Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 61'
FÓLK í FRÉTTUM
MYNPBÖNP
Móðir og
barnfóstra
berjast
Skelfing
(Sound of Fear) __
Spennumynd
Leikstjóri og handritshöfundur: Wal-
ker Klenhard. Aðalhlutverk: Josie
Bissett og Jason Beghe. (88 mín.)
Bandarísk. ClC-myndbönd, septem-
ber 1998. Bönnuð innan 16 ára.
Hér er á ferðinni dæmigerð sjón-
varpsmynd sem er fyrirsjáanleg og
fremur illa leikin. Það sem er for-
vitnilegt við
myndina er hins
vegar sú aftur-
haldssama hug-
myndafræði,
sem svo augljós-
lega má lesa úr
henni. Þar segir
frá Carol, eitil-
harðri frama-
konu sem varið hefur öllum tíma
sínum í að byggja upp fyrirtæki
þeirra hjóna. Eiginmaðurinn hefur
af þeim sökum tekið saman við
barnfóstruna Anne og barnað hana.
Sonur hjónanna hefur sömuleiðis
tekið ástfóstri við bamfóstruna sem
sinnir honum betur en móðirin.
Þegar eiginmaðurinn vill skilnað
ræður Carol menn til að myrða
Anne þó svo að það stofni lífi sonar
þeirra í hættu. Hér má sjá hvernig
framakonan (sem tekur starfsferil-
inn fram yfir uppeldi bama) er gerð
að þorpara sem á aðeins slæmt skil-
ið. Hetja myndarinnar er hins vegar
barngóða fóstran sem hyggst eign-
ast fjölda bama samhliða lækna-
námi því sem hún er að leggja í.
Framakonan hlýtur að lokum mak-
leg málagjöld og fóstran kemur í
hennar stað. Sem sagt: Slæm mynd
með skemmtilega vonda hugmynda-
fræði.
Heiða Jóhannsdóttir
Frá Sarajevo
Velkomin til Sarajevo
(Welcome to Sarajevo)_____
D r a m a
★★★
Leikstjóri: Michael Winterbottom.
Handritshöfundur: Frank Cottrell
Boyce. Kvikmyndataka: Daf Hobson.
Aðalhlutverk: Woody Harrelson,
Stephen Dillane og Emira Nusevic.
(97 nu'n.) Bandarísk / bresk. Sam
myndbönd, september 1998. Bönnuð
innan 16 ára.
í þessari mynd er áhorfendum
boðið (líkt og írónískur titillinn gef-
ur til kynna) að kynnast ástandinu í
Sarajevo undir
umsátri Serba.
Fylgt er slóð
nokkurra frétta-
manna sem
dvelja í borginni
og reyna að
vekja athygli
heimsins á
ástandi mála.
Breskur fréttamaður reynir jafn-
framt að fá ráðamenn erlendra ríkja
til að bjarga munaðarlausum börn-
um af átakasvæðinu en fær lítil við-
brögð.
Leitast er við að draga upp
raunsanna mynd af Bosníustríðinu
og er athyglinni einkum beint að af-
drifum almennra borgara í umsátr-
inu. Byggt er að hluta til á sönnum
atburðum og skeytt inn raunveru-
legum og tilbúnum fréttaskotum.
Atburðarásin er mjög blátt áfram,
köld og hörð og er jafnframt haldið
ákveðinni fjarlægð við persónur
myndarinnar. Þannig er athyglinni
ekki síður beint að stríðsástandinu í
sjálfu sér, en örlögum fárra per-
sóna. Útkoman er átakanleg.
Heiða Jóhannsdóttir
Cameron sendir
DiCaprio tóninn
JAMES Cameron hefur ekki fyrirgefið Leonardo
DiCaprio að láta ekki sjá sig á sfðustu afhendingu
óskarsverðlaunanna þegar mynd þeirra félaga, Tit-
anic, fékk fullfermi eða 11 verðlaun.
„Mér fannst hann sýna okkur lítilsvirðingu, ekki
myndinni sem slíkri, heldur fólkinu sem lagði blóð,
svita og tár í gerð myndarinnar," segir Cameron í
viðtali við Rolling Stone.
Ræða Camerons á afhendingunni þegar hann kall-
aði sjálfan sig „konung heimsins" mun Iíklega seint
gleymast. Hann segist hafa varað DiCaprio við því
að hann myndi iðrast þess að sleppa afhendingunni.
Hann myndi líta út fyrir að vera smásálarlegur.
DiCaprio var ekki tilnefndur til óskarsverðlauna
fyrir bestan leik í aðalhlutverki og gaf þá skýringu
opinberlega að hann hefði ekki viljað stela sviðsljós-
inu frá Cameron, Kate Winslet og Gloriu Stuart.
„Hann mætti ekki og kom út sem ofdekraður
ræfill... Skilaboðin sem ég fékk á símsvarann
hjá mér daginn áður voru á þessa leið: „Á bara
ekki við mig, félagi“,“ segir Cameron enn
fremur. „Það á greinilega betur við hann að
þiggja 800 milljónir króna fyrir að leika í djús-
auglýsingu, sem aðeins er sýnd í Japan, en að
vera viðstaddur afhendingu Oskarsverðlaun-
anna.“
ekki bara bolti!
Liverpool er lifandi og skemmtileg borg og þar er sérlega
hagstætt að versla. Auk leiksins geta farþegar m.a. farið í
siglingu á ánni Mersey og skoðunarferðir á Bítlaslóðir og Anfield
Road. Þessi ferð gæti því t.d. hentað vel sem árshátíðarferð.
Liverpool
Chelsea
1.-4. október
Hópferð við allra hæfi.
23.900kr.
á mann í tvíbýti fyrir fyrstu 200 farþegana ATIAS
sem bóka ferð og greiða með ATLAS-ávísun. L
Innifalið: Flug, gisting með morgunverðir, ferðir
til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar.
39.900 kr.
Everton - Liverpool 7.000 kr.
Man. United - Wimbledon 13.000 kr.
17.október íjoow
Samvinnuferðir-Landsýn, Eurocard og
sjónvarpsstöðin Sýn bjóða einstakt tilboð á ferð
til Liverpool 16.-18. október næstkomandi.
Liverpool hefur ekki unnið Everton í þrjú ár og
17. október gefst tækifæri til að upplifa magnaða
stemningu á „derby-leik" þar sem þessir nágrannar
mætast á Goodison Park.