Morgunblaðið - 24.09.1998, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 24.09.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 51 LIONSMENN pakka sprittkertum. Lionsmenn í Hafnar- fírði ganga í hús Föstudags- fyrirlestur Líffræði- stofnunar ELSA Þórey Eysteinsdóttir MS nemi flytur erindi um rannsóknarverkefni sitt fóstudaginn 25. september. Erind- ið nefnist Takmai'kandi þættir við fræþroska arktískra plantna. Erindið verðm- haldið á Grensásvegi 12, stofu G-6, og hefst klukkan 12.20. Alíir eru velkomnir meðan húsrúm leyflr. í fréttatilkynningu segh’: ,Á norð- lægum slóðum eru sumur gjaman svöl og stutt sem setur skorður við vexti og æxlun plantna. Oft er talið að fræframleiðsla plantna á norðurslóð- um sé lítil sem engin og eigi sér ein- ungis stað í óvenjugóðum árum. I Þúfuveri í Þjórsárverum hefur verið sett af stað rannsókn til að leita svara við eftirfarandi spurningum: Hver er fræframleiðsla nokkurra tegunda á hálendi íslands og hversu breytileg er hún á milli ára? Hver eru tengsl veðurfars og blómgunar- tíma við fræframleiðslu? Hvaða þættir eru takmarkandi við fræ- þroskann?/newline fræjum er safnað af sex tegundum plantna og tilraun hefur verið sett upp með eina þeirra, gullbrá (Saxifraga hirculus). í til- rauninni felst að (a) skýli eru sett upp til að hækka hitastig, (b) ein- staklingar eru handfrævaðir og (c) áburður er borinn á, auk allra sam- setninga þessara þátta.“ í erindinu verður sagt frá bak- gnmni og framkvæmd verkefnisins og imprað á fyrstu-niðurstöðum. Ungt stuðnings- fólk Reykjavík- urlistans boðar til fundar UNGT stuðningsfólk Reykjavíkur- listans boðai- til spjallfundar um borgarmálin fímmtudaginn 24. september kl. 20.30 á Hverfísgötu 33 (húsnæði Framsóknarflokksins). Borgarfulltrúar Reykjavíkurlist- ans munu taka þátt í umræðum um málefni ungs fólks í Reykjavík. Er þetta fyrsti fundur vetrarins í funda- röð ungs stuðningsfólks Reykjavík- urlistans, um málefni ungs fólks í borginni. Allfr velkomnir. ÁRLEG ijáröflun Lionsklúbbs Hafnarfjarðar er að hefjast og verður gengið í hús og fólki að þessu sinni boðnar ljósaperur og sprittkerti. Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála. Á síðasta ári var Hæfingarstöð fatlaðra í Bæjahrauni færð tölva með forriti til lestrarkennslu þroskaheftra, einnig var gefin tölva til Leikskólans Víðivalla við Miðvang. Klúbburinn styrkti iðjuþjálfa til náms í Danmörku, fiðluleikara til þátttöku í Orkest- er Norden. fþróttasamband fatl- aðra, Hljóðfærasjóður Hafnar, Lions Quest vímuvarnaverkefni Lions, og LCIF, alþjóðahjálpar- sjóður Lions, fengu einnig styrki. Lionsmenn vonast eftir góðum viðtökum bæjarbúa eins og und- anfarin ár og nú er lag að birgja sig upp af ljósaperum og spritt- kertum fyrir skammdegið og styrkja gott málefni í leiðinni. íslenskuábendingar MS til barna á grunnskólastigi MJÓLKURSAMSALAN hefur í samvinnu við íslenska málnefnd gefið út möppu sem hefur að geyma á annað hundrað ábend- inga um íslenskt mál. Möppunum verður dreift til allra íslensku- kennara bama á gi’unnskólastigi, en vonast er til að ábendingarnar megi nýtast við kennslu sem upp- fyllingarefni og til gamans. Náms- gagnastofnun mun sjá um dreif- ingu. Islenskuábendingar hafa í nokkur ár prýtt mjólkurfernur Mjólkursamsölunnar en vegna mikillar eftirspurnar eftir þeim, ekki síst frá skólafólki, var tekin sú ákvörðun að gefa þær út í að- gengilegu formi. „íslendingai’ eru nú í nánari snertingu við umheiminn en nokki’u sinni fyrr og samkeppni íslenskunnar við erlend tungumál fer að sama skapi harðnandi. I al- þjóðlegu samhengi er það íslensk tunga sem öðru fremur undir- strikar sjálfstæði þjóðarinnar og því ríður á að leggja rækt við þjóðtunguna. Það verður aldrei hlutverk Mjólkursamsölunnar að kenna landsmönnum íslensku, slíkt verður ávallt fyrst og fremst verkefni heimila og skóla. Mjólk- ursamsalan vonast þó til að ábendingarnar komi að góðum notum og muni nýtast jafnt til gagns sem gamans," segir í frétt frá Mjólkursamsölunni. Rubinstein Áhrifarík „andlitslyfting" án skurðaðgerðar Face Sculptor með Pro-Phosphor || Húðsnyrtivörur hafa aldrei (I kornið í stað andlitslyftingar. f En í dag nálgumst við það með Face Sculptor serurni og kremi. Pro-Phosphor örvar náttúrulegan fosfór líkamans, til að styrkja grunn húðarinnar. Samtímis strekkja mótandi efni á yfirborði húðarinnar. Árangur: Tafarlaus strekkjandi áhrif og dag frá degi verða útlínur andlitsins afmarkaðri og skarpari og dregur úr línum og hrukkum. Nú eru einnig fánaleg: Face Sculptor krem fyrir þurra húð og Eye Sculptor krem fyrir augnsvæðið. Veglegir kaupaukar meö Face Sculptor kremum og nýju litunum. Sérfræðingur frá Helena Rubinstein kynnir CINDERELLA, nýju haust- og vetrarlitina og Face Sculptor kremin. Fimmtudag, föstudag og laugardag Krmglunni, sími 568 9033. Fimmtudag og föstudag á>ara Bankastræti 8, sími 5513140. Haustlitaferð í Núpsstaðarskóg og Bæjarstaða- skóg SKÓGRÆKTARFÉLAG íslands og Ferðafélag Islands efna nú um helg- ina, 25.-27. september, til haustlita- og fræðsluferðar í Núpsstaðarskóg og Bæjarstaðaskóg. Um þessar mundir er einmitt besti tíminn til að skoða haustlitina. Með í för verða fararstjórar frá báðum félögum og gist verður í Freysnesi. Á laugardeginum er ætl- unin að ganga um Skaftafellsþjóð- garðinn yfir í Mosárdal og Bæjar- staðaskóg en á sunnudeginum verð- ur farið í Núpsstaðarskóg í fylgd Hannesar Jónssonar. Brottför í ferðina er frá BSÍ, aust- anmegin, kl. 19 á föstudagskvöldið og fást miðar á skrifstofu Ferðafé- lagsins í Mörkinni 6. Ferðafélagið efnfr til síðustu haustferðar sinnar í Þórsmörk um aðra helgi, 2.-4. október, og verður það haustlita- og fræsöfnunarferð í samvinnu við Skógrækt ríkisins og Landgræðsluna. Gagnagrunn- ur á heilbrigð- issviði RÖSKVA, samtök félagshyggju- fólks í HÍ, boðar til fundar um hið umdeilda frumvarp til laga um gagnagrunn. Fundurinn verður haldinn í hátíðarsal á 2. hæð Aðal- byggingar Háskólans, fimmtudag- inn 24. september kl. 12. I fréttatilkynningu segir að kominn sé tími til að heyra afstöðu þeirra sem ákvörðunina muni að lokum taka og að fulltrúar allra flokkanna muni taka til máls og sitja fyrir svörum. Frummælendur á fundinum verða: Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir, þingmaður jafnaðarmanna, Bryndís Hlöðversdóttir, þingmað- ur Alþýðubandalagsins, Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknar- flokksins, Kristín Halldórsdóttir, þingmaður Kvennalistans, og Sig- ríður Anna Þórðardóttir, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins. Opnað verður fyrfr fyrirspurnir að fundinum loknum. ara í Ekki f jólaköttinn! \fertu tímaiileg’a meá jólavíniá jiitt í ár. Líttu viár skoðaáu úrvaliá og fááu íagflegfa ráágjöf. Fremstir síðan 1959 PAVOURIT^ Gæðavara á góðu verði Verið velkomin ! Lau. 11:00-14:00 Vín Hússins -Armúla 23 -108 Reyhjavíl? Sími: 533 3070 - Fax: 533 3071 www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.