Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 33
LISTIR
Vestur-íslenski listamaðurinn Tom Bjarnason
„Hvers vegna þurfa
allar myndir að
vera ferkantaðar?“
„ÞETTA hefur verið stórkostlegt
ferðalag en ég hef borðað of mikið
og drukkið allt of mikið kaffí. Nú
verð ég að fara heim og hvfla mig,“
segir kanadíski myndlistarmaðm--
inn Tom Bjarnason og
afþakkar allra náðar-
samlegast þegar blaða-
maður býður honum
kaffibolla á síðasta degi
Islandsheimsóknar
hans. Tom á ættir að
rekja vestur á Snæ-
fellsnes og austur á
land og kom í þriðju
heimsókn sína hingað
til lands á dögunum.
Tom er fæddur í
Winnipeg í Manitoba
árið 1925 og stundaði
nám í myndskreyting-
um þar og í Michigan.
Frá því á miðjum sjötta
áratugnum hefur hann
haft lifibrauð af myndskreytingum
ýmiskonar, auk þess sem hann hef-
ur kennt við listaskóla. Hann hefur
hannað á þriðja tug frímerkja fyrir
kanadíska póstinn, myndskreytt
fjöldann allan af bókum, tímaritum
og auglýsingum.
Langaði að verða flugmaður en
fór svo að teikna flugvélar
Flugvélar og geimferðir hafa
lengi verið honum sérstakt áhuga-
mál og hefur hann teiknað flugvélar
í fjölda bóka og íýrir flugfélög. Síð-
asta áratuginn hefur hann snúið sér
að gerð myndverka úr ýmsu til-
fallandi dóti sem hann festir upp á
striga, svo sem innmat úr tölvum og
sjónvörpum. Verkin, sem flest hver
eru risavaxin, hefur hann selt fyrir-
tækjum og opinberum stofnunum.
Hann býr nú í bænum Port Hope,
skammt frá Toronto, í stóru húsi frá
því um miðja síðustu öld, þar sem
mörkin milli heimilis og vinnustofu
eru fljótandi.
„Ég hef alltaf haft mikið dálæti á
fiugvélum, alveg frá því ég var barn,
og langaði framar öllu að verða flug-
maður, en af því gat ekki orðið, svo í
staðinn fór ég að teikna flugvélar,"
segir Tom kíminn. Nú hefur hann þó
ekki lengur áhuga á að mála myndir
af flugvélum, því tölvumar eiga orð-
ið hug hans allan. Ekki tölvuforrit
heldur hlutirnir sem tölvur eru sett-
ar saman úr. „Ég tek tölvur og sjón-
vörp í sundur. Þetta
eru dásamlega fallegir
hlutir, sem ég bolta upp
á stærðarinnar striga í
skrýtnum fonnum.
Þetta eru stór abstrakt
verk. Lýsingin skiptir
líka miklu máli, það
sindrar á hlutina þegar
ljósið skín á þá,“ segir
hann. Ekki er nóg með
að verk hans séu
óvenjuleg að innihaldi,
heldur eru þau líka
fremur óhefðbundin í
laginu. „Ég er alveg
búinn að fá nóg af þess-
um ferköntuðu mynd-
um. Hvers vegna í
ósköpunum þurfa allar myndir í
heiminum að vera ferkantaðar?"
segir hann og bætir við að hann láti
gjarnan hluta verksins skaga upp
eða út úr hinum hefðbundna mynd-
fleti og tengi það jafnvel yfir í annað
verk eða ramma en auk þess að
festa fyrrnefnda málmhluti á strig-
ann máiar Tom á hann með úða-
tækni.
Ovæntur viðauki
við ferilinn
„Þetta er mjög óvæntur viðauki
við hans feril, sem er í rauninni al-
gerlega á myndlýsingarsviðinu,“
segir Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur, sem þekkir vel til verka
listamannsins. „Hins vegar er þarna
ákveðinn snertiflötur við hans sér-
staka áhugamál, sem er ýmiskonar
tækniteikning og flug- og geim-
ferðatækni. I ellinni fer hann allt í
einu að tengja saman úðatækni,
sem hann notaði í myndlýsingunum,
og allskonar málm og vélaparta, úr
tölvum, mælitækjum og öðra slíku.
Ur þessu verður dálítið sérkennileg
myndlistarblanda sem má kannski
kenna við svokallaðan konstrúktí-
visma í myndlist, þegar menn voru
einmitt meðvitað að vísa í tækni og
Tom
Bjarnason
Stórviðburður í Hðilinni
um helgina!
Útl Vlsf
fjölskyldunnar
LA UGARDALSHÖLL
25. - 27. SEPT.
•Ferða- og fjallajeppar
•Nýir bílar og jeppar Á
•Útivistarvörur , J
•Aukahlutir
ISE!
15 ára afmælissýning
7h& tcetencffc Sup&rfeep artd outdoor show 1998
Ljósmynd/Aðalsteinn Ingólfsson
HLUTI af verki sem hangir uppi í hringlaga anddyri kanadfska loftferðaeftirlitsins í Ottawa.
ýmiskonar iðnaðarefni. En fyi-st og
fremst er þetta hans eigin mjög
persónulega blanda. Ég held að
þetta sé honum ekkert óskaplegt al-
vörumál. Honum þykir gaman að
þessu og ef einhverjum öðram
flnnst það líka þá er það ennþá
meira gaman,“ segir Aðalsteinn.
Tom kom fyrst til íslands
snemma á sjötta áratugnum þegar
hann bjó í London og Ingibjörg
systir hans var hér á landi og
kenndi ensku. Arið 1990 kom hann
aftur, þá sem gestafyrirlesari við
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
I þetta sinn hitti hann fjöldann allan
af skyldmennum og var m.a. gefíð
ættartré. Frænda sínum, Karli
Guðmundssyni leikara, kynntist
hann í fyrstu ferðinni, en afí Karls
og faðir Toms vora bræður. „Mér
hálfbrá þegar ég sá afa hans, því
hann leit út nákvæmlega eins og
faðir minn!“
Whirlpool gæða frystikistur
AFG053 134L Nettó H:88,5 B: 60 D: 68 Verö: 29.925 kr
AFG073 258L Nettó H:88,5 B: 95 D: 68 Verð: 36.955 kr
AFG093 320L Nettó H:88,5 B: 112 D: 68 Verð: 39.900 kr
AFG094 400L Nettó H:88,5 B: 134,5 D: 68 Whirlpool frystikistur eru með læsingu á loki, Ijósi f loki og aðvörunarbúnaðl. Whirlpool gæða frystiskápar Verð: 46.455 kr
AFG065 65L Nettó H:56,5 B: 52,5 D: 60 Verð: 36.000 kr
AFB427 130L Nettó H:85 B: 55 D: 60 Verð: 34.265 kr
AFB341 203L Nettó H:140 B: 59,2 D: 60 Verð: 49.875 kr
AFG343 283L Nettó H:180 B: 59,2 D: 60 Verð: 54.900 kr
Whirlpool frystiskápar eru með aðvörunarbúnaði.
Öll verð eru stgr. verð
? Umboðsmenn um land allt
Byggingavörudeild KEA
^ Einar Stefánsson
«t Elís Guðnason
o Eyjaradió
* Fossraf
• Guðni Hallgrímsson
z Hljómsýn
\ Kask - vöruhús
5 K/F Húnvetninga
u K/F Borgfirðinga
o K/F Héraðshúa
- K/F Þingeyinga
i K/F V- Húnvetninga
o K/F Skagfirðinga
z K/F Vopnfirðinga
Akureyri Mosfell Hellu
Búðardal Póllinn ísafirði
Eskifirði Rafmagnsverkstæði KR Hvolsvelli
Vestmannaeyjum Radíónaust Akureyri
Selfossi Rafborg Gríndavík
Grundarfirði Rafbær Siglufirði
Akranesi Rás Þoríákshöfn
Höfn Homafirði Skipavik Stykkishólmi
Blönduósi Skúli Þórsson Hafnarfirði
Borgamesi Tumbræður Seyðisfirði
Egilsstöðum Valberg Ólafsfirði
Húsavík Viðarsbúð Fáskrúðsfirði
Hvammstanga Samkaup - NJarðvík Reykjanesbæ
Sauðárkróki Blómsturvellir Hellissandi
Vopnafirði
Heimilistæki hf
SÆTÚNI B SfMI 569 15 OO
htip.//www. ht.ls
umboðsmenn um land altt