Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Frelsi sumra og stundum / Osamkvœmni einkennir málflutning stjórnarþingmanna í umrœðum um kvóta- mál, gagnagrunn og kennitölusöfnun FURÐULEG ósam- kvæmni einkennir um þessar mundir málflutning stuðn- ingsmanna ríkis- stjórnar Davíðs Oddssonar. Þingmenn stjórnarflokkanna virðast fylgja foringjum sínum í blindni við vörslu hagsmuna án þess að huga að röklegu samhengi afstöðu sinnar. Frumstæð foringjahollusta er að sönnu ekki nýjung í íslensk- um stjórnmálum en afleiðingar hennar geta reynst skaðlegar þegar um stórmál er að ræða. Að undanförnu hefur al- menningur getað fylgst með undarlegum skoðanaskiptum ráðamanna á Alþingi og raunar víðar í þjóðfélaginu. Til um- fjöllunar hafa verið réttnefnd stórmál; frumvarp um miðlæg- VIÐHORF Eftir Asgeir Sverrisson an gagna- grunn á heil- brigðissviði, kennitölusöfn- un banka og verðbréfafyrirtækja og dreifð eignaraðild á bönkum og það kerfi, sem stuðst hefur verið við er aflaheimildum hefur ver- ið úthlutað. Umræðan um kennitölusöfn- unina varpar forvitnilegu ljósi á afstöðu stuðningsmanna rík- isstjórnarinnar og er til marks um að samkvæmni í málflutn- ingi er ekki efst í huga þeirra. Því er stundum haldið fram að samkvæmniskrafan sé í raun sú eina sem unnt sé að gera á vettvangi siðfræði því önnur viðmið verði ávallt afstæð. Svo virðist sem fjölmörgum stjórn- málamönnum sé af einhverjum ástæðum öldungis ókunnugt um þetta. I umræðum á Alþingi á þriðjudag gagnrýndi stjórnar- andstaðan harðlega kennitölu- söfnun banka og verðbréfafyr- irtækja. Þessi þróun virðist enda vera í mótsögn við þá dreifðu eignaraðild á bönkum, sem forseti ríkisstjórnarinnar hefur boðað og í andstöðu við yfirlýsingar, sem núverandi ráðsmaður viðskipta lét falla er hann var í stjórnarandstöðu. Trúlega er kennitölusöfnun þessi bæði eðlileg og sjálfsögð í þjóðfélagi þar sem viðskipta- frelsi ríkir. Þessu héldu enda stuðningsmenn ríkisstjórnar- innar fram á þingi. Geir H. Ha- arde, ráðsmaður ríkisfjármála, fór hörðum orðum um fram- göngu stjórnarandstöðunnar og sagði m.a. um afstöðu þessa hluta þingheims: „Þessi mál- flutningur er til marks um al- gjört skilningsleysi á frjálsum viðskiptum og fyrirlitningu á frjálsum viðskiptum." Vísast hefur ráðsmaðurinn hér lög að mæla og ekki væri ástæða til að vekja sérstaka at- hygli á yfirlýsingu þessari ef þessi sami ágæti stjórnmáia- maður og flokksbræður hans á þingi væru ekki önnum kafnir við að þvinga fram samþykki við frumvarp, sem felur í sér að tilteknum aðila verður veitt einkaleyfí varðandi rekstur svo- nefnds miðlægs gagnagrunns á heilbrigðissviði. Sú spuming hlýtur að vakna hvort einka- leyfískrafan feli í sér djúpan „skilning á frjálsum viðskipt- um“ og virðingu fyrir eðli þeirra. Einhverjir gætu freist- ast til að álykta sem svo að einkaleyfísákvæðið sé í mót- sögn við helstu kennisetningar Sjálfstæðisflokksins, sem kveðst, ef rétt er munað, berj- ast fyrir einstaklingsfrelsi og frjálsum viðskiptum. Og ef til vill læðist sá grunur að ein- hverjum að einkaleyfí á sviði reksturs og viðskipta séu í eðli sínu tímaskekkja, bergmál hins liðna. Málflutningur stjómarþing- manna er að sönnu undarlegur. Ekki verður annað séð en að hann einkennist af ósamkvæmni og tortryggni hlýtur því að vekja að svo rík áhersla sé lögð á að fá fmmvarp þetta sam- þykkt þvert á stefnu Sjálfstæð- isflokksins og vilja umtalsverðs hluta vísindasamfélagsins. Yfírlýsingar Geirs H. Haar- de og skoðanabræðra hans era einnig athyglisverðar í ljósi þeirrar varðstöðu sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur tekið sér um kvótakerfið og úthlutun aflaheimilda. Þrátt fyrir stjórnarskrárákvæði þess efnis að fiskimiðin skuli teljast sam- eign þjóðarinnar hefur afla- heimildum verið úthlutað til tiltekinna manna. Þeir hafa síðan getað selt þessar heim- ildir, leigt þær og þær hafa m.a.s. talist eign er falli undir erfðarétt. Og ekki verður annað séð en þetta kerfí verði varið af hörku þrátt fyrir Hæstaréttardóminn sögulega enda miklir hagsmun- ir í húfi og í sumum tilfellum nærtækir mjög. Því er eðlilegt að spui-t sé hvort þessi afstaða ráðamanna Sjálfstæðisflokksins sé til marks um djúpan skilning þeirra á eðli frjálsra viðskipta og virðingu fyrir eðli þeirra. Alltjent virðist það umdeilan- legur skilningur á viðskiptum að þau feli í sér að menn geti selt, leigt og erft það sem aðrir eiga, samkvæmt skilgreiningu. Glöggur maður skilgreindi eitt sinn verslun á eftirfarandi veg: A stelur vöram frá B sem C á en til að bæta sér upp tapið stelur C peningum úr vösum D sem E á. Við hvaða skilgrein- ingu styðjast hinir foringjahollu þingmenn stjómai-flokkanna á Aiþingi er þeir lofa viðskipta- frelsið og kveðast búa yfír skiln- ingi á inntaki og eðli þess? Nú þegar ráðsmaður fjár- mála hefur upplýst að hann bæði skilji og virði eðli frjálsra viðskipta hlýtur að fara um bindindishreyfínguna því varla er yfírlýsing þessi vísbending um annað en hann hyggist beita sér fyrir því að þetta sama við- skiptafrelsi verði innleitt á sviði áfengissölu á Islandi. Stjórnmálamenn kvarta á stundum undan því að þeim og störfum þeirra sé ekki sýnd til- hlýðileg virðing. Ein ástæða þessa er sú að þeir hinir sömu falla oftlega í þá gryfju að sýna ekki dómgreind almennings nægilega virðingu. Frelsið er eitt og ódeilanlegt. Það lýsir ekki heilindum og samkvæmni að boða að frelsi skuli ríkja þegar það er einungis ætlað sumum og stundum. KJARTAN MAGNÚSSON + Kjartan Magn- ússon fæddist í Ólafsvík 15. 1917. Hann lést í Landakotsspítala 3. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Magnús Sig- urðsson, f. 12. janú- ar 1885, d. 28. febr- úar 1928, sjómaður á Hellissandi og síð- ar í Reykjavík, og k.h., Guðrún Jó- hannesdóttir, f. 16. febrúar 1890, d. 6. desember 1968, húsmóðir. Systkini Kjartans eru Jóhannes, f. 19.7. 1910, fyrrv. kaupmaður í Reykjavík; Leó, dó í frumbernsku; Hrefna Lea, f. 4.7. 1915, d. 31.5. 1988, húsmóð- ir í Reykjavík; Rósbjörg H. Beck, f. 22.7. 1919, d. 6.12. 1981; Magnús Gunnar, f. 3.10. 1923, d. 2.12. 1991, húsasmiður í Reykjavík; Bjarni, f. 5.7. 1926, fyrrv. yfirvélstjóri hjá Land- helgisgæslunni, búsettur í Reykjavík. Hinn 16. október 1943 kvænt- ist Kjartan eftirlifandi eigin- konu sinni, Guðrúnu H. Vil- hjálmsdóttur, f. 3.11. 1922, húsmóður og kennara. Hún er dótt- ir Vilhjálms Arnason- ar, f. 16.10. 1873, d. 7.1 1956, húsasmíða- meistara í Reykjavík, og s.k.h., Þóreyjar Jónsdóttur, f. 26.6. d. 10.2. 1961, húsmóður. Börn Kjartans og Guðrún- ar eru öll búsett í Reykjavík. Þau eru Vilhjálmur Þór, f. 28.12. 1943, verk- fræðingur og há- skólakennari, kvæntur Guðrúnu Hannesdóttur, forstöðumanni St- arfsþjálfunar fatlaðra; Magnús Rúnar, f. 7.6. 1946, leigubílstjóri í Reykjavík en kona hans er Jó- hanna Björk Jónsdóttir, þroska- þjálfi; Anna, f. 4.11. 1949, starfs- maður við Landsbankann, gift Sigurði O. Péturssyni, banka- starfsmanni; Kjartan Gunnar Kjartansson, f. 27.6. 1952, blaða- maður við DV, kvæntur Mörtu Guðjónsdóttur kennara; Ingi- björg Ósk, f. 17.2. 1957, Ieik- skólakennari, gift Garðari Mýr- dal, eðlisfræðingi við Landspítal- Fyi’ir þrjátíu árum kom ég inn í fjölskyldu Kjartans og Guðrúnar, er ég giftist elsta syni þeirra. Það er minnisstætt hversu alúðlega mér var tekið, góðvild og gestrisni ríkti á stóra heimili þeirra hjóna. Mér varð strax ljóst hversu mikill fjölskyldu- maður Kjartan var. Þótt vinnan við verslunarrekstur stæði oft langt fram á kvöld var fjölskyldan alltaf í fyrirrúmi. Ekki þurfti barnastól við matarborðið þar sem Kjartan sat, því á handlegg hans sátu yngstu bömin hvert af öðru sem í hásæti. Sumarbústaður hefur alltaf verið snar þáttur í fjölskyldulífinu og sameiningartákn. Fyrst var hann í Kringlumýri, svo lengst af í Selásn- um við Rauðavatn, en síðustu fjögur árin í Grímsnesi. Er loks von til að þensla Reykjavíkur láti okkur í friði um sinn. Börn, tengdabörn og barnabörn hafa átt óteljandi stundir með Kjartani og Guðrúnu í þessum bústöðum, bæði við leik og störf, en Kjartan var mjög liðtækur smiður og áhugasamur ræktandi. Ungur missti Kjartan föður sinn, hann fórst með togaranum Jóni for- seta við Stafnes. Ommubróðir minn var einn þeirra sem komust af. Oft heyrði ég hann lýsa hetjunni í reið- anum sem lengst þraukaði, rammur að afli hélt Magnús sér til hinstu stundar er skipið brotnaði og siglan hvarf í hafíð. En þær voru ekki síðri hetjurnar í landi, unga ekkjan og bömin sex. Kjartan var næstelstur bræðranna, aðeins tíu ára að aldri. Hann varð því snemma að axla ábyrgð á sér og sínum nánustu. Stolt og æðruleysi einkenndu tengdaföður minn alla tíð. Hann var myndarlegur maður, beinn í baki, svipfallegur, léttur í lund og lipur á fæti, söngmaður og dansherra góð- ur. Höfðinglegur og sannkallaður herramaður fram í fíngurgóma, er naut þess að gera vel við gesti og viðskiptavini. Þá hartnær fjóra áratugi sem Kjartan var kaupmaðurinn á horn- inu, nánar tiltekið horni Efstasunds og Hólsvegar, átti hann stóran og tryggan hóp viðskiptavina. Margir héldu áfram að versla hjá honum þótt þeir flyttu í önnur hverfi. Þarf- ir „kúnnans" gengu fyrir, hann lagði metnað sinn í að þekkja við- skiptavini sína og óskir þeirra, sum- ir gátu pantað „til helgarinnar" án nánari skýringa ef mikið lá á. Salt- kjöt fékkst hvergi betra, enda nálg- aðist það helgiathöfn þegar Kjartan blandaði pækilinn og saltaði í tunnu. Þegar ég vann hjá honum um tíma sýndi hann mér stoltur hvernig veiða ætti úr tunnunni og ég þurfti að læra hvers lags bita hver og einn af hans góðu viðskiptavinum vildi fá. Kjartansbúð þróaðist í takt við tískuna, en innkaupakarfa kjörbúð- arinnar kom ekki í veg fyrir per- sónutengslin. Ollum veittist létt að ræða við Kjartan og ófáir þáðu ráð og liðsinni. Hann þekkti nánast hvert mannsbarn í hverfínu og bar hag þeirra fyrir brjósti. Reyndar kom öll kaupmannsfjölskyldan við sögu, því öll unnu þau honum við hlið um lengri eða skemmri tíma eins og við á í slíkri verslun. Eins og hæfír góðum verslunar- manni hitti Kjartan stóru ástina sína um verslunarmannahelgi. í fal- legu umhverfi Þjórsárdalsins felldu þau Guðrún hugi saman íyrir 56 ár- um. Sú ást blómstraði alla tíð og bar góðan ávöxt, því börnin urðu sjö. Guðrún er kennari að mennt og helgaði fjölskyldunni krafta sína. Hún bjó þeim gott og fallegt heimili við Lindargötuna, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap í hennar fyrrum föðurhúsum. Það var yndis- legt að sjá og fínna hvað Kjartan bar alla tíð mikla ást til konu sinnar. Við gleymum stundum að ástin er ekki bara hinna ungu. Eg er þakk- lát fyrir að hafa átt samleið með svo góðu fólki. Elsku tengdamamma, megi góðar minningar um yndislegan eigin- mann og föður vera þér og þínum huggun gegn harmi. Guðrún Hannesdóttir. í dag er jarðsettur tengdafaðir minn, Kjartan Magnússon kaup- maður. Hann var maður sem mér fmnst gott að eiga að fyrirmynd. Kjartan var rólyndur og yfirvegað- ur og átti gott með samskipti við fólk, jafnt eldri sem yngri. Eg kynntist honum fremur öðru sem góðum fjölskyldufóður, manni sem ætíð bar fyrir brjósti velferð fólks- ins síns. Hlýlegt heimili þeiraa Kjartans og Guðrúnar bar samhent- um hjónum fagurt vitni. Glaðværð og góður andi hefur ríkt þar þegar stór hópur barna, tengdabarna og barnabama hefur komið saman á liðnum árum. í þeim hópi naut Kjartan sín vel. Minnisstæðar eru mér fjölskyldu- samkomur um jól sem endranær. Kom þá oft í Ijós hve gott lag Kjart- an hafði á börnum. Hann átti gott með að ná athygli ungra ærsla- belgja og virkja athafnagleði þeirra til þroskandi starfa. Kjartani var einkar lagið að hlúa að og rækta. Það átti við um barna- hópinn þeirra Guðrúnar en einnig um gróðursældina umhverfís þau. Við Rauðavatn byggðu þau sér bú- stað í landi sem hafði á sínum tíma verið utanbæjar. En borgin óx og þéttbýlið var komið rétt handan ann; Birgir, f. 16.3. 1962, vél- virki; Sveinn Sigurður, f. 6.7. 1967, framkvæmdasljóri en kona hans er Stella Sæmunds- dóttir kaupmaður. Kjai’tan missti föður sinn ung- ur og hóf störf við verslun um fermingaraldur hjá Dagbirti Sigurðssyni og var orðinn versl- unarstjóri 18 ára. Um skeið fékkst hann einnig við útgerð bifreiða og vann við heildversl- un. Kjartan stofnaði, ásamt Ja- soni Sigurðssyni, kjöt- og ný- lenduvöruverslunina Jason & Co í Efstastundi 27 í Reykjavík árið 1947. Þeir starfræktu verslun- ina saman til 1959 er Jason dró sig í hlé. Eftir það rak Kjartan verslunina Kjartansbúð í Efsta- sundi 27 til ársins 1984. Hann starfaði síðan við húsvörslu hjá Verslunarbankanum í Banka- stræti og síðar Islandsbanka frá því í ársbyrjun 1986-91 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Kjartan æfði og keppti með KR í knattspyrnu, handbolta og hlaupum á unglingsáimm, var hverfísstjóri í heimavarnarlið- inu á stríðsárunum, var einn af stofnendum IMA, Innkaupasam- bands matvörukaupmanna, var í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokks- ins um árabil og félagi í Odd- fellowreglunni. Utför Kjartans fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. götunnar. Gróðurinn umhverfís bú- staðinn og öll umhirða í þessum un- aðsreit var þannig að maður varð þar lítt var við umferð eða eril um- hverfisins. Þær eru margar og dýr- mætar minningarnar sem fjölskyld- an á frá dvöl í bústaðnum við Rauðavatn. Þar fengu barnabömin góða tilsögn hjá Kjartani afa um garðrækt og umhirðu gi-óðurs. Þar undu sér vel synir okkar Ingibjarg- ar, Jón Steinar og Kjartan Kári. Þeir fengu reit í kartöflugarði hjá afa og ömmu og gengu þar stoltir og ánægðir til verka. Fyrir nokkram áram gerðu vega- framkvæmdir það að verkum að fjölskyldan yfirgaf þetta ævintýra- land með mikilli eftirsjá. í fram- haldi af því eignuðust þau Kjartan og Guðrún bústað í Grímsnesi og hófu enn uppgræðslu og að leggja grunn að nýjum sælureit. Þótt þarna væri komið fram á ævikvöld hjá Kjartani og starfsgetunni hrak- aði naut hann þess að gróðursetja, rækta og hlúa að og oft ræddi hann með tilhlökkun um það hve gróður- sælt hann sæi fyrir sér landið um- hverfis nýja bústaðinn. Kjartan var vinnusamur og féll sjaldan verk úr hendi. Hann missti ungur föður sinn og nauðsyn knúði hann til vinnu eins fljótt og hann mögulega gat til að styðja móður sína við að framfleyta heimili. Snemma hefur því reynt á sjálfsaga hans, útsjónarsemi, dugnað og reglusemi. Þessir þættir vora án efa mikilvægar undirstöður í farsælu ævistarfi tengdaföður míns. Það sem hann tók sér fyrir hendur vann hann af yfirvegun og skilaði sam- viskusamlega. Sár er kveðjustundin en hlýjar og fagi’ar era minningarn- ar sem ástvinir eiga um samvistir við Kjartan Magnússon. Garðar Mýrdal. Látinn er tengdafaðir minn Kjartan Magnússon fyrrverandi kaupmaður. Það var fyrir um 27 ár- um sem Anna eiginkona mín kynnti mig fyrir föður sínum. Upp frá þeirri stundu tókst með okkur Kjartani góður vinskapur sem aldrei bar skugga á. Það var margt í fari Kjartans sem mér líkaði vel, hann var mjög glaðlyndur og átti auðvelt með að samgleðjast öðrum og aldrei heyrði ég hann öfundast út í aðra. Mér eru ofarlega í huga nú við fráfall Kjartans heimsóknir hans og Guðrúnar tengdamóður til okkar Önnu og strákanna okkai- þegar við bjuggum í Svíþjóð. Það ríkti alltaf mikil eftirvænting þegar við áttum von á þeim út til okkar, og ekki síst var eftirvænting strákanna okkar mikil, sem tóku ekki annað í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.