Morgunblaðið - 13.10.1998, Síða 28

Morgunblaðið - 13.10.1998, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Holbrooke og Milosevic funduðu í Belgrad á laugardag og sunnudag Samningalota helgarinnar „átakamikir‘ Belgrad, Brussel, Aviano, London. Reuters. The Daily Telegraph. VIÐBUNAÐUR NATO VEGNA KOSOVO-DEILUNNAR Sex bandarískar B-52 sprengjullugvélar sem hver um sig getur borið 20 eldflaugar komu til Bretlands á sunnudag B-52 sprengjuflugvél Flugþol: 12.000 km Burðargeta: 22 tonn HERNAÐARFfíAMLAG NA TO-RÍKJANNA BANDARÍKIN 260 flugvélar KANADA 6CF-18orustuþotur og skriðdrekar ÞÝSKALAND 14 Tornado-orustuþotur AÐRAR NATO-ÞJOÐIR • ísland, eina aðildarþjóöin sem ekki hefur her, styður hemaðaraðgerðir • l’talía og Lúxemborg, vilja stuðnings- yfirtýsingu SÞ áður en gripið verði til hernaðaraðgerða • Grikkland er andvígt hern.aðgerðum • Tyrkland hefurekki tekið afstöðu ÞJÓÐIR UTAN NATO • Rússar hafa varað við afleiðingum hernaðaraðgerða NATO og kunna að rjúfa vopnasölubann SÞ á Serba. • Kínverjar eru andvígir hemaðarafskiptum • Albanar og Búlgarar hafa fallist á að leyfa orustuþotum NATO að fara um lofthelgi sína. SPANN 4 orustuþotur, 1 skriðdreki Samningamaður Bandarrkjanna á Balkanskaga Semur vel við Milosevic ÞRATT fyrir stíf fundahöld um helgina náðist lítill sem enginn ár- angur í viðræðum Richards Hol- brookes, sérlegs samningamanns Bandaríkjanna, og Slobodans Milos- evic, forseta Júgóslavíu, sambands- ríkis Serbíu og Svartfjallalands. A sama tíma og viðræður stóðu bjuggu herir Atlantshafsbandalagsins, NATO, sig undir átök, m.a. með því að flytja fjölda orustuþotna og sprengjuflugvéla nær Balkanskaga og verða sér úti um leyfi til að fara um lofthelgi nágrannaríkjanna Búlgaríu og Albaniu. Holbrooke þótti þreytulegur er hann hóf enn eina fundalotuna með Milosevic í gærmorgun, en hann átti rúmlega 11 klukkustunda fundi með Milosevic um helgina; einn á laugardagskvöld og annan á sunnu- dag. Á laugardag hitti hann enn- fremur Ibraim Rugova, leiðtoga Kosovo-AIbana, í Pristina, höfuð- stað Kosovo, og hafði átt fund með Milosevic deginum áður. Áður en fundurinn í gærmorgun hófst sagði Holbrooke samningalotu helgarinnar hafa verið „átakamikla" og „á köflum mjög ákafa“. Daginn áður sagði Holbrooke um gang við- ræðnanna: „Ekkert hefur breyst og staðan er enn mjög alvarleg.“ Engu að síður myndi hann halda áfram viðræðum við Milosevic svo lengi sem þær virtust geta skilað ein- hverjum árangri. Vill ekki alþjóðalið til Kosovo Serbar virtust á sunnudag ekki á sama máli og Holbrooke, Tanjug- fréttastofan fullyrti í fréttaskeyti að „öll nauðskynleg skilyrði" væru til að svara „opnum spumingum með pólitískum aðferðum". Milosevic heldur því ennfremur fram að serbneskar sérsveitir hafi verið kallaðar heim frá Kosovo í sam- ræmi við kröfur öryggisráðs Sa- meinuðu þjóðanna, þrátt fyrir vís- bendingar um að sú sé ekki raunin. Fréttamaður The Daily Tel- egraph fullyrti um helgina að sér- sveitir lögreglunnar hefðu aukið viðbúnað sinn í Kosovo og byggðu nú byrgi við helstu vegi. Auk sér- sveitarmanna ynnu þúsundir nýliða í lögreglunni við að hlaða byrgin og grafa skotgrafír. Heimildir herma að Milosevic hafi fallist á flestar kröfumar sem gerðar hafa verið til að komist verði hjá loftárásum. Er hann sagður hafa samþykkt að kalla herlið heim frá Kosovo, leyfa neyðaraðstoð við flóttamenn og sjá til þess að hafnar verði viðræður um að komið verði á einhvers konar sjálfsstjóm í Kosovo. Hins vegar munu samn- ingaviðræður Holbrookes og Milos- evic einkum hafa strandað á kröfu þess fyrrnefnda um að alþjóðlegu liði verði komið fyrir í Kosovo en það geti Milosevic ekki fallist á. Sandy Berger, öryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, lagði hins vegar á það áherslu um helgina að hið al- þjóðlega lið yrði „einkum skipað Evrópumönnum" og yrði borgara- legt. Ekki væri ætlunin að senda þangað herlið. 400 þotur og skip Á sama tíma og Holbrooke og Milosevic ræddust við stóðu yfir flutningar omstuþotna NATO til Bretlands og Ítalíu. Sex B-52- sprengjuvélar lentu á herflugvelli í Bretlandi á sunnudag og jafnmarg- ar A-10 Thunderbolt II-omstuþotur lentu á herflugvelli á Norður-Italíu. Þá er flugmóðurskipið USS Eisen- hower ásamt fleiri herskipum við æfingar á Miðjarðarhafi og fjórar breskar Harrier-þotur eru komnar til Ítalíu. Serbar vömðu um helgina ná- grannaþjóðir sínar við því að hafa afskipti af Kosovo-deilunni. Engu að síður hafa Búlgarar orðið við beiðni NATO um að fá að fljúga um lofthelgi þeirra og Albanar hafa formlega boðið bandalaginu afnot af hemaðarmannvirkjum sínum. Felur boðið í sér leyfi til að nota flugvelli og hafnir til ársloka. Alls mun yfirmaður herafla NATO hafa yfir að ráða um 400 or- ustuþotum og skipum sem hægt er að senda flugskeyti frá. Ekki hefur verið uppgefið hversu langur tími mun líða frá því að leyfi verður gefið fyrir loftárásum og þar til þær hefj- ast, en það getur verið allt frá nokkmm klukkustundum og til ein- hverra daga. Þá er ekki víst hversu lengi þær standa, en skotmörkin verða íyrst og fremst hernaðar- mannvirki Serba. Síðast en ekki síst er óljóst hvað við tekur eftir loftárásimar. Komið getur til greina að senda allt að 25.000 manna landher til Serbíu en Bandaríkjamenn eru sagðir vilja komast hjá því í lengstu lög. Taki þeir ekki þátt í slíkum aðgerðum dregur mjög úr áhuga Evrópuþjóða á að standa í slíkum hemaði. RICHARD Holbrooke, samninga- maður Bandaríkjanna á Balkan- skaga, á langa reynslu að baki við að reyna að finna lausn á deilum þjóð- anna þar. Hann átti einna stærstan þátt í því að Dayton-samkomulagið um lok Bosníustríðsins var undirrit- að og kynntist þá Slobodan Milos- evic, forseta Júgóslavíu, sem hann hefur átt fjölda funda með undan- farnar vikur til að leysa Kosovo-deil- una í Serbíu. Sagt er að Milosevic og Holbrooke komi ágætlega saman og að þeir ávarpi hvor annan með skírn- arnöfnum, þótt lítið hafi fregnast af samkomulaginu á löngum og ströng- um fundum þeirra í Belgrad að und- anfómu. Holbrooke er 57 ára, kominn af þýskum gyðingum. Hann hóf íyrst störf hjá bandarísku utanrikisþjón- ustunni árið 1962 og starfaði fyrst í Víetnam. Holbrooke var m.a. aðstoð- arutanríkisráðherra í stjómartíð Jimmy Carters og sendiherra í Þýskalandi í rúmt ár. Árið 1994 hóf Holbrooke afskipti af Bosníustríðinu og undir árslok 1995 var Dayton- samkomulagið undirritað, en Hol- brooke átti stóran þátt í gerð þess. „Jarðýtan“ Holbrooke er sagður maður metn- aðarfullur, vel gefinn, hreinskilinn og gefa skýr svör og nýtur því vinsælda hjá fréttamönnum. Því fer hins vegar fjarri að hann sé óumdeildur og inn- an utanríkisþjónustunnar og á meðal samstarfsmanna í Evrópu hafa stór orð verið höfð um starfsaðferðir hans. Holbrooke hefur verið líkt við fíl í postulínsbúð, hann kallaður ,jarðýtan“ og „óði tuddinn“. Sagt er að enginn annar komist að á þeim fundum sem hann sitji og hann hefur margsinnis reitt viðmælendur sína til reiði, t.d. segir sagan að Milosevic hafi eitt sinn öskrað á Holbrooke í Dayton-viðræðunum: „Ég treysti þér og þú reyndir að svindla á mér.“ Annars fór að mestu vel á með Holbrooke og Milosevic í viðræðun- um, þeir drukku saman perusnafs að morgni dags, fóru saman í langar gönguferðir og sagt er að Milosevic hafi efnt til 11 stunda matarboðs til heiðurs Holbrooke í Belgrad. Um samskipti þeirra hefur Hol- Stór orð hafa verið höfð um Richard Holbrooke og hann er umdeildur mað- ur, í heimalandinu sem og Evrópu. brooke haft þau orð að hann hafi engar siðferðilegar efasemdir um það að eiga viðræður við „siðlaust fólk“. Sé hægt að koma í veg fyrir dauða einhverra sé það ekki vanvirð- ing við þá sem látið hafi lífið. Holbrooke undir smásjánni Nafn Holbrookes var oft nefnt þeg- ar rætt var um eftirmann Warrens Christophers í embætti utanríkisráð- herra Bandaríkjanna árið 1997 en Madeleine Albright, sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum, hreppti emb- ættið. Eftir að afskiptum Holbrookes af Bosníumálunum lauk hefur hann TYRKIR sögðust í gær sja merki um að ef til vill yrði hægt að binda endi á deilu Tyrkja og Sýrlendinga með friðsamlegum hætti. Sagði Is- mail Cem, utanríkisráðherra Tyrk- lands, eftir fund með Amr Moussa, utanríkisráðherra Egyptalands, að svo virtist sem Sýrlendingar hefðu uppi viðleitni til að koma til móts við kröfur Tyrkja. „Við fögnum þessum tíðindum og munum nú vega og meta stöðuna," sagði Cem. Gert var ráð fyrir því í gær að Moussa héldi rakleiðis til Dama- skus í Sýrlandi að loknum fundin- um með Cem og Suleyman Dem- starfað í einka- geiranum, aðal- lega að málefnum er varða Balkanskagann, og einnig sinnt einstökum verk- efnum fyrir bandaríska utan- ríkisráðuneytið. Reyndi hann m.a. að miðla málum í Kýpurdeilu Grikkja og Tyrkja en hafði ekki ár- angur sem erfiði. Fyrr á þessu ári útnefndi Bill Clinton Bandaríkjaforseti Holbrooke sem næsta sendiherra Bandaríkj- anna hjá SÞ en tilnefningin hefur ekki enn verið lögð fyrir þingið tii staðfestingar. Ástæðan er, að sögn BBC, bréf frá ónefndum manni sem segist vera starfsmaður utanríkis- ráðuneytisins. í því er ýjað að ólög- legum afskiptum Holbrookes af keppni alþjóðlegs banka, við banda- rískt fyrirtæki um stóran viðskipta- samning við Ungverja árið 1995. Var Holbrooke skipaður varastjómarfor- maður bankans skömmu eftir að samningurinn náðist. irel, forseta Tyrklands, þar sem Moussa flutti Tyrkjum skilaboð frá Hosni Mubarak, forseta Egypta- lands, sem tekið hefur að sér milli- göngu í deilunni. Tyrkir hafa haft í hótunum við sýrlensk stjórnvöld sem þeir saka um að styðja við bak Verkamanna- flokks Kúrda (PKK) sem berst fyr- ir fullveldi Kúrda í Suðaustur- Tyrklandi. Varaði Mesut Yilmaz, forsætisráðherra Tyrklands, Sýr- lendinga á sunnudag við því að hætta stuðningi við PKK eða horfast í augu við afleiðingarnar ella. Tölvuþjálfun Windows • Word Internet • Excel Það er aldrei of seint að byrja! 60 stunda námskeið þar sem þátttakendur kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu og fá hagnýta þjáifun. Vönduð kennslubók innifalin í verði. Innritun stendur yfir. Fjárfestu í framtíðinni! Tölvuskóli íslands BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 567 1466 Deila Tyrkja og Sýrlendinga Egyptar reyna enn að miðla málum Ankura, Kaíró. Reuters.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.