Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 13.10.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 29 ERLENT Schröder bindur enda á innanflokks- deilu um valdaembætti Lafontaine og Scharping verða ráðherrar Bonn. Reuters. Hillary í Sofiu GERHARD Schröder, verðandi kanzlari Þýzkalands, sagði í gær að Oskar Lafontaine og Rudolf Scharping, sem báðir eru meðal fremstu forystumanna Jafnaðar- mannaflokksins SPD, myndu skipa mikilvæg ráðherraembætti í ríkis- stjórn sinni, sem til stendur að mynda með Græningjum. í því skyni að binda enda á valda- togstreitu innan flokksins, sem stefndi í að verða honum skaðlegur, útnefndi Schröder flokksformann- inn Lafontaine fjármálaráðherra og sagði að Scharping, sem undanfarið kjörtímabil gegndi stöðu þing- flokksformanns, myndi láta af því og taka við embætti varnarmálaráð- herra. Franz Miintefering, fram- kvæmdastjóri SPD sem stýrði kosningabaráttu flokksins sem lauk með hinum sögulega kosningasigri yfir Helmut Kohl og flokki hans, Kristilegum demókrötum, mun einnig verða ráðherra, en hvaða ráðuneyti hann tekur við hefur ekki verið ákveðið, að sögn Schröders. Hinn verðandi kanzlari hafði áður lagt áherzlu á, að hann myndi þá íyrst tilkynna hverjir yrðu ráðherr- ar í hinni nýju ríkisstjórn þegar stjórnarmyndunarviðræður hefðu verið til lykta leiddar. En þegar stefndi í að innanflokkstogstreita um hver ætti að skipa hvaða valda- stöðu varpaði skugga á stjórnar- myndunarviðræðurnar sjálfar sá Schröder sig knúinn til að taka til sinna ráða. Tekizt á um þingflokksformanninn Scharping hafði áður lýst því yfir að hann hygðist ekki gefa þing- flokksformennskuna upp á bátinn. Sagt er að Schröder og Lafontaine hafí haft mikinn áhuga á því að Scharping viki úr því hlutverki og Muntefering tæki við því. Scharp- ing, sem var kanzlaraefni SPD í kosningunum 1994, missti flokks- formennskuna í hendur Lafontaine í eins konar hallarbyltingu innan flokksins, sem Schröder m.a. stóð á bak við. Lafontaine mun sjálfur hafa hótað því að sækjast eftir þing- flokksformennskunni ef Scharping léti hana ekki af hendi sjálfviljugur. Til þess að forðast frekara skað- legt umtal í fjölmiðlum létu Schröder og Lafontaine í gær ekk- ert uppi um hver þeir kysu að tæki við þingflokksformennskunni, nú þegar ljóst er að allir þrír - Lafontaine, Schai-ping og Mun- tefering - yrðu ráðhen’ar í stjórn Schröders. BÚLGARAR fögnuðu Hillary Clinton, eiginkonu Bills Clintons Bandaríkjaforseta, ákaft er hún kom til Sofiu á sunnudag, ná- kvæmlega tuttugu og þremur ár- um eftir að hún og Clinton gengu í hjónaband. Stungu jafnvel nokkrir upp á því að hún byði sig sjálf fram í forsetaembættið. Hillary sótti í gær kvennaráð- stefnu en gaf sér í heimsókninni einnig tíma til að heimsækja munaðarleysingjahæli í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu. Frumvarp Japansstjórn- ar í bankamálum Getur breytt stöðunni á mörkuðum Tókýó. Reuters. JAPANSKA stjómin fékk í gær næg- an stuðning stjómarandstöðunnar við aðgerðir til bjargar bankakerfmu en ýmislegt er þó enn á huldu um ýmis mikilvæg atriði samningsins. Gert er ráð fyrir gífurlegum fjárframlögum frá ríkinu og em fjármálasérfræðing- ar sammála um, að takist vel til, muni aðgerðimar hafa mikil og jákvæð áhrif á mörkuðunum. Keizo Obuchi, forsætisráðherra Japans, sagði í gær, að aðgerðirnar væra yfirlýsing um, að Japanir ætl- uðu ekki að auka á óttann við fjár- málakreppuna en séríræðingar hafa varann á og segjast ætla að bíða eftir að framvarpið liggi endanlega fyrir. Eftir því hefur lengi verið beðið, að Japansstjóm komi bankakerfinu til hjálpar enda er það talin forsenda fyrir endurnýjuðu trausti á japanska íjármála- og bankakerfinu. Síðasthðin átta ár hefur það glímt við vaxandi út- lánatap með alvarlegum afleiðingum fyrir hagvöxt í landinu. Leiðtogar tveggja lítilla stjómar- andstöðuflokka, Heiwa Kaikaku og frjálslyndra, sögðu í gærkvöld, að þeir hefðu ákveðið að styðja Frjáls- lynda lýðræðisflokkinn í þvi að koma frumvarpinu í gegnum þingið. Fer það fyrir neðri deildina í dag og síðan fyrir öldungadeildina þar sem stjórn- aifiokkurinn þarf á stuðningi að halda. Nokkrir fjármálasérfræðingar sögðu, að þótt frumvarpið virtist skynsamlegt, vildu þeir sjá það ger- ast í raun, að skilið væri á milli illa staddra en lífvænlegra banka og þeirra, sem ekki væru það. VOLVO V70 Station árgerð 1998, ekinn 7 þ. km. Svartur, sjáltsk., leðurinnr. Einn glæsilegasti Volvo landsins. Verð kr. 3.490.000. BMW 520 I árgerð 1989. Vínrauður, mikiö gegnumtekinn. Tilboðsverð 790.000. M. BENZ E 230 Classic árgerð 1997. Ekinn 13 þ. km, dökkblár, sjálfskiptur, topplúga, 18" AMG-álfelgur ofl. Verð kr. 3.970.000. NISSAN TERRANO II SE árgerð 1998. Ekinn 25 þkm. Blár/tvílitur, 31" dekk, topplúga, o.fl. Verð kr. 2.550.000. NISSAN MICRALxi árgerö 1998. Ekinn 4 þ. km. Silfurgrár, rafm.rúður, CD, þjófavörn ofl. Verð kr. 950.000. SSANGYONG MUSSO - NÝR Turbo diesel intercooler 2,9, silfurgrár, sjálfsk., abs, spólvörn o.fl. Verð kr. 2.980.000. SUBARU IMPREZA GL 4WD árgerð 1996 Ekinn 38 þ. km., dökkgrænn Verð kr. 1.450.000. Ekinn 5-15 þ. km., sjálfskiptur. Verð kr. 1.550.000. Útborgun adeins 350.000. MAZDA 323 FGLX árgerö 1998 Ekinn 5 þ. km. Steingrár gullmoli. Verð kr. 1.380.000. EINN MESTI GLÆSIVAGN LANDSINS MERCEDES BENS S 280 árg. 1995 Ek. 76 þ. km, svartur, sjálfskiptur, leðurinnr. Hlaðinn aukabúnaði. Verð kr. 6.500.000. BÍLASALAN SKEIFAN BÍLDSHÖFÐA 10, 112 REYKJAVÍK SÍMI 587 10OO, FAX 587 1007 NÝIR BÍLAR NOTAÐIR BÍLAR F0RD EC0N0LINE 350 CLUBWAGON Árgerð 1997, ekinn 17 þ. km, 11 manna, abs, driflæsing o.fl. Verð kr. 3.200.000. R0VER MINI C00PER 1,3 árg. 1995 Ek. 27 þ. km, grænn, álfelgur, viðarinnr. TILB0ÐSVERÐ kr. 780.000.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.