Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 49 r-
VI NNU AUGLYSI NGAR
Laus störf
Pizza Hut óskar eftir að ráða starfsmenn í eftir-
farandi störf:
A. Vaktstjóra í eldhús.
Vaktstjórar hafa með almenna verkstjórn
í eldhúsi að gera og alla yfirumsjón með
daglegu birgðahaldi á vörum í framleiðslu.
Vaktstjóri þarf að hafa reynslu af samskonar
störfum í eldhúsi, vera vel skipulagður og
eiga gott með að umgangast samstarfsfólk.
B. Fullt starf í eldhúsi.
Starfsmenn í eldhúsi annast öll almenn eld-
hússtörf, undirbúning, framleiðslu, frágang
og þrif. Ekki er krafist sérmenntunar á mat-
vælasviði, heldur er almennur áhugi á með-
ferð matvæla æskilegur.
Pizza Hut býður upp á góða starfsaðstöðu, hjá
traustu fyrirtæki, í fremstu röð í sinni atvinnu-
grein. Allir starfsmenn munu fá góða þjálfun
í upphafi starfs og fara í gegnum ákveðin nám-
skeið sem allir starfsmenn Pizza Hut-veitinga-
húsakeðjunnar, um allan heim, fara á.
Umsóknareyðublöð munu liggja frammi
á veitingastað okkar á Hótel Esju, Suðurlands-
braut 2. Fyrirspurnum um ofantalin störfverð-
ur ekki svarað í síma. Lágmarksaldur umsækj-
enda er 18 ár. Umsóknarfrestur ertil sunnu-
dagsins 27. september næstkomandi.
Bókasafnið í
Hveragerði
Starf forstöðumanns bókasafnsins í Hvera-
gerði er laust til umsóknar. Starfið er hlutastarf
og veitir viðkomandi safninu forstöðu ásamt
faglegri ráðgjöf. Aðstoðarforstöðumaður er
starfandi við safnið í 100% stöðu.
Bókasafn Hveragerðis hefur hingað til verið til húsa hjá bæjarskrifstof-
um Hveragerðisbæjar i Hverahlið 24, Hveragerði en búið er að finna
safninu nýtt húsnæði í Austurmörk 2 og verður það flutt þangað
á næstu mánuðum. Nýja húsnæðið er 170 m2 að stærð og verður
þar innréttað rúmgott svæði fyrir bækur, lesaðstaða fyrir gesti og
nemendur, tölvur með aðgengi að interneti, herbergi fyrir námskeið
og hópvinnu ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk og geymslur.
Aðgengi verður fyrir alla.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi háskóla-
gráðu í bókasafnsfræðum og hafi reynslu af
rekstri eða störfum á bókasafni.
Skila þarf skriflegum umsóknum á skrifstofu
bæjarins í Hverahlíð 24, Hveragerði, ertilgreina
menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 26. september nk. Allar
nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri Hvera-
gerðisbæjar og undirritaður í síma 483 4000.
Bæjarstjórinn í Hveragerði.
1 VIMNLUVHÐLUN
* hOfuðbdrbarsvæðisins
Ráðgjafi
Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins óskar eftir
að ráða ráðgjafa sem allra fyrst.
Starfssvið: Ráðgjafinn er atvinnuleitendum
til aðstoðar og leiðbeiningar við leit að starfi,
ýmist með einstaklings- eða hópráðgjöf.
Starfið felst einkum í vinnu við gerð starfsleit-
aráætlana með atvinnuleitendum, þátttöku
í þróunarstarfi um slíkar áætlanir og aðstoð
við atvinnuleitendurtil að styrkja stöðu þeirra
á vinnumarkaðnum.
Menntunar- og hæfniskröfur: Umsækjendur
þurfa að hafa þekkingu á vinnumarkaðnum
og menntakerfinu, mikla hæfni til mannlegra
samskipta og góða skipulagshæfileika. Sér-
staklega er leitað að einstaklingum með víð-
tæka reynslu af þátttöku á vinnumarkaðnum.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf á sviði
félagsvísinda, s.s. í náms- og starfsráðgjöf,
félagsráðgjöf, sálfræði eða kennaramenntun.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
Reykjavíkurborgar.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og starfsferil skal skila til Vinnumiðlunar
höfuðborgarsvæðisins, Engjateigi 11,108
Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með
8. október nk.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Jónsdóttir,
deildarstjóri ráðgjafar, í síma 588 2580.
hjúkrunarheimili, Kleppsvegi 64
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðinga vantartil starfa. Um er
að ræða tvær stöður aðstoðardeildarstjóra
80 — 100%. Einnig hlutastörf, blandaðar vaktir.
Sjúkraliða og starfsfólk við umönnun vantar
til starfa. Um er að ræða heilar stöður í störf
til framtíðar, einnig ein staða með 5 tíma vökt-
um frá kl. 8 — 13 virka daga og 8 tíma aðra
hverja helgi.
Skjól er nýlegt hjúkrunarheimili, með góðri
starfsaðstöðu og hér ríkir góður starfsandi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
568 8500.
Umsóknareyðublöð fást á staðnum.
Húsasmíðameistari
með góða reynslu sem byggingaverktaki, m.a.
í Noregi, óskar eftir vinnu hjá traustu fyrirtæki.
Margt kemur til greina. Get byrjað strax.
Upplýsingar í síma 894 2852.
Umhverfisráðuneytið
Laust embætti forstjóra
Landmælinga Islands
Laust er til umsóknar embætti forstjóra Land-
mælinga íslands skv. 2. gr. laga nr. 31/1985.
Samkvæmt 4. gr. sömu laga skal forstjóri Land-
mælinga íslands hafa sérmenntun á starfssviði
stofnunarinnar og stjórnunarreynslu. Starfið
er veitt til 5 ára frá og með 1. janúar 1999. Að-
setur stofnunarinnar verður frá þeim tíma á
Akranesi.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og störf sendist ráðuneytinu eigi síð-
ar en 16. október nk. Nánari upplýsingar um
starfið eru veittar í ráðuneytinu.
Umhverfisráðuneytið.
PFiæðslumiðstöð
Reykjavíkur
Árbæjarskóli
Starfsmaður óskast til að annast baðvörslu
stúlkna og fleira. 100% starf.
Vaktavinnufyrirkomulag.
Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla-
stjóri skólans í síma 567 2555.
Þessa auglýsingu sem og annan fróðleik er
aðfinna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur: www.reykjavik.is/fmr.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund
Starfsfólk
Okkur vantar starfsfólk í umönnun, morgun-
og kvöldvaktir, bæði í heilsdags- og hlutastörf.
Einnig vantar starfsfólk í ræstingar, vinnutími
frá kl. 8.00-16.00.
Nánari upplýsingar veittar í síma 552 6222 frá
kl. 8.30-12.30.
Starfsmannastjóri.
Matreiðslufólk
Matreiðslufólk óskast um helgar í vetur í
nágrenni Reykjavíkur.
Upplýsingar í síma 437 2345.
VEI
ATVINNUHÚSNÆÐI
Rjúpnaveiði 1998
Tilboð óskast í rjúpnaveiðirétt á jörðinni Ljár-
skógum í Dalabyggð. Stærð lands er u.þ.b.
30 km að lengd og 10 km breitt, kjarrivaxið að
hluta. Ljárskógar eru 6 km vestan við Búðardal.
Á jörðinni er gott íbúðarhús með 4 svefnherb.
Tilboð berist til undirritaðra fyrir 5. október
sem einnig veita nánari upplýsingar.
Jón Egilsson,
símum 434 1349 og 852 5808.
Svavar Jensson,
sími og fax 434 1209.
Skeifan 4
Til sölu eða leigu 223 fm gott skrifstofu- og
lagerhúsnæði.
Ársalir ehf., fasteignamiðlun,
símar 533 4200, 567 1325, 892 0667.
Nethylur 3
Til sölu eða leigu 1002 fm skemmur með stórri
lóð og góðri aðkomu.
Ársalir ehf., fasteignamiðlun,
símar 533 4200, 567 1325, 892 0667.