Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ N or ðurlj ós í dagsbirtu Húsfyllir var á minningartónleikum um Jó- hann Konráðsson á Akureyri á laugardag þar sem Kristján, sonur hans, fór meðal annars á kostum. Skapti Hallgrímsson lifði sig inn í stemmninguna og fannst hjart- næmt þegar Konnarinn leiddi aldraða móð- ur sína, Fanneyju Qddgeirsdóttur, á svið þar sem hún var hyllt í lok tónleikanna. Morgunblaðið/Hörður Geirsson FANNEY Oddgeirsdóttir, móðir Kristjáns, gekk á svið í fylgd sonar síns í lok tónleikanna og ríflega 2.000 manns hylltu hana vel og lengi. Morgunblaðið/Hörður Geirsson SIGRIJN Iljálmtýsdóttir flytur aríuna Mercé dilette amiche úr óperunni I Vespri Siciliani eftir Verdi, ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og félögum úr Sinfóm'uhljómsveit íslands undir lok tónleikanna. LEIÐIN er ekki löng frá æskuheimili Kristjáns Jó- hannssonar á Suður- Brekkunni á Akureyri norður að þeim stað þar sem Iþróttahöllin stendur nú. Hann hefur hins vegar farið langan veg og tekið mörg sporin, sum hver erfið, frá því hann yfirgaf æskustöðvamar til þess að láta draum sinn rætast. II grande tenore steig á svið Hallarinnar á laugardag á tónleikum sem haldnir voru tii minningar um föður hans og fór mikinn. Jói Konn var dáður söngvari og Konnaramir raunar flestir miklir söngmenn, en Kristján er sá sem flýgur lang hæst. Hann er þessi fágaði heimsmaður, sem syng- ur í stærstu og virtustu óperahús- um heimsins, en um leið „ekta Konnari“ einsog stundum er haft á orði norður undir heimskautsbaug; hæfilega dannaður piltur en alltaf með kjaftinn fyrir neðan nefið og lætur vel í sér heyra hvar sem hann kemur. Mér er til efs að margir stórten- órar leggi sér siginn fisk til munns, en Kristján heldur tryggð við gamlar hefðir. Sigríður Dóra Sverrisdóttir, menningarfrömuður á Vopnafirði, sem alin er upp á Akureyri, tjáði blaðamanni nefni- lega fyrir tónleikana að hún hefði fært Kristjáni siginn fisk að gjöf fyrr um daginn og hann var alsæll með það. Söngvarinn kvartaði und- an því í samtali í Morgunblaðinu fyrir helgi að „Mæja systir“ - Anna María, sem sá um skipulagningu minningartónleikanna - hefði ekki einu sinni haft tíma til að taka slát- ur vegna anna, en Sigga Dóra sá um að eitthvað þjóðlegt yrði í farteski tenórsins á leiðinni til Vín- ar þar sem hann átti að vera mætt- ur á æfingu í gærmorgun. Vonandi, samstarfsmannanna vegna, sýður hann þó signa fiskinn ekki í óperu- húsinu! íkiega hafa aldrei jafn margir setið jafn kyrrir jafn lengi í íþróttahöllinni á Akureyri og á tónleikunum á laugardag. Fólk byrjaði að streyma á staðinn þegar húsið var opnað klukkan fjögur, klukkustund áður en tónleikarnir áttu að hefjast, húsið var orðið troð- fullt skömmu fyrir klukkan fimm og spenna greinileg í lofti. Framundan var stór stund í tónlistarsögu Akur- eyringa, sjálfur kóngur Konnar- anna mættur á heimaslóðir með heila Sinfóníuhljómsveit sér til að- stoðar, auk þess sem Sigrún Hjálmtýsdóttir - sú stórkostlega óperasöngkona - söng bæði ein og dúetta með Kristjáni, og Jóna Fanney Svavarsdóttir, frænka Kidda, spreytti sig á einni aríu. Og þótt fólk hafi setið kyrrt meðan tón- listin var flutt sleppti það fram af sér beislinu milli laga. Mér sýndist fólk beinlínis dolfallið þegar það sló saman lófum - fast - í þakklætis- og virðingarskyni við tónlistarfólldð, hvað eftir annað. Og í lokin varð hreinlega „allt vitlaust" einsog stundum er sagt um stemmningu í íþróttahúsum! Blaðamaður rifjaði í huganum upp söguna af sprungun- um í félagsheimilinu Freyvangi í Eyjafirði; þannig var að Kristján söng þar einhverju sinni á árshátíð, fljótlega eftir að hann byrjaði að læra. Þegar Jói spurði son sinn dag- inn eftir hvernig hefði gengið á Kiddi að hafa svarað digurbarka- lega: Alveg frábærlega. Kvaðst hafa verið í banastuði og bauð Jóa meira að segja, ef hann vildi, að skutlast með hann frameftir. Það hefðu nefnilega myndast sprungur í veggjunum eftir hann. Jói Konn á þá að hafa svarað: Helvítis vitleysan í þér drengur, þetta eru eldgamlar sprangur eftir mig! Eitthvað mun Kristján hafa orðið kyndugur í framan við svar föður síns, þannig að Jói dró aðeins úr og sagði: Það getur svo sem vel verið að þú hafir aðeins gleikkað þær! Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, styrkt af félögum úr Sinfóníuhljóm- sveit íslands, hóf tónleikana með fallegum forleik úr La Traviata eftir Verdi og í kjölfarið kom Jóna Fann- ey Svavarsdóttir, bróðurdóttir Kri- stjáns á svið. Sveif inn í glæsilegum, bláum kjól og söng mjög fallega - eftir því sem amatör-eyra mitt nam - aríu eftir Puccini og fólkið í saln- um var greinilega sammála. Bravó- hróp heyrðist strax og hún hafði lokið söng sínum og mikið var klappað fyrir þessari upprennandi söngkonu. Sigrún Hjálmtýsdóttir var næst á sviðið, i ákaflega fallegum, hvitum kjól og af henni geislaði sem aldrei fyrr. Aríur úr óperanni Simon Boccanegra eftir Verdi voru á dag- skrá og eftir að Diddú hóf upp raust sína læddist Konnarinn sjálfur inn á sviðið. Vel var klappað fyrir söng- konunni ástsælu eftir að hún lauk fyrstu aríunni en Kristján beið ekki boðanna heldur þandi raddböndin þegar í stað þannig að hendurnar í salnum - vel á fimmta þúsund - féllu þegar í stað í skaut á ný og eyran héldu áfram að njóta þess konfekts sem þeim var boðið upp á. Söngvaramir kölluðust á um stund en Kristján kom síðan fram á sviðs- brún til Diddúar. Mikið var klappað eftir þennan fyrsta dúett þeirra, Kiddi gaf vini sínum Giovanni Andreoli, stjórnanda hljómsveitar- innar, honnör og síðan fóra þau Diddú út. Komu raunar fljótt aftur, að kröfu áheyrenda - sem vildu klappa enn meira og hressiiegar - hneigðu sig og hurfu af sviðinu. Kristján kom þvínæst inn, og Giovanni vitaskuld eins og jafnan, og það var kraftur í karli þegar hann þaut einn af stað í aríu úr sömu óperu. Kristján var að syngja hana í Múnchen áður en hann kom heim og því í góðri æfingu. Það leyndi sér ekki enda viðtökurnar af- bragð að söngnum loknum; aftur heyrðist bravó og sumir flautuðu meira að segja þegar hann var klappaður upp. egar þarna var komið stóð HLE í efnisskránni, en Kiddi og Diddú tóku eitt aukanúm- er, vegna góðra undirtekta. Höfðu gaman af og Konnarinn gekk hlæj- andi af sviðinu eftir þann söng. Áð- ur en hlé var gert komu þau svo öll fjögur, söngvaramir þrír og stjórn- andinn, fram á sviðsbrún þar sem vel og lengi var klappað. Fólk sem blaðamaður ræddi við í hléinu var greinilega yfir sig ánægt: „Þetta er heimsviðburður.“ „Stór- kostlegt.“ „Ég vona að fólk almennt geri sér grein fyrir því hvað það er að upplifa." „Ég fékk gæsahúð þeg- ar hún Jóna Fanney söng, hún var yndisleg." Hljómsveitin byrjaði á því eftir hlé að leika forleik úr Rakaranum frá Sevilla og síðan söng Diddú aríu úr þeirri óperu - kom á svið í rauð- um, glæsilegum kjól. Hljómsveitar- stjórinn Andreoli vakti mikla at- hygli fyrir líflega framkomu; lyfti sér stundum vel upp á tærnar, einsog margur stjórnandinn hefur gert gegnum tíðina, en lét ekki þar við sitja heldur hoppaði ýmist á palli sínum eða beygði sig í hnjánum einsog fímasti ballettdansari, þegar það átti við. Enda smitaði hann hljómsveitina bersýnilega af krafti og gleði. Kristján tók síðan aríu úr Tosca, heymarfæri mín kváðu upp þann dóm að það hefði hann gert frábær- lega. Þeir geta farið að hlakka til á Metropolitan, hugsaði ég með mér, þegar augu hans skutu gneistum út í salinn - slíkur var krafturinn í. söngnum. Maður fann hvernig gæsahúð gerði vart við sig á hand- ieggjunum og fólk sleppti sér eftir að söngnum lauk. „Bravó.“ Og klappið ætlaði engan enda að taka. Kristján syngur í Tosca fyrsta sinni á Metrapolitan næsta haust. Svona gekk þetta áfram, hljóm- sveitin lék næst forleik eftir Verdi, Kristján og Diddú sungu síðan sam- an aríu úr Oþelló og Diddú fór svo ein með aríu úr I Vespri Siciliani, einnig eftir Verdi, og stemmningin í salnum var að ná hámarki. Aftur sagði amatöreyra mitt mér að söng- urinn hefði verið yndislegur og fólk- ið var á sömu skoðun. Það bravó-aði og Diddú var þökkuð frammistaðan með langvinnu lófataki. Síðasta lagið á efnisskránni var ekki af verri endanum. Stórtenórinn steig á svið, Andreoli í kjölfarið og eftir að þeir slógu saman höndum lagaði Kiddi ennahnappana einsog honum er tamt á sviði, Italinn sveiflaði sprota sínum og kýlt var á’ða: Nessun donna úr Turandot eftir Puccini. Hvílíkur kraftur. Ég verð að viðurkenna að aftur spratt gæsahúðin út á handleggjum þess sem hér ritar og á stundum sem þessari fylgir henni einhver óút- skýranleg vellíðan. Stolt yfir mönn- um sem standa sig svona vel. Jafn- vel mont yfir því að vera sprottinn úr sama jarðvegi. Þegar Kristján lauk sér af breiddi hann út faðminn til áhorfenda og salurinn hreinlega sprakk af fögnuði. Bravó-hróp heyrðust úr hverju horni og skarinn stóð upp og hyllti þennan frægasta son bæjarins. En þó fyrst og síðast son Fanneyjar Oddgeirsdóttur og Jóa Konn. Minningin um Jóa lifir; margir muna hans fögru tóna en fyrir þá sem ekki muna heldur Kri- stján minningunni sannarlega hátt á lofti. Kristján er draumur sem rættist. Fólk var aldeilis ekki á því að sleppa söngvuranum þó svo að efnisskráin væri tæmd. Kristján gekk hnarreistur á svið á ný ásamt Diddú og Jónu Fanneyju og Giovanni fylgdi á eftir. Þeim voru færðir fagrir blómvendir, Diddú smellti kussi á konsertmeist- arann - Szymon Kuran - og síðan fékk fólkið ósk sína uppfyllta; meira að heyra. Og þá var komið að ís- lenskum perlum, sem mér hefði satt að segja fundist mega vera fleiri á efnisskránni, vegna þess að á því sviði var Jói Konn fremstur. Auka- lögin urðu tvö. Diddú byijaði á því að flytja Sjá dagar koma; söngur hennar var undurblíður og fallegur í upphafí en ekkert vantaði upp á kraftinn þegar við átti, enda hlaut hún gífurleg fagnaðarlæti að laun- um. Mér varð hugsað til sprungn- anna í Freyvangi! Giovanni svipti Diddú upp á stjórnandapallinn og hyllti hana þar. Síðan hvarf hún af sviðinu en kom von bráðar aftur þar sem fólk klappaði kröftuglega og hljómsveitarmeðlimir stöppuðu hver í kapp við annan. Síðari hluti framlengigarinnar var í umsjá Kristjáns. Hann sté á svið, setti upp gleraugun og ávarpaði samkomugesti: „Kæru vinir! Ákureyringar og íslending- ar...“ Salurinn tók bakföll. „Aðrir íslendingar!" sagði þá Kristján og hlaut lófaklapp fyrir. „Ég er ofsa- lega stoltur í hjartanu og vona að þið séuð það líka,“ sagði hann. „Þetta er í raun ótrúlegur atburður. Ekki vegna mín, heldur okkar allra,“ sagði hann og dásamaði hljómsveitina, kvatti fólk til að styðja við bakið á henni eins og gert hefði verið þetta kvöld og bætti við að eftir því sem fólk þroskaðist meira gerði það sér betur grein fyr- ir mildlvæga lista. „Roðið og sporð- urinn og allt sem því tilheyrir er mjög áríðandi en við verðum að luydda tilverana - ekki síst hér á íslandi." Vert er að geta þess að ágóðinn af tónleikunum rennur í nýstofnaðan Minningarsjóð um Jóhann Konráðs- son, en allt sem í hann kemur að þessu sinni fer rakleitt áfram til styrktar Sinfóníuhljómveit Norður- lands, samkvæmt ákvörðun Krist- jáns. Tónleika sem þessa er ekki hægt að enda nema á einn hátt. Enda kynnti Kristján lokalag sitt með þessum orðum: „Þið þekkið þetta ábyggilega!" Það nægði, salurinn klappaði og svo var gefið í botn; fyrst nokkrir tónar frá hljómsveit- inni, og svo hóf Konnarinn upp raust sína: „Haaaaamraborgin rís hááááá og fögur...“ Svo hélt hann áfram; bergið lokaðist, og í lokin var eins og einhver óskiljanlegur kraft- ur móður náttúru hefði losnað úr læðingi: „Nóóóttin looooogar af norðurljóóóósuuuuuuum..." Sann- færingarkrafturinn var svo mikill í túlkun Kristjáns að það var engu líkara en maður tryði því að norður- ljósin lýstu upp himininn í höfuð- stað Norðurlands þetta augnablik, þótt úti væri það fallegasta haust- veður sem um getur, hlýtt og milt og bjart. Kristján breiddi svo út faðminn í síðasta sinn fram í sal, þeir Giovanni slógu saman höndum og föðmuðust enda gátu þeir verið ánægðir með framlag sitt. Tónleikagestir hylltu söngvar- ana, stjórnandann og hljóm- sveitina enn einu sinni, og gerði sér greinilega vonir um eitt auka-aukalag, en Kristján kom á svið, sendi fingurkossa fram í sal, sagði takk í míkrafóninn og vinkaði. Steig svo skyndilega niður af svið- inu og út í sal þar sem Fanney móð- ir hans sat og færði henni blóm- vönd. Leiddi hana svo á svið. Unn- endur góðra lista eiga Fanneyju mikið að þakka; hún var konan á bak við Jóa Konn og saman gáfu þau heiminum Kidda. Það var hjart- næm stund þegar salurinn hyllti gömlu konuna með klappi og húrra- hrópum. Þarna var verið að hylla þau Jóa heitinn í sameiningu. Stundin í íþróttahöllinni var eftir- minnileg. Einn tónleikagesta hafði á orði að Kristján hefur örugglega aldrei sungið Hamraborgina betur en einmitt þarna og ekki mótmæli ég því. En ég legg til að athugað verði - svona til öryggis - hvort nokkrar sprungur hafi myndast í veggi íþróttahallarinnar... ■ I minningu Jóa Konn/35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.