Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 39

Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Er þorskstofninn ofverndaður? ÞORSKVEIÐAR hafa gengið vel að und- anförnu. Þessi vel- gengni fylgir í kjölfar margra ára erfiðleika við þorskveiðar þegar stofninn var lítill vegna ofveiði undan- genginna ára. Og nú bregður svo við að það taka að heyrast raddir sem segja að þorsk- stofninn sé ofverndað- ur og nauðsynlegt sé að auka veiðarnar um- fram ráðgjöf vísinda- manna. Það er með ólíkindum hversu fljót- ir menn geta verið að gleyma. Því er ekki úr vegi að rifja upp hvernig komið var í þorskveið- unum. Ofveiði fyrri ára A miðju ári 1992 varð mönnum það ljóst að ástand þorskstofnsins var alvarlegt og nauðsynlegt var að draga verulega úr þorskveiðum. Astæða þessa var alltof mikil veiði á ungum þorski á árunum 1987-1989. Þessi veiði byggðist á Það er með ólíkindum hversu fljótir menn geta verið að gleyma. Kristján Þórarinsson telur því ástæðu til að rifja upp hvernig komið var í þorskveiðunum. stóru árgöngunum frá 1983 og 1984. Þessa árganga hefði betur mátt nota til að byggja upp þorsk- stofninn og tryggja hagsæld á Is- landi langt fram á tíunda áratuginn og jafnvel lengur. A þessum árum var fiskveiðistjórnunarkerfið ekki fullmótað enda var sóknarmark ennþá stór þáttur í kerfinu. Enn- fremur heimiluðu stjórnvöld afla talsvert umfram ráðgjöf fiskifræð- inga. Því fór sem fór. lengri tíma til að koma í veg fyrir hrun í stofn- inum. Ekki má heldur gleymast að fiskveiðar Islendinga eru at- vinnugrein sem verður að sýna hagkvæmni í rekstri. Þegar nýting- arstefna er valin er ekki nóg að horfa bara á tekjur af afla heldur verður einnig að huga að kostnaði við veið- amar. Eftir því sem stofninn stækkar eykst afli á hverja sóknarein- ingu (t.d. afli á togtíma við togveiðar). Við hag- kvæmustu stofnstærð er kostnaður við veiðar á hverju kílói af þorski vemlega minni en þegar þorsk- stofninn er lítill. Einnig dregur úr sveiflum í afla milli ára þegar stofn- inn stækkar. Enn vantar talsvert uppá að þorskstofninn hafi náð hagkvæmustu stærð. Niðurlag Það er fráleitt að íslenski þorsk- stofninn sé ofvemdaður. Þvert á móti er stofninn nú loksins nýttur á eðlilegan og skynsamlegan hátt eftir margra ára óhagkvæma ofnýtingu. Þeir eru til sem eiga erfitt með að átta sig á þessum framföram. Þeir segja þorskstofn- inn ofverndaðan. Sömu raddir heimta að veiðin verði aukin um- fram vísindalega ráðgjöf og af- rakstur fórna undanfarinna ára verði hirtur strax. Með því móti myndi stofnstærðin stefna í sama ömurlega farið aftur. En allur þorri manna er ekki svona fljótur að gleyma. Atvinnugreinin og þjóð- in öll hefur lært af reynslunni. Því eru þessar raddir hjáróma. Skynsemi og hagkvæmni er fólg- in í því að setja sér langtímamark- mið um hóflegt veiðiálag og góðan og stöðugan afla úr tiltölulega stór- um þorskstofni með sem minnstum tilkostnaði. Höfundur er stofnvistfræðingur hjá Landssambandi íslenskra útvegs- manna. Krisfján Þórarinsson FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 39 mmmmmmmmi Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni. Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka til skráningar: Verðtryggð skuldabréf FBA: 4. flokkur 1998 Krónur 2.000.000.000,- Gjalddagi 25. september 2006 Fjárfestingarbanki atvinnulífsins tekur að sér viðskiptavakt á ofangreindum flokki. Skuldabréfaflokkurinn verður skráður 28. september 1998. Skráningarlýsingar og önnur gögn liggja frammi hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík, umsjónaraðila skráningarinnar. FJARFESTINGARBANKI ATVINNULÍFSINS H F Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími: 580 5000. Fax: 580 5099. Netfang: fba@fba.is www.n ib l.is Samstarf um úrbætur Þorskstofninn er mikilvægasti fiskistofninn á Islandsmiðum. Það er því nauðsynlegt að hann sé nýtt- ur skynsamlega og í samræmi við vísindalega ráðgjöf. Sem betur fer sýndu allir aðilar skilning á þessu grundvallai-atriði þegar á í-eyndi og í óefni stefndi. Sjómenn, útvegs- menn, stjórnvöld og almenningur allur voru einhuga um að nýta bæri þorskstofninn á sjálfbæran hátt og tryggja þannig rétt komandi kyn- slóða. Þetta sást glöggt árið 1992 þeg- ar draga þurfti veralega úr sókn- inni, en þá ríkti nánast einhugur um nauðsyn aðgerða þrátt fyrir þá skammtíma erfiðleika sem afla- minnkun hefði í för með sér. Og aftur voru menn einhuga árið 1995 þegar svonefnd 25% aflaregla í þorskveiðum var sett. Þá var ekki enn útséð með hvemig tækist að rétta þorskstofninn við eftir margra ára lægð, enda hrygning- arstofninn ennþá of lítill og nýliðun ennþá léleg. Stækkun hrygningarstofns að undanfórnu og vel heppnað klak tvö ár í röð gefur möguleika á stærri árgöngum sem bendir til þess að tekist hafí að bjarga málum og koma stofninum á rétta braut til stækkunar. Hagkvæmar veiðar Mikilvægi þess að hafa þorsk- stofninn stóran er tvíþætt. í fyrsta lagi er nauðsynlegt að hafa borð fyrir bára. Náttúraleg niðursveifla í litlum stofni getur leitt til þess að hætta þurfí veiðum í skemmri eða NYTA HAUSTLINAN FRÁ KOOKAI Sautján Laugavegi 91, sími 511 1717 Kringlunni, sími 568 9017.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.