Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AT VINNU AUGLÝSI NGAR
SMITH & NORLAND
SENDIBÍLSTJÓRI
Smith & Norland vill sem fyrst
ráða bílstjóra til að aka sendibíl
fyrirtækisins.
Starfið felur m.a. í sér akstur á
rafmagnsvörum og heimilistækjum að
fyrirtækinu og frá því og störf á
lager þess.
Leitað er að röskum, glaðlyndum og
snyrtilegum einstaklingi með ríka
samstarfslund. Meirapróf er æskilegt.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá
traustu og virtu fyrirtæki. Góð laun í boði
fyrir réttan einstakling.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru
vinsamlega beðnir að senda okkur
eiginhandarumsókn með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf fyrir
mánudaginn 19. október.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
SMITH & NORLAND
LAGERMAÐUR
Smith & Norland vill sem fyrst
ráða starfsmann á lager
fyrirtækisins.
Starfið felur m.a. í sér móttöku á
rafmagnsvörum og heimilistækjum inn
á lager fyrirtækisins, pökkun og afgreiðslu
á vörum út úr húsi, aðstoð við sölumenn
sem og aðstoð við bílstjóra við útkeyrslu
á rafmagnsvörum og heimilistækjum.
Leitað er að röskum, glaðlyndum og
snyrtilegum einstaklingi með ríka
samstarfslund.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá
traustu og virtu fyrirtæki. Góð laun í boði
fyrir réttan einstakling.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru
vinsamlega beðnir að senda okkur
eiginhandarumsókn með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf fyrir
mánudaginn 19. október.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Atvinna við skóla-
vistun á Stokkseyri
Við opnum skólavistun á Stokkseyri fyrir börn
í 1. til 4. bekk — og bráðvantar tvær manneskj-
ur í hlutastöður.
Upplýsingar um stöðurnar veitir Lene Drejer
Klith, forstöðumaður Bifrastar skólavistunar,
í síma 482 3508. Umsóknarfrestur er til 21. okt.
1998.
Fræðslustjóri Árborgar.
Pórs/iafnar/treppur
Laus störf hjá Þórshafnarhreppi:
Leikskólastjóri
Okkur vantar leikskólastjóra við leikskólann
Barnaból. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem allra fyrst. Umsóknarfrestur er til
20. október nk. Góð kjör í boði.
Umsjónarmaður
fasteigna
Um er að ræða nýtt starfsheiti. Starfssvið er
daglegt viðhald og umsjón með öllum fast-
eignum í eigu sveitarfélagsins. Viðkomandi
þarf að vera þjónustulipur þúsundþjalasmiður,
æskilegt er að viðkomandi hafi iðnaðarmennt-
un, en það er ekki skilyrði.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst. Umsóknarfrestur ertil 15. október nk.
Forstöðumaður
íþ rótta m i ðstöð var
Um er að ræða nýtt starfsheiti. Starfssvið er
dagleg stjórnun og umsjón með rekstri íþrótta-
miðstöðvar.
Viðkomandi þarf að vera þjónustulipur, einnig
þarf viðkomandi að standast hæfnispróf skv.
reglugerð um sundstaði. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf sem allra fyrst.
Umsóknarfrestur er til 15. október nk.
Nánari upplýsingar um þessi störf gefur
sveitarstjóri í síma 468 1220.
Framkvæmdastjóri
Stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins auglýsir eftir
framkvæmdastjóra fyrir sjóðinn. Verkefni fram-
kvæmdastjóra eru að stjórna og bera ábyrgð
á daglegum rekstri Lánasjóðsins, auk annarra
atriða erfram koma í 5. grein laga 68/1997.
Gerðar eru m.a. kröfur um haldgóða þekkingu
á landbúnaði, fjármálum og stjórnun auk
góðra samskiptahæfileika.
Umsóknir berist fyrir 25. október til Lánasjóðs
landbúnaðarins, merktar Stjórn Lánasjóðs
landbúnaðarins - umsókn, Laugavegi 120,105
Reykjavík.
í umsókn komi fram menntun og fyrri störf
umsækjanda.
Nánari upplýsingar veita: Guðni Ágústsson,
formaður, sími 563 0500 og Þórólfur Sveins-
son, varaformaður, sími 437 1683.
HÓTEly
REYKJAVIK
Starfsfólk óskast
Vegna mikilla anna vantar okkur framreiðslu-
menn og aðstoðarfólk í sal.
Ennfremur getum við tekið á móti nemum í
framreiðslu.
Upplýsingar á Grand Hótel, Sigtúni 38, á morg-
un, miðvikudag frá kl. 14-16.
Vélstjórar og hásetar
Óskum eftir að ráða góða menn í eftirtaldar
stöður á ca 140 brl bát sem fer til togveiða:
1) Yfirvélstjóri með a.m.k 675 kw. réttindi og
góða reynslu úrvélsmiðju.
2) Vélavörður með réttindi til að geta leyst yfir-
vélstjóra af.
3) Háseti með vélavarðarréttindi.
4) Háseti með stýrimannsréttindi.
Áhugasamir sendi umsóknir með upplýsingum
um menntun, aldur, búsetu og fyrri störf á afg.
Mbl. merkt: „E - 6476".
&
Mosfellsbær
Leitað er eftir
leikskólakennurum
í eftirtalda leikskóla:
Leikskólinn Hlíð.
Upplýsingar gefur Gunnhildur Sæmundsdóttir
leikskólastjóri í s. 566 7375.
Leikskólinn Reykjakot.
Uppiýsingar gefur María Ölveig Ölversdóttir
leikskólastjóri í s. 566 8606.
Til greina kemur að ráða fólk með aðra uppeld-
ismenntun og reynslu.
Skólafulltrúi.
Forfallakennara
í Árborg
Okkur vantar kennara til að kenna í forföllum
við grunnskólana í Árborg; Sóivallaskóla og
Sandvíkurskóla á Selfossi og við Barnaskólann
á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þú munttaka þátt
í gróskumiklu skólastarfi, byggðu á metnaði
og umhyggju. Meðal áhersla eru nemenda-
samningar, upplýsingatækni, námsmat, starfs-
deild í 10. bekk, aukið samstarf leikskóla og
grunnskóla og samstarf grunnskóla og fram-
haldsskóla. Við viljum að starfsfólki líði vel og
velferð nemenda sé í öndvegi. Nánari upplýs-
ingar veitir Þorlákur Helgason fræðslustjóri
í síma 482 1977 og á netfangi thorlakur@ar-
borg.is. Umsóknum ber að skila í síðasta lagi
31. október 1998 til Árborgar, fræðslu- og
menningardeildar, Austurvegi 2, 800 Selfoss.
Fræðslumiðstöð
l|l Rejdcjavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Ártúnsskóli, sími 567 3500
Starfsmenn í ræstingu.
Upplýsingar gefur umsjónarmaður skólans.
Laun skv. kjarasamningum Dagsbrúnar og
Framsóknar við Reykjavíkurborg.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi
Læknar
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í heim-
ilislækningum. Umsóknum ber að skila á sér-
stökum eyðublöðum sem fáanleg eru á skrif-
stofu landlæknis. Staðan verður veitt frá 1. jan-
úar 1999 eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur rennur út 15. nóvember
1998.
Starf yfirlæknis á Heilsugæslustöðinni verður
veitt á næstunni og er jafnframt leitað um-
sókna um það.
Vatnsveita Reykjavíkur
óskar eftir að ráða samviskusamt og lagtækt
fólk til starfa við dreifikerfið. Um er að ræða
vinnu við nýlagnir og viðgerðir á vatnslögnum.
Um framtíðarstarf getur verið að ræða.
Upplýsingar í síma 569 7000.
Vatnsveita Reykjavíkur,
rekstrarsvið.