Morgunblaðið - 11.12.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.12.1998, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yinnuveitendasambandið gagnrýnir uinmæli framkvæmdastjóra Verðbréfaþings Spádómar um verðþróun hefðu getað valdið tjóni ÞÓRARINN V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands Islands, hefur sent stjóm Verðbréfaþings Islands bréf þar sem kvartað er yfír því hvernig framkvæmdastjóri Verðbréfaþings blandaði sér í umræðu um efna- hagsleg áhrif dóms Hæstaréttar í kvótamálinu með spádómum um það hver yrði líkleg verðþróun á hlutabréfum í sjávarútvegsfyrir- tækjum. I bréfínu segir að sú umræða sem spannst um efnahagsleg áhrif dómsins á stöðu sjávarútvegsins, og þá meðal annars á verðmæti eignarréttinda í sjávarútvegsfyrir- tækjum, hafi verið eðlileg. Hins vegar hafí forsvarsmenn nokkurra af aðildarfyrirtækjum VSI lýst áhyggjum vegna ummæla fram- kvæmdastjóra Verðbréfaþings Is- lands, því almennt sé sá skilningur ríkjandi að starfsmenn Verðbréfa- þingsins eigi ekki að vera áhrifaað- ilar á verðþróun hlutabréfa með spádómum um það hvort þau kunni að lækka eða hækka. Traust at- vinnulífsins á Verðbréfaþingi sé mjög undir því komið að þessara reglna sé gætt, þannig að starfs- menn þingsins blandi sér ekki inn í umræðu um verðmyndun eða hugsanlega verðmyndun á hluta- bréfum þeirra fyiártækja sem skráð eru á þinginu. Hafði örugglega áhrif á verðþróun hlutabréfa Þórarinn sagði í samtali við Morgunblaðið að ummæli fram- kvæmdastjóra Verðbréfaþingsins hefðu örugglega haft einhver áhrif á verðþróun hlutabréfa í sjávarút- vegsfyrirtækjum, en þau hefðu hins vegar ekki orðið mikil eða langvarandi. „Eg hygg að menn á markaði gangi út frá því að stjómvöld muni gera þær ráðstafanir gagnvart lög- gjöfínni að þetta breyti ekki í grundvallaratriðum rekstrarfor- sendum sjávarútvegsins. En það mátti skilja það af ummælum for- stöðumanns Verðbréfaþingsins að það væri miklu meira að vænta, þannig að þessi ummæli hefðu get- að bakað mönnum tjón. Það eru þess vegna mjög eindregin tilmæli okkar að þess verði gætt að starfs- menn Verðbréfaþingsins taki ekki að sér að hafa uppi slíkt mat. Það er alveg örugglega ekki þeirra hlutverk," sagði Þórarinn. Stöðvarfjörður Rannsaka meðferð á rottueitri LÖGREGLAN á Stöðvarfírði hefur til rannsóknar meint brot á reglum um meðferð rottueit- urs. Málið kom til lögreglu í gær í kjölfar þess að hundur drapst en talið er að hann hafí komist í eitrið. Lögreglan sagði að ekki hefði verið rottufaraldur í bænum en kvikindin hefðu látið sjá sig af og til eins og annars staðai- ger- ist. Dreift hefði verið rottueitri víða um bæinn. Rannsóknin beinist að því hvort reglur um meðferð rottueiturs hafi verið brotnar á þann veg að ekki hafí verið gengið nógu tryggilega frá eitrinu þar sem því var dreift. Efninu hafði m.a. verið dreift í grjótvarnagarð við höfn- ina og það borist út úr honum. P a sænskum kalkúnum SALA hefst á 4,5 tonnum af sænskum kalkúnum í verslunum Nóatúns í dag. Nóatún hefur boðið til sölu ýmsar innfluttar kjötvörur, svo sem heila kjúkiinga og kjúklingabringur frá Svíþjóð, nautalundir, skinku og beikon frá Danmörku og er innflutningurinn í samræmi við GATT-samninginn. I frétt frá Nóatúni segir að inn- flutningurinn sé í nánu samstarfi og undir eftirliti embættis yfír- dýraiæknis. Nákvæmlega sé farið eftir öllum skilyrðum er varða fóðrun á eldistímanum, heilbrigði, verkun og frágang. Fuglunum hafí t.a.m. aldrei verið gefið vaxtarauk- andi lyf á eldistímanum og eru þeir verkaðir í samræmi við ströngustu reglur Evrópusam- bandsins um slátrun og meðferð alifugla. Kalkúnarnir verða til sölu meðan birgðir endast og er verð á hvert kg 495 kr. Happdrætti Háskóla íslands Fimm milljón- ir til þriggja DREGIÐ hefur verið í Happ- drætti Háskóla Islands og kom hæsti vinningur á miða númer 20186. Þrír miðar voru seldir með númerinu og hlaut eigandi hvers þeirra fímm milljónir í sinn hlut. Miðarnir þrír voru seldir á Blönduósi, Dalvík og í Reykjavík. Að auki kom einn- ar milljónar króna vinningur á miða seldan í Reykjavík. Morgunblaðið/Golli Afskipti ESA eru enn ekki orðin formleg Borgin skreytt SÍFELLT fleiri skreyta híl)ýli sín og nánasta umhverfi eftir þvi' sem nær dregur jólum og jólaljósin og annað skraut lífgar óneitanlega upp á höfuðborgina líkt og annað byggl ból á land- inu nú í svartasta skammdeg- inu. Menn þurfa reyndar að hafa misjafnlega mikið fyrir því að koma jólaljósunum á sinn stað og það getur verið vanda- samt að klæða hávaxinn trjá- gróður í húsagörðum í hátíðar- búning. EFTIRLITSSTOFNUN EFTA, ESA, hefur ekki fengið staðfest við- brögð íslenskra stjórnvalda við at- hugasemdum sem stofnunin gerði vegna skattaafsláttur vegna kaupa á hlutabréfum í íslenskum fyrirtækj- um. Afskipti ESA vegna málsins teljast ekki vera orðin formleg enn þar sem einungis var um að ræða svonefnt „pre-bréf‘ sem stofnunin sendi ríkisstjórninni. Talsmaður ESA segir að stofnunin eigi eftir að fá öll rök málsins í hend- ur. Beðið sé eftir svari íslenskra stjórnvalda og ekkert verði aðhafst í málinu fyrr en það hefur borist. Tæknileg framvinda þessara mála er í raun í þremur stigum. Bréf það sem stjórnvöldum barst frá ESA, svonefnt „pre-bréf“, er undanfari formlegs athugasemdabréfs sem sent er ef stofnunin fellst ekki á rök í fyrsta svari eða ekkert svar berst. Venjulegur svarfrestur við „pre- bréfí“ er einn mánuður en tveggja mánaða frestur er veittur til að svara athugasemdabréfi. Telji ESA i'ök ekki fullnægjandi í svari við athuga- semdabréfi sendir stofnunin rökstutt álit sitt og veitir tveggja mánaða frest til andmæla. Sé því ekki sinnt eða rök ekki fullnægjandi að mati ESA er málinu vísað til Evrópudómstólsins. Sérblöð í dag Örn Arnarson á möguleika á EM/C1 ••••••••••••••••••••••••••• Arnór Guðjohnsen og útihlaupin/C4 ; Fylgstu ■ með S nýjustu t fréttum www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.