Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.10.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 AÐSENDAR GREINAR Héraðsdómur telur nýleg áfengislög stj órnarskrárbrot FRÉTT í Morgun- blaðinu 10. október sl. um að Héraðsdómur Reykjavíkur hefði sýknað framkvæmda- stjóra Ölgerðarinnar Egils Skallagrímsson- ar af ákæru um brot á áfengislöggjöfmni vegna auglýsinga sem hann lét birta er furðu- leg í ljósi nýrra áfeng- islaga. Þessi niðurstaða Héraðsdóms Reykja- víkur kemur öllum sem eru að beijast við vímuefnaböl þjóðar- innar í opna skjöldu og þann vanda að þurfa að velta því fyrir sér hvort ný áfengislög frá Al- þingi séu marklausir stafir sem ekki þurfi að fara eftir, sé fengin hjálp löglærðra manna til að finna leiðir fram hjá þeim, þjóðinni til stórskaða. Haftalaust frelsi til áfengisaug- lýsinga leiðir til meiri drykkju. Drykkjan er kveikur að notkun harðari vímuefna. Því er það frelsi takmarkað með flestum siðmennt- uðum þjóðum, til dæmis í Frakk- landi. Líkamsskaða fólks, hannleiki á íslenskum heimilum vegna drykkju virðist dómarinn ekki setja á vog- arskálar sínar er hann sneiðir hjá 20. gr. í nýlegum áfengislögum. Að halda því fram, að það að hindra menn í að hvetja til áfengis- neyslu sé stjórnar- skrárbrot og hindrun á tjáningarfrelsi, segir Sigurður Magnússon, er útúrsnúningur. Með þessari niðurstöðu Héraðs- dóms Reykjavíkur er ýtt undir neyslu vímuefna hverskonar, sem auka ofbeldi og glæpi og kosta sak- laust fólk fólskulegar árásir, sem leiða til örkumla eða dauða. Hvað með vímuefnalaust ísland árið 2002? Hvað gerir Alþingi sem af- greiddi þessi lög frá sér fyrir 5 mánuðum? í glænýjum áfengislög- um sem samþykkt voru á Alþingi 5. júní 1998 stendur: Lagagreinin 20. gr. „Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengisteg- undum eru bannaðar. Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð áfengis í aug- lýsingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu. Með auglýsingu er átt við hvers konar tilkynningar til almennings vegna markaðssetningar þar sem sýndar eru í máli eða myndum áfengistegundir eða atriði tengd áfengisneyslu, svo sem áfengis- vöruheiti eða auðkenni, eftirlíking- ar af áfengisvarningi, spjöld eða annar svipaður búnaður, útstilling- ar, dreifing prentaðs máls og vöru- sýnishoma og þess háttar. Bannið tekur með sama hætti til auglýsinga sem ein- göngu fela í sér firma- nafn og/eða firma- merki áfengisframleið- anda. Þó er framleið- anda sem auk áfengis framleiðir aðrar drykkjarvörur heimilt að nota firmanafn eða merki í tengslum við auglýsingu þeirra drykkja, enda megi augljóst vera að um óáfenga drykki sé að ræða í skilningi lag- anna og ekki vísað til hinnar áfengu framleiðslu. Undanþegið banni við áfengis- auglýsingum er: 1. Auglýsingar á erlendum tungu- málum í erlendum prentritum sem flutt em til landsins, nema megintilgangur ritsins eða inn- flutningsins sé að auglýsa áfengi. 2. Auðkenni með firmanafni og/eða fimiamerki á venjulegum búnaði til áfengisveitinga á veitingastað þar sem áfengisveitingar em heimilaðar. 3. Auðkenni með firmanafni og/eða firmamerki á flutninga- tækjum áfengisframleiðanda, vöruumbúðum, bréfsefni eða öðra sem beinlínis tengist starf- semi hans.“ Stjórnarskráin Að fella dóm á þann veg að það sé brot á stjómarskránni að hindra menn í að hvetja til neyslu á áfengi, að slíkt sé hindran á tjáningarfrelsi skv. 73. greinar stjórnarskrárinnar, er útúrsnún- ingur. Heilbrigði þjóðarinnar verður að setja ofar auglýsingum á áfengi, auglýsingum sem eru til þess ætlaðar að hvetja til neyslu vanabindandi vímuefnis sem áfengi er. 73. grein stjórnarskrárinnar er á þessa leið: „Allir era frjálsir skoðana sinna og sannfæringar. Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verð- ur hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanh- á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða. Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherj- arreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsyn- legar og samrýmist lýðræðishefð- um.“ Það er ljóst að þessi síðari hluti 20. greinarinnar er settur m.a. til að vemda heilsu og siðgæði og samkvæmt því er sagt og ítrekað: Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherj- arreglu eða öryggis ríkisins, til vemdar heilsu eða siðgæði manna. Sem sagt, það má setja skorður við tjáningarfrelsi sé þess talin þörf og á því byggist 20. gr. áfeng- islaganna. Höfundur er yfirrafmagns- eftirlitsmaður. Sigurður Magnússon Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Veltvangur fólks í fasteignaleit *•** mbl.is/fasteignir Ógleymanleg stund í Iðnó áhorfendur oq "...bráðskemmtilegt, tragikómík af bestu ge S.A.B. Mbl. "...áminning um hvað leikhús er" G.S. Dagur "Guðrún Ásmundsdóttir náði svo fullkomlequ valdi á persónunni að hún sendi hroll niður bakið á manni"S.A DV. "Stjarna sýningarinnar er Erlinaur Gíslason sem átti sannkallaoan stórleik í hlutverki Wellers" G.S. Dagur. "Éq á von á því að sýningin muni ganga lengi fyrir fuílu húsi og fyrir mma parta mæíi ég með henni" S.A.B. Mbl. Tryqqðu þér miða í tíma Laugardaginn 17.október kl.20.30 Fimmtudaginn 22.október kl.20.30 Laugardaginn 24.október kl.20.30 Laugardaginn 31.október kl.20.30 Sunnudaginn 1. nóvember kl.20.30 Laugardaginn 7. nóvember kl.20.30 Fimmtudaginn 12.nóvember kl.20.30 Föstudaginn 13. nóvember kl.20.30 Ósóttar pantanír seldar daglega. ' n opin alla dagafrá kl. 12.00 -20.00 UPPSELT örfá sæti laus UPPSELT örfá sæti laus örfá sæti laus sæti laus mm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.