Morgunblaðið - 24.09.1998, Qupperneq 29
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 29
Umboðsaðilar:
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011
Listamannaþingið og sýningin „Stöð tii stöðvar“ í Nýlistasafninu
Utgáfutónleikar
Möggu Stínu
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Möggu
Stínu verða haldnir í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, í Loftkastalanum. Tilefn-
ið er útkoma fyrstu sólóplötu Möggu
Stínu „An Album“ sem inniheldur 12
lög og er gefmn út samhliða í Bret-
landi og víðar í Evrópu.
Til að fylgja plötunni efth- hefur
Magga Stína sett saman hljómsveit-
ina Bikarmeistarana sem skipa Pét-
ur Hallgrímsson á gítar, Guðni
Finnsson á bassa, Arnar Geir
Ómarsson á trommur og Valgeir
Sigurðsson á hristur. Fyi-irhuguð er
tónleikaferð um Bretland í nóvem-
berlok þar sem hljómsveitin mun
hita upp á tónleikum Bjarkar.
Á tónleikunum í Loftkastalanum í
kvöld, sem hefjast kl. 22, verða
einnig óvæntir gestir. Miðaverð á
tónleikana er 1.000 kr.
„Var ekki með neinn sér-
stakan blómvönd í huga“
DJÚP rödd hljómar innan úr helj-
arstórum rassi uppi á vegg og talar
um muninn á munni og rassi. Tölvu-
skjár með orðabók, sem gestirnir
geta búið til jafnóðum. Hljóðupp-
taka á andardrætti sofandi manns í
Landmannalaugum. Ungur Sviss-
lendingur á sjónvarpsskjá reynir að
botna í orðum sem hann flettir upp í
þýsk-íslenskri orðabók. Verk sem
leggur út af gjafaskiptum Banda-
ríkjaforseta og Móniku nokkurrar
Lewinsky. Brunnur, súrefnisatóm
og rafmagnssnúrur. Allt þetta og
langtum fleira má sjá á sýningunni
„Stöð til stöðvar", sem nú stendur
yfír í Nýlistasafninu og lýkur
sunnudaginn 27. september.
Sýningin er lokaáfangi samvinnu
sem hófst milli listamanna frá Ung-
verjalandi, Sviss og Islandi í sviss-
nesku Ölpunum í september í fyrra
og var fram haldið í Búdapest fyrr á
þessu ári. Eins og segir í kynningu í
fréttabréfi Nýlistasafnsins eiga
þjóðríkin þrjú ýmislegt sameigin-
legt. Öll iiggja þau t.d. á afgerandi
mörkum mismunandi menningar-
svæða. „Löndin eru í ákveðnum
skilningi öll tímalausar eyjur sem
eru stöðug ráðgáta fyrir ókunna.
Þekktasti sjónhverfíngamaður ald-
arinnar var einmitt Ungverjinn
Houdini, Svisslendingar ei'u hins
vegar helstu framleiðendur arm-
bandsúra og annarra tímamæla á
okkar dögum meðan Islendingar
eru sífellt að koma á óvart,“ segir
þar ennfremur.
Biómabúðin og vöndurinn
Listamennirnir sem hér eru að
verki eru fimmtán talsins og hefur
hluti þeirra tekið þátt í samvinnunni
frá upphafí og aðrir eru nýir í hópn-
um. Ölíkir einstaklingar sem sumir
þekktust fyi'irfram og aðrir ekki
hittust viku fyrir sýninguna, bjuggu
saman og unnu saman í viku og úr
varð sýning á sameiginlegum af-
rakstri. Sum verkin eru unnin af öll-
um í sameiningu, önnur af smærri
hópum og enn önnur af einum og
einum. Listamennirnir segja sam-
vinnuna hafa verið fljótandi og hug-
myndirnar þróast á staðnum, mis-
munandi meðvitað. Til dæmis hafi
þau yfírhöfuð ekki rætt sýninguna
þann tíma sem þau voru öll saman í
Landmannalaugum.
„Það er nákvæmlega eins og
þetta með blómabúðina og vöndinn.
Þú ferð inn með ákveðinn blómvönd
í huga _ en færð hann eiginlega
aldrei. Út frá því gekk ég þegar ég
kom hérna, ég var ekki með neinn
sérstakan blómvönd í huga, þannig
fannst mér það meira spennandi.
Það voru margir til í það - en það
eru auðvitað ekki allir þannig," seg-
ir Gabríela Friðriksdóttir, einn
listamannanna sem Morgunblaðið
hitti í Nýlistasafninu í vikunni. Þá
voru Ungverjarnir reyndar farnir
Morgunblaðið/Golli
EGILL Sæbjörnsson, Guðlaugur Kr. Óttarsson, Margrét H. Blöndal,
Christina Hemauer, Haraldur Jónsson, Gabríela Friðriksdóttir og
Nicole Henning eru meðal þátttakenda í listamannaþinginu og
sýningunni „Stöð til stöðvar" í Nýlistasafninu.
heim og tvær svissneskar stúlkur
eftir, auk Islendinganna, sem ekki
voru þó allir viðstaddir þann dag-
inn.
Aðalatriðið að vera saman
Þegar spurt er hvort líta beri á
sýninguna sem verk fimmtán ein-
staklinga eða einnar heildar er á
listamönnunum að heyra að eigin-
lega sé það bæði og. „Einstakling-
arnir verða auðvitað líka að fá að
njóta sín, annars verður það bara
leiðinlegt. Þetta var kaos og hluti af
því er að vera ekki að reyna að
stjórna of mikið, maður verður líka
að fara eftir eigin þörf,“ segir Egill
Sæbjörnsson. Haraldur Jónsson lík-
ir ferlinu við samkvæmi, þar sem
ekki sé hægt að neyða einhvern til
þess að skemmta sér. Christina
Hemauer frá Sviss segir þetta mik-
ið hafa snúist um að reyna og gera
tilraunir. Samstarfíð hafí á vissan
hátt virkað og á annan hátt ekki.
„Aðalatriðið er að vera saman þenn-
an tíma, þess vegna lögðum við
áherslu á að sofa líka í safninu. Við
erum hérna saman og það getur
ekki farið á annan hátt en að það
gerist eitthvað, jafnvel þótt áhrifín
verði ekki önnur en þau að við töl-
um ekki saman. Við ætluðum okkur
ekki endilega hnitmiðað að komast
að einhverri rosamikilli niðurstöðu,
heldur bara búa til svona einingu
eins og rannsóknastofu til þess að
tefla saman ákveðnum elementum
og leyfa því síðan að vaxa svolítið af
sjálfu sér, vegna þess að ef þessu er
ofstjórnað verður það leiðinlegt. Er
það ekki?“ segir Egill og viðstaddir
samsinna því að tíminn hafí ekki
leyft að menn væru að velta hug-
myndunum allt of mikið og lengi
fyrir sér.
Ragnar H. Ragnar Bernharður Wilkinson Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit íslands á ísafírði
------ —........%-----------
Tónleikar í ald-
arminningu Ragn-
ars H. Ragnar
Isaílrði. Morg^inblaðið.
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT
lands kemur til Isafjarðar laugar-
daginn, 26. september, og heldur
tónleika í íþróttahúsinu á Torfnesi.
Tónleikarnir eru til minningar um
tónlistarfrömuðinn Ragnar H.
Ragnar, en hinn 28. september eru
liðin 100 ár frá fæðingu hans.
Á efnisskrá tónleikanna eru tón-
verk eftir þá feðga og tengdafeðga
Ragnar H. Ragnar, Hjálmar H.
Ragnarsson og Jónas Tómasson en
þess utan verða fluttar aríur og
önnur tónlist úr óperum eftir Moz-
art, Rossini og Gounod. Tónleikun-
um lýkur á Polovtsían dönsum úr
Igori fursta eftir Borodin. Ein-
söngvari á tónleikunum verður Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, Diddú, en með
Sinfóníunni syngur jafnframt um 60
manna blandaður kór með söngfólki
frá Þingeyi'i, Flateyi'i, Suðureyri,
Isafirði, Bolungarvík og Súðavík.
Hljómsveitarstjóri verður Bern-
harður Wilkinson.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra verður viðstaddur tónleikana.
Að tónleikunum loknum verður
farið niður að Tónlistarskólanum
við Austurveg og tekin fyrsta
skóflustungan að nýjum tónleikasal
sem verður byggður í garðinum á
bak við húsið. Salurinn mun taka
150-170 manns í sæti og þar eiga
hljómgæði að verða eins og best
verður á kosið. Arkitekt er Vil-
hjálmur Hjálmarsson en honum til
aðstoðar hefur veríð Stefán Einars-
son, sem er helsti sérfræðingur
landsins í hljómburði tónleikasala.
Ragnar H. Ragnar gegndi yeiga-
miklu hlutverki í tónlistarlífí Isfirð-
inga um árabil og var 'meðal annars
skólastjóri og aðalpíanóleikari Tón-
listarskóla Isafjarðar og organisti
Isafjarðarkirkju, auk þess að
stjórna Sunnukórnum og Karlakór
ísafjarðar.
Barnaskór
SMÁSKÓR
í bláu húsi viö Fákafen,
sími 568 3919
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aöstæöur
nnifaiið í verði bíisins
s 2.0I 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél
V Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
■s Rafdrifnar rúður og speglar
v Veghæð: 20,5 cm
v Fjórhjóladrif
v Samlæsingar
v Ryðvörn og skráning
s Útvarp og kassettutækí
V Hjólhaf: 2.62 m
v Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
Verð á götuna: 2.285.000.- með abs
Sjálfskipting kostar 80.000,-
HONDA
Sími: 520 1100
HÁRLOS
Ertu með hárlos? Við lofiim þér árangri.
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13, sími 551 2136.