Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 55

Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 55 Z BRÉF TIL BLAÐSINS Feimnin var að drepa mig ... þar til ég gekk í ITC Frá Vilhjálmi Guðjónssyni: ÉG VAR einn af þessum mörgum íslendingum sem eru að drepast úr feimni. Eru svo innilega inni í sér og lokaðir að þeir þora varla að lifa lífinu lifandi og missa þar af leið- andi af ótal tæki- færum til að auðga líf sitt. Ég var meira að segja svo feiminn að ég þorði varla að segja hvað ég héti, ef fleiri en tveir heyi-ðu. Marga fundi sótti ég svo sem húsfélagsfundi, starfsmanna- fundi, foreldrafundi og fleira þess háttar sem flest okkar gera. Oft hafði ég ákveðnar skoðanir á mál- unum, en sjaldnast þorði ég að kveðja mér hljóðs og opinbera skoð- un mína. Þá sjaldan ég sagði eitt- hvað var ég svo taugaóstyrkur og stressaður að ég átti erfitt með að koma skoðunum mínum skipulega á framfæri. Frekar þagði ég og fór svo hundfúll heim af fundinum og nöldraði heima í eldhúsinu. Þessa sögu kannast sjálfsagt margir við og þekkja sjálfa sig í henni, en þetta þarf ekki að vera svona. Það er hægt að losna við feimnma að hluta til eða jafnvel al- veg. Ég hef nú ekki enn lært að losna algerlega við hana, en ég get í dag staðið upp og sagt mína skoðun skipulega og örugglega, án þess að verða alltof taugaóstyrkur og stressaður. Þetta lærði ég hjá þjálf- unarsamtökunum ITC (Inter- national Training in Communi- cation) sem útleggst á íslensku sem „Alþjóðleg þjálfun í samskiptum" eða bara ITC eins og við köllum samtökin. Ég hef verið í þessum samtökum í 10 ár og lært óteljandi hluti sem lúta að almennri sjálfstyrkingu auk ræðumennsku, fundarskapa, stjóm- unar og mannlegra samskipta. Sam- tökin starfa í deildum þar sem eru 10 til 30 félagar. Flestar deildir halda fundi tvisvar í mánuði og taka þá fyrir eitthvað ákveðið þema svo sem: ræðumennsku, pallborðsum- ræður, fundarsköp, tillöguflutning, veislustjórnun, óundirbúnai- ræður, sjálfstyrkingu og svona mætti lengi telja. Dagskráin er sniðin að þörfum félaganna, þannig að það eru þeir sjálfir sem stjórna því hvað er á dag- skrá. Ef einhver félagi óskar eftir þjálfun í einhverju ákveðnu eins og t.d. einhverju sem snýr að atvinnu hans þá er útbúin dagskrá þar sem það er tekið fyrir. Hraði þjálfunar- innar er einnig sniðinn að þörfum hvers og eins. Sumir vilja fara sér hægt í þjálfuninni og aðrir hraðar. Fyrsti fundurinn sem ég sótti var skömmu eftir að samtökin höfðu verið opnuð fyrir karlmönnum og skipt um nafn í framhaldi af breyt- ingunni. ITC var upphaflega stofn- að af konum og þjálfunin sniðin að þörfum þeirra. Nafninu var breytt úr Málfreyjum (International Toastmistress Clubs) yfir í ITC (International Training in Comm- Vilhjálmur Guðjdnsson Sanpellegrino Tískusokkabuxurnar ‘98-'99 komnar í verslanír unication). Tengdamóðir mín hafði verið í samtökunum í nokkurn tíma og talaði fjálglega um hvað þetta væru frábær samtök. Hún reyndi oft að bjóða mér á fundi, en ég af- þakkaði alltaf. Taldi að ég hefði nú ekkert að gera í einhvem kvenna- kjaftaklúbb. Það var þá. Mikið hef ég lært síðan. Svo var það eitt sinn að tengdó tók þátt í ræðukeppni að ég ákvað að fara á fundinn til að fylgjast með henni og hvetja hana í keppninni. Það var afskaplega vel tekið á móti mér eins og ávallt er gert þeg- ar áhugasamt fólk kíkir inn á fundi. Svo kom að keppninni. Þær fóru upp í pontu aliar þessar konur og fluttu hver annarri betri ræður. Ég hugsaði með mér „hvað er ég eigin- lega að gera hérna? Ég get aldrei orðið svona. Ég get aldrei farið upp í pontu og flutt ræðu eins og ekkert sé.“ Svona hugsaði ég alveg þar til seinasta ræðukonan fór upp í pontu. Hún klúðraði næstum því öllu sem hægt var að klúðra. Var greinilega mjög taugaóstyrk, röddin var óstyrk og hún skalf næstum því 7 á Richter-skalanum. Ruglaðist á blað- síðum í handritinu og átti í mesta basli með að koma ræðunni frá sér. Fór línuvillt og gekk almennt mjög illa. Þá hugsaði ég með mér: ,ja, ef til vill get ég nú gert betur en hún“. Ég sótti nokkra fundi eftir þetta sem gestur og sótti svo um inn- göngu og var þar með fyrsti karl- maðurinn á Islandi til að gerast fé- lagi og sé ekki eftir því. Mikið hef ég lært á þessum tíma og er enn að. Samtökin eru í dag blönduð karl- mönnum og konum, þó svo að konur séu enn í miklum meirihluta. Þjálfunin sem ITC býður upp á hentar öllum, konum og körlum á öllum aldri sem vilja læra eitthvað um fundarsköp, stjómun, ræðu- mennsku, mannleg samskipti og al- menna sjálfstyrkingu. Ég á ITC- samtökunum mikið að þakka, vegna þess að án þeirra væri ég ennþá einn af eldhúsnöldrurunum sem aldrei þora að kveðja sér hljóðs og koma skoðunum sínum á framfæri og hafa þar með áhrif á gang mála. Það sem þessi samtök hafa gert fyrir mig geta þau einnig gert fyrir þig. Allir fundir samtakanna eru auglýstir í dagbókum dagblaðanna og eru öllum opnir. Þér er velkomið að kíkja inn á fund án nokkurra skuldbindinga. Láttu ekki tækifær- ið fara fram hjá þér og lifðu lífinu lifandi, ekki bara í eldhúsinu, heldur alls staðar, alltaf. ITC-þjálfunin gef- ur þér tækifæri til að eflast! VILHJÁLMUR GUÐJÓNSSON, forseti Landssamtaka ITC á Islandi. iVísmdaleikföngi 1 Skolavörðustíg 1a ■ ■ ■niEEsa1-* ■ * ' þakrennur Þakrennukerfó frá okkur er samsett úr galvanhúSu&u plastvörðu stáli. Það er auðvelt og fijótlegt í uppsetningu. Þakrennukerfi sem endist og endist. Gmanzxxm9 Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík Sími 587 5699 • Fax 567 4699 ♦ ÆTTFRÆÐIVEIZLA! ÆTTFRÆÐI er ekki aðeins með elztu fræðigreinum hér á landi. Hún er ein af undirstöðum nýrra vísindarannsókna- líftækni framtíðarinnar. Það sem fæstum datt í hug að yrði í askana látið: Ættfræðiþekking genginna kynslóða hefur sannað sig að vera með ólíkindum hagnýt grein sem býður upp á ótal möguleika. Þeir, sem fást við ættfræði, þekkja þá ánægju og gleði sem iðja þessi gefur, með því að koma á sambandi við for- feður og frændur, tengja okkur sögu og sögnum landsins eins og ættirnar kvíslast um allar jarðir. Ættfræðiþjónustan hefur staðið framarlega í þessari grein með rannsóknum og fræðslunámskeiðum. 1100 manns hafa sótt námskeið á 13 árum. Nú erum við flutt úr Austurstr. 10A á Túngötu 14 (Hallveigarstöðum). Ættarrann- sóknir fara hér fram og samantekt ættartölu og niðjatals í nútímalegu formi. Þá er hér bóksala með úrvali ættfræði- og æviskrárrita. Ennfremur fást gjafabréf til námskeiða og bókakaupa. Ættfræðinámskeiðin sívinsælu hefjast bráðlega og standa í sjö vikur (21 klst.). Þar læra menn að rekja og taka saman ættir á skipulegan hátt, fá þjálfun í leitaraðferðum og kjöraðstæður til rannsókna. Sveigjanlegur kennslutími og greiðslukjör. Uppl. og skráning þátttakenda í síma 552 7100 alla virka daga. Bókaveizla í ættfræði-, æviskrár- og átthagaritum! í tilefni opnunar á nýjum stað verður sérstakt tilboðsverð til 2. okt. Meðal framboðinna bóka: Reykjaætt af Skeiðum, Galtarætt, Ölfusingar, Húsatóftaætt, Keflvíkingar, Knudsens- ætt, Bollagarðaætt, Niðjatal sr. Hallgr. Péturssonar, Garðaselsætt, Húsafellsætt, Þorsteinsætt úr Staðarsveit, Briemsætt, Önfirðingar, Hallbjarnarætt, Vigurætt, Pálsætt á Ströndum, Tröllatunguætt, Ófeigsfjarðarætt, Skagfirzkar æviskrár (allar), Saga Sauðárkróks, Djúpdæla saga o.fl. skagf. rit, Frá Hvanndölum til Úlfsdala (Siglf.), Hreiðars- staðakotsætt, Thorarensensætt, Reykjahlíðarætt, Gunnhildargerðisætt, Ættir Síðupresta, Nafnalykill að Manntali 1801, Virkið í norðri, ýmis stéttatöl og fjöldi ótalinna bóka m.a. smærri rita eldri sem yngri, mörg í litlu upplagi. Látið ekki tækifæri úr greipum renna, meðan gefst! Ættfræðiþjónustan, Túngötu 14, sími 552 7100. ISLENSK-BANDARISKIR VÍSINDADAGAR Kynningarráðstefna Grand Hótel Reykjavík udaginn 28. September 1998 kl. 09.00-16.00 US-lcelandic Science Days, Grand Hotel, Reykjavik, 28th September, 1998 Rannsóknarráð fslands og sendiráð Bandaríkjanna á íslandi boða til kynningar- ráðstefnu um vísindasamstarf milli íslands og Bandaríkjanna. Á ráðstefnunni, sem markar upphaf formlegrar samvinnu RANNÍS og bandarískra systurstofnanna á sviði vísinda, munu fulltrúar frá nokkrum af fremstu stjómarstofnunum Bandaríkjanna á sviði vísinda kynna starfsemi sína og möguleika til að styðja við íslenskt-bandarískt vísindasamstarf. Þá mun bandarískt og íslenskt vísindafólk segja frá hugmyndum sínum um sam- starfsmöguleika á nokkrum mikilvægum sviðum. Aðgangur er öllum opinn. RAIUNÍS cr Z3 o <5 Kennt er þrisvar í viku í fjórar vikur. Almennt um tölvur, Windows, Word, Excel, og notkunarmöguleikar Internetsins. Samtals 48 klukkustundir. Næstu nómskeið byrja 28. og 29. september. Magni Sigurhansson Framkv.stjóri Alnabæ „Moð nóminu fékk ég mjög góða yflrsýn yflr mögulelka PC tölvunnar og góða þjólfun í notkun þess Hugbúnaðar sem ég nota hvað mest í starfi mínu.þ.e. ritvlnnslu, töflureikni og Internetinu. Öll aöstaða, taakjabúnaður og frammistaða kennara hjö NTV var fyrsta flokks og námið hnitmiðað og árangursríkt." Vönduð námsgögn og bækur fylgja öllum námskeiðum BjoðuTri upp 3 Visa & Euro raðgrciðslur Nýi tölvu- & viðskipiaskólinn Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981 TXh•> nnAnfínorv okAli47lnh» to _ UoimooiAo* tintAii nbr le

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.