Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Hvers vegna
stefna?
AF HVERJU var
verið að stofna Stefnu
- félag vinstri manna?
Þarf alltaf að verða
klofningur í vinstri
hreyfingunni? Af
hverju getur þetta fólk
ekki verið með í sam-
eiginlegu framboði
jafnaðarmanna? Eða
"»eru þetta bara nátt-
tröllin sem hefur dagað
uppi - fortíðardraugar?
Stefna - félag vinstri
manna var stofnað síð-
astliðið vor af hópi
fólks sem vildi skapa
sér vettvang fyrir póli-
tíska umræðu þar sem
haldið yrði á lofti gildum jafnaðar,
samfélagsþjónustu, umhverfis-
verndar og mannréttinda en hafnað
einkavæðingu og markaðsáhrifum á
sjálfsagða þjónustu sem allir eiga
rétt á, svo sem í skólamálum, heil-
brigðismálum og félagslegri aðstoð.
Hér var ekki um neinn klofning
að ræða enda voru margir sem
þarna komu saman óflokksbundnir
en sumir félagar í Alþýðubandalag-
inu eða Kvennalistanum eða
kannski öðrum flokkum, um það var
ekki spurt. Einn þingmaður var í
hópnum, Ogmundur Jónasson,
óflokksbundinn þingmaður í þing-
flokki Alþýðubandalags og óháðra.
Það hefur ekki enn reynt á hvort
þetta fólk er sammála um alla skap-
aða hluti. En um þau gildi sem hér
voru nefnd er það sammála. Það er
líka sammála um að þróunin í sam-
^álaginu liggi nú frá gildum jafnaðar
og samábyrgðar til vaxandi
tekjumunar og misréttis og að vald-
ið sé að færast frá almenningi og
kjörnum fulltrúum þess, að svo
miklu leyti sem það hefur verið þar,
til sjálfvirkra lögmála markaðskerf-
isins og eigenda og handhafa fjár-
magnsins.
Félagsmenn í Stefnu eru líka
nokkuð sammála um
þá tilfinningu ef ekki
vissu að innan þemra
flokka, sem kenndir
eru við vinstri stefnu
eða félagshyggju og nú
ætla að sameinast á
þingi, gæti mikillar eft-
irgjafar gagnvart þess-
ari þróun, ef ekki í orði
þá í verki. Þetta á fyrst
og fremst við um Al-
þýðubandalagið og
Kvennalistarm en í for-
ystu Alþýðuflokksins
hefur auðvitað lengi
verið landlæg lotning
fyrir lögmálum mark-
aðsins og Alþýðuflokk-
urinn átti beinlínis þátt í að innleiða
nýfrjálshyggjuna í stjórn ríkisins
þegar hann síðast deildi völdum
Stefna, segir Einar
Olafsson, er stofnuð til
höfuðs þeirri stefnu og
þróun sem ógnar hags-
munum alþýðunnar.
með Sjálfstæðisflokknum. Alþýðu-
flokkurinn hefur svo lengi sem elstu
menn muna leikið tveim skjöldum
og full ástæða til tortryggni þótt
hann hafi þann rauðleita uppi nú.
Reykjavíkurlistinn hefur líka gripið
til verkfæra nýfrjálshyggjunnar og
ríkir mikil eindrægni þar á bæ þótt
ýmsum sem úti standa þyki nóg um.
Ef við lítum til annarra landa er
ekki um að villast hver þróunin er
hjá breska Verkamannaflokknum
eða sósíaldemókrötum í Þýskalandi
og á Norðurlöndum og ekki er
ástæðulaust að ætla að þróunin
verði svipuð hér hjá hinum samein-
uðu jafnaðarmönnum.
í Bretlandi sjáum við Verka-
Einar
Ólafsson
mannaflokkinn stjórna á forsendum
nýfrjálshyggjunnar. Við stöndum
frammi fyrir því að nýfrjálshyggjan
er í æ ríkari mæli að verða sá
grundvöllur sem flestir rótgrónir
flokkar byggja stefnu sína á. Út-
færslan verður bara misróttæk.
Þetta er sú stefna sem Evrópusam-
bandið byggist á og sósíaldemókra-
taflokkar um alla Evrópu hafa gefið
samþykki sitt við. Með því að út-
færa nýfrjálshyggjuna með ein-
hverju blandi af hefðbundinni fé-
lagshyggju eru þessir flokkar og
þar með hið pólitíska svið samfé-
lagsins að gefa nýfrjálshyggjunni
lögmæti. Og þegar stórir hlutar
verkalýðshreyfingarinnar halda að
sér höndum eða feta sömu braut
eru hinir útskúfuðu einir eftir til
varnar, atvinnuleysingjar og ígripa-
fólk, öryrkjar og fátæk gamal-
menni. Það er það sem við óttumst
að muni einnig gerast á Islandi.
Sem sagt að baráttan verði ekki um
nýfrjálshyggjuna, hvort hún eigi að
ráða eða ekki, heldur að hve miklu
leyti hún eigi að ráða ferðinni, hve
mörgum verði útskúfað.
Vissulega eru það getgátur að
þróunin verði þessi hjá hinum sam-
einuðu jafnaðarmönnum en þær
getgátur byggjast á rökstuddum
líkum. Það er hins vegar víst að
enginn mun fagna því meir en
Stefna ef það kemur í ijós að sam-
eiginlegt framboð jafnaðarmanna
muni af alefli og einlægni og skil-
yrðislaust berjast gegn nýfrjáls-
hyggjunni og fyrir þeim gildum sem
Stefna setur í öndvegi.
Stefna er ekki stofnuð til höfuðs
neinum flokki eða framboði. Hún er
stofnuð til höfuðs þeirri stefnu og
þróun sem ógnar hagsmunum al-
þýðunnar hér og um allan heim.
Hún er stofnuð til að snúa þeirri
þróun við, ekki til fortíðar heldur til
framtíðar þar sem lögmál markaðs-
og fjármagnskerfis, lögmál auð-
valdskerfisins, ráða ekki með til-
heyi'andi arðráni, misrétti, bú-
seturöskun og náttúruspjöllum. Og
í þeirri baráttu er hún tilbúin til að
taka höndum saman við hvern þann
sem vill ljá henni lið - og ljá hverj-
um þeim lið sem heyr þá baráttu.
Höfundur er rithöfundur og
félagi í Stefnu.
mmilmE ajMcz
JjjJjjl
Lyst ehf., McDonald’s á Islandi, þakkar
viöskiptavinum góöar móttökur á
undanförnum 5 árum. Á þessum tíma höfum
viö þjónaö u.þ.b. 4,5 milljón manns sem
borðað hafa 220 tonn af íslensku nautakjöti
og 500 tonn af kartöflum!
McDonaids
Auslurstræti 20
Suðurlandshraut 56
Loforðaglaðir
vinstrimenn
í ÞEIRRI gömlu
góðu skáldsögu Bör
Börsson eftir Johan
Falkberget segir frá því
þegar sýslumaður Öld-
urdæla heldur upp á af-
mæli sitt og býður
sveitungum sínum til
mikillar veislu. Þar tek-
ur Jón gamli Dilt að sér
að mæla fyrir munn
sýslumannsfrúarinnar
og uppistaðan í ræðunni
var þessi: „Og ég ætla
að segja það hér í kvöld,
svo að allir heyri, að ég
er svo glaður, svo inni-
lega glaður. Og svo vildi
ég óska þess, að ég gæti
á hverjum degi hér eftir verið svona
glaður, svona innilega glaður.“
Mér kom þessi ræða í hug þegar
Öllu þessu er stefnt í
voða, segir Guðjón
Guðmundsson, komist
vinstrabandalagið til
valda með loforðalist-
ann sinn upp á tug-
milljarða aukningu
ríkisútgjalda samfara
skattahækkunum.
ég horfði á fréttir sjónvarpsstöðv-
anna 15. september. Þar voru for-
ingjar vinstrimanna að kynna stefnu
sameiginlegs framboðs. Og þau
Margrét, Sighvatur og Guðný vora
svo glöð, svo innilega glöð, að þau
brostu stöðugt allan fréttatímann.
Og bros þeirra minnkuðu ekkert
þótt fréttamenn rækju þau hvað eft-
ir annað á gat. Þannig brosti Mar-
grét út að eyrum þegar hún var
spurð hvað þessi loforðapakki myndi
kosta ríkissjóð og sagðist ekkert
vita um það - stýrihópurinn ætti eft-
ir að reikna það út, Sighvatur brosti
breitt þegar hann var spurður um
sjávarútvegsstefnuna og hvað ætti
að koma í stað þess kerfis sem ætti
að afleggja og sagði að það ætti eftir
að ræða það nánar í stýrihópnum og
Guðný brosti sínu blíðasta þegar
hún sagði að þessi málefnaskrá væri
svo góð að hún ætti ekki von á að
henni yrði breytt mikið.
Það var helst að brosið frysi á for-
ingjunum þegar spurt var um stefn-
una varðandi varnannálin og greini-
legt að þar voru kommar og kratar
hvorir með sinn skilninginn. Reynd-
ar bentu forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra á að forsendur þær
sem byggt væri á varðandi þau mál
væru alrangar og urðu höfundar
plaggsins að viðurkenna það daginn
eftir þegar þeir höfðu kynnt sér
varnarsamninginn.
Skattahækkunarstefna
Það voru reyndar fleiri en foringj-
ar vinstrimanna sem brostu. Al-
menningur brosti þegar þessi lof-
orðalisti var kynntur, þar sem allt á
tttilltflftiðtt: ntliinliii.iiinH'diit.is/iiigvttroíigvin
Kom*^
Grt-nsásvegi 3
108 Reykjavík J
Sími; 568 1144 ^
auping
að gera fyrir alla. Það
bros hvarf þó fljótt
þegar fólk áttaði sig á
því að þarna er verið að
boða aukin ríkisútgjöld
upp á tugi milljarða á
ári. Engar útskýringar
íylgja á því hvernig eigi
að mæta þessum út-
gjöldum og helst mátti
skilja á Margréti að all-
ur vandi yrði leystur
með því að gera fjárlög
til tveggja ára! Að öðru
leyti var óljóst talað um
skattahækkanir og auð-
lindagjald. Reyndar
benti fulltrúi vinstri-
manna í fjárlaganefnd
Alþingis, Ki-istinn H. Gunnarsson, á
það í fréttum Stöðvar 2 að þetta
þýddi trúlega að staðgreiðsla skatta
yrði að hækka í 50-60%, en sem
kunnugt er á að lækka staðgreiðsl-
una í 38% um næstu áramót. At-
hugasemd Kristins er athyglisverð
þar sem hann hefur á undanförnum
árum verið helsti talsmaður Alþýðu-
bandalagsins varðandi ríkisfjármál
og er mjög glöggur á því sviði.
Annars þarf það engum að koma á
óvart þótt vinstrimenn vilji auka út-
gjöld ríkisins og hækka skatta.
Skemmst er að minnast afgreiðslu
fjárlaga fyi'h' síðustu jól þegar þeir
lögðu til aukin útgjöld upp á millj-
arða króna sem mæta skyldi með
skattahækkunum.
Ónýtt plagg
I blaðaviðtali um sl. helgi sagði
Kristinn H. Gunnarsson, sem hefur
verið talinn væntanlegur frambjóð-
andi vinstrabandalagsins: „Því mið-
ur er hér um ónýtt plagg að ræða
sem á bara að henda. Síðan eiga
menn að setjast niður og byi'ja upp
á nýtt við að semja plagg undir leið-
sögn fólks sem kann að vinna í póli-
tík.“ Þá segir Kristinn einnig að
hann hafi verið að skoða plaggið og
reyna að meta hvað sá loforðalisti,
sem það er, muni kosta þjóðarbúið.
Hann segist ekki vera kominn með
endanlega tölu sem hann telji áreið-
anlega, enda orðalagið sums staðar
þannig að erfitt er að átta sig á við
hvað er átt. „Ég er orðinn alveg ör-
uggur um 20 milljarða en á samt eft-
ir að slá á mjög dýra liði, þannig að
með fyrirvara tel ég að loforðalist-
inn myndi kosta á milli 30 og 40
milljarða króna á ári út næsta kjör-
tímabil,“ segir Ki'istinn.
Foringjar vinstrimanna hafa
brugðist æfir við þeim áætlunum
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
að þessi pakki muni kosta ríkissjóð
40-60 milljarða á ári. Það hlýtur að
vera þeim umhugsunarefni hve lítið
ber á milli forsætisráðherra og
helsta hugsuðai’ Alþýðubandalags-
ins í ríkisfjármálum, sem segir okk-
ur auðvitað að þetta er stærðargráð-
an á loforðapakkanum.
Ríkisfjármálum
stefnt í voða
I sjö ára fjánnálaráðherratíð
Friðriks Sophussonar var unnið
markvisst að því að bæta stjórn rík-
isfjármálanna þannig að hægt væri
að afgreiða hallalaus fjárlög og nú er
svo komið að ríkissjóður greiðir nið-
ur erlendar skuldir sinar í stað þess
að stórauka þær árlega eins og áður
tíðkaðist. Undir forystu Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjórn hefur ríkt hér
stöðugleiki; verðbólga í lágmarki,
gengi stöðugt, vextir hafa lækkað og
stöðugleiki á vinnumarkaði. Þessu
hefur svo fylgt mikill uppgangur í
atvinnulífinu með stórfjölgun starfa
og kaupmáttur hefur aukist meira á
síðustu ánam en dæmi eru um.
Öllu þessu er stefnt í voða komist
vinstrabandalagið til valda með lof-
orðalistann sinn upp á tugmilljarða
aukningu ríkisútgjalda samfara
skattahækkunum. A því hefur þjóð-
in ekki efni.
Höfumlur er þingmaður
Sjálfstæðisfiokksins á Vesturlandi.
Guðjón
Guðmundsson