki. Morgunblaðið. Reuters.
YFIRVOLD í Finnlandi sögðu í
gær, að verið væri að rannsaka
hugsanlegar njósnir embættis-
manns í utanríkisráðuneytinu en
hann er grunaður um að hafa komið
trúnaðarskjölum frá Evrópusam-
bandinu, ESB, til Rússlands.
Seppo Nevala, yfírmaður finnsku
leyniþjónustunnar, sagði í viðtali við
finnska útvarpið, að embættismað-
urinn væri grunaður um landráð.
Kvað hann ástæðu til að ætla, að er-
lendu ríki hefðu verið afhentar upp-
lýsingar, sem skaðað gætu sam-
skipti Finna við önnur ríki. Vegna
þessa máls var rússneskum sendi-
manni, sem tók við upplýsingunum,
sagt að yfirgefa Finnland nú í sum-
ar og áður hafði annar Rússi farið
sjálfviljugur.
In teífax-fréttastofan í Moskvu
hafði það eftir talsmanni rússneska
utanríkisráðuneytisins, að það
harmaði ákvörðun Finna um að
meina sendimönnunum landvist og
teldi það á misskilningi byggt. Finn-
um gremst þetta mál hins vegar
mjög. Þeir hafa haft náin samskipti
við Rússa áratugum saman og hafa
lagt sig fram um að brúa bilið milli
þeiira og Evrópusambandsins.
Alvarlegt mál
Markus Aaltonen, fonnaður utan-
ríkismálanefndar finnska þingsins,
sagði, að njósnamálið væri mjög al-
varlegt en of snemmt væri að segja
nokkuð um það hvort það hefði
áhrif á samskipti ríkjanna.
Eftir ósigurinn í síðari heims-
styrjöld neyddust Finnar til að gera
vináttusáttmála við Sovétmenn,
sem takmarkaði tengsl Finna við
vestræn ríki og leyfði Moskvu-
stjórninni að vasast í finnskum mál-
cfnum. Fram til 1990 var rússneska
sendiráðið í Helsinki vel skipað
leyniþjónustumönnum, sem höfðu
það verkefni eitt að vera í nánu
sambandi við finnska stjórnmála-
menn. Á því varð breyting með
KJELL Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, snýr aftur til
vinnu í dag eftir rúmlega þriggja
vikna veikindaleyfi, að sögn skrif-
stofu hans. Ymsar sögusagnir hafa
verið á kreiki um veikindi hans en
samherjar Bondevik í norsku mið-
flokkunum segja hann ekki hafa
verið alvarlega veikan, heldur hafi
svefnleysi gert útslagið.
I Dagbladet er haft eftir sam-
herjum hans að Bondevik hafi of-
keyrt sig„ hann hafi ekki áttað sig
fyllilega á álaginu sem fylgdi því að
gefa sér alltaf tíma fyrir fjölmiðla
og aðra. Fuliyrða þeir að
forsætisráðherrann hafi ekki verið
þunglyndur, heldur sýnt ákveðin
hruni Sovétríkjanna en þá sneru
Finnar sér í vestur og gerðust aðil-
ar að ESB.
Breyttir tímar
Finnski þingmaðurinn Risto
Pentilla segir, að þetta mál sýni vel
hvað tímarnir hafi breyst. „Áður
snerust Rússamir í kringum stjórn-
málamennina en nú hafa þeir mest-
an áhuga á embættismönnunum.
Þeir vita sem er, að stjórnmála-
mennirnir búa ekki yfir miklum
upplýsingum."
einkenni þess, sem meðal annars
hafi lýst sér í svefnleysi.
Háttsettir embættismenn hafa
enga vitneskju haft um hversu
veikur forsætisráðherrann hefur
verið og hafa margir talið það
merki um að hann sé enn veikari en
sagt er. Þessu vísa nánir samstarfs-
menn hans í stjórninni á bug. Þeir
viðurkenna hins vegar að veikinda-
leyfi Bondevik hefði ekki mátt
standa lengur.
Forsætisráðherrans bíða erfið
verkefni á næstu mánuðum, auk
fjárlagagerðarinnar fundur Norð-
urlandaráðs og Oryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu, svo og fyi--
irhuguð ferð til Suður-Ameríku.
Bondevik sagður svefnvana
fíouge
Haust- og vetrarlitirnir ’98-’99
Komið, sjáið og prófið...
....glimmer, mattir, blautir og þurrir.
Allt er fáanlegt og allt er leyfilegt. Tískan verður rauð,
meira logandi, frjálslegri og kvenlegri en áður.
Kynning og förðun í dag og á morgun.
Viðskiptavinir fá óvæntan glaðning.
GULLBRÁ BYLGJAN ANDORRA
Nóatúni 17, Hamraborg 14a, Strandgötu 32,
s. 562 4217 s. 564 2011 s. 555 2615
www.lancome.com
mber
Hmidi smgir: ,STÚRKOSTLEGT!'
Þýskir dagar
Perlunni
24. - 27.
september
• VW • Eimskip * Samskip • Flugleiðir • Mercedes Benz • Otta-Iisti • Adidas • Warsteiner • Tarkett
VERSLUNARRAÐIÐ