Morgunblaðið - 13.10.1998, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
STEFAN
LÚÐVÍKSSON
+ Stefán Lúðvíks-
son var fæddur
23. mars 1980.
Hann lést 4. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Vídalínskirkju í
Garðabæ 9. októ-
ber.
Vissirðu hvað mér þótti
vænt um þig?
Vissirðu hvað mig langaði
að hjálpa þér mikið?
Vissirðu hvað ég hugsaði
mikið til þín?
Vissirðu hvað þú
varst mér góður vinur?
Og þú munt alltaf vera það
allt mitt líf, þótt þú sért
ekki héma hjá mér.
(Berglind Heiða.)
Elsku Stebbi minn. Nú ertu kom-
inn á þann stað þar sem við öll hitt-
umst um síðir.
Ég trúi því ekki að þú sért farinn
og ég eigi aldrei eftir að hitta þig
eða tala við þig í síma. Þú varst ný-
búinn að hringja í mig nokkrum
dögum áður en þetta hörmulega
slys varð, og þá varstu svo hress og
kátur og fyndinn eins og þú varst
alltaf. Þú gast alltaf komið manni í
gott skap, því þú varst alltaf svo
hress og kátur. Ég á eftir að sakna
þess mikið að fá aldrei að heyra í
þér aftur og heyra hlátur þinn og
gleði yfir lífinu. En ég veit og trúi
því að við eigum eftir að hittast aft-
ur, þegar mínu lífi lýkur hér á jörð,
og þá veit ég að við höfum um
margt að spjalla. Það var svo gott
að tala við þig og ræða málin, elsku
vinur, ég geymi allar góðu minning-
arnar um þig í hjarta mínu og þær
stundir sem við áttum saman.
Ég bið Guð að
geyma þig og varð-
veita, elsku Stebbi
minn. Ég bið Guð að
blessa foreldra þína og
systkini og elsku litla
drenginn þinn og gefa
þeim styrk og kraft í
þeirra miklu sorg. Við
sjáumst síðar. Guð
geymi þig alltaf, elsku
vinur.
Þín vinkona,
Berglind Heiða.
Ég get ekki lýst því
hvernig mér leið þegar Denna móð-
ir þín hringdi í mig og tilkynnti mér
lát þitt. Þá byrjaði ég að rifja upp
gamlar minningar.
Manstu eftir því þegar við vor-
um yngri og á leiðinni í skólann
þegar þú vaknaðir klukkan 5 og
hljópst til mín og varst svo æstur
yfir því að við værum að verða of
sein í skólann og pabbi svaraði ýkt
pirraður þegar þú komst og sagði
að þú ættir nú að fara heim og sofa
því klukkan væri bara fimm, þú
stóðst alltaf hálfsofandi í dyrunum.
Og stundum komstu klukkan sjö,
þá bauð pabbi þér inn og bauð þér
upp á morgunmat og þú þáðir það.
Ég man líka að þú varst sá fyrsti
sem ég kynntist þegar ég var ein
og ný. Þú varst mjög hress og
skemmtilegur leikfélagi þótt þú
gætir nú stundum verið algjört
„pain“ en enginn er fullkominn, er
það nokkuð? Ég sé núna hvað lífið
getur verið fáránlega stutt og
maður ætti kannski að fara að
njóta þess meira að vera til. Ég
mun sakna þess að geta ekki hitt
þig aftur og spjallað við þig. En nú
hefurðu það ábyggilega æðislega
gott á öðrum stað og fylgist með
litlu krúsidúllunni þinni og henni
Lindu þinni.
Elsku Denna, Dóri, Sigurrós og
Elli, Lúðvik og fjölskylda þín. Þið
hafið alla mína samúð.
Jónea Haraldsdóttir.
Ég ætlaði aldrei að trúa þessu og
get varla ennþá, því mér finnst þú
ekki vera farinn, heldur að ég þurfi
bara að drífa mig í að hringja í þig
og athuga hvernig þér líður. Er ég
hugsa til þín verða tilfinningarnar
dofnar og ég fæ engan botn í þetta,
sama hversu mikið ég hugsa um
þig-
Stebbi nágranni sem kom alltaf
yfir til að spjalla og sprella, fá lánuð
Andrésblöð eða hreinlega til að
létta á hjartanu og hjálpa mér að
létta á mínu.
Ég man hvað mamma var alltaf
að reyna að fá þig til að banka á
undan þér, en þú glottir bara á þinn
einstaka hátt, því þú vissir jafnvel
og ég og mamma að þetta var eins
og þitt annað heimili hjá okkur í
Snæfelli og þú varst alltaf velkom-
inn.
En leiðh- okkar allra liggja í
margar áttir og eins var með okkar
leiðir, sem lágu hvor í sína áttina,
en alltaf trúði ég að þær myndu
liggja saman aftur og við yrðum
eins og þegar við vorum í grunn-
skóla, en það verður víst ekki í
þessu lífi.
Dauðinn kom til þín án þess að
banka á undan sér, óvelkominn og
tók þig frá okkur alltof fljótt. Ég
mun alltaf sakna þín og biðja fyrir
þér.
Ég votta Lindu, syni þínum, for-
eldrum og öllum nákomnum mína
dýpstu samúð og vO segja þeim að
mín eina huggun er, að þeir deyja
víst ungir sem guðirnir elska.
Þín vinkona,
Nanna María.
ÍRIS
EGGERTSDÓTTIR
+ íris Eggertsdóttir fæddist á
Akranesi hinn 24. nóvember
1971. Hún andaðist á Heilbrigð-
isstofnun Suðumesja 5. október
og fór útför hennar fram frá
Keflavíkurkirkju 10. október.
Ég man það mjög vel er ég hitti
Irisi í fyrsta sinn fyrir rúmum
tveimur árum. Ég stjórnaði þá
breytingum á versluninni Járn og
skip í BYKO Suðurnes, en þar hafði
Iris starfað frá því á unglingsárum
að frátöldum þeim tíma er hún
eignaðist son sinn og vann eitt
misseri í Apótekinu í Keflavík. En
gamli samheldni og eldhressi sam-
starfshópurinn togaði Irisi aftur til
sín. Ég skynjaði bæði ánægju og
tilhlökkun gömlu vinnufélaganna
vegna endurkomu írisar. Og þarna
var hún komin í heimsókn með son
sinn Einar Má; ljóshærð og falleg,
hress og tíguleg. Ég tók strax efth-
því að hún var einstaklega snyrtileg
og hældi því hversu snyrtilegur
drengurinn væri, en í kuldakastinu
sem þá var voru flest sandkassa-
börn með menjar kvefs um allt and-
lit. Það hnussaði í Irisi og um leið
og hún reyndi að leyna glottinu
hreytti hún í mig að það væri nú
skárri aumingjaskapurinn að hirða
ekki almennilega um bömin. Þetta
var kannski eitt megineinkenni
Irisar, hrein og bein og sagði skoð-
un sína umbúðalaust. Það gerði hún
svo skemmtilega að við vinnufélag-
ar hennar og fastir viðskiptavinir
verslunaiinnar sóttum í félagsskap
hennar. Við skutum á hana jafnvel
óprenthæfum athugasemdum um
eitt og annað til þess að fá
skemmtileg andsvör hennar, sem
aldrei stóð á. Iris var mikil dama í
sér en þó svo mikill húmoristi að
henni tókst ekki að leyna glottinu
þrátt fyrir að hún þættist stór-
hneyksluð. Þar sem BYKO var að
hefja rekstur á nýjum slóðum var
það hvalreki að fá hana til starfa
vegna mikillar þekkingar á starf-
seminni og heimamönnum. Iris var
gjaldkeri og frábærlega hæf í því
starfi, afskaplega samviskusöm, ná-
kvæm og vildi hafa allt snyrtilegt
og í röð og reglu. Við vinnufélag-
arnir fengum það líka óþvegið, með
hennar hætti, hvaða skoðun hún
hafði á umgengni okkar á kaffistof-
unni og annars staðar og hvernig
hún héldi að það væri að búa með
okkur og hversu mikið hún vor-
kenndi konunum okkar. Að öðrum
ólöstuðum treysti ég henni best
allra á staðnum tii að halda utan
um lánsviðskiptin og allt pappírs-
flóðið í kringum það. Iris reyndist
traustsins verð og allt sem hún
gerði tók ég gilt eins og það kæmi
frá löggiltum endurskoðanda. Sam-
an settum við vinnufélagarnir upp
glæsilega stórverslun á mettíma en
vinnudagurinn var langur og því
kynntumst við vel. Þetta var mjög
skemmtilegur tími en svo dró ský
fyrir sólu. Aldrei gleymist mér sá
dagur íyrir rúmu ári þegar íris
settist inn á skiúfstofu til mín og
sagðist þurfa í veikindaleyfi því hún
hefði fengið slæma læknisskoðun
og væri ef til vill með krabbamein.
Hún var furðulega róleg og yfirveg-
uð en samt ljóst hver hætta henni
var búin. Við ræddum lengi saman
og vonuðum að ef hún reyndist með
krabbamein, þá yrði það skurðtækt
og síðan úr sögunni. Því miður er
nú annað komið á daginn. Eins og
venjulega var samviskusemin söm
við sig og hún virtist þá jafnvel hafa
meiri áhyggjur af því hvernig starf-
seminni reiddi af á meðan hún væri
í burtu. Meh-a að segja daginn sem
hún fékk hina þungbæru greiningu
lét hún mann sinn færa mér frétt-
irnar með þeim orðum að strax
þyrfti að gera viðeigandi ráðstafan-
h’ í starfsmannamálum. Slík var
samviskusemin.
Ég veit að írisar verður sárt
saknað af vinnustað af viðskiptavin-
um og vinnufélögum. Við hin sem
kynntumst henni en hurfum til ann-
ara starfa sendum einnig hlýjar
hugsanir til Sigga og Einars Más
sonar þeirra og annarra aðstand-
enda. Blessuð sé minning Irisar
Eggertsdóttur.
Viggó Jörgensson.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekm- afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina
inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-
4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt
til þrjú erindi. Greinarhöfundai’ eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru bh-tar greinar
um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 53
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Barna- og
unglingastarf
í Neskirkju
EINS og undanfarin ár verður fjöl-
breytt barna- og unglingastarf í
Neskirkju í vetur.
Barnaguðsþjónustur eða sunnu-
dagaskólinn er á hverjum sunnu-
degi kl. 11 en kirkjan opnar kl. 10
og er þá aðstaða fyrir börnin til að
lita og fóndra.
A sama tíma er í kirkjunni starf
fyrir átta til níu ára börn og er það
sniðið sérstaklega fyrir þarfir þess
aldurshóps og aðgreint frá sunnu-
dagaskólanum. I þessum hóp er far-
ið í leiki, sungið, föndrað og jafnvel
farið í ferðir.
Þá er einnig hafið á mánudögum
kl. 17 í kirkjunni starf TTT sem er
starf fyrir níu til tólf ára eins og
skammstöfunin segir til um, eins og
með hina hópana er reynt að höfða
sérstaklega til þeirra aldurs og
starfið haft fjölbreytt og lifandi.
Starfsfólk bamastarfs Neskirkju
hefur allt langa og mikla reynslu í
starfi með börnum og vinnur ötul-
lega í þessum mikilvæga málaflokki,
en öll böm á þessum aldri eru hjart-
anlega boðin velkomin til starfsins
og jafnframt hvött til að mæta. All-
ar nánari upplýsingar era veittar í
Neskirkju.
Kirkjukrakkar
í Grafarvogs-
kirkju
KRISTNU bamastarfi fyrir böm
7-9 ára (2.-4. bekkur) hefur verið
hleypt af stokkunum í Grafarvogs-
sókn. Starf þetta er á þriðjudögum
frá kl. 17-18 í Rimaskóla. Ætlunin
er að hafa forvarnir í ýmsum mynd-
um sem aðalefni vetrarins. Á fund-
unum er sungið, spjallað, farið í
leiki og gestir koma í heimsókn.
Þannig er efni hvers fundar fært í
skemmtilegan búning fyrir krakk-
ana.
Um er að ræða góða og upp-
byggilega skemmtun krökkunum að
kostnaðarlausu. Allir velkomnir,
sjáumst hress á þriðjudögum.
Islenska Krists-
kirkjan með
námskeið
ÍSLENSKA Kristskirkjan mun
halda námskeið um hjónaband og
sambúð að Bíldshöfða 10, Reykja-
vík, næstu 3 fimmtudagskvöld kl.
20-23. Svipuð námskeið hafa á und-
anförnum árum verið haldin á veg-
um Fjölskyldufræðslunnar (Ungs
fólks með hlutverk) víða um land
með norska fjölskylduráðgjafanum
Eivind Fröen. Efni þessa nám-
skeiðs verður svipað. Kennt verður
hvernig við getum talað saman án
þess að særa hvert annað. Fjallað
um tilfinningar og mun á körlum og
konum. Hvað um væntingar til
makans sem ekki ganga eftir? Hvað
orsakar leiða í kynh'finu? Hver era
tengslin milli ástar og þess að mæta
þörfum hvort annars? Hvernig má
forðast hjónaskilnað?
Kennslan fer fram í fyrirlestrum,
tveimur hvert kvöld. Milli fyrir-
lestranna er kaffihlé. Tækifæri
gefst til fyrirspurna. Enginn þátt-
takenda þarf að tjá sig um eigið
hjónaband. Öllum er heimil þátt-
taka, giftu fólki, fólki í óvígðri sam-
búð, fráskildum og þeim sem aldrei _
hafa gengið í hjónaband. Nám-
skeiðsgjald er 1.000 kr. á mann,
veitingar og námskeiðsgögn innifal-
in. Skráning í síma 567 8800. Upp-
lýsingar um námskeiðið er einnig
hægt að nálgast á heimasíðu ís-
lensku Ki-istskirkjunnar:
http://www.mmedia.is/kristskirkjan.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð-
ur. Samverustund foreldra ungra
barna kl. 14-16. Fundur í æskulýðs-
félaginu kl. 20.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl.
20.30.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningalestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára
börn kl. 17.
Laugarneskirkja. Fullorðins-
fræðsla kl. 20. „Þriðjudagur með
Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðar- og
bænastund.
Seltjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimili kl. 10-12. Æsku-
lýðsfundur 10. bekkjar og eldri kl.
20-22.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænarefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi, léttur hádegisverð-
ur, helgistund og fleira. Æskulýðs-
starf kl. 20.
Feila- og Hólakirkja. Starf fyrir
9-10 ára stúlkur kl. 17.30.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar,
opið hús kl. 13.30. Söngur, spil,
spjall og veitingar. „Kirkjukrakkar"
í Rimaskóla. Börn 7-9 ára kl.
17.30- 18.30. KFUM fyrir drengi
9- 12 ára kl. 17.30-18.30. Æskulýðs-
starf fyrir 8. og 9. bekk kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18. Prédikunarklúbbur
presta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigurjóns
Árna Eyjólfssonar.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðai’heimihnu Borgum í dag kl.
10- 12.
Fríkirkjan í Hafnarfírði. Opið hús
fyrir 7-9 ára börn frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri .
borgara í Kirkjuhvoli milli kl. 13-16
alla þriðjudaga í sumar.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 8-9
ára börn kl. 17-18.30. Aftansöngur
og fyrirbænir kl. 18.30.
Ilafnarfjarðarkirkja. TTT starf
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonar-
höfn Strandbergs. Kristin íhugun í
Stafni, Kapellu Strandbergs kl.
21.30- 22.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl.
14-16. Starfsfólk verður á sama
tíma í Kirkjulundi. Fermingarund-
irbúningur kl. 14.30-15.55 í Kirkju-
lundi.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
16.15-17 kirkjuprakkarar. Kirkju-
starf sjö til níu ára krakka. Kl. 17
æfingar hjá Litlum lærisveinum.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra föður,
SIGURÐAR HJARTAR
BENEDIKTSSONAR,
Frostafold 14.
Porbjörg Erla Sigurðardóttir,
Elín Sigurðardóttir,
Benedikt Sigurðsson,
Eiríkur Sigurðsson.