Morgunblaðið - 13.10.1998, Page 33

Morgunblaðið - 13.10.1998, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 33 LISTIR LEIKLIST ÞjóiJIeikliúsið SOLVEIG eftir Ragnar Arnalds. Leikstjóri: Þór- hallur Sigurðsson. Leikarar: Vigdís Gunnarsdóttir, Þröstur Leó Gunnars- son, Pálmi Gestsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Baldur Trausti Hreinsson, Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir og Sigurður Skúlason. Leikmynd og bún- ingar: Grétar Reynisson. Lýs- ing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson. Tónlistarumsjón og hljóðstjórn: Sigurður Bjóla. Stóra sviðið laugar- daginn 10. október. SAGAN af Miklabæjar- Solveigu og hvarfí séra Odds hefur lifað með þjóð- inni í rúmar tvær aldir og hafa margir sótt til hennar efnivið og innblástur til list- sköpunar. Einna þekktast er líklega magnað kvæði Einars Benediktssonar sem hann orti um hvarf Odds í upphafi skáldferils síns, að- eins tuttugu og fimm ára gamall. Ragnar Arnalds notfærir sér þessa ágengu og dularfullu sögu og skáld- ar af list í allar eyðurnar sem þjóðsagan og munn- mælin skilja eftir um sam- band þeirra Solveigar og Odds. Merkingarbær „eyða“ blash’ við þegar skoðuð er kirkjubók Mikla- bæjarkirkju frá þeim tíma sem þau Solveig og Odd voru uppi, en nöfn þeirra tveggja hafa verið máð úr bókinni: Dauða séra Odds er hvergi getið og þar sem nafn Solveigar ætti að standa er gat, klippt hefur verið lít- ið stykki úr einu blaði bókarinnar. Slík tilraun til að afmá tilveru ungrar konu sem elskaði í trássi við lög og reis upp gegn kirkju og yfir- valdi með því að taka líf sitt (og seinna líf séra Odds, samkvæmt þjóðtrúnni) gefur sannarlega rúm fyrir hugarflug og túlkun af ýmsum toga - eins og dæmin sanna. Sú túlkunarleið sem Ragnar Arnalds fer í verki sínu er bæði eftirtektar- verð og spennandi um leið og hún lýtur lögmálum klassískra sagna- munstra. Hann dregur upp mynd af ástum tveggja einstaklinga sem ná út yfir gröf og dauða; ástum sem umhverfi og yfirvaldi tekst ekki að bæla þrátt fyrir harkalega valdbeit- ingu og kúgun. I því „drama“ er Solveig aðalpersónan, sú sem býður valdinu byrginn og lætur fyrir líf sitt. En þrá hennar er sterkari en svo að jarðardauðinn fái bælt hana, því dauð skal hún njóta séra Odds ef ekki kvik. Þessi þráður ofinn úr þrá og þráa er sá gildasti í verki Ragnars og sá sem er í forgrunni. Hér er stillt upp einstaklingi gagnvart valdi, konu og ástinni gagnvart refsandi feðraveldi, en saman við þann sterka þráð eru ofnir aðrir þræðir sem kalla fram mynd af at- hyglisverðum tíma í sögu þjóðar- „Dauð skal ég njóta þín SAMLEIKUR þeirra Þrastar Leós og Vigdísar er mjög góður, segir m.a. í umsögninni. Morgunblaðið/Þorkell innar. Þetta er tími umskipta í hugsunarhætti og aldarfari, tími þar sem upplýsingin og trúin á framfarir mætir afturhaldi og hjá- trú. I bakgrunni búa svo hinar landlægu hörmungar, fátækt og farsóttir, kuldatíð, hungursneyð og hinn óhjákvæmilegi dauði sem ógn- aði meiri hluta þjóðarinnar á síðari hluta 18. aldar. Ragnar Arnalds fer vel með þennan frjóa efnivið verks síns. Texti hans er bæði þéttur og djúpur og býr yfir ýmsum tákn- rænum skírskotunum. Ragnar hef- ur skrifað leikrit sem ég trúi að eigi ágætt framhaldslíf fyrir hönd- um. Uppsetning Þjóðleikhússins á Solveigu er í flesta staði vel heppn- uð. Með titilhlutverkið fer Vigdís Gunnarsdóttir og er túlkun hennar á Solveigu mjög sannfærandi og áhrifarík. Vigdísi tekst að skapa persónu sem er trúverðug í ást sinni og von sem og í örvæntingu sinni og sturlun. Þetta er flókið og erfitt hlutverk sem spilar á alla strengi tilfinningaskalans og sýnir Vigdís vel hvers hún er megnug með leik sínum. Þröstur Leó Gunn- arsson hefur oft sýnt að hann á heima í úrvalshópi íslenskra leik- ara. Hann fer fagmannlega með hlutverk séra Odds, en örlítið trufl- aði það undirritaða hversu útlit hans og burðir stangast á við þá mynd sem þjóðsagan dregur upp af Oddi („heljarmenni að burðum"), svo og handrit Ragnars („hár og mikill maður“). Þröstur Leó túlkaði hins vegar vel vanmátt séra Odds gegn valdi kirkju og fóðurs - og síð- ar eiginkonu sinnar - og þann ótta sem heldur honum í heljargreipum eftir að Solka fer að ásækja hann afturgengin og allt þar til hann sameinast henni í eilífðinni. Sam- leikur þeirra Þrastar Leó og Vig- dísar var og mjög góður. Það er hins vegar í samskiptum Solveigar og Vigfúss sýslumanns sem átök í verki og leik kristallast hvað best. Pálmi Gunnarsson leikur Vigfús og er hlutverkið bæði skemmtilegt og þakklátt. Vigfús er kostuleg týpa frá höfundarins hendi; hann er hinn bjartsýni upp- lýsingarmaður 18. aldarinnar holdi klæddur um leið og hann lætur stjórnast fullkomlega af samfélags- legu valdi konungs og trúarlegum kreddum. Og áður en lýkur hefur hann einnig smitast af draugatrú almennings sem hann keppist við að hæðast að og fordæma framan af. I persónu sýslumanns er einnig fólgið kómískt mótvægi við harm- rænan þráð verksins sem eykur bæði breidd þess og skemmtigildi. Pálmi náði vel utan um hina skop- legu hlið persónunnar (sem engan skyldi undra) og ekki var hann síðri í túlkun á harðneskjulegri fram- komu sýslumanns gagnvart hinni lánlausu Solveigu, framkomu sem á rætur sínar að rekja til persónu- legra forsendna framar öllum lag- anna bókstaf. Hjalti Rögnvaldsson fer með hlutverk Hólabiskups, fóður Odds, og er fagnaðarefni að sjá hann á stóra sviði Þjóðleikhússins eftir all langt hlé. Hjalti hefur einstaka nærveru á sviði og hljómmikla rödd og hvort tveggja nýtist honum ákaflega vel þegar túlka skal sjálft feðraveldið holdi klætt, eins og hér um ræðir. Hjalti var frábær í hlut- verki hins valdamikla biskups og einnig sýndi hann vel þau sálrænu átök sem verða á milli fóðurtilfinn- inganna, annars vegar, og hins fonnlega hlutverks yfirvaldsins, hins vegar, þegar hann stendur frammi fyrir hvarfi einkasonar síns og þeim sögusögnum sem því fylgja. Olafía Hrönn Jónsdóttir leikur Guðrúnu eiginkonu Odds. Guðrún er samkvæmt handriti þó nokkru eldri en eiginmaðurinn og hefur hann valið hana sem konuefni gegn ráðum fóður sínum, honum til storkunar, þar sem hann fékk ekki að eiga Solveigu: Fremur versta kostinn en þann næst besta. Þór- hallur Sigurðsson, leikstjóri, velur að leggja hlutverk Guðrúnar upp á skoplegan máta (handritið hefur ekki þessa áherslu) og í þeim anda sjáum við hjónaband þeirra Odds. Þau verða n.k. „litli og stóri“, kunn- ugt par ándstæðna úr skopleikjum þar sem stóra, feita konan (stærð og þyngd hennar aukin með því að hafa hana kasólétta mestan part leiksins) kúgar hinn pasturslitla og óttaslegna maka sinn. Ólafía Hrönn leikur hlutverkið átakalaust og er ekki laust við að hún felli það um of að þeim gríntýpum sem hún er kunn fyrir úr dægurskemmtibrans- anum. Þetta á sérstaklega við um leik Ólafíu framan af en bráir nokk- uð af henni undir lok leiksins, þar tókst henni að dýpka persónuna til muna. Nokkuð undir sömu sök seld eru hlutverk vinnukon- unnar Imbu (Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir), vinnumann- anna Þorvalds (Sigurður Skúlason) og Sigurjóns (Baldur Trausti Hreinsson). Sá síðamefni sækir gervi sitt nokkuð til kolbítsímynd- ar þjóðsagnanna um leið og hann reynir að rísa upp gegn valdi sem er honum þó ofviða. Imba gamla er klass- ísk klisja íslenskra bók- mennta, Grasa-Guddan hjá- trúarfulla, hokna og hlægi- lega, og gerir Lilja Guðrún vel innan þess ramma sem henni er úthlutaður. Sigurð- ur Skúlason og Baldur Trausti náðu ágætlega að draga fram hversu vinnu- hjúin eru ofurseld duttlung- um húsbændanna. Þótt finna megi að því hvernig leikstjórinn leggur upp einstök (auka)hlutverk er heildarútkoman áhrifa- rík. Sérstaklega er magnað- ur draugagangurinn og hygg ég að flestum leikhús- gestum hafi runnið kalt vatn milli skinns og hörunds þegar Solveig fer íyrst á kreik eftir dauðann. Hér hefur mikið vægi geysilega vel heppnuð tónlistarhönnun Sigurðar Bjólu svo og lýsing Björns Berg- steins Guðmundssonar. Hvort draugagangurinn er „raunveruleg- ur“ eða „voveifleg mynd - vakin af mannsins minni“ (eins og Einar Ben. orðar það) er opið til túlkunar. Fyrst og fremst er hann þó kannski tákn um það hvernig bældar tilfinn- ingar brjótast í gegn um vitund manna og valdboð samfélags. Búningar Gretars Reynissonar hafa sterkan heildarsvip og tákn- rænan, svarti liturinn er allsráð- andi. Eg gæti trúað að stílfærð leik- mynd Gretars færi hins vegar nokkuð fyrir brjóstið á þeim sem eru hallir undir natúralisma og raunsæi í umgjörð. Fyrir mitt leyti virkaði sviðsmyndin vel, sérstak- lega kom vel út baksviðið sem gaf ágæta tilfinningu fyrir dýpt á svið- inu. Einstaka senur voru flottai’ fyrir augað ekki síður en önnur skilningarvit. Solveig er mikilvægur áfangi á rithöfundarferli Ragnars Arnalds og sýning Þjóðleikhússins er áhrifarík og vekur alls konar til- finningar og hugleiðingar. Þetta er ennfremur sýning sem ætti að geta höfðað til ólíkra áhorfendahópa og ólíkra kynslóða. Soffía Auður Birgisdóttir Námskeið um ritlist ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands heldur námskeið um ritlist næstu sjö fímmtudaga og hefst það fyrsta 15. otkóber kl. 20.15. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja kynnast aðferðum skáldskap- arins. Farið verður yfir grundvall- aratriði frásagnarlistar. Eðli og áhrif mismunandi frásagnaraðferða (1. pers. eða 3. persónufrásögn), far- ið í gegnum hefðbundna byggingu verks i lausu máli, persónusköpun, stíl og málnotkun. Lesnar smásög- ur, sögukaflar og greinar til útskýi’- ingar og innblásturs. Þátttakendur gera uppkast að sögu og ræða rit- smíðar hversannars. Kennari verður Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur. Nýjar hljdmplötur Ljóð Steins Steinars • HEIMURINN og ég hefur uð geymu 12 lög við Ijóð Steins Steinars. Hún er gef- in út í tilefni þess að í dag, 13. október, hefði Steinn Steinair orðið 90 ára. A plötunni ei'u tólf lög, þar af fimm ný. Auk laganna voru felldar inn upptökur áðurgefnar út á plöt- unni Tíminn og vatnið þarsem Steinn les ljóð sín Tíminn og vatnið, Landsýn, Col- umbus, Malbik og í kirkjugarðinum. Steinn Steinarr A plötunni syngja KK og Magnús Eiríksson lagið Hud- son bey. Helgi Björnsson syngur lagið Þjóðin og ég. Ellen Kristjánsdóttir syngur nýtt lag eftir Jón Ólafsson við Passíusálm no. 51. Björn Jr. Friðbjörns- son syngur lagið Ræfilskvæði. Páll Rósinkranz syngur nýtt lag eftir Steinar Berg Isleifsson við Ijóðið Heimurinn og ég og eldra lag við ljóðið Barn. Valgeir Guðjónsson syngur nýtt lag efth- sig við ljóðið Vísur að vestan. Valgerður Guðna- dóttw syngur nýtt lag eftir Jón Ólafsson við ljóðið Lát huggast. Helgi Björnsson syngur lagið Mið- vikudagur. Pálmi Gunnarsson syngur lagið Verkamaður. Edda Heiðrún Backman syngur lagið Það vex eitt blóm fyrir vestan og Björn Jr. Friðbjörnsson syngur nýtt lag sitt við ljóðið I kirkju- garði. Heimurinn og ég er gefin út af Spor ehf. Jón Olafsson stjórnaði upptökum. Verð 2.099 kr. „Tíminn og vatnið" (Steinn Steinarr les eig- in ljóð) var áður gefið út af SG. Nýjar bækur • ÍSLENSKIR fuglar er meðal út- gáfubóka Vöku-Helgafells, en höf- undar eru Ævar Petersen, fugla- fræðingur og forstöðumaður Reykjavíkurseturs Náttúrufræði- stofnunar Islands og Jón Baldur Hlíðberg, myndlistarmaður. í kynningu segir að unnið hafi verið að bókinni allt frá árinu 1987 og er þetta langviðamesta útgáfu- verk forlagsins til þessa. í bókinni eru lýsingar á 108 tegundum villtra fugla á Islandi. Þetta er fyrsta yfir- litsrit sem íslenskur vísindamaður á sviði fuglafræða ritar og þar er að finna allar tegundir fugla sem verpa reglulega eða hafa orpið í landinu. Bókina prýða yfir 400 vatnslita- myndir af fuglum. Aldrei fyrr hefm- verið gefið út jafnviðamikið og heil- steypt safn teikninga af íslenskum fuglum og hér kemur fyi’ir almenn- ingssjónir, segir ennfremur í kynn- ingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.