Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ir BRIDS llmsjón Arnór G. Ragnarsson Stórmót LA Café LAUGARDAGINN 12. desember verður haldið eins dags tvímennings- ^mót á vegum LA Café með peninga- verðlaunum fyrir efstu sæti. Spiluð verða 42 spil í tveimur 21 spils lotum, Mitchell-fyrirkomulag. Spilamennska hefst klukkan 11 um morguninn og verður lokið vel fyrir kvöldmat. Verð- laun verða samtals 120.000 krónur, 50 þúsund íyrir fyrsta sætið, 40 þúsund íyrir annað sætið og 30 þúsund krón- ur fyrir þriðja sætið. Skráning í mótið er í síma 562 6120 á milli 13 og 24. Þátttakendum er bent á að skrá sig í tíma, því húsnæði LA Café (á Laugavegi 45a) leyfir tak- markaðan fjölda para. Skráningar- gjald í mótið er 5.000 krónur og spilað er um silfurstig. Bridsfélag Borgarfjarðar ANNAÐ kvöldið í hraðsveitakeppn- inni var spilað 7. des. og voru úrslitin allt önnur en fyrsta kvöldið. Lang- hæstu skorina hlaut sveit Eyva á Kópa, eða 522 stig þegar meðalskor var 450. Með Eyjólfi spila Jói á Stein- um, Magnús yngri í Birkihlíð og Jón Pétursson í Björk. Annars urðu úrslit þessi: Eyvi á Kópa 522 Jón Þórisson 452 Guðmundur Kristinsson 448 Heildarstaðan er nú þessi: Eyvi á Kópa 957 Jón Þórisson 934 Ingólfur Helgason 901 * Seinni hluti fyrra Venusarmóts vetrarins verður spilaður 1 Mótel Venusi þriðjudaginn 15. desember kl. 20 og eru spilarar minnir á að mæta tímanlega. Vesturlandsmót í sveitakeppni Vesturlandsmótið í sveitakeppni verður spilað helgina 23. og 24. janú- ar nk. í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Allar upplýsingar vegna mótsins fást hjá Sveinbimi Eyjólfssyni í síma 437-0020 og 437- 0029. Minnt er á að skráningu lýkur 15. janúar. ~i~ HESTAR Fyrsti farmurinn með flugi fer eftir áramót Utflutningur á hrossum frá Norðurlandi hefur gengið vel UTFLUTNINGUR á hrossum frá Norðurlandi hefur gengið vel að sögn Baldvins Ara Guðlaugssonar tamningamanns á Akureyri. Frá því í haust hafa hross þrisvar sinn- um verið flutt með skipi, átta hross í senn og voru þau seld til Dan- merkur, Svíþjóðar og Þýskalands. Fyrirhugað var að hefja útflutn- ing á hrossum með flugi frá Norð- urlandi fyrir áramót, en ekkí hefur enn tekist að fylla eina vél. Fyrsta flugið verður því ekki fyrr en í jan- úar en þá er gert ráð fyrir að 45 hross fari til Billund í Danmörku. Baldvin Ari sagði að flugið væri örlitlu dýrara en skipaflutningarn- ir, en óneitanlega færi mun betur um hrossin. Þau gætu þó orðið fyr- ir andlegu álagi, en það varaði þá í stuttan tíma og yfirleitt væru þau fljótari að jafna sig eftir flug. Eitthvað hefur selst af hrossum á Bandaríkjamarkað í haust en þau hafa verið flutt með flugi frá Keflavíkui’flugvelli. Gnýr og Geisli á leið til Danmerkur Baldvin Ari rekur tamningastöð á Akureyri ásamt fóður sínum Guðlaugi Arasyni og bróður sínum Heimi og eru þeir með 40 hross á húsi. Þeir halda starfseminni gangandi allt árið um kring og hafa haustin oft verið góður sölu- tími. Þetta haust sé með því betra hjá þeim. Þeir hafa meðal annars flutt út stóðhestana Sörla frá VONIR standa til að útflutningur auki hlutdeild Norðlendinga á Búlandi til Bandaríkjanna og einnig Glæsi frá Húsey, jarpskjótt- an, fallegan 2. verðlauna hest sem þeir notuðu svolítið sjálfir. Á næst- unni fara svo 1. verðlauna stóð- hestarnir Gnýr frá Hrepphólum og Geisli frá Ási til Danmerkur. Eng- inn þessara hesta er með það hátt kynbótamat að bjóða þyrfti þá til forkaups hér á landi. Baldvin Ari sagði að markaður fyrir fjölskylduhross hafí verið mjög lélegur í haust. Þeir feðgar hafi hins vegar alltaf einbeitt sér að kynbótahrossum og keppnis- Morgunblaðið/Kristj án á hrossum beint frá Norðurlandi markaði fyrir ijölskylduhross. hestum og svo virðist sem eftir- spurnin eftir þeim hafi ekki minnkað, enda stöðugur markað- ur. Það sé aftur á móti mjög slæmt ef markaðurinn fyrir fjölskyldu- hrossin hrynur því sá markaður sé einmitt ástæðan fyrir því að barist var fyrir því að fá hross flutt út frá Norðurlandi. Norðanmenn hafi átt litla hlutdeild í þessum markaði, en vonast er til að hún aukist með tilkomu þessara flutninga. Sárafáir með hross í þjálfun í haust Aðspurður um innanlandsmark- að sagði hann að honum virtist mikil deyfð yfír honum og hesta- mennskunni yfirleitt. Sárafáir hafi verið með hross í þjálfun og lítið verið unnið í sölumálunum. „I stað þess að berjast áfram í sölumálun- um hafa margir eytt tímanum í að barma sér og umræðan um sölu- málin hefur verið neikvæð," sagði hann. „Þetta er búið að vera átaka- ár og svo virðist sem allt loft sé úr mönnum. Líklega eru þeir bara að hlaða batteríin núna.“ Tíu milljónir til hrossaræktar á fjáraukalögum Hvað er á sfcrá? iMac yttur jólaieikur ' í Dagskrá Morgunblaðsins Taktu þátt í léttum jólaleik í Dagskrá Morgunblaðsins í hverju blaði til jóla og þú gætir unnið glæsileg verðlaun. Það er einfalt að vera með: Á blaðsíðu 44 í Dagskránni 9. desember eru nokkrar léttar spurningar um efni blaðsins. Ef þú sendir inn rétt svar fyrir 14. desember átt þú kost á að vinna TAL 12 Slimlite GSM-síma og TALkort eða matarkðrfu frá verslunum 11-11. Fyrir rétt svör í barnaþrautinni er hægt að vinna Sony Playstation-leikjatölvu frá Skífunni. Nöfn allra þátttakenda fara í jólapott þar sem dregið er um glæsilega iMac-tölvu frá Aco-Applebúðinni. Einnig er hægt að taka þátt í leiknum á mbl.is á hnappnum jólaleikur. Taktu þátt í léttum leik og hver veit nema þú vinnir! AcoRApplebúðin SKÍFAN I FRUMVARPI til fjáraukalaga sem nú liggur fyrir Alþingi eru 10 milljónir króna ætlaðar til hrossaræktarinnar. I samtali við Guðmund Bjarnason landbúnað- arráðherra kom fram að ekki hefur verið ákveðið hvernig þess- ir peningar munu skiptast en það verður strax gert ef fjáraukalög- in verða samþykkt. Landbúnaðarráðherra sagði að þegar hitasótt í hrossum geisaði og útflutningur á hrossum stöðv- aðist féllu niður tekjur sem renna í útflutnings- og markaðs- sjóð. Formaður Félags hrossa- bænda og fleiri lýstu yfir áhyggj- um vegna þessa og óskað var eft- ir 30 milljóna króna framlagi til hrossaræktarinnar. Að sögn Guðmundar flutti hann tillögu um þetta í ríkis- stjórn og var ákveðið að veita 10 milljónir króna til að styrkja út- flutnings- og markaðsmál. Þrátt fyrir að ekki hafi enn verið ákveðið hvernig þessi upphæð muni skiptast er ljóst að hluti hennar mun renna til Utflutn- ings- og markaðsnefndar og Fé- lags hrossabænda. A nettölti Staðnaðir hestavef- ir og aðrir líflegri VINSÆLDIR Netsins eru alltaf að aukast og er stór hluti íslenskra heimila búinn að „tengja". Á þetta væntanlega jafnt við um hestamenn sem aðra. Heimasíðum sem fjalla um íslenska hestinn fjölgar einnig og er þeim fagnað af þeim sem hafa hesta og tölvur að áhugamáli. Helsti galli við íslenska hestavefi er að þeir eru ekki uppfærðir nógu oft þrátt fyrir góð fyrirheit. I þessu sambandi mætti nefna Faxavefinn (www.stak.is/faxi), en eftir að engin hreyfing átti sér stað á honum í langan tíma var því heitið að hann yrði uppfærður vikulega. Því miður hefur þetta ekki gerst. Svo virðist sem enginn notfæri sér Heita pott- inn, sem á að vera vettvangur um- ræðu á milli hestamanna. Nokkuð er um auglýsingar og inni á vefnum eru ágætar fræðslugreinar sem flestar eru búnar að vera þar lengi. Þess ber að geta að aðstandendur Faxa fengu 750.000 króna styrk við síðustu úthlutun Utflutnings- og markaðsnefndar. Á hestavef Jónasar Kristjánsson- ar (www.hestur.is) er alltaf einhver hreyfing, en hægt er að komast inn á fréttir án þess að vera áskrifandi. Ef enginn utanaðkomandi hefur neitt fram að færa skrifar Jónas Kristjánsson ýmsan fróðleik sjálfur, sem stundum á jafnvel rætur sínar að rekja í Hestaþátt Morgunblaðs- ins! Áður hefur verið getið Hesta- banka Skagfirðinga (www.horse.is). Sú heimasíða er uppfærð reglulega, síðast 18. nóvember síðastliðinn. Fréttir eru að vísu gamlar, en á síð- unni er mikill fróðieikur og mjög gott tenglasafn. Þaðan er líklega hægt að komast inn á allflesta vefi sem yfirleitt fjalla um íslenska hesta auk annarra sem geyma almennan fróðleik um hesta og það sem þeim fylgir. Fyrst og fremst er samt Hestabankinn hugsaður sem vett- vangur til að skrá söluhross með ná- kvæmum upplýsingum. Auðvelt er að fikra sig áfram út frá Hestabankanum og er vel þess virði að líta á síðu Hestaleigunnar á Ásólfsstöðum (www.artemis.centr- um.is/hestur/) og hrossaræktarbús- ins og reiðskólans í Vestra-Gelding- arholti svo eitthvað sé nefnt. En þegar maður kemst í gott tengla- safn eins og reyndar er einnig á Ás- ólfsstaðasíðunni er auðvelt að kom- ast í nánast allan þann fróðleik sem býðst um hesta á Netinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.