Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 25
Aukið fé
til höfuðs
Rushdie
SJÁLFSTÆÐ stofnun heit-
trúarmanna í Iran hefur
hækkað fjárupphæðina, sem
hún hefur sett til höfuðs rit-
höfundinum Salman Rushdie
fyrir meint guðlast í bókinni
„Söngvum Satans“, úr 2,5
milljónum Bandaríkjadala í
2,8 milljónir. Frá þessu var
greint í íranska dagblaðinu
Jomhuri Eslami í gær og hef-
ur í kjölfarið verið ákveðið að
Rushdie njóti áfram vemdar
lífvarða.
Aliyev sakað-
ur um svindl
HAYDAR Aliyev, forseti
Aserbaídsjan, var endurkjör-
inn til fimm ára í forsetakosn-
ingum í gær
en helsti
keppinautur
hans, Etibar
Mamedov,
sakaði Aliyev,
sem er 75 ára,
um kosninga-
svindl og
sagði nauð-
synlegt að
halda aðra umferð, þar sem
kosið yrði milli þeirra tveggja.
Fulltrúar Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu
(ÖSE), sem eftirlit hafði með
kosningunum, staðfestu að
kosningarnar hefðu ekki stað-
ist alþjóðakröfur. Aliyev hlaut
75% fylgi en Mamedov 11% í
kosningunum ef marka má
bráðabirgðatölur stjórnvalda.
Engin afvopn-
un UVF
FULLTRÚAR PUP-flokks-
ins, sem er stjómmálaannur
öfgahóps sambandssinna
(UVF) á N-írlandi, sögðu um
helgina að UVF hefði ekki í
hyggju að afvopnast. Fornir
fjendur UVF í írska lýðveldis-
hernum (IRA) hafa einnig
neitað að afvopnast en af þeim
sökum hefur David Trimble,
forsætisráðhema N-írlands,
neitað að setja á fót ríkisstjórn
með aðild Sinn Féin, stjórn-
málaarms IRA. Segja frétta-
skýrendur því að yfirlýsing
UVF létti í raun þrýstingi af
IRA og reyndar fékk Sinn
Féin óvæntan stuðning frá
David Ervine, leiðtoga PUP,
þegar hann hvatti Trimble til
að setja ríkisstjórn á fót nú
þegar, og með þátttöku Sinn
Féin, jafnvel þótt IRA hafi
ekki hafið afvopnun.
Berisha íhug-
ar stefnu-
breytingu
SALI Berisha, leiðtogi alb-
önsku stjórnarandstöðunnar,
sagði í gær að flokkur sinn,
Lýðræðisilokkurinn, væri
reiðubúinn til að endurskoða
stefnu sína ef önnur stjórn-
málaöfl gerðu slíkt hið sama.
Berisha og flokkur hans hefur
hunsað þjóðþing Albaníu lung-
ann af þessu ári en alþjóða-
stofnanir hvöttu hann nýlega
til að vera samvinnuþýðari og
taka uppbyggilegi’i þátt í
stjómmálum landsins.
Aliyev
ERLENT
Gyðingur tekinn
í dýrlingatölu
Páfi sakaður um að vanvirða
minningu fórnarlamba nasista
Páfagarði. Reuters.
JÓHANNES Páll páfi lýsti því yfir
á sunnudag að nunna, Edith Stein,
sem var komin af gyðingum og lét
lífið í útrýmingarbúðum nasista,
hefði verið tekin í dýrlingatölu.
Leiðtogar gyðinga mótmæltu yfir-
lýsingunni harðlega og sökuðu páfa
um að vanvirða minningu gyðinga
sem voru drepnir í útrýmingarher-
ferð nasista.
„Þetta er hneyksli,“ sagði Efraim
Zuroff, yfirmaður skrifstofu Simon
Wiesenthal-stofnunarinnar í Jer-
úsalem. „Með þessu sendir páfi
mjög neikvæð skilaboð til gyðinga
og þau eru að bestu gyðingarnir séu
þeir sem taka kaþólska trú.“
Páfi notaði þó tækifærið til að
hvetja heimsbyggðina til að tryggja
að atburðir eins og útrýmingarher-
ferð nasista endurtækju sig aldrei.
Hann lýsti Stein sem „mikilhæfri
dóttur Israels og dyggri dóttur
kirkjunnar" og sagði að dagurinn,
sem yrði helgaður henni sem dýr-
lingi, ætti að minna heimsbyggðina
á „þá dýrslegu áætlun um að út-
rýma heillri þjóð, sem kostaði millj-
ónir gyðinga lífið“.
Of lítið gert úr
uppruua nunnunnar?
Páfi viðurkenndi að nunnan hefði
verið flutt í útrýmingarbúðimar
vegna þess að hún var gyðingur en
David Rosen, rabbíni í Israel, sagði
að páfi hefði gert of lítið úr uppruna
hennar. „Hún var ekki drepin vegna
þess að hún var kaþólikki," sagði
hann. „Hún var drepin vegna þess
að foreldrar hennar voru gyðingar
og á það þarf að leggja áherslu í öll-
um yfirlýsingum um dauða hennar.
Á það var ekki lögð næg áhersla."
Stein fæddist í Breslau í Þýska-
landi (nú Wroclaw í Póllandi) árið
1891 og varð trúleysingi þegar
hún var fjórtán ára. Síðar skrifaði
hún bækur um heimspeki og gat
sér gott orð sem fræðimaður. Hún
snerist til kaþólskrar trúar þegar
hún var 29 ára og varð nunna
1934, árið eftir að Hitler komst til
valda.
Þar sem hún var komin af gyð-
ingum var ákveðið að senda hana
með leynd til Hollands, því yfir-
menn hennar töldu hana öruggari
þar en í Þýskalandi. Gestapo-menn
handtóku hana í ágúst 1942 og
fluttu hana til Ausehwitz, þar sem
hún var kæfð með gasi ásamt fleiri
gyðingum. Kaþólska kirkjan lítur
svo á að nunnan hafi ekki aðeins
verið drepin vegna þess að hún var
gyðingur, heldur einnig vegna and-
stöðu kirkjunnar í Hollandi við gyð-
ingahatur nasista.
Kaþólska kirkjan telur að Stein
sé fyrsti gyðingurinn sem tekinn
hefur verið í dýrlingatölu frá tímum
postulana. Hún viðurkennir þó að
það sé ekki alveg víst því nokkrir
þeirra, sem voru teknir í dýrlinga-
tölu á miðöldum, kunni að hafa ver-
ið gyðingar.
Reuters
JOHANNES Páll páfi í kirkjuathöfninni á sunnudag þegar Edith Stein
var tekin í dýrlingatölu.
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
Nóbelsverðlaunin í læknisfræði
Viagra byggt á uppgötv-
unum verðlaunahafanna
Stokkhólmi. Reuters.
ÞRÍR bandarískir lyfjafræðingar, einnig hjarta- og æðasjúkdómum,
Robert Furchgott, Ferid Murad og
Louis Ignarro hljóta Nóbelsverð-
launin í læknisfræði í ár. Lyfið Vi-
agra, sem notað er við getuleysi, er
m.a. byggð á uppgötvunum þre-
menninganna. Hljóta þeir að laun-
um 7,6 milljónir sænskra króna,
rúmlega 65 milljónir ísl. króna, fyrir
að hafa sýnt fram á gagnsemi nit-
uroxíðs sem boðberandi sameindar í
hjarta- og æðakerfinu en í tilkynn-
ingu Karólínsku stofnunarinnar,
sem útdeilir verðlaununum, segir að
uppgötvun þessi hafi ekki einungis
áhiTf á meðferð við getuleysi heldur
losti og jafnvel krabbameini. Nit-
uroxíð er loftegund sem sendir boð
um líkamann þannig að hægt er að
stýra blóðþrýstingi og blóðflæði.
Heimur gröfunnar er harður og óvæginn.
Gröfumar frá Volvo standast ýtmstu kröfur um
kraft, nákvæmni, lipurð, þægindi og áreiðanleika.
Fullkomin hönnun, sterkasta gæðastál, öflugt
vökvakerfi og háþróaður tölvubúnaður tryggja
ekki aðeins hámarksafköst heldur einnig meira
öryggi, lengri endingu og hagkvæmari rekstur.
Volvo með skömmum fyrirvara. Volvo er í hópi
þriegja stærstu vinnuvélaframleiðenda í heimi.
Verksmiðjumar em í Evrópu og það gerir alla þjónustu
auðveldari og ódýrari. Sölumenn Brimborgar veita
finekari upplýsingar um vinnuvélar og vörubila frá VoIvq
Eigum á lager: Volvo EC280 beltagröfu 29 tonn.
Volvo/Pel Job EB 200 XTV smágröfu 1,7 tonn.
ecco
Gangur lífsins
STEINAR WAAGE
Kringlunni 8-12. Sími: 568 9212
Egilsgötu 3. Sími: 551 8519