Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 38

Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dauðans alvara „Lífsnauðsynlegt er að komast að því hvort Florence Grijfith-Joyner hafi haft rangt við, öðrum til viðvörunar. Hafi svo ekki verið hreinsast nafn hennar hins vegar til frambúðar. “ Peningar skipa sífellt stærri sess í íþrótta- heiminum og þegar gróðavon íþrótta- mannsins er orðin jafn mikil og raun ber vitni er lík- lega ekki að undra - þó það sé sorglegt - þó hann freistist til að beita öllum tiltækum ráðum til að ná árangri. Þeir bestu þéna mest. Sögusagnir um notkun ólög- legra lyfja hafa löngum loðað við fólk í mörgum íþróttagreinum. Vitað er að notkun hormónalyfja getur haft mjög slæm áhrif á starfsemi hjarta og því vekur það ætíð athygli þegar íþrótta- maður lætur lífið úr hjartaslagi, sér í lagi ef um ungt fólk er að ræða. Andlát bandarísku hlaupa- drottningarinnar Florence mnunnc GrifHth- VIÐHORF Joyner, langt Eftir Skapta um aldur fram, Hallgrímsson 1 þessari viku hefur orðið til þess að sögusagnir um meinta ólöglega lyfjanotkun, þegar hún var á hátindi ferilsins, hafa sprottið upp að nýju. Rétt er að taka skýrt fram að Flo Jo, eins og hún var kölluð, féll aldrei á lyfjaprófi. Aldrei sannaðist að hún hefði óhreint mjöl í poka- horninu, en ótrúlegar framfarir hennar á hlaupabrautinni á skömmum tíma, gífurlegur vöðvamassi og dimm rödd vöktu grunsemdir á sínum tíma. Tíu ár eru í dag frá því eitt mest spennandi 100 metra hlaup í sögu Olympíuleikanna fór fram. Það var laugardaginn 24. sept- ember 1988 sem heimsmeistar- inn frá því í Róm árið áður, þeldökkur Kanadamaður, fæddur í Jamaíka - gríðarlega kraftaleg- ur strákur með gul útstæð augu - stillti sér upp á þriðju braut á leikvanginum í Seoul í Suður- Kóreu. Þremur brautum frá, á þeirri sjöttu, var Bandaríkjamað- urinn Carl Lewis, Ólympíumeist- ari frá því í Los Angeles fjói-um árum áður. Lewis, einn hæfileik- aríkasti hlaupari samtímans, var á hátindi ferils síns á þessum tíma og Kanadamaðurinn Ben Johnson, sem skotist hafði hratt upp á stjömuhimininn, hafði sýnt ótrúlegan kraft. Dauðaþögn var á Ólympíuleik- vanginum þegar skot ræsisins reið af og Johnson hreinlega skaust upp úr startblokkunum. Þegar hlaupið var um það bil hálfnað var hann hérumbil tveimur metrum á undan Lewis og þrátt fyrir að vera frægur fyrir stórkostlegan endasprett hafði Lewis ekki roð við Kanada- manninum. Þetta bil hélst alla leið, Johnson kom eins og hrað- lest yfir marklínuna á ótrúlegum tíma; fór metrana 100 á 9,79 sek. sem var glæsilegt heimsmet. Enn hefur enginn hlaupið hraðar á móti í löglegum vindi. Flo Jo vakti ekki minni at- hygli en Johnson á Ólympíuleik- unum í Seoul. Hún sigraði bæði í 100 m hlaupi, daginn eftir þetta fræga einvígi Johnsons og Lew- is, og 200 m hlaupi. Setti ótrú- legt heimsmet í fyrrnefndu greininni á úrtökumóti Banda- ríkjanna fyrir ÓL fyrr um sum- arið og á leikunum í Seoul tví- bætti hún heimsmetið í lengri vegalengdinni. Arangur hennar í báðum greinum þótti með ólík- indum og þykir enn. Hún bætti fyrri met í báðum greinum mikið og þau standa enn óhögguð. Johnson og Griffith-Joyner eiga það sameiginlegt að bæði voru sökuð um ólöglega lyfja- notkun. Bæði neituðu því stað- fastlega. Flo Jo alla tíð en John- son féll hins vegar á lyfjaprófi eftir hlaupið ótrúlega í Kóreu, og viðurkenndi síðar að hafa tekið ólögleg hormónalyf með reglubundnum hætti um nokk- urra ára skeið í þeim tilgangi að verða fótfráasti maður heims. I framhaldi af því var hann svipt- ur heimsmeistaratitli frá því á HM í Róm 1987 og heimsmetið, sem hann setti á sama móti, af- máð úr afrekaskrám. Misnotkun lyfja er vandamál í íþróttaheiminum, en skyldi ótímabær dauði Florence Griffith-Joyner, þessarar sprett- hörðustu íþróttakonu allra tíma, verða nauðsynleg viðvörum til annarra íþróttamanna? Ekkert ólöglegt sannaðist á hana, það skal ítrekað, en vísbendingarnar eru svo sterkar að þær einar ættu að vera fólki umhugsunar- efni og öðru íþróttafólki víti til varnaðar. Ekki síst í ljósi þess að Ben Johnson stóðst öll lyfja- próf, þar til í Seoul 1988; nokkr- um árum eftir að hann hóf að nota ólögleg hoimónalyf. Alkunna er að ákveðin lyf önnur eru notuð til að fela hormónalyf- in - koma í veg fyrir að þau finn- ist við lyfjapróf - og slíkt var aldrei talið erfitt, en læknir Johnson gerði mistök hvað það varðar. Þess vegna féll Kanada- maðurinn á lyfjaprófinu. Hefðu þau mistök ekki verið gerð væri Johnson líklega heimsmethafi í 100 m hlaupi enn í dag. Vitað mál er að lyfjanotkun íþróttamanna er mikilvægust á undirbúningstímabili, þegar æf- ingar eru erfiðastar, og það var ekki fyrr en 1989 að alþjóðaregl- um var breytt á þann veg að íþróttamenn gátu átt von á að vera kallaðir í slíkt próf hvar og hvenær sem er, ekki bara á mót- um. Það vakti grunsemdir að um sama leyti tilkynnti Flo Jo að hún væri hætt keppni. Enn skal þó ítrekað að hún féll aldrei á lyfjaprófi. Fjölskylda Griffith-Joyner á um sárt að binda við ótímabært fráfall hennar, einkum eiginmað- ur og ung dóttir. Þrátt fyrir það ætti að leita allra mögulegra leiða til að komast að því hvort eitthvað gruggugt hafi verið á ferðinni. Þegar hefur verið haf- ist handa við að kryfja hlaupa- drottninguna en læknar segja mér að ekki sé öruggt að hægt sé að sanna það svo löngu eftir að keppnisferli hennar lauk, hvort dauða Griffith-Joyner megi rekja til lyfjanotkunar. Sé einhver leið fær verður hins veg- ar að fara hana. Hafi Flo Jo haft rangt við á íþróttaheimurinn heimtingu á að vita það, öðrum til viðvörunar. Hafi svo ekki ver- ið hreinsast nafn hennar hins vegar til frambúðar. AÐSENDAR GREINAR Eru íþróttimar að peningavæðast? EKKI er því að neita að margt bendir til að það umhverfi sem íþróttafélög starfa í sé að breytast. Sem og þau viðhorf sem ráða ferðinni. Erlendis frá berast þær fréttir að sjón- varpsfyrirtækið Sky sé í þann mund að kaupa eitt vinsælasta knattspyrnufélag í heimi, Manchester United, fyrir offjár. Önnur félög standa frammi fyrir freistandi tilboðum. Auðkýfíngar hafa tekið við stjórn og eignarhaldi íþróttafélaga, eink- um knattspyrnufélaga, ekki aðeins í Englandi, heldur og í nágranna- löndum okkar. Mikil hneykslismál um lyfja- misntokun urðu opinber í hjól- reiðakeppninni Tour de France í sumar, sem rekja verður tfi þess að sú keppni og raunar liðin sem taka þátt í henni eru undir stjóm fyrir- tækja en ekki íþróttafélaga og und- ir miklum þrýstingi um að ná góð- um árangri vegna gróðavonar eig- endanna. Mikil umræða fer nú fram í knattspymuhreyfingunni í Evrópu um svokallaða súper-deild, þar sem sjónvarpsstöðvar, millj- ónamæringar og öflug fyrirtæki beita áhrifum sínum til að lokka þekktustu knattspyrnuleið álfunn- ar til að stofna slíka deild og taka þátt í henni án tillits til þess hvort þessi sömu lið hafa borið sigur úr býtum í heimalandi sínu og deild- arkeppnini þar. Hér heima sjáum við á eftir öll- um okkar bestu íþróttamönnum til útlanda, þar sem þeir geta stundað íþrótt sína fyrir allsæmileg laun, en gamalgróin knattspymufélög standa hins vegar í harðri fallbar- áttu vegna þess að þau hafa ekki fjárráð til að „kaupa“ til sín bestu leikmenn. Og missa þá svo frá sér sem eitthvað geta. Þetta á ekki að- eins við um knattspyrnuna. Sömu teikn em á lofti í íþróttum eins og handknattleik og körfubolta. Önnur lið njóta hins vegar þeirra forréttinda að eiga öflug bæjarfé- lög eða fyrirtæki í heimabyggðinni til að leggja út fyrir leikmönnum, sem koma og fara eftir því hvemig kaupin gerast á eyrinni. Árangur virðist ráðast af peningagetu. Gamla félagstryggðin er horfin og aðstandendur íþróttafélaga, sjálf- boðaliðar og tryggir áhangendur, standa ráðalausir eftir með sitt gamla félag, stundum sem rjúkandi rúst. Það skal skýrt tekið fram að hér er ekki verið að draga úr þeim tækifæram sem íþróttafólki gefast með því að fá laun og afrakstur fyr- ir góðan árangur og víst er það rétt að jafnteflið fræga gegn heims- meisturam Frakka og frábær ár- angur Jóns Arnars, svo eitthvað sé nefnt, á sér meðal annars skýr- ingu í því að þetta af- reksfólk okkar getur einbeitt sér að íþrótt sinni í krafti atvinnu- mennsku. En þróunin er aug- ljós og skapar erfið- leika í grasrótinni, breytir vígstöðu gam- algróinna íþróttafélaga og kallar á ný viðbrögð sem ekki era alltaf auðfundin. Mitt gamla félag, KR, hefur til að mynda staðfest að knatt- spyrnudeildin eigi í viðræðum við enskt fyrirtæki, ENIC, sem hafi áhuga á að kaupa sig inn í félagið. Sömuleiðis hefur verið skýrt frá Fjárhagsleg spenni- treyja til margra ára dregur mátt úr íþrótta- félögunum, segir Ellert B. Schram. Það bitnar á öllu starfínu og niður í yngstu flokka. því að Knattspymufélagið Fram sé í sömu hugleiðingum. Ég skil þá afstöðu félaganna og styð hana ef hægt er að fá aukið fé inn í dýran rekstur knattspyrnu- deilda, en ég skil jafnframt það mál svo, að fyrirtækin kaupi ekki félög- in með húð og hári, heldur taki þátt í rekstri einnar deildar, en deildin verði áfram hluti af félaginu og fé- lagsmenn „eigi“ félagið og hafi ávallt síðasta orðið um það hvort breyttur rekstur sé ákjósanlegur eða til framtíðar. Ég nefni þeessi dæmi vegna þess að eftir atvikum sé ég ekkert athugavert við það að atvinnufyrir- tæki taki þátt í að markaðsvæða íþróttafélög svo framarlega sem grundvallarreglur og andi íþrótt- anna er virtur og á ég þá við upp- eldishlutverk íþróttafélaga, reglur um reglusemi og drengskap, sjálf- stæði þjálfara, lýðræðislegt vald aðalfunda félaga og yfirstjórn sér- sambanda og heildarsamtaka íþróttahreyfingarinnar. Viðkom- andi fyrirtæki leggja fram fé og njóta góðs af afrakstri ef einhver verður fjárhagslegur en nýtur auk- innar velvildar, „goodwill", engu að síður þótt endar nái ekki saman. Ég er hins vegar algjörlega and- vígur yfirtöku og eignarhaldi fyrir- tækja eða auðkýfinga á íþróttafé- lögum, þar sem íþróttalegar við- miðanir, íþróttalegur árangur og íþróttaleg viðhorf era virt að vettugi. Ég er andvígur yfirráðum peningaaflanna, ef lögmál markað- ar og lögmál gróða og einkahags- muna eiga að ráða og stjórna í einu og öllu því staifi sem fram fer í íþróttafélögum. Hlutverk íþróttafélaganna er í sjálfu sér afar merkilegt í íslensku þjóðfélagi og hvarvetna annars staðar. Þau eru samnefnari mikils fjölda fólks, jafnvel heilla byggðar- laga og hafa mikið félagslegt að- dráttarafl, sem skiptir veralegu máli í heimi firringar, tæknivæð- ingar, afskiptaleysis og félagslegr- ar heftingar (sem hvarvetna má sjá stað). Auk hins heilbrigða metnaðar að standa sig og ná árangri eru íþróttafélögin athvarf fyrir æsk- una, stuðla að betri heilsu og lífs- fyllingu og stuðla að mannrækt (sem ekki veitir af). Til að þau geti betur notið sín og sinnt þessum skyldum sínum þurfa sveitarfélög- in að hjálpa fjársveltum íþróttafé- lögum að standa undir rekstri. Veita þeim aðstoð við að aðstoða aðra, bömin og unglingana og fé- lagslega innviði. Öll áhersla sveit- arfélaga á að vera á þann þátt fé- lagsstarfsins. Þetta er í rauninni spurning um það hvort íþróttafélög haldi velli og víst er að fjárhagsleg spennitreyja til margra ára dregur mátt úr fé- lagi og bitnar, áður en yfir lýkur, ekki aðeins á árangri meistara- flokka, heldur og á öllu starfinu og niður í yngstu flokka. Ég er þeirrar skoðunar að hér reyni é. forystu íþróttahreyfingar- innar. A alþjóðavettvangi þurfa al- þjóðasérsambönd og alþjóðaólymp- íuhreyfingin að bregðast við af hörku, svo íþróttir afskræmist ekki og umhverfist í hlaup og kapp um peninga. Og sá vinni sem græðir mest. Það má ekki slaka á kröfum um lyfjaeftirlit, um íþróttalegar forsendur, um forræði lýðræðis- lega kjörinnar yfirstjórnar íþrótta- hreyfmgarinnar. Síðast en ekki síst má aldrei missa sjónar á þeirri staðreynd að íþróttir sækja styrk sinn til fjöldans, til félagsmanna, til þess strengs sem liggur á milli þíns íþróttafélags og þíns eigin hjarta. Hvers og eins._ Sá strengur má aldrei slitna. Iþróttafélag getur aldrei orðið eign eins manns eða eins fyrirtækis. Það felur í sér dauðadóm. Hér heima verður íþróttaforyst- an auðvitað að laga sig að þróun- inni. Hún verður að endurskoða margt í eigin ranni og í ranni ein- stakra íþróttafélaga, til að styrkja stöðu þeirra og til að koma þeim skilningi til skila, að íþróttafélög lifa ekki af sjálfu sér. Þau era ekki eyland. Þau era hluti af samfélag- inu og opinberir aðilar, jafnt ríkis- vald sem sveitarfélög, verða að taka þátt í og styðja þá viðleitni og það markmið að íþróttafélög haldi velli. Höfundur er forseti ÍSÍ. Ellert B. Schram Sérpantanir á húsgögnum þurfa að berast fyrir 25. september vegna jólasendinga Mörkinni 3. sími 588 0640 Opið mánud.—föstud. frá kl. 12-18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.