Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 24

Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Líf Lewinsky í rúst Framtíðin sem blasir við Monicu Lewinsky er ekki björt. Hún er atvinnu- laus og mætir andúð almennings. Og hún hatar Lindu Tripp. Reuters ÞESSI mynd var tekin af Monicu Lewinsky og Ciinton Bandaríkjaforseta daginn sem samband þeirra hófst. Var myndin eitt af fjölmörgum málsskjölum úr skýrslu Kenneths Starrs sem gerð voru opinber í vikubyijun. Washington. The Daily Telegraph. MONICA Lewinsky hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að samband hennar við Bill Clinton Banda- ríkjaforseta komst í hámæli. Lewinsky situr innilokuð í íbúð, sem afar fáir vita hvar er, horfir á sjónvarp og tekur inn þunglynd- islyf. Líf hennar er í rúst, hún hefur enga vinnu, framtíðarhorf- urnar eru svartar, hún nýtur engrar virðingar og virðist ekki fá neinar skynsamlegar ráðlegg- ingar. Þegar vitnisburður forsetans og Lewinsky er borinn saman, kemur í Ijós hyldýpisgjá á milli þeirra. Forsetinn sýnir lagaþekkingu sína og pólitíska færni er hann heldur sér í flóknar lagalegar skilgrein- ingar, en Lewinsky brotnaði sam- an fyrir framan rannsóknarkvið- dóminn. Grátur hennar varð til þess að nokkrir úr hópnum reyndu að hughreysta hana og af lýsing- um á yfirheyrslunum að dæma, minntu þær einna helst á hóptíma hjá sálfræðingi. Allir Bandaríkjamenn vita hver Lewinsky er og hafa skoðun á henni. Samkvæmt nýlegri skoð- anakönnun eru aðeins 5% þjóðar- innar jákvæð í hennar garð og að- eins 10% karlmanna segist myndu vilja fara út með henni. Nýlegt dæmi þykir sýna berlega þá skelfilegu stöðu sem Lewinsky er komin í. Hún var á leið út af skrifstofu lögmanna sinna í Was- hington, gekk út á götu og hugðist ná sér í leigubfl. Enginn bfll reynd- ist á lausu og fljótlega báru gang- andi vegfarendur kennsl á hana. Niðrandi athugasemdir voru látn- ar falla, skrifstofufólk í nálægum byggingum sá hvað var á seyði og gerði hróp að henni og Lewinsky hljóp í örvæntingu sinni fram og aftur eftir gangstéttinni. Að end- ingu renndi leigubfll upp að og ók henni á brott. Þá hafa einhveijir komist að því hvar Lewinsky býr, því fyrir skemmstu var kveikt í fiugeldi og honum troðið inn um bréfalúguna á ibúð hennar. Atvinnulaus og langt niðri Lewinsky hefur verið boðið að sýna fót á tískusýningu á Italíu í næsta mánuði en hún hefur enn ekki svarað tilboðinu. Hún hefur reynt að selja sögu sína til útgef- enda í Bandaríkjunum en ekki haft erindi sem erfiði, fimm þeirra hafa þegar hafnað því að gefa út endurminningar hennar. Ekki er þó útilokað að henni tak- ist að selja sögu sína fyrir dágóða upphæð þegar málið er um garð gengið. Móðir Monicu Lewinsky segir hana hafa verið þunglynda og sýnt sjálfsmorðstilhneigingar frá átján ára aldri. Ljóst er að Lewin- sky hefur verið langt niðri, að minnsta kosti frá áramótum, er samband hennar við forsetann komst í hámæli, jafnvel frá því að henni varð ljóst að sambandi þeirra var lokið. Hún kennir Clint- on ekki um það hvemig fór en leynir hins vegar ekki reiði sinni í garð annarrar manneskju. „Mér þykir þetta allt saman ákaflega leitt. Og ég hata Lindu Tripp,“ sagði Lewinsky við vitnaleiðslurn- ar. Tripp og blái kjóllinn Það vekur athygli margra, hversu lítið er minnst á Tripp í hinni umfangsmiklu skýrslu sér- skipaðs saksóknara, Kenneths Starrs. Ljóst er t.d. að hún kann að hafa haft úrslitaáhrif á að Janet Reno, dómsmálaráðherra, leyfði rannsóknina á sínum túna, en ákvörðunin var byggð á upptökum af samtölum Tripp og Lewinsky. Nú segist Lewinsky hafa logið að Tripp í þeim. Fram hefur komið að það var Linda Tripp sem hvatti Lewinsky til að geyma bláa kjólinn með sáð- blettum úr forsetanum. Lewinsky hugðist láta hreinsa kjólinn en Tripp sagði að hún yrði að geyma hann sem sönnunargagn. Er Lewinsky vildi það ekki og sagðist ætla að vera í kjólnum, sannfærði Tripp hana um að hann klæddi hana illa, hún sýndist feit í honum. „Hataðasta manneskja heims“ Þá lagði Tripp afar hart að Lewinsky að undirrita ekki eið- svarna yfirlýsingu sem Vernon Jor- dan, lögmaður og vinur Clintons, hafði aðstoðað Lewinsky við að út- búa, fyrr en Jordan hefði tryggt henni vinnu. Lewinsky segir enn- fremur í vitninsburðinum að hana minni að það hafi verið hugmynd Tripp að fá Jordau til aðstoðar við atvinnuleit. Þegar þá var komið við sögu var Lewinsky og forsetann farið að gruna að Tripp læki upp- lýsingum um samband þeirra og segist Lewinsky hafa logið að Tripp. T.d. hafi hún sagst ekki myndu undirrita yfírlýsinguna þeg- ar hún var í reynd búin að því. Einnig hafi hún sagt Tripp að for- setinn og Jordan hafi sagt sér að Ijúga, sem hafi ekki verið satt. Fram hefur komið að Kenneth Starr telur að ekki sé allt með felldu hvað varðar upptökur sem Tripp gerði af samtölum sínum við Lewinsky. Tripp er einnig rúin trausti og hefur ekki aðeins kallað yfir sig hatur Lewinsky, heldur fjölmargra annarra. Segir umsjón- armaður vefsíðu hennar að hún sé „iíklega hataðasta manneskja heims“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.