Morgunblaðið - 22.11.1998, Page 64

Morgunblaðið - 22.11.1998, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI569 1100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Möguleg jarðgöng milli lands og Eyja Frum- athugun hafín Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. RANNSOKN á möguleikum þess að gera jarðgöng eða vegtengingu milli lands og Eyja er hafin hjá Vegagerð- inni samkvæmt samþykkt Alþingis síðastliðinn vetur. Halldór Blöndal samgöngumálaráðherra greindi frá þessu á fjölmennum fundi í Vest- mannaeyjum í fundaröð Áma John- sen alþingismanns. Halldór Blöndal sagðist hafa tekið ákvörðun um að hrinda þessari und- ii-búningsvinnu og athugun af stað af 'Jh* fullum krafti, en ætla mætti að það tæki Vegagerðina hálft til eitt ár að ljúka frumathugun, samantekt jai-ð- fræðilegra aðstæðna, arðsemiskönn- un og gerð kostnaðaráætlunar miðað við reynslu sambærilegi'a verka heima og heiman. Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir athugun á þremur möguleikum, gerð jarðganga, botnganga eða svo- kallaðra flotganga sem reist yrðu á stöplum á hafsbotni. Gerð jarðganga þykh- líklegust sem hagstæðasti kosturinn. Vegalengdin milli lands Eyja er 10 km og dýpi mest um 80 metrar, en berggangur Eyjafjalla liggur í suðvestur til Vestmannaeyja. Hugmyndin að fjármögnun tenging- ar milli lands og Eyja yrði á sömu nótum og framkvæmdin á gerð jarð- ganga undir Hvalfjörð. -------------- Heimsbikarkeppnin Kristinn tilbú- inn í slaginn SKÍÐAKAPPINN Kristinn Björns- son keppir í fyrsta svigmóti vetrarins pninni sem fram fer í Park City í Banda- ríkjunum í dag. Kristinn sló eftir- minnilega í gegn á sama stað fyrir ári þegar hann náði öðru sæti. Bein út- sending verður frá heimsbikarkeppn- inni í Sjónvarpinu. Fyrri umferðin hefst kl. 17 og síðari umferðin kl. 20. Kristinn hefur undirbúið sig vel fyrir veturinn og segist í mjög góðri æfíngu. Hann hefur dvalið við æfíng- ar í Bandaríkjunum í tíu daga tU að aðlagast aðstæðum. Að hans sögn eru aðstæður í Park City eins og best verður á kosið. ■ Keppiuautar/22 -----♦-♦♦----- Fjdrir á slysadeild Grunur um vímuefna- notkun FJÓRIR voru fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir ^árekstur á horni Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík um klukkan eitt í fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar varð slysið með þeim hætti að bíll sem ók Kringlumýrarbraut til norðurs beygði til vesturs og í veg fyrir bíl sem ók til suðurs. Bflamir eru mikið skemmdir. Grunur leikur á að ökumaður ann- prs bflsins hafi verið undir áhrifum vímuefna og er málið nú í rannsókn. -z•........ Morgunblaðið/Arai Sæberg Regnbogi í Hvalfirði Hvalfj arðargöng Gjaldið trúlega lækkað í maí STJÓRN Spalar hf., ákvað á aðalfundi sínum í síðustu viku að endurskoða gjaldskrá Hval- fjarðarganganna næsta vor. Gísli Gíslason, stjórnarfor- maður Spalar, segir næsta víst að lögð verði til lækkun gjaldsins en stærsti lánveit- andinn, bandaríska trygginga- félagið John Hancock, verður að samþykkja gjaldskrár- breytingu. Telur Gísli víst að hann muni fallast á tillögu Spalar. Frá opnun Hvalfjarðar- ganganna 11. júlí til 18. nóv- ember fóru alls 425 þúsund bílar um göngin. Af þeim fjölda óku 85 þúsund bflar um göngin áður en gjaldtaka hófst. Alls hafa því 340 þúsund bflar farið um Hvalfjarðar- göng þá 120 daga sem gjald- taka hefur staðið eða 2.833 bíl- ar á dag að meðaltali. Gísli segir það talsvert meiri um- ferð en gert var ráð fyrir og því séu tekjur Spalar meiri en gert var ráð fyrir í upphafi. Fleiri nýta sér afsláttinn en reiknað var með A móti komi að fleiri en reiknað var með nýti sér 40% afsláttinn sem menn fá ef keyptar eru 40 ferðir í einu. Er nálega helmingur fólksbfla, sem um göngin fer, á þessum afslætti. Fáir nýta sér hins vegar 20% afsláttinn sem veittur er fyrir 20 ferðir. Gísli segir ekki unnt að setja fram hugmyndir um væntanlega gjaldskrárlækkun strax. I hönd fari vetrannán- uðir með minni umferð og því verði ekki unnt að meta hugs- anleg áhrif meiri umferðar fyrr en með vorinu. Gerh- hann ráð fyrir að gjaldskrár- lækkun verði ákveðin í maí. Davíð Oddson segir stöðu Sjálfstæðisflokksins vera sterka 21. öldin getur orðið öld tækifæranna „FLEST bendir til að staða okkar sé sterk, flokkurinn njóti mikils trausts vegna sinna verka. Undir því trausti þurfum við að rísa í að- draganda kosninga og slagnum sjálfum,“ sagði Davíð Oddsson for- sætisráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins í ræðu við upphaf flokksráðsfundar í gær. í ræðu sinni fjallaði Davíð um stöðu fiokksins nú þegar tæpir sex mánuðir eru til næstu þingkosn- inga, hvaða árangur hefði náðst á kjörtímabilinu og stefnuleysi stjórn- arandstöðunnar. Hann sagði ekki hægt að fullyrða um það á þessari stundu um hvað yrði kosið í næstu kosningum. Aftur á móti væri hægt að draga upp ákveðnar myndir: Góðir sóknarmöguleikar „Verði til að mynda kosið um traust sé líklegt að við þurfum ekki að óttast úrslitin," sagði Davíð. „Verði kosið um aukna velmegun í landinu ættu úrslitin að geta orðið okkur hagstæð. Verði kosið um stöðugleika, stefnufestu og öryggi ættu kjósendur að vera líklegir til að horfa fyrst til okkar áður en aðr- ir kostir verða skoðaðir. Vilji kjós- endur byggja upp kaupmátt sinn, forðast ringulreið í stjómmálalífi og auka möguleika sína og sinna og fjölga tækifærunum ætti Sjálfstæð- isflokkurinn við núverandi aðstæð- ur að vera álitlegur kostur. Ef þessi verða verkefnin sem kjósendur leggja mest upp úr ætt- um við að eiga góð færi og jafnvel stærri sóknarmöguleika en oft áður. Allt eru þetta mikilvæg mál, ekki fyrir flokkinn flokksins vegna held- ur fyrir flokkinn fólksins vegna.“ Möguleikar 21. aldarinnar „Það verður verkefni okkar að koma því til skila hvar tækifærin liggja. Við þurfum ekki að hamra á þeim árángri sem náðst hefur, hanrt er kunnur. Við þurfum að vekja at- hygli á þeim möguleikum og þeim tækifærum sem eru að opnast. Það bendir allt til þess að 21. öldin geti orðið íslendingum öld tækifæranna. Það fer því vel á því að við horfum vongóð og bjartsýn fram til þeirrar aldar og segjum: íslendingar, nú er tækifærið, grípum það en glutrum því ekki niður," sagði Davíð Odds- son. ■ Grípum tækifærið/14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.