Morgunblaðið - 13.10.1998, Page 4

Morgunblaðið - 13.10.1998, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Morgunblaðið/Jón Stefánsson JÓHANN Sigurjónsson bæjarstjóri ávarpaði gesti við vígslu nýja íþróttahússins á Varmá í Mosfellsbæ. NÝTT íþróttahús á Varmá í Mos- fellsbæ var vígt um helgina og er það tekið í notkun nær þremur mánuðum fyrr en ráðgert var. Nýja byggingin getur rúmað tvo handboltavelli, sex blakvelli, Qórtán badmintonvelli og tvo tennisvelli ásamt leikfímigryfju og minni 85 fermetra sal sem tengist gryfjunni. Að sögn Sigurðar Guðmunds- sonar íþróttafulltrúa, verður með nýju húsi hægt að fjölga æfingum hjá börnum og ung- lingum með tilkomu hússins auk þess sem aðstaðan mun flýta fyrir einsetningu grunn- skólans þegar hægt er að kenna leikfimi í þremur sölum sam- tímis. „Svo fá nýjar íþróttgrein- ar aðstöðu í húsinu," sagði hann. „Það er meiningin að setja upp aðstöðu fyrir golfara og klifurvegg fyrir skáta og björgunarsveitina auk þess sem Nýtt íþróttahús vígt í Mos- fellsbæ hér er sérstakur salur í nýbygg- ingunni fyrir karate.“ Tveir handboltavellir hlið við hlið Ákvörðun um byggingu húss- ins var tekin árið 1997 og var fyrsta skóflustungan tekin í ágúst sama ár. Húsið stendur sunnan við núverandi fþróttahús og eru þau tengd með tengigöng- um. í nýja húsinu er tvöfaldur salur 49x50 metrar að stærð en það eru rúmlega tveir handbolta- vellir hlið við hlið og verður þeim skipt með hljóðeinangruðu tjaldi en einnig verður hægt að skipta húsinu í fjóra sali með tjöldum. Nýja húsið er rúmlega helmingi stærra en eldra húsið. í húsið vantar færanlega áhorfendapalla sem settir verða upp síðar. Verktaki hússins er bygginga- fyrirtækið Byrgi í Kópavogi en arkitektar eru Finnur Björgvins- son og Hilmar Þór Björnsson. VSÓ Ráðgjöf sá um burðarþol og lagnir, Rafvirki ehf., um raflagn- ir, Múrgæði ehf., um múrverk, Bunustokkur um pípulögn, Sfjörnublikk um loftræstingu, Arnar Óskarsson og Finka ehf., um málun, Á. Óskarsson ehf., um gólf og búnað, Fagtún um þakeingar og ET-verktakar um jarðvinnu. Umsjón og eftirlit var í höndum tæknideildar Mosfells- bæjar. Biðtími eftir meðferð fyrir unga vímuefnaneytendur hefur margfaldast eftir hækkun sjálfræðisaldurs Búið að kollvarpa meðferðarkerfinu Faraldur í neyslu harðra fíkniefna gengur yfir meðal unglinga. A sama tíma hefur biðtími eftir meðferð fyrir unglinga lengst úr 53 dögum á árinu 19971240 daga, eða 8 mánuði, á árinu sem er að líða. BRAGI Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir hækkun sjálfræðisaldurs í 18 ár um síðast- liðin áramót kollvarpa tilvist núver- andi meðferðarkerfis ríkisins fyrir ungmenni. Við hækkun sjálfræðis- aldursins bætast tveir árgangar við skjólstæðingahópinn og biðtími eft- ir meðferð fyrir unglinga hefur margfaldast; lengst úr 53 dögum á árinu 1997 í 240 daga, eða 8 mánuði, á árinu sem er að líða. Bragi segir að á sama tíma og þetta gerist gangi yfir faraldur í neyslu amfetamíns og hass í yngsta neysluhópnum. „Við erum að sjá á biðlista hjá okkur unglinga niður í 14 ára aldur, sem eru í reglubundinni neyslu am- fetamíns," segir Bragi. Bragi segir að það hafi verið fyr- irséð þegar tekin var ákvörðun um að hækka sjálfræðisaldurinn að óbreytt kerfi mundi ekki anna eftir- spurn eftir meðferð. Þá hefði legið fyrir það álit Bamavemdarstofu að hækkunin kallaði á tvöfóldun með- ferðarkerfisins en 14 og 15 ára ung- lingar fylltu öll þau 35-40 meðferð- arrými sem kerfið hafði yfir að ráða. Sérhæfða meðferð fyrir unglinga 16-18 ára skorti og fram til síðustu áramóta vom ekki önnur úrræði fyrir þann hóp en áfengismeðferð með fullorðnum á vegum Landspít- ala eða SÁÁ fyrir þá unglinga sem leituðu sjálfir meðferðar. Meðferð á vegum barnavemdarstofu er hins vegar meðferð sem foreldrar eða barnavemdamefndir sækja um fyr- ir ósjálfráða ungling. Greining og eftirmeðferð Meðferðarkerfí Bamaverndar- stofu skiptist í greiningarmeðferð á greiningarstöðinni Stuðlum og eft- irmeðferð á meðferðarheimilum víða um landið. Greiningarmeðferðin tekur 3-4 mánuði og er þá unnið að greiningu á vanda hvers einstaklings en Bragi segir að auk þess sem þeir séu langt leiddir í vímuefnaneyslu búi oft undír vandamál á borð við ofvirkni, athyglisbrest og misþroska sem þurfi að greina áður en hægt er að veita markvissa meðferð. Um helmingur unglinganna fer heim til sín að lokinni greiningar- meðferð en um helmingur fer til framhaldsmeðferðar á meðferðar- heimilin Torfastaði í Biskupstung- um, Árbót í Aðaldal, Varpholt í Eyjafirði, Bakkaflöt í Skagafirði eða hið nýja heimili að Hvítárbakka í Borgarfirði en hvert þeirra hefur rými fyrir um það bil 6 unglinga. Að auki er heimili að Geldingalæk í Rangárvallasýslu fyrir börn undir 12 ára aldri. Bragi segir að þrátt fyrir að með- ferðarkerfíð sé í raun sprungið reyni menn þar að sporna við fæti og nýta möguleika á að taka eftir fóngum þá einstaklinga sem verst eru staddir í neyðarvistun. Um helmingur rýma á Stuðlum er vegna neyðarvistunar, þar sem hægt er að vista unglinga gegn eigin vilja en þó ekki lengur en í 14 daga. Arðbær fjárfesting Bragi segir að tillögur Barna- vemdarstofu gangi út á að hætta neyðarvistun á Stuðlum og flytja hana í sérstakt húsnæði. í staðinn verði hægt að auka greiningarmeð- ferð á Stuðlum um helming. Auk þess þurfi að fjölga meðferðarheim- ilum um a.m.k. 2-3 næstu ár. Hann segist áætla að uppbygging kerfis- ins í viðunandi horf geti kallað á uppundir 200 milljónir króna í auk- inn rekstrarkostnað. „Þegar upp er staðið held ég að þetta væri arðbær fjárfesting," seg- ir Bragi. „Það er óhemjukostnaður sem fellur á samfélagið vegna þess- ara unglinga í dag í formi löggæslu, kostnaðar vegna dómstóla, sjúkra- húsvistana, slysa, skemmda og tjóns sem borgaramir verða fyrir. Þegar menn líta á dæmið í heild tel ég að þetta sé arðbær fjárfesting," segir Bragi Guðbrandsson um úr- bætur í meðferðar- og vistunarmál- um þeirra unglinga sem hafa orðið vímuefnaneyslu og afbrotum að bráð. Andlát ASTA B. ÞORSTEINSDÓTTIR ALÞIN GISM AÐUR ÁSTA B. Þorsteins- dóttir, alþingismaður og varaformaður Al- þýðuflokksins, lést í gær eftir baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún var 52 ára að aldri. Ásta fæddist 1. des- ember 1945 í Reykja- vík og vom foreldrar hennar Ásdís Eyjólfs- dóttir skrifstofumaður og Þorsteinn Þor- steinsson, sjómaður og fisksali. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vest- urbæjar 1962 og prófi frá Norfolk High School í Norfolk í Nebraska, Bandaríkjunum, 1963. Hún útskrif- aðist sem hjúkmnarfræðingur frá Hjúkmnarskóla íslands 1968 og stundaði framhaldsnám í hjúkmn- arstjómun við Nýja hjúkmnarskól- ann 1987 til 1988. Þá nam hún skurðhjúkmn á Islandi og í Dan- mörku. Ásta var skurðhjúkmnarfræð- ingur á Borgarspítalanum 1968 til 1969. Hún starfaði sem hjúkmnar- fræðingur í Danmörku frá 1971-80, lengst af sem skurð- hjúkrunarfræðingur við Árhus Kommune- hospital. Hún var hjúkmnarfræðingur við Landspítalann frá 1980, þar af við skurð- deild kvennadeildar 1982-88 og hjúkranar- framkvæmdastjóri frá 1988-97. Ásta var í stjóm Landssamtakanna Þroskahjálpar frá 1985-95 og formaður 1987-95. Um árabil sat hún í stjórnum nor- rænna hagsmunasamtaka fatlaðra, meðal annars norrænna samtaka foreldra fatlaðra og var hún m.a. varaformaður NFPU (Norrænu samtakanna um málefni þroska- heftra). Hún var varaformaður Al- þýðuflokksins frá 1996 og 1. vara- þingmaður flokksins í Reykjavikur- kjördæmi frá 1995 til janúar 1998, en þá tók hún fast sæti á Alþingi í stað Jóns Baldvins Hannibalssonai’. Ásta lætur eftir sig eiginmann, Ástráð B. Hreiðarsson lækni, og þrjú börn. JÓHANNES JÓHANNESSON LISTMÁLARI JÓHANNES Jóhann- esson listmálari lést á Landspítalanum í gær, 77 ára að aldri. Jóhannes fæddist í Reykjavík 27. maí 1921 og vom foreldrar hans hjónin Jóhannes Bárð- arson, sjómaður í Reykjavík, og Hall- gríma Margrét Jóns- dóttir. Hann stundaði iðnskólanám í Reykja- vík og lauk prófi í gull- og silfursmíði árið 1945. Eftir það stund- aði hann myndlistar- nám við Bames Foundation í Bandaríkjunum 1945-46 og á Ítalíu og í Frakklandi 1949 og 1951. Jóhannes var listmálari í Reykjavík en hann starfaði auk þess meira og minna við gull- og silfursmíði 1953-68. Hélt hann sýningar á eigin vegum auk þess sem hann tók þátt í fjölda samsýninga inn- an lands og utan. Hann var einn stofnenda Septembersýningar- innar 1947, formaður Félags íslenskra myndlistarmanna 1951 og 1952 og fulltrúi fé- lagsins í Bandalagi ís- lenskra listamanna 1959 og 1960. Hann var fulltrúi í Listasafni íslands um langt skeið frá 1971 og í safnráði safnsins 1965-73. Eiginkona Jóhannesar var Áf- heiður Kjartansdóttir þýðandi, en hún lést í fyrra. Þau áttu fjögur börn saman. RAGNAR BJÖRNSSON ORGANISTI RAGNAR Björnsson skólastjóri og organ- leikari er látinn, 72 ára að aldri. Ragnar fæddist 27. mars 1926 á Torfustöð- um í Torfustaðahreppi, Vestur-Húnavatns- sýslu, sonur Sigrúnar Jónsdóttur húsmóður, hjúkrunarkonu og klæðskera og Bjöms G. Bjömssonar, tré- smiðs og organleikara. Hann lauk einleikara- prófi á orgel frá Tón- listarskólanum í Reykjavík árið 1947 og einleikara- prófi á píanó frá sama skóla 1950. Hann lauk prófi í hljómsveitar- stjórn frá Tónlistarháskólanum í Vínarborg árið 1954. Ragnar var skólastjóri Tónlistarskóla Keflavík- ur frá 1956-1976 og dómorganleik- ari í Reykjavík frá 1968-1978. Hann stofnaði Nýja tónlistarskólann í Reykjavík árið 1978 og stýrði honum til dauðadags. Á starfs- ferli sínum hélt Ragn- ar fjölda einleikstón- leika á orgel innan- lands sem utan og liggja eftir hann tón- smíðar fyrir orgel og karlakór auk annarra verka. Eftirlifandi eigin- kona Ragnars er Sig- rún Björnsdóttir dagskrárgerðar- kona og lætur hann eftir sig fimm uppkomnar dætur. Ragnar Björnsson var um árabil tónlistargagnrýnandi við Morgun- blaðið og þakkar blaðið það sam- starf að leiðarlokum. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.