Morgunblaðið - 22.11.1998, Page 19

Morgunblaðið - 22.11.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998 19 Rússneskir tónar í Iðnó RÚSSNESK kammer- og leik- hústónlist verður í brennipunkti á tónleikum kammerhópsins Camer- arctica og gesta hans í Iðnó næst- komandi þriðjudag. Flutt verða verk eftir Stravinsky, Prokofíev og Snittke. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og standa í klukkustund. Armann Helgason, klarínettu- leikari og félagi í Camerarctica, segir tiigang tónleikanna að gefa fólki tækifæri að fá innsýn í rúss- neska leikhús- og kammertónlist og bera saman verk Stravinskíjs frá ólíkum tímum en hann er einmitt fyrirferðarmestur á efnis- skránni. „Fólk hrífst af Stravinskíj - hann hittir alltaf í mark.“ Flutt verða þrjú verk eftir Stra- vinskíj í Iðnó: Svíta úr leikritinu Sögu dátans fyrir klarínettu, fiðlu og píanó, einleiksverk fyrir klarí- nettu og Septett íyrir píanó, blás- ara og strengi. Ái-mann segir tónlistina úr Sögu dátans alla tíð hafa notið mikilla vinsælda. Þar notaði Stravinskíj meðal annars djass í fyrsta sinn í verkum sínum, auk þess sem áhrifa gætir frá argentínskum tangó, þjóðlagastefjum og Vínar- völsum, svo dæmi séu tekin. Septettinn er aftur á móti mjög klassískt Stravinskíj-verk, að sögn Armanns, „ekta Stravinskíj“, og fyrir vikið gott mótvægi við svít- una. Einleiksverkinu lýsir Armann síðan sem stemmningsverki, þar sem klarínettan sé notuð til hins ýtrasta. „Þetta er þekktasta og mest spilaða einleiksverk klarí- nettubókmenntanna." Tónleikarnir hefjast á Forleik um gyðingalög eftir Sergej Prokofíev, fyrir klannettu, strengi og píanó. Segir Armann verkið með rómantísku tfírbragði og að því leyti ólíkt verkum Stravinskíjs en þessir tveir menn eru, að áliti Ái-manns, helstu meistarar rúss- neskrar tónsmíðasögu, ásamt Sjostakovítsj. - Þá verður leikinn í Iðnó strengja- kvartett í einum þætti eftir Alfred Snittke, sem lést nýverið. Var hann saminn árið 1977 í minningu Stra- vinskíjs. „Þetta er hægferðugt keðjulag en Snittke er eitt mest spennandi tónskáld sinnar kynslóð- ar. Það er því gaman að geta kynnt hann á þessum tónleikum." Armann segii- öll verkin fimm eiga það sameiginlegt að stuttir þættii- séu ráðandi og flytjendur þurfi að koma ákveðinni stemmn- ingu til skila. Fyrir bragðið sé þetta krefjandi tónlist í flutningi en þó létt áheyrnar. Þykir honum „andrúmsloftið" í Iðnó henta tón- listinni vel, þar sé leikhús, auk þess sem flest verkanna á efnis- skránni séu samin rétt eftir að Iðnó var byggt. Camerarctica skipa, auk Ár- manns, Sigurður Halldórsson Morgunblaðið/Árni Sæberg CAMERARCTICA ásamt gestum sínum á tónleikunum í Iðnó. Á mynd- ina vantar Sigurlaugu Eðvaldsdóttur. sellóleikari, Hildigunnur Halldórs- dóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikarar og Guðmundur Krist- mundsson víóluleikari. Gestir þeirra verða Rúnar Vilbergsson fagottleikari, Emil Friðfinnsson homleikari og Miklós Dalmay píanóleikari. HUNDUR í óskilum: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Lög Cole Porters á Múlanum DJASSTRÍÓIÐ Svartfugl leikur á Múlanum, annarri hæð Sólons Is- landusar, í kvöld, sunnudag kl. 21. Tríóið skipa Sigurður Flosason saxófónleikari; Björn Thoroddsen gítarleikari og Gunnar Hrafnsson bassaleikari. Á tónleikunum flytur tríóið ým- is meiri og minni háttar þekkt lög eftir Cole Porter. Lögin verða flutt í útsetningu meðlima tríós- ins. TRÍÓIÐ Svartfugl skemmtir á Múlanum í kvöld. ys og þys á ys.is Gjörðu svo ve! að ganga í bæinn Fram til 5. des. fær hundraðasti hver gestur á ys.is ókeypis áskrift að Bíórásinni eða Sýn í desember.* A ys.is getur þú kynnt þér dagskrá Stöövar 2, Sýnar, Bíórásarinnar og Fjölvarpsins. Þú sérð 19-20 í beinni og getur fylgst með útsendingu Bylgjunnar. Þú kynnir þér áskriftarkosti og skoðar hvaða íþróttaútsendingar eru fram- undan. Þú nærð sambandi við þáttagerðarmenn og kemst beint á heimasíóur vinsælustu þáttanna. www.ys.is ©

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.