Morgunblaðið - 22.11.1998, Page 31

Morgunblaðið - 22.11.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998 31 NÝKAUP hefur frá upphafi lagt áherslu á þjálfun og fræðslu starfsmanna. gjp ERLENT ■ssr Irskir vinstri- menn sameinast okkur að litlu munar á okkur og verslunum eins og 10-11 og 11-11.“ Námskeið fyrir starfsmenn - Ef við minnumst á starfs- mannastefnu. Eru unglingar að vinna hér frameftir á kvöldin og mæta síðan grútsyfjaðir í skólann? „Vafalaust er það til en ungling- arnir eru nú yfirleitt ekki lengi, þeir vinna kannski fjóra eða fimm tíma á dag, þetta eru hlutastörf hjá þeim. Hér er mikið af fóstu starfsfólki sem stendur sig afar vel. Einu höfum við breytt, viðskipta- vinir eru ekki spurðir hvort þeir noti fríkort, við minnum frekar á kortin með spjöldum og límmiðum og þetta gerðum við vegna fjölda kvartana um að þetta væri áreitni. Við leggjum áherslu á gæðaþjón- ustu og strax í upphafi var ákveðið að þjálfa og mennta starfsfólk í þeim þáttum sem okkur finnst skipta okkur mestu máli. Við erum stöðugt með námskeið í gangi núna og stefnum að því markmiði að fólk verði betri einstaklingar en um leið hæfari starfsmenn. Við bætum við- mót og fólk fræðist um vöruna, í haust var t.d. námskeið í ávöxtum og grænmeti og núna er námskeið fyrir kassastarfsfólk. Hreyfing á starfsfólki hefur lengi verið vanda- mál í smásöluverslun hér á landi og við viljum reyna að sporna við því.“ Fyrirhugað er að nota hugmyndir bandarískra arkitekta, sem sér- menntaðir eru í stórmörkuðum, til að endurskipuleggja Nýkaupsbúð- imar og stóð til að þetta kæmi til framkvæmda fyrir jól. Verður aukin þjónusta leiðarljósið. Áætluninni hefur verið frestað fram til 1. febrú- ar, breytingarnar reyndust dýrari og umfangsmeiri en álitið hafði ver- ið, að sögn Finns. Sælgæti og foreldrar Hann er spurður um sælgætið, sem að hluta til er haft til sýnis við kassann í flestum stórverslunum til armæðu fyrir marga foreldra ungra barna. „Ég geta bara svarað því til að þetta gera allar svona verslanir og við treystum okkur ekki til að skerast úr leik.“ Hann viðurkennir aðspurður að líklega dugi ekkert nema almennur þrýstingur foreldra á allar stórverslanir til að fá þessu breytt. Finnur minnist á deilur við Evr- „Við getum borið verðlag hjá okkur saman við sam- bærilegar stór- verslanir í grann- löndunum, t.d. í Danmörku, og þá skiptir öllu að um sé að ræða verslun með svipaða þjón- ustu og hjá okkur í Nýkaupi. Niðurstað- an verður að við er- um á mjög svipuðu róli og þær.“ ópusambandið um merkingar á bandarískum neysluvörum og segir að stjómvöld hér hafi verið allt of sein að bregðast við. Málið sé að Evrópuríkin séu einfaldlega að reyna að koma í veg fyrir sam- keppni frá Bandaríkjunum og hætt sé við að vörur, sem hér hafa verið seldar í áratugi, hverfi af markaði. Til dæmis geti bandarísk hrísgrjón tvöfaldast í verði vegna kostnaðar- ins við merkinguna. Og hann spyr hvað við myndum segja ef Banda- ríkjamenn settu slíkar innflutnings- hömlur á fiskinn frá okkur. - Hvemig er staðan núna hjá Ný- kaupi, er veltan viðunandi? „Reksturinn hefur gengið sam- kvæmt áætlun. Upphafið, íyrstu tveir eða þrír mánuðirnir, gengu að- eins verr en ætlað var en nú erum við á réttri leið og heildarbreytingin hefur gengið mjög vel. Ákvörðunin um að skipta verslun- inni var rétt og í heild er hún að auka hlutdeild sína. Ég fullyrði að viðhorfin til umskiptanna eru nú allt önnur en þau voru í júníbyrjun þeg- ar við fórum af stað. Ég held að fleiri og fleiri séu að átta sig á því fyrir hvað Nýkaup stendur." GENGIÐ var frá samningi um sameiningu tveggja vinstriflokka á írlandi fyrir helgi en samkvæmt honum verður Lýðræðissinnaði vinstriflokkurinn (DL) lagður nið- ur innan tveggja mánaða og flokks- menn hans ganga til liðs við Verka- mannaflokkinn. Er gert ráð fyrir að þessi samningur verði staðfest- ur á flokksþingum sem báðir flokk- arnir hafa boðað til eftir þrjár vik- ur, að því er segir í frétt The Irish Times. Flokkurinn sem verður til við sameiningu þessara flokka mun nota nafn Verkamannaflokksins en fram til 2001 mun gilda eins konar umskiptaskeið áður en samruninn er að fullu til lykta leiddur. Hefur þegar verið samið um hvemig að framboðum á vegum flokksins nýja verður staðið. Proinsias De Rossa, leiðtogi DL, mun samkvæmt samningnum verða flokksforseti og verður ekki hægt að skora hann á hólm fyrr en eftir 2001. Leiðtogasveit flokksins nýja munu skipa, auk De Rossas, þrír helstu forsvarsmenn Verkamanna- flokksins, þ.m.t. Ruari Quinn, nú- verandi leiðtogi flokksins. Verkamannaflokkurinn átti aðild að síðustu tveimur ríkisstjórnum á írlandi og gegndi Dick Spring, þá- verandi leiðtogi flokksins, utanríkis- ráðherraembættinu 1992-1997. Spring sagði hins vegar af sér í fyrra eftir að flokkurinn galt nokk- urt afhroð í kosningum, og er flokk- urinn nú í stjórnarandstöðu. Misnotaðir karlar í Swasilandi fá hjálp Mabane. Reuters. KARLAR í Swasilandi, sem orðnir eru langþreyttir á ofríki eiginkvenna sinna, íþyngjandi heimilisstörfum og líkamlegu of- beldi, geta nd andað léttar því þeir eru um það bil að fá hjálp. Nd hafa verið stofnuð Karla- samtök Swasilands til að vernda karlmenn fyrir heimilisofbeldi. í yfirlýsingu samtakanna segir að þau muni veita körlum sem hafa verið „neyddir til að vinna alla vikuna ... þvo upp, skdra gólf og passa böm“ lagalega ráðgjöf, og að körlum sem hafi verið nauðg- að af konum sinum verði veitt áfallahjálp. Samtökin segjast einnig munu átelja þá karlmenn sem beiti konur sínar ofbeldi eða „sýni eiginkonum annarra manna óhóflegan áhuga“. Líttu við í glæsilega og breytta verslun okkar. Nú bjóðum við stórglæsileg og vönduð húsgögn í svefnherbergið. Sem fyrr höfum við fjölbreytt úrval af rúmum, dýnum, koddum og allt annað sem þarf fyrir góða hvíld og góðan svefn. Lystadún Snæland - þú þarft ekki að leita annað. [ Skútuvogfi 11* Sími 568 5588 Góður svefn gefur góban dag ekki af sérvinnslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.