Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Sjö stuttar
og nnitmiðaðar
námstefnur
í september, október og nóvember hefur Stjórnunarfélag íslands
fengið til landsins þekkta fyrirlesara til að fjalla um áríðandi
efni í rekstri fyrirtækja og stofnana
BESTU AÐFERÐIR í ÞJÓNUSTU
50 áhrifaríkar aöferðirtil að auka þjónustugæði og viðskiptatryggð.
Tími: Þriðjudagur 29. sept. 1998. Tværtímasetningar: Kl. 8:30-12:30 eða kl. 13:00-17:00.
GRYFJURNAR FIMM SEM DÝPKA
ÞEGAR VEL GENGUR í REKSTRI
Fjallað um grundvallaratriðin í rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja
og hvar stjórnendur fara oftast útaf leið þegar vel árar.
Tími: Miðvikudagur 14. okt. 1998. Kl. 9:00-13:00.
SÖLUSTJÓRNUN OG TRYGGARIVIÐSKIPTAVINIR
Fjallað um leiðirtil að styrkja sölustjórnun og aðferðir topp-fyrirtækja
til að halda í viðskiptavini.
Tími: Miðvikudagur 14. okt. 1998. Kl. 14:00-18:00.
ENDURSKOÐUN Á STARFISTJORNARMANNA
í FYRIRTÆKJUM OG STOFNUNUM
Tímabær námstefna um hlutverk stjórna og leiðirtil að gera vinnu þeirra
árangursríkari í þágu fyrirtækis og stofnunar.
Tími: Fimmtudagur 15. okt. 1998. Kl. 9:00-13:00.
MARKAÐSSETNING Á NETINU.
UPPLÝSINGAR, KYNNINGAR OG RJÚKANDI SALA
Sérhvert fyrirtæki þarf að eiga stjórnendur og sölumenn
sem vita hvað er nýjast að gerast á þessu sviði
Tími: Fimmtudagur 15. okt. 1998. Kl. 14:00-18:00.
ÞEKKING Á MENNINGARMUN EYKUR SAMKEPPNISHÆFNI
Sérhvert fyrirtæki þarf að eiga amk. einn sérfræðing um ólíka siði og hætti
viðskiptaþjóða. Þekkingarleysið hefur leitt af sér glötuð viðskiptatækifæri.
Tími: Þriðjudagur 17. nóv. 1998. Kl. 9:00-13:00.
SAMSKIPTAVANDIÁ EVRÓPUMARKAÐI
Ólík menning og viðhorf þjóða jafnvel innan Evrópubandalagsins kalla
á ólíka framsetningu og framkomu á þessum mörkuðum.
Án þess glatast viðskiptatækifæri.
Tími: Þriðjudagur 17. nóv. 1998. Kl. 14:00-18:00.
Námstefnurnar eru allar haldnar Stjárpunarfélag
á Hótel Loftleiðum. Islands
AÐSENDAR GREINAR
KFUM og KFUK - ekki
bara æskulýðsfélag
ÞÓTT félögin frísku
og síungu KFUM og
KFUK, sem verða 100
ára á næsta ári, séu
sannarlega fyrst og
fremst æskulýðsfélög
eru þau það ekki ein-
göngu.
Að æskulýðsstarfi fé-
laganna koma hundruð
sjálfboðaliða sem gegna
margvíslegum hlutverk-
um. Auk þessa fólks eru
enn fleiri hundruð sem
biðja fyrir starfi félag-
anna og leggja þeim lið á
ómissandi hátt með fjár-
framlögum og stuðningi
ýmiskonar, andlegum og
félagslegum.
Allt þetta fólk þarf á því að halda
að koma saman til að uppbyggjast
saman í orði Guðs, til að stilla saman
strengi í starfinu og efla félagsand-
ann og síðast en ekki síst til þess að
biðja saman fyrir framgangi starfs-
ins á meðal barna og unglinga borg-
arinnar.
Til að sinna margvíslegum þörfum
félagsfóiks í KFUM og KFUK og
öðrum þeim sem láta sig starf félag-
Vetrarstarf KFUM og
KFUK er fjölbreytt.
Sigurbjörn Þorkelsson
rekur í þessari grein í
hverju starfíð framund-
an er fólgið.
anna einhverju varða er boðið upp á
fjölbreytt funda- og samkomuhald
sem er öllum opið og reyndar allrn
hjartanlega velkomnir.
Aðaldeildir KFUK og KFUM
í aðaldeildir KFUM og KFUK
geta þeir gengið sem náð hafa 17 ára
aldri og hafa verið þátttakendur í
starfi félaganna um lengri eða
skemmri tíma. Þá geta aðrir einnig
gerst þátttakendur, allir þeir sem
unna starfi félaganna og vilja veg
þeirra sem mestan og vilja leggja
sitt af mörkum í bæn, með áhuga og
á annan hátt, beinan eða óbeinan, til
stuðnings og eflingai' kristilegu
æskulýðsstarfi.
Þriðjudagar
Aðaldeild KFUK heldur fundi fyr-
m stúlkur/konur 17 ára og eldri yfir
vetrartímann á þriðjudögum kl.
20.30 í aðalstöðvum félaganna við
Holtaveg í Reykjavík.
Hojtaveg í Reykjavík.
Á fundum aðaldeilda
KFUK og KFUM er
boðið upp á vandað,
fræðandi og uppbyggi-
legt efni þar sem ávallt
er höfð stutt hugvekja
út frá Guðs orði í lok
fundar.
Laugardagar
Á laugardögum
halda Ki-istileg skóla-
samtök, KSS, einnig
fundi sína i félags-
heimili KFUM og
KFUK við Holtaveg-
inn. Hefjast fundirnir
kl. 20.30. KSS-fundh'
eru fyrir alla hressa
unglinga eða ungt fólk á aldrinum
fjórtán ára til tvítugs.
Sunnudagar
Á sunnudögum kl. 17.00 halda fé-
lögin síðan samkomu fyrir alla fé-
lagsmenn og gesti þeirra, sem og
aðra áhugasama. Á samkomurnar
eru allir velkomnir og það án fyrir-
vara.
Samkomurnar hefjast með ritn-
ingarlestri og bæn, trúarjátningin er
höfð yfh’, stuttur vitnisburður, stutt
frásögn af einhverju sem er að ger-
ast í hinu margþætta starfi félag-
anna auk þess sem hlýtt er á upp-
byggjandi og vandaða ræðu/prédik-
un í fimmtán til tuttugu mínútm-. Þá
er mikið sungið á samkomunum, oft
ki’öftuglega, enda söngur og sönglíf
verið aðalsmerki félaganna góðan
part af öldinni.
Á meðan á samkomunni stendur,
en hún tekur yfirleitt ekki nema
klukkutíma og kannski nokki’um
mínútum betur stundum, er boðið
upp á barnagæslu og fræðslu fyi’ir
börn. Skipt er í a.m.k. fjóra aldurs-
hópa svo allir fái eitthvað við sitt
hæfi. Samkomurnar eru að sjálf-
sögðu í aðalstöðvum félaganna við
Holtaveginn í Reykjavík í jaðri
Laugardalsins, á besta stað í borg-
inni í gæsilegu umhverfí.
Þriðja sunnudag í mánuði kl. 20.30
standa félögin einnig fyrir bæna- og
lofgjörðarstund í félagsheimilinu.
Það er stórsöngvarinn góðkunni
Þorvaldm’ Halldórsson sem leiðir
stundh’nar ásamt fleh’um.
Allir velkomnir
Hef ég nú greint frá föstum uppá-
komum í húsi KFUM og KFUK við
Holtaveginn, sem eru vikulega og
standa öllum opnai’. Auk þess sem
hér að ofan er greint er ýmislegt
annað um að vera í húsinu eða á veg-
um félaganna óreglulega aða sjaldn-
ar á ári.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Miðvikudagar
í hádeginu kl. 12.10 er hádegis-
verðarfundur fyrir karla og konur á
Holtaveginum. Fundurinn hefst með
ritningarlestri og bæn og síðan fer
fram kynning á einhverju sem er að
gerast í starfi félaganna eða fyrir-
lestur, eitthvert uppbyggilegt efni í
svona fimmtán mínútur. Að því búnu
borða menn saman léttan hádegis-
verð gegn vægu gjaldi.
Fimmtudagar
Aðaldeild KFUM hefur fundi sína
fyrir karlmenn 17 ára og eldri yfir
vetrartímann á fimmtudögum kl.
20.30 í aðalstöðvum félaganna við
Allir þeh’ sem leggja vilja kristi-
legu æskulýðsstaifi lið í einhverju
formi, beinu eða óbeinu, eru vel-
komnir á fundi og samkomur félag-
anna og einnig þeir sem bara þrá að
eiga samfélag við annað fólk, samfé-
lag þar sem komið er saman til að
syngja sálma og söngva, lofa Drottin
og til þess að heyra Guðs orð flutt
sér til uppörvunar og uppbyggingar.
Hafðu þetta í huga, kæri lesandi, og
vertu ekki ragur eða feiminn við að
láta sjá þig.
Með þakklæti og bæn um Guðs
blessun.
Höfundur er framkvæmdastfóri
KFUM og KFUK i Reykjavík.
Vantar — Vantar
sérhæð, 10—12 millj. með sérinng.120 —140
fm í austurbænum. Teigar— Lækir—Sundin—
Kleppsholt—Vogar.
Fjársterkur traustur kaup-
andi. Búinn að selja.
Upplýsingar gefur Ágúst
sölumaður í síma
551 0090.
Skráning í síma 533 4567 og á heimasíðu á Netinu: www.stjornun.is