Morgunblaðið - 22.11.1998, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Sykora
Stangassinger
Buraas
Jagge
Furuseth
Kimura
Kosir
Stiansen
Bourgeat
Chenal
í sviðsljósinu
Miklavc
Ámodt
Tescari
Amiez
THOMAS Sykora frá Austurríki
hlaut flest stig í heimsbikar-
keppninni í svigi síðasta tíma-
bil og er því efstur á heimslist-
anum þegar nýtt keppnistíma-
bil í svigi hefst í Park City í
dag sunnudag. Landi hans,
Thomas Stangassinger, er
annar og norski ólympíumeist-
arinn Hans-Petter Buraas
þriðji. Kristinn Björnsson er í
15. sæti og er því síðasti mað-
ur inn í fyrsta ráshóp, þ.e.a.s.
ef allir mæta sem eru fyrir of-
an hann á heimslistanum.
Fyrsta ráshóp er skipt í tvo
flokka þegar rásnúmer eru
dregin út fyrir keppni. Þeir sem eru
númer eitt til sjö á
heimslistanum eru
dregnir út fyrst og
fá rásnúmer frá 1 til
7. Síðan eru þeir
dregnir út sem eru frá 8 til 15 á
heimslistnaum. Eftir það ræður
staða skíðamanna á heimslistanum
rásröð keppenda. Sá sem er númer
20 á listanum fær rásnúmer 20
o.s.f.v. Kristinn verður því með rás-
númer á bilinu 8 til 15 í Park City á
sunnudaginn.
Hér á eftir fer listi yfir helstu
keppinauta Kristins í vetur, sam-
kvæmt heimsbikarlistanum í svigi.
(heimsbikarstig í sviga):
1. Thomas Sykora,
Austurríki (581).
30 ára, frá Holzgau.
Hann hefur unnið
heimsbikarinn í svigi
tvö síðustu ár. Hann ____________
hefur níu sinnum sigr-
að í svigi heimsbikarsins og vann til
bronsverðlauna á ÓL í Nagano sl.
vetur.
Hann hefur eingöngu keppt í svigi
og verið í austurríska landsliðinu í
átta ár. Meiðlsi hans í hné í lok
október gætu sett strik í reikning-
inn hjá honum í fyrstu mótunum.
2. Thomas Stangassinger,
Austurríki (579).
33 ára, frá Bad Dúrnberg. Vann
þrjú heimsbikarmót í svigi í fyrra
og hefur unnið alls átta á ferlinum.
Hann ætlaði að hætta keppni eftir
síðasta tímabil en frestaði því um
eitt ár til að freista þess að verða
heimsmeistari í vetur. Hann varð
ólympíumeistari í svigi 1994. Hann
hefur verið með í heimsbikar-
keppninni síðan 1985.
3. Hans-Petter Buraas,
Noregi (543).
23 ára, frá Gjettum. Skaust upp á
stjömuhimininn sl. vetur er hann
varð ólympíumeistari í svigi. Hann
náði þrisvar sinnum öðru sæti í
heimsbikarnum, tvisvar þriðja og
tvisvar fjórða sæti. Hann þótti sýna
mikið öryggi og verður að teljst til
alls líklegur í vetur. Fyrir síðasta
tímabil hafði hann ekki náð að vera
á meðal 20 efstu.
4. Finn Christian
Jagge,Noregi (389).
32 ára, frá Stabæk. Varð ólympíu-
meistari í svigi 1992. Hann hefur
fjórum sinnum sigraði í svigi heims-
bikarsins og þar af einu sinni á síð-
asta ári, í Sestriere. Hann hefur
verið meðal keppenda í heimsbik-
amum síðan 1986. Hann hefur lýst
því yfir að þetta verði síðasta
keppnistímabil hans.
Helstu keppinautar Krístins
Reuters
KRISTINN stóð í fyrsta sinn á verðlaunapalli heimsbikarsins í Park City fyrir ári síðan. Hér óskar
austurríski ólympíumeistarinn Thomas Stangassingar honum til hamingju með árangurinn.
Eins og stormsveipur
KRISTINN Björnsson stal sen-
unni á heimsbikarmótinu í svigi
í Park City í Bandaríkjunum
fyrir ári er hann náði öðru sæti
þrátt fyrir að hafa haft rásnúm-
er 49. Arangur hans þótti einn
sá athyglisverðasti í heimsbik-
arnum síðasta keppnistímabil.
Hann fékk alla athyglina - kom
eins og stormsveipur fram í
sviðsljósið. Árangur hans þótti
mun merkilegri en að Ólympíu-
meistarinn Thomas Stangassin-
ger frá Austurríki hefði unnið,
enda sjötti sigur hans á heims-
bikarmóti og annar sigur hans í
Park City. Kristinn vann þarna
eitt mesta íþróttaafrek íslend-
ings og kom sér á stall með
bestu skíðamönnum heims.
Kristinn sagði í viðtali við
Morgunblaðið eftir mótið í
fyrra: „Atgangur fréttamanna
var slíkur að ég komst ekki úr
skíðaskónum fyrr en þremur
klukkutimum eftir að keppni
lauk. Eg sat fyrir svörum, í
sjónvarpi, útvarpi og síðan á
blaðamannafundi í tæpa klukku-
stund á meðan sigurvegarinn
Tliomas Stangassinger slapp
með nokkrar minútur. AHir
vildu fá að vita eitthvað um
þennan óþekkta skíðamann frá
íslandi sem stal senunni á mót-
inu.“
„Þegar ég vaknaði daginn eftir,
hélt ég að þetta væri draumur
en þegar ég sá úrslitin á nátt-
borðinu rann upp fyrir mér að
þetta var raunveruleiki. Eg
skoðaði úrslitin og sá alla þessa
skíðamenn sem ég hafði sigrað.
Þetta voru kappar sem ég hef
Iengi litið upp til. Nú var ég allt
í einu kominn í þeirra hóp.
Þetta er lygasögu líkast," sagði
hann.
Nú er Ólafsfírðingurinn
mættur til Park City í góðri æf-
ingu og freistar þess að endur-
taka leikinn frá í fyrra. Minn-
ingarnar eru altént góðar frá
Park City og nú búast margir
við meiru af honum en í fyrra
enda er hann kominn í fyrsta
ráshóp. Væntingarnar verða þó
að vera raunhæfar og rétt að
geta þess að hann er í 15. sæti á
heimslistanum. Samkvæmt því
ætti allt fyrir ofan 15 að vera
góður árangur. Eitt, er víst að
spennandi verður að fylgjast
með honum renna sér niður
brekkuna í Park City þar sem
hann sló svo eftirminnilega í
gegn fyrir ári.
Sjónvarpið verður með beina
útsendingu frá svigkeppninni í
dag sunnudag og hefst útsend-
ingin kl. 16.55. Þá verður sýnt
frá fyrri umferð og verður
Kristinn með rásnúmer frá 8-15.
Síðari umferðin hefst síðan kl.
20. Einnig verður sýnt beint frá
svigkeppninni á Eurosport.
Rásröð keppenda í síðari um-
ferð fer eftir árangri þeirra í
fyrri umferð. Aðeins 30 bestu
skiðamennirnir eftir fyrri um-
ferðina fá að fara niður í síðari
umferð og er rásröðinni snúið
við. Sá sem hefur besta tífnann
eftir fyrri umferð fer síðastur
niður í síðari umferð - til að
hafa spennuna sem mesta.
Urslitin í Park
City í fyrra
Úrslitin í sviginu í Park City í iyrra var
sem hér segir:
1. Thomas Stangassinger (Aust.)l: 39.21
(49.49/49.72)
2. Kristinn Bjömsson............1:39.31
(50.18/49.13)
3. Finn Chr. Jagge (Noregi).....1:39.34
(49.26/50.08)
4. Kjetil Andre Aamodt (Nor.)...1:39.42
(48.72/50.70)
5. M. Von Griinigen (Sviss).....1:39.63
(49.16/50.47)
6. Hans-Petter Buraas (Nor.).....1:39.81
(49.86/49.95)
7. Siegfried Voglreiter (Aust.).1:40.11
(48.73/51.38)
7. Sebastien Amiez (Frakki.)....1:40.11
(49.83/50.28)
9. Tom Stiansen (Noregi).........1:40.20
(49.87/50.33)
10. Fabrizio Tescari (Ítalíu)...1:40.30
(49.77/50.33)
5. Ole Christian
Furuseth, Noregi
(376).
31 árs, frá Osló. Hefur
unnið 5 heimsbikar-
mót í svigi og þrjú í stórsvigi. Varð
annar á ólympiuleikunum í sviginu í
Nagano. Hann var í öðru sæti í
stigakeppni heimsbikarsins 1990.
6. Kiminobu Kimura,
Japan (336).
28 ára, Saitama. Hefur verið með í
heimsbikarnum frá því 1994 og að-
eins einu sinni náð á verðlaunapall, í
Veysonnaz sl. vetur er hann varð í
þriðja sæti á eftir Kristni Bjöms-
syni. Kimura fótbrotnaði í sumar og
því ekki vist að hann verði með í
Park City á sunnudag.
7. Juri Kosir,
Slóveníu (257).
26 ára, frá Mojstrana. Hefur unnið
eitt svigmót, í Madonna fyrir fjórum
árum. Vann til bronsverðlauna í
svigi á ÓL í Lillehammer 1994.
Keppir bæði í svigi og stórsvigi.
Hefur tekið þátt í heimsbikarnum
síðan 1992.
8. Tom Stiansen,
Noregi (235).
28 ára, frá Osló. Hefur einnu sinni
unnið svigmót, í Breckenridge fyrir
tveimur árum. Hann er núverandi
heimsmeistari í svigi og varð fjórði á
ÓL í Naganó. Hann keppir einnig í
stórsvigi og hefur tvisvar sinnum
komist á verðlaunapall í þeirri grein.
9. Pierrick Bourgeat
,Frakklandi (215).
22 ára, frá Uriage. Hann er að hefja
þriðja árið í heimsbikarnum og þyk-
ir með þeim efnilegri í svigi. Hann
varð annar í sviginu í Kransjka Gora
sl. vetur. Kom til íslands í laxveiði í
sumar ásamt Kristini Bjömssyni og
Hans-Petter Buraas í boði
Rossignol.
10. Joel Chenal,
Frakklandi (210).
25 ára, faá La Rosiére. Er að hefja
þriðja árið I heimsbikamum eins og
félagi hans, Bourgeat. Chenal vann
sig upp í fyrsta ráshóp sl. vetur.
Besti árangur hans var 5. sæti í
Schladming.
11. Andrej Mikiavc,
Slóveníu (184).
28 ára, frá Zabnica. Hann hefur ver-
ið rneiri stórsvigsmaður og vann tví-
vegis heimsbikarmót í fyrravetur.
Hefur einu sinni náð á verðlauna-
pall í svigi, þriðja sæti í Park City
1996. Vann til bronsverðlauna á ÓL
1994 í stórsvigi.
12. Kjetil-Andre Ámodt,
Noregi (177).
27 ára, frá Osló. Vann stigakeppni
heimsbikarsins 1994 og þykir jafn-
vígur á allar greinar heimsbikars-
ins. Hefur unnið 14 heimsbikarmót
á átta ára ferli, en ekkert í svigi.
Fjórum sinnum hafnað í örðu sæti í
svigi, síðast í Kitzbúhel sl. vetur.
Hann er þrefaldur heimsmeistari og
varð ólympíumeistari í risasvigi í
Albertville 1992.
13. Fabrizio Tescari,
Ítalíu (175).
29 ára, frá Asiago. Hefur eingöngu
keppt í svigi og einu sinni sigrað, í
Sestriere 1993 og er það í eina
skipti sem hann hefur komist á
verðlaunapall. Besti árangur hans
sl. vetur var annað sæti í
Schladming. Þetta er sjöunda tíma-
bilið hans í heimsbikarnum.
14. Sebastien Amiez,
Frakklandi (162).
26 ára, frá Moutier. Hefur einu
sinni unnið svigmót, í Veysonnaz
1996. Hann náði sér ekki á strik sl.
vetur og var besti árangur hans þá
7. sæti í Park City. Hann varð ann-
ar á heimsmeistaramótinu 1997.
15. Kristinn Börnsson,
íslandi (160).
26 ára, frá Ólafsfirði. Á öðru ári í
heimsbikarnum. Skilaði sér niður í
tveimur heimsbikarmótum sl. vetur,
í Park City og Veysonnaz í Sviss og
hafnaði í öðru sæti í þeim báðum.