Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Dansað í frum-
HEIÐAR Guðlaugsson, Julia
Guðmundsdóttir og
Ingvar Samúels
son.
Frum-
skógar-
maðurinn
Gummi
Gonzales var
plötusnúður.
FRUMSKÓGARLÖGMÁLIÐ var
við lýði í Klúbbnum á svokölluðu
„Jungle Fever“-kvöldi á laugar-
dagskvöld. Tarzan og Jane voru
á meðal gesta og frumskógar-
maðurinn Gummi Gonzales var
plötusnúður. Starfsfólk staðar-
ins var einnig klætt eins og
það væri nýkomið úr dimm-
ustu myrkviðum frumskógar-
ins. „Þessi þemakvöld hafa
verið afar vinsæl og stendur
til að halda þeim áfram í vet-
ur,“ segir Valgeir Magnús-
son, umsjónarmaður frum-
skógarkvöldsins.
HLÍN var í gervi
Jane og leitar hér
Tarzans.
ÞÓRA Magnúsdóttir og Svava Pétursdóttir.
Góð heilsa
í þínum höndum
alla ævi
Leitaðu lífsgæða í hreinum
ómenguðum náttúruvörum
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunnl, Smáratorgi
og Skipagötu, Akureyri
Stutt
Phoebe eignast
þríbura
LEIKKONAN Lisa Kudrow
sem fer með hlutverk Phoebe
sést hér í hundraðasta þættin-
um af Vinum sem sjónvarpað
var á NBC-sjónvarpsstöðinni
8. október. Phoebe fæðir þrí-
bura í þáttunum sem hún hefur
gengið með fyrir bróður sinn
og unnustu hans. Hér sést hún
í spítalarúminu með ungabörn-
in.
Reeve í
Bakglugga
Hitchcocks
ENDURGERÐIR á spennu-
myndum Alfreds Hitchcocks
eru nýjasta gæluverkefni
framleiðenda
í Hollywood.
Leikstjórinn
Gus Van Sant
vinnur nú að
endurgerð
Geðsjúklings-
ins eða
„Psycho“ og
önnur sígild
mynd, Bakglugginn, eða „Rear
Window“ er einnig í bígerð.
Christopher Reeve verður í að-
alhlutverki en hann hefur ekki
leikið í kvikmynd síðan hann
lamaðist frá hálsi og niður eftir
að hafa dottið af hestbaki.
í upphaflegu myndinni var
James Stewart í hlutverki Ijós-
myndara sem er í hjólastól
vegna fótbrots. Hann verður
vitni að morði þegar hann
fylgist með nágrönnum sínum í
gegnum kíki í leiðindum sínum.
Reeve þarf öndunargrímu til
að anda, nýja rödd og stoðtæki
sem gera honum kleift að
kveikja ljós og notast við síma,
gluggatjöld og myndavélar.
Engu að síður segir talsmað-
ur hans: „Það þarf að glíma við
mörg vandamál við gerð mynd-
arinnar og aðeins nokkur
þeirra tengjast Chris.“ Tökur á
myndinni fara fram í nágrenni
við heimili Reeves.
Stjörnustríð
besta verk vís-
indaskáldsagna?
STJÖRNUSTRÍÐ er í efsta
sæti á lista Entertainment
Weekly yfir 100 bestu vísinda-
skáldsögu-
verk sem
gerð hafa
verið.
Star Trek
er í öðru sæti
og síðan
koma í ljósa-
skiptunum,
Franken-
stein, „2001: A Space Odyss-
ey“, Metropolis, „War of the
Worlds" frá árinu 1938, „In-
vasion of the Body Snatchers"
frá árunum 1956 og 1978,
fyrstu tvær „Alien“-myndirnar
og fyrsta teiknimyndasagan
um Superman frá árinu 1938.
í tímaritinu segir að við upp-
setningu listans hafi verið farið
eftir gæðum hvers verks, áhrif-
um þess á poppmenninguna og
hugarflugi.