Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 20. útdráttur
4. flokki 1994 - 13. útdráttur
2. flokki 1995 -11. útdráttur
1. flokki 1998 - 2. útdráttur
2. flokki 1998 - 2. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. desember 1998.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á
Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa-
fyrirtækjum.
[& HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 6900
,» vkk“''..............
Staðfesta M P««M"ir
FRA TOPPI TIL TAAR I
Námskeið sem hefiir veitt ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum,
sem beijast við aukakílóin.
Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar
í viku, níu vikur í senn. Góður matarkúr
sem fylgt er eftir daglega með andlegum
stuðningi, einkaviðtölum og
fyrirlestrum um mataræði og
hollar lífsvenjur. Heikufúndir þar sem
farið er yfir förðun, klæðnað, hvernig
á að bera líkamann og efla sjálfitraustið.
FRA TOPPI TIL TAAR n.
- framhald
Námskeið fyrir þær sem vilja
halda áfram í aðhaldi.
Fqálsir tímar, 13 vikur.
Fundir lx í viku í 9 vikur.
Vel varðveitt
leyndarmál!
MIG langar til að ljóstra
upp best varðveitta leynd-
armáli hvað varðar ís-
lensku veitingastaðaflór-
una - en það er lítill veit-
ingastaður að nafni Ban
Thai sem er staðsettur á
Laugaveginum rétt hjá
Hlemmi. Eg hef farið
nokkuð víða og kynnst
austurlensri matargerðar-
list og leyfi mér því að
fullyrða að á Ban Thai er
boðið upp á einhverja
bestu matargerð sem
finna má í Reykjavík í
dag. Ósvikinn tailenskan
mat eins og hann getur
orðið hvað bestur. Þetta
er skrifað vegna þess að
því miður er eins og allt of
sjaldan vakni athygli á því
sem vel er gert, en hér er
á ferðinni góður og ódýr
kostur vilji menn bregða
sér út að borða, og reyna
eitthvað einstaklega gott.
Eg mæli sérstakiega með
kjúklingi í kókosmjólk.
Njótið vel.
Hrafn Gunnlaugsson,
kvikmyndaleikstjóri.
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sammála
ÁSTA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
taka undir það sem komið
hefur fram í Velvakanda
um ráðningu Jóns Gunn-
ars Grjetarssonar. Var
hún að undra sig á því líka
af hverju hann var ekki
ráðinn því hann sé ein-
staklega góður fréttamað-
ur og skýr í tali. Finnst
henni Logi Bergmann
ekki tala nógu skýrt.
Hvernig líður
málinu?
BJARNI hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hann hafa heyrt að það
væri lögfræðingur með
mál fyrir annað hvort
dómstólum eða umboðs-
manni alþingis vegna
tekjuskerðingar öryrkja
út af tekjum maka. Hefur
hann áhuga á að vita
hvemig því máli líði.
Tapað/fundið
Taubudda týndist
TAUBUDDA með tölu-
verðri fjárhæð týndist á
leiðinni frá Síðumúla í
Nettó í Mjódd í byrjun
september. Skilvís finn-
andi er beðinn um að hafa
samband í síma 567 3159
eftir kl. 17.
Hann týndist fyrir
nokkrum vikum síðan frá
Efstasundi 85. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 555 2699
eða 581 3841.
Gleraugu týndust
GLERAUGU týndust í
Bústaðakirkju sunnudag-
inn 4. október. Upplýsing-
ar í síma 566 6631.
Dýrahald
Guðbjörn
er týndur
GUÐBJÖRN er hvítur og
gulrauður fress, eyma-
merktur en ólarlaus.
Gabríel er týndur
GABRÍEL er 2ja ára al-
hvítur, bláeygður högni.
Hann er eymamerktur og
með silfraða endurskinsól
með bláu nafnspjaldi á.
Hann hefur ekki sést á
heimili sínu, Norðurbraut
í Hafnarfirði, síðan 4.
október. Þeir sem hafa
orðið hans varir em beðn-
ir að hafa samband í síma
565 2728.
Dúri týndur á
Húsavík
HVÍTUR köttur, 4ra ára
geltur högni, týndist frá
Skólagarði 6, Húsavík 23.
september sl. Kisi er með
bláa hálsól, bjöllu og rautt
merki sem á stendur: Dúri,
Skólag. 6, 464 2045. Bjami.
Dúri er heymarlaus. Þeir
sem geta veitt upplýsingar
um Dúra vinsamlega hafið
samband í síma 464 2045
eða 464 2046.
SKAK
Ilmsjón Margeir
l’étiirsson
Staðan kom upp á fyrsta
borði í viðureign Þjóðverja
og Rússa í næstsíðustu um-
ferð á Ólympíuskákmótinu
í Elista í Kal-
exd2 28. cxb8D+ - Bxb8
29. Rdl - Ba7+ 30. Khl -
Ba6 og Júsupov gafst upp.
Rússar sigmðu Þjóð-
verja 3-1, en það dugði ekki
til að ná efsta sætinu af
Bandaríkjamönnum sem
unnu Rúmena 3-1 og höfðu
hálfs vinnings forskot á
Rússana fyrir síðustu um-
ferð.
mykíu sem nú
er að ljúka.
Artúr Júsu-
pov (2.640),
Þýskalandi,
hafði hvítt, en
Peter Svidler
(2.710), Rúss-
landi, var með
svart og átti
leik. Hvítur
lék síðast 25.
B5-b6 og hót-
aði svörtu
drottningunni.
25. - fxe3 26.
bxc7 - Hxfl+
27. Hxfl - SVARTUR leikur og vinnur
HOGNI HREKKVISI
: MmC-OG: : fy
•Suona erþai íhv&6 sinn semham v-erður var.
Víkverji skrifar...
RÁTT fyrir mikla samkeppni
er augljóst, að þjónusta mat-
vöruverzlana á höfuðborgarsvæð-
inu hefur að hluta til versnað.
Þannig uppgötvaði Víkverji á
sunnudag, að verzlun Nýkaupa í
Kringlunni er nú lokuð á sunnu-
dögum en hefur verið opin þar í
allmörg ár. Fyrirtækið hefur ekki
haft hátt um þessa breytingu. Það
er hins vegar augljóst, að þetta
hefur í för með sér versnandi
þjónustu fyrir viðskiptavini þess-
arar verzlunar um leið og sú
hætta vofir yfír verzluninni að
fastir viðskiptamenn hennar leiti
annað og þá ekki bara á sunnu-
dögum.
Næst lá leið Víkverja í verzlun
Hagkaupa við Smáralind. Það er
stór og mikil verzlun eins og allir
vita og mikið vöruframboð. Sú
matvælategund, sem þessi við-
skiptavinur Hagkaupa-Nýkaupa
þurfti á að halda, var hins vegar
ekki til í þeirri stóru verzlun aug-
ljóslega vegna þess, að svo virðist
sem verzlanirnar bæti ekki við
vörum í hillur sínar um helgar.
Það er líklegasta skýringin á því
að hvað eftir annað eru algengar
matvörur ekki til í matrvöru-
verzlunum síðari hluta sunnu-
dags.
Þessarar vöruþurrðar gætti hins
vegar ekki í Nóatúni í Austurveri,
þar sem augljóslega var betur
hugsað um viðskiptavinina.
xxx
EIN skýringin á því er kannski
sú, sem viðskiptavinir Nóatúns
verða varir við aftur og aftur en
hún er, að stofnandi þessarar
verzlunarkeðju, Jón Júlíusson,
kaupmaður, sést hvað eftir annað
við margvísleg störf í verzlunum
sínum hvort sem er um kvöld eða
helgar. Stundum er hann að safna
saman innkaupakörfum, í öðrum
tilvikum að fylgjast með vörufram-
boði eða tala við viðskiptavini. Það
liggur í augum uppi, að þegar aðal-
eigandi verzlunarkeðjunnar fylgist
svo vel með í rekstri sínum skilar
það sér í bættri þjónustu við við-
skiptavini.
Ánnars minnist Víkverji þess, að
hafa séð Jón Ásbergsson, sem fyrir
nokkrum árum var forstjóri Hag-
kaups, í svipuðu hlutverki. Hann
mátti hvað eftir annað sjá í verzlun
Hagkaups í Kringlunni fylgjast
með viðskiptaháttum og annarri
starfsemi í verzluninni.
Þótt tölvur séu góðar hefur
sennilega ekki enn verið fundin
upp betri aðferð til þess að fylgjast
með því, sem gerist í stórum fyrir-
tækjum.
xxx
OLÍKLEGT má telja, að dóm-
stólarnir hafi sagt sitt síðasta
orð um áfengisauglýsingar með
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
fyrir helgina i máli Ölgerðarinnar.
Hins vegar er augljóst, að eftir að
sterkur bjór kom til sögunnar, sem
ber sama vöruheiti og venjulegur
pilsner, er nánast ómögulegt að
koma í veg íyrir þá orðaleiki í aug-
lýsingum, sem ölgerðarfyrirtækin
hafa stundað.
Þessi skrípaleikur er kominn í
sama farveg og þegar ekki mátti
auglýsa dansleiki fyrir nokkrum
áratugum og samkomuhús höfðu
uppi alls konar orðaleiki í auglýs-
ingum.