Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 64
-i64 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ _____AÐSENPAR GREINAR_ ímynd hjúkrunar- fræðinga út á við ÍMYND hjúkrunar- fræðinga út á við hefur tekið á sig ákveðin form gegnum tíðina. Eina útgáfu hennar sá ég í símaauglýsingu um daginn. Þar dilluðu sér tvær snoppufríðar . ijóskur, hvítklæddar í stuttum pilsum og á há- um hælum, kringum rúmfastan, stórslasað- an mann sem virtist vera í sjöunda himni. Þessi imynd kom einnig fram hjá einum sambýlingi mínum á stúdentagörðum, sem, í upphafi misseris, furð- aði sig á því hvaða fræðibókaflóð ég væri að bera inn í húsið. Ég út- skýrði lauslega fyrir honum námið bakvið hjúkrunarstarfið og hann, furðu lostinn, sagði mér að hann hefði alltaf ímyndað sér „hjúkkur sem sætar stelpur sem færðu hon- um eitthvað að drekka og svona,“ væri hann svo óheppinn að lenda á spítala. Önnur mynd sem virðist fóst í hugum margra er sú af Flor- ence Nightingale, „konunni með lampann". Ungfrú Nightingale telst vera upphafspersóna hug- myndafræði nútíma hjúkrunar. Hún var ein af þeim konum sem gaf upp á bátinn fjárhagslegt uppihald fjölskyldu sinnar og hugsanlega eigin framtíðar fjölskyldu og helg- aði líf sitt hjúkrun, í sjálfboðavinnu. Stutt pils, dillibossar og háir hælar er ekki eitthvað sem hjúkrunarfræðingar almennt kannast við úr vinnunni. Sjálfboða- vinna er annað mál, þó að hún komi ekki til af fórnfýsi, heldur er sjálfboðavinna það sem hjúkrunarfræð- ingar hugsa þegar launaseðillinn berst heim. Gott eitt er um starf ungfrú Night- ingale og staUsystra hennar að segja og hjúkrunarfólk ber enn umhyggju fyrir skjól- stæðingum sínum og ber virðingu fyrir þeim, en tímarnir hafa breyst að flestu öðru leyti. Stutt pils, dillibossar og háir hælar, segir Sigurður Harðarson, er ekki eitthvað sem hjúkrunarfræðingar almennt kannast við úr vinnunni. Kannski hafa þessar ímyndir af léttlyndum gálum og siðprúðum nunnum viðhaldið sér af því að hjúkrunarfræðingar eru ekki nógu sýnilegir sem stétt. Fer ekki starfið mest fram innan stofnana? Ég man alltaf eftir dagblaðsmynd sem fylgdi frétt af verkfalli og mót- mælaaðgerðum franskra hjúkrun- arkvenna. Myndin sýndi öskureiðar konur steyta knýtta hnefa og lumbra á skelkuðum lögregluþjón- um. Þessa mynd man ég frá því ég var krakki af því að mér fannst þessi hegðun alls ekki eiga við þá litlu hugmynd sem ég hafði gert mér um hjúkrunarstéttina. I dag vil ég meina að þetta sé einmitt það sem íslenskir hjúkrunarfræðingar þurfi að gera. Þá á ég við að láta til sín taka út á við, þó lítill tilgangur sé í að lúskra á öðrum launaþrælum eins og lögreglufólki. Almenningur hefur lítið af hjúkrunarfræðingum að segja nema helst það fólk sem hefur við þá bein samskipti, þ.e. sjúklingar og aðstandendur þeirra. Það fólk sem er í ábyrgðarstöð- um gagnvart hjúkrunai'fræðingum og heilbrigðiskerfinu almennt virð- ist vera í sömu stöðu og almenning- ur. Nema að um sé að ræða að vilj- inn ráði þar fáfræðinni. Að hugsun- in bakvið aðgerðarleysið sé að best sé að vita sem minnst af þessu fólki, það geti alveg verið óánægt aðeins jengur, a.m.k. út kjörtímabilið. Ur- bótaleysi stjórnvalda vekur aðra spurningu; hvort í raun sé einhver vilji fyrir hendi til að bæta aðstæð- ur starfsfólks og sjúklinga? Sé sá vilji fyrir hendi - hverra hendur eni þá bundnar og af hverjum? Höfundur er hjúkrunarfræðinemi við Háskóla ískimls. ÞVÍ MIÐUR hefur allt of lítið verið rætt um félagsleg og efna- hagsleg áhrif stóriðju í tengslum við virkjana- og stóriðjuáform á Austurlandi en telja má víst að þessi áhrif móti viðhorf margra til verkefnisins í heild. Það sást glögglega í skoðanakönnun sem gerð var fyrir verkefn- isstjórn STAR í haust því rúmlega 86% töldu að stóriðja leiddi til aukins fólksfjölda á Austurlandi og rúm- lega 2 af 3 töldu hana leiða til hærri launa á Austurlandi. Það vill svo til að virkjanir og stór- iðja á Austurlandi eru samhangandi þættir. Ein viðamesta rannsókn á félags- gerð Mið-Austurlands sem fram- kvæmd hefur verið var unnin fyrir verkefnisstjóm STAR veturinn 1997/1998. Þar var um að ræða mat á félagslegum og efnahagslegum áhrifum álvers í Reyðarfirði og byggist þessi grein á þeirri vinnu að miklu leyti. Verkið var unnið þannig að ráðgjafar frá Nýsi hf. og kanadískur ráðunautur höfðu um- sjón með verkinu, en einnig voru aðrir sérfræðingar tilnefndir. Sá sem þetta skrifar var tengiliður rann- sóknarinnar á Austurlandi. Þótt skýrslan sé ekld tilbúin til dreifingar liggur bráðabirgðaniðurstaða fyrir og hún þykir jákvæð bæði fyrir sam- félagið á Austurlandi og fyrir álver. Viðhorf margra til virkjana og stóriðju kann að mótast af íbúaþróun síðustu ára. Fólksfækkun á síðustu árum hefur aðallega átt rætur sínar í því að ungt menntað fólk leitar burt í leit að atvinnu við hæfi. Nú er svo komið að ef engar róttækar breyt- ingar verða á atvinnulífi Austurlands þá fækkar fólki á Austurlandi um 25% á næstu 10 árum. Þetta stað- festir nýleg skýrsla Stefáns Ólafs- sonai- fyrir Byggðastofnun. Þetta er því miður enginn hræðsluáróður. Þetta er staðreynd og allt tal um annað er óábyrgt í þessu sambandi. I fréttum nýlega var sagt frá því að fólki fækkaði alls staðar á landinu annars staðar en á höfuðborgar- svæðinu fyrstu 9 mánuði ársins og fólki fækkaði mest á Austurlandi. Hins vegar er hægt að ráðast í rót- tækar aðgerðir og með tilkomu stór- iðju er hægt að snúa þessari þróun við. Austurland getur hæglega tekið við fólksíjölgun samfara álveri, ekki síst í ljósi fækkunar síðustu ára. Störf í álveri Starfsumhverfi í álveri hefur tek- ið miklum breytingum á undanforn- um árum með tæknibyltingu í iðn- aði. I hátækniiðnaði eins og áliðnaði eru 44% starfsfólks iðnmenntuð en 48% eru háskólamenntuð, tækni- menntuð og framhaldsmenntuð, alls 92%, en 8% vinnuaflsins ófag- lærð. Af þessu leiðir að flestir verkamenn eru fagmenntaðir og sérhæfing í störfum er nokkuð mik- il. Eins og vinnumarkaðurinn á Austurlandi er í dag þá eru um 60% starfsfólksins ófaglærð. Samkvæmt vinnumarkaðskönnun sem gerð var sem hluti af mati á félagslegum og efnahagslegum áhrifum þá er faglært fólk á Austurlandi um 30% af vinnuaflinu og er það þá skil- greint mjög vítt, þ.m.t. iðnaðar- menn, skipstjórar, vélstjórar, mat- sveinar, bændur, menntað fisk- vinnslufólk, verslunarmenntað fólk, sjúkraliðar, leikskólakennarar og grunnskólakennarar. Fyrir sum þessara starfa er krafist há- skólamenntunar í dag en háskólamenntað fólk á Austurlandi er talið vera um 5-10% vinnuaflsins. Iðnferli í nútíma ál- veri eru að mestu tölvustýrð og líkamlegt erfiði heyrir sögunni til og ekkert því til fyrir- stöðu að álverið verði vinnustaður fyrir kon- ur jafnt sem karla. Störf í álverum eru auk þess vel launuð og reynslan sýnir að þau eru afar eftirsótt. Sem dæmi má nefna að þegar álverið á Grundar- tanga auglýsti eftir fólki þá voru 10 um hvert auglýst starf. Efnahagsleg áhrif Helsti viðræðuaðili okkar Islend- inga, Norsk Hydro, hefur sagst ætla að halda fjölda fastra starfs- manna í lágmarki. Þeir vilja sér- hæfa sig sem mest þannig að öll starfsemi sem ekki tengist beint framleiðslu áls verður keypt af heimamönnum. Annars staðar hef- ur fyrirtækið lent í því að reka alls konar þjónustu sem kemur fram- leiðslunni ekkert við s.s. matvöru- Bráðabirgðaniðurstaða um mat á félagslegum og efnahagslegum áhrifum álvers í Reyð- arfirði liggur fyrir, segir Magnús Asgeirs- son, og þykir hún já- kvæð bæði fyrir samfé- lagið á Austurlandi og fyrir álver. búðir og vill forðast slík umsvif. Ál- ver þarf töluverða aðkeypta þjón- ustu, t.d. þjónustu rannsóknarstofa, tækniþjónustu og ráðgjöf, mat- sölu/mötuneyti, þrif, garðyrkju, ol- íuviðskipti, tölvu- og upplýsinga- tækni, slökkvilið og sjúkraþjónustu, endurhæfingu, umhverfisþjónustu og endurskoðun. Þjónustuframboð á Austurlandi ætti að vera svipað og annars staðar á landinu og flest stærri fyrirtæki á svæðinu bjóða út þjónustu að einhverju leyti. Álverið mun hafa jákvæð áhrif á önnur fyr- irtæki sem þurfa e.t.v. að kaupa samskonar þjónustu, og það mun efla verulega þau fyrirtæki sem gætu þjónustað báða aðilana. Þetta mun í sjálfu sér leiða til mikils hag- vaxtar og því er þróunin ekki fyrir- séð, mörg fyrirtæki geta sprottið upp með tiikomu álvers og því kann þjónusta að aukast verulega miðaða við hvernig hún er í dag. I dag ganga hugmyndir um áfangaskiptingu álvers í Reyðar- firði út á eftirfarandi: I. áfangi - 2003-2005 (120.000 t.) Heildarfjárfesting 33 milljarðar II. áfangi - 2006-2010 (240.000 t.) Heildarfjárfesting 59 milljarðar III. áfangi - 2011-2013 (120.000 t.) Heildarfjárfesting 28 milljarðar Fjárfesting alls 120 milljarðar SKOÐUN Sigurður Harðarson FELAGSLEG OG EFNAHAGSLEG ÁHRIF ÁLVERS Magnús Asgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.