Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 1
283. TBL. 86. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússnesku fjárlögin lögð fyrir dúmuna
Minni skuld-
ir eða hrun
Moskvu. Reuters.
RÚSSNESKA stjórnin samþykkti í
gær fjárlög næsta árs, þau aðhalds-
sömustu um árabil. Míkhaíl
Zadornov, fjái-málaráðherra Rúss-
lands, sagði hins vegar að tækist
ekki að semja um nýja skilmála eða
einhverja eftirgjöf af skuldunum
blasti við efnahagslegt hrun.
Fjárlögin voru samin með kröf-
ur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
IMF, í huga og verða lögð fyrir
dúmuna, neðri deild þingsins, í
dag. Sagði Zadornov að stefnt
væri að tekjuafgangi upp á 1,7% af
vergri þjóðarframleiðslu, en þá
væri endurgreiðsla lána ekki tekin
með í reikninginn. Tekjur ríkisins
eru áætlaðar um 11,85% af vergri
þjóðarframleiðslu en útgjöldin
14,4%.
Zadornov lagði áherslu á að
Rússar kæmust ekki hjá því að
draga úr endurgreiðslu lána, ella
blasti algert hrun við efnahagnum.
„Verði ekki dregið úr skuldabyrð-
inni árið 1999 og 2000 og næstu ár
þar á eftir er tilvist Rússlands ekki
möguleg. Svo einfalt er það,“ sagði
hann.
Reiða sig á skilning
lánardrottna
Kvað hann rússnesk stjórnvöld
mundu reiða sig á skilning lánar-
drottna sinna á „endurskipulagn-
ingu innlendra og erlendra skulda"
og vísaði þá m.a. til skulda Sovét-
ríkjanna sálugu. Ymsar hugmyndir
hafa verið ræddar í því sambandi,
m.a. að lækka þær eða seinka end-
urgreiðslu, en engar formlegar
ákvarðanir liggja fyrir.
KEMA
Reuters
-*v,f . d/ggj ' JL'? % V ' - V rVvf* " \*WT ^
W'll V í Áúc
úMJt* *■' • fjf.
p..« 1 ffyíSRA l'w m **■! Mli'-, m Xptl&Xþ.--• 1H r’ m 3
«5 fe (U %
David Trimble og John Hume afhent friðarverðlaun Nóbels
Segjast deila þeim
með öðrum N-Irum
Reuters
JOHN Hume og David Trimble, sem deila friðarverðlaunum Nóbels í
ár, slá á létta strengi með Haraldi Noregskonungi og Sonju drottn-
ingu. í Stokkhólmi voru á sama tíma afhent verðlaunin í bókmenntum,
hagfræði, læknisfræði, eðlis- og efnafræði.
Hvöttu landa
sína til að
vinna að varan-
legum sáttum
()s]ii. Reuters.
DAVID Trimble, leiðtogi stærsta
flokks sambandssinna og verðandi
forsætisráðherra á Norður-írlandi,
þrýsti á liðsmenn Irska lýðveldis-
hersins (IRA) að hefja afvopnun í
ræðu sinni í gær við afhendingu
friðarverðlauna Nóbels. Sagðist
Trimble ekki endalaust geta haldið
því fram við fólk að friður væri í
höfn á N-írlandi ef öfgamenn héldu
enn í öll vopn sín. Hann sagðist
hins vegar áfram ætla að neita að
taka mark á þrýstingi frá þeim sem
vildu að hann setti IRA ákveðin
tímamörk hvað þetta varðaði því
það væri ekki leiðin til sátta.
Trimble og John Hume, leiðtogi
flokks hófsamra kaþólikka (SDLP),
fengu í gær afhent friðarverðlaun
Nóbels við hátíðlega athöfn í Osló
fyrir störf sín í þágu friðar á N-ír-
landi. Lagði Hume í ræðu sinni
áherslu á að þeir deildu þessum
verðlaunum með öllum íbúum N-ír-
lands, bæði kaþólikkum og mót-
mælendum. Bað hann almenning
þar að grípa þetta tækifæri og bæta
sambúð sína, þannig að N-Irland
mætti njóta friðar um ókomin ár.
Vel að verð-
launum komnir
Líkti Trimble friðarferlinu á N-
Irlandi við sunnudagsbíltúr, sólin
væri komin upp, með þeim áföng-
um sem náðst hefðu á þessu ári, en
Trimble sagði best að halda akstr-
inum áfram hægt og örugglega,
með vökult auga á veginum
framundan og einstaka augngotum
í baksýnisspegilinn. Oðagot myndi
engu skila.
Vísaði hann þar til þess að sam-
bandssinnar og þjóðernissinnar
deildu nú hart um fjölda samráðs-
nefnda Irlands og N-írlands, stofn-
un heimastjórnar á N-írlandi og af-
vopnun öfgahópa. Kvaðst Trimble
sannfærður um að hægt yrði að
höggva á hnútinn, en margir hafa
lýst áhyggjum af framhaldinu, tak-
ist ekki að leysa deiluna fyrir jól.
Lét Mo Mowlam, N-írlandsmála-
ráðherra bresku ríkisstjórnarinnar,
t.d. hafa eftir sér ummæli í þessa
veru í gær.
Sagði George Mitchell, banda-
ríski öldungadeildarmaðurinn fyiT-
verandi, sem stýrði friðai'viðræðun-
um á N-íriandi, í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að hann teldi Hume
og Trimble vel að verðlaununum
komna. „Ég tel þá fyllilega verð-
skulda verðlaunin og ég vona inni-
lega að þau styrki stöðu þeirra á
Norður-Irlandi og geri þeim kleift
að stýra bæði stjórnmálaöflunum
og einnig almenningi þannig að
hægt verði að hrinda öllum ákvæð-
um Belfast-samkomulagsins í fram-
kvæmd.“
■ Ekkert /43
Mótmæli á
mannrétt-
MANNRÉTTINDADAGUR Sam-
einuðu þjóðanna var í gær og var
þess minnst víða um heim. í
Jakarta í Indónesíu héldu náms-
menn upp á daginn með því að
krefjast þess, að herinn hætti af-
skiptum sinum af sljórnmálum og
Suharto, fyrrverandi forseti, yrði
látinn svara til saka fyrir spill-
ingfu. I tilkynningu frá Amnesty
International í síðustu viku sagði,
að ástandið í landinu virtist vera
að færast að mörgu leyti í sama
horf og var í valdatíð Suhartos.
Efnt var til mótmæla í ýmsum
öðrum Asíuríkjum, til dæmis í
Hong Kong þar sem þess var
krafíst, að Kínastjórn hefði í
heiðri þá mannréttindasáttmála,
sem hún hefði sjálf skrifað undir.
Pinochet form-
Clinton
samþykk-
ur vítum
Washington. Reuters.
BILL Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, getur líklega sætt sig
við þá tillögu flokksbræðra
sinna, að hann verði víttur fyrir
„ranga yfirlýsingu".
Joe Lockhart, talsmaður
Hvíta hússins, sagði að Clinton
myndi taka til athugunar allar
tillögur „réttsýnna manna“,
sem gætu bundið enda á
Lewinsky-málið með öðrum
hætti en málshöfðun en
repúblikanar í dómsmálanefnd
fulltrúadeildarinnar hafa lagt
til að greidd verði atkvæði um
málshöfðun gegn Clinton fyrir
embættisafglöp í fjórum liðum.
Búist er við að þeir samþykki
að minnsta kosti eitt ákæruat-
riðið.
■ Upptaka/24
lega ákærður
Madrid, London. Reuters.
SPÆNSKI dómarinn Baltasar
Garzon, sem farið hefur fram á, að
Augusto Pinochet, fyrrverandi ein-
ræðisherra í Chile, verði framseld-
ur til Spánar, ákærði hann í gær
formlega fyrir glæpi gegn mann-
kyni og óskaði þess, að eignir hans
yrðu frystar hvar sem þær væri að
finna.
Garzon ákærir Pinochet íyrir að
béra ábyrgð á dauða og hvarfi meira
en 3.000 manna á árunum 1973 til
1990 og fyrir að hafa skipulagt að-
gerðir gegn vinstrisinnuðu fólki í
samvinnu við öryggislögregluna í
Argentínu og öðrum suður-amerísk-
um einræðisríkjum á þessum tíma.
Jack Straw, innanríkisráðherra
Bretlands, ákvað í fyrradag, að
breskir dómstólar skæru úr um það
hvort Pinochet yrði framseldur en
talið er, að það geti tekið allt að tvö
ár að fá niðurstöðu í því máli.
Frammámaður
í Amnesty
Lögfræðingar Pinochets fóru í
gær fram á það við lávarðadeildina,
æðsta dómstól í Bretlandi, að hún
félli frá þeim úrskurði sínum, að
Pinochet væri ekki undanþeginn
saksókn. Eru engin dæmi um ósk af
þessu tagi en lögfræðingarnir segja,
að einn dómaranna, Hoffman lá-
varður, hafi verið vanhæfur vegna
þess, að hann er yfirmaður hjálpar-
stofnunar á vegum Amnesty
International.